Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JUNÍ 1977 Útgerðarmenn — Skipstjórar SÍLDARREKNETASLÖNGUR FYRIRLIGGJANDI LEITIÐ UPPLÝSINGA SJÁVARAFURÐADEILD SAMBANDSINS EINSTAKLINGSRUM Hagstætt verð 16,2 milljóna hagn- aður hjáSJÓVÁ í FRÉTTATYLKINNINGU frá Sjóvátryggingafélagi íslands seg- ir frá aðalfundi félagsins en hann var haldinn fimmtudaginn 16. júní s.l. Fundarstjóri áðalfundar 58. starfsárs Sjóvá var Benedikt Blöndal, hæstaréttarlögmaður. Framkvæmdastjóri félagsins, Sigurður Jónsson, flutti skýrslu um starfsemi félagsins og skýrði reikninga þess fyrir árið 1976. Ileildarhagnaður varð á rekstri félagsins er nam 16,2 milljónum króna. Heildartekjur af iðgjöld- um voru 1865 milljónir og höfðu aukizt um 576 milljónir frá árinu 1975, eða um 45%. Tjón ársins námu 1563 milljónum króna. í öllum frumtryggingagreinum var afkoma félagsins góð, en verulegt tap var á erlendum endurtrygg- ingum. í árslok 1976 nam trygginga- sjóöur Sjóvá 1146 milljónum króna og hafði aukizt um 384 milljónir frá fyrra ári. Sjóðurinn er fyrst og fremst til að mæta óuppgerðum tjónum frá árinu 1976 og fyrri árum. Fastráðnir starfsmenn á skrif- stofum félagsins munu nú vera 62. Stjórn Sjóvátryggingafélags- ins skipa: Sveinn Benediktsson, formaður, Agúst Fjeldsted, vara- formaður, Björn Hallgrímsson, Ingvar Vilhjálmsson og Teitur Finnbogason. Framkvæmdastjóri er Sigurður Jónsson. Enn nokkur félög eftir ÞÖTT lokið hafi verið við gerð kjarasamninga við aðildarfélög Alþýðusambands íslands er samningagerð að þessu sinni ekki lokið að fullu. Enn er sjómanna- samningum ólokið, svo og samn- ingum við farmenn og hefur ekkert miðað í þeirri samninga- gerð enn. Þá er og enn ófrágengið sam- komulag við múrara, veggfóðrara og pípulagningamenn. Enn er og eftir að semja við verkstjóra, sem eru í Verkstjórasambandi íslands og Verkstjórafélaginu Þór, en þessir tveir aðilar hafa sameigin- legan launataxta. Þá er einnig eftir að ganga frá samningum við Blaðamannafélag íslands, og enn er ekki lokið samningum í ríkisverksmiðjun- um. Spegill og kommóða Hagstætt verð VorumerkaDurjnn hf ÁrmúlalA, sími86112 ■ „Kvenfélag Borgarness sendir þakkir ö/lur þeim. er minntust 50 ára afmælis þess, med heim- sóknum, gjöfum og heillaóskum 7. júní s.l. Stjórnin. Nylonúlpur nýkomnar Verð kr. 4000.00. Gallabuxur frá kr. 2.900. Skyrtur kr. 1.875.00. Bómullarbolir frá kr. 625.00. Leðurlíkijakkar kr. 5.500.00. Andrés, Skólavörðustíg 22. w I Hofi' fáið þið mesta úrvalið af prjóna- og heklugarni Höfum á milli 30 og 40 mismunandi tegundir og nokkrar gerðir á útsölu. Nýjar sendingar af hannyrðavörum. — Hvergi betra verð — HOF Ingólfsstræti 1 (á móti Gamla bíói) Thomas Jennefelt Hjálmar H. Ragnarsson Tónlist að Kjarvals- stöðum Þriðju tónleikarnir á tónlistarhátíð æskumanna voru haldnir s.l. mið- vikudag að Kjarvalsstöðum. nánar tiltekið á ganginum fyrir framan sýn- ingarsal meistara Kjarvals. Tón- leikarnir, sem voru mjög vel sóttir, hófust á verki sem flytja átti á tön- leikunum daginn áður og heitir Rubato, eftir Jukka Tiensuu. í efnis- skrá er verkið sagt vera æfing fyrir hvers konar hljóðfærasamsetningu. Verkið er einfalt 1 formi, sem mætti Ukja við lítið rondo. Al-kaffinn er byggður á þröngu tónferli f mjög lokuðum hljómum. B-kaflinn er opn- ari, þar sem lltið stef færist milli hljóðfæra. A2-kaflinn er byggður á sama hátt og A1. en I C-kaflanum greinist tónferlið ■ órólegar skala- eftirlfkingar og leiðir yfir í A3 , sem er lokað tónferli F mjög hárri tón- stöðu og lýkur verkinu á nokkurs konar kadensu, þar sem hljóðfærin sameinast hljóðlega á einum niður- lagstóni, eins og I upphafi verksins. Höfundur þessa vel byggða verks er finnskur og á að baki nám við Sibelfusarakademfuna, Juilliard skólann f New York og Tónlistarhá- skólann f Freiburg og hefur, sem pianó- og cemballeikari, haldið tón- leika vfða um lönd. Það má heita furðulegt á svona tónlistarhátfð, að ekki skuli meira ganga úrskeiðis en gert hefur það sem af er og á þessum þriðju tónleikum hátfðarinnar þurfti að gera breytingar á efnisskrá og fella burt tvö tónverk, flautuverk eftir Lars Bisgaard og Trio eftir Rolf Inge Godöy. Það verk sem næst var tekið fyrir ber nafnið Decending Music og er byggt á „Fallandi" stefi, sem er notað sem uppistaða f fjórum þáttum og nefndir eru morgunn, sfð- degi, kvöld og nótt. j efnisskrá, segir tónskáldið, að þættirnir fjalli um hugarástand manna á mismunandi tfmum sólarhringsins og er fallandi tónhreyfing, að hans dómi. einkenn- andi fyrir mannlegt hrifnæmi. ís lenzku verkin voru eftir Hjálmar Ragnarsson og Jónas Tómasson. Eft- ir Hjálmar var fluttur þáttur fyrir strengjakvartett og sónata fyrir fa- gott og harpsikord eftir Jónas. Það verður að segjast eins og er. að þessi fagott sónata var hundleiðinleg og einstaklega ómúsikölsk aðallri gerð. ‘^Rjómaís

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.