Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 24. JUNI 1977 11 unni, sem kveikir á þúsundum rafljósa. Þá er orðræðan krydduð Króksarakýmni, fyndni og ein- stæðum eftirhermu-innskotum. Hann kann líka lagið á að herma eftir blæbrigðum íslenzkrar nátt- úru með penslinum án þess að vera væminn og ljósmyndalegur. Hann er skáldlegur málari stemmningar og skemmtilega ís- lenzkur í litatónbrigðum. Á það nú orðið jafnt við um pastei og olíuliti. En ég held, að honum hafi verið of tamt að meðhöndla þá liti á of líkan hátt áður fyrr. En nú er slíkt aðskilið svo að ekki hallar lengur á um gæðin, hvor sem lita- miðillinn er. Ég held að fáir ís- lenzkir málarar hafi komizt lengra i meðhöndlun pastels en hann. Ég gleymi seint fjörinu og söngnum við Steinstaðalaug i Skagafirði í byrjun kreppunnar þegar ég var þar i sveit á Nauta- búi undir Mælifellshnjúki sem smápolli. Þetta var á landsbrugg- árunum frægu. Þá komu Skag- firðingar þar saman um flestar helgar þeysandi á vökrum gæð- ingum á rasspelaskyttiríi og stilltu saman raddir sinar eins og söngelskir kósakkar. Þegar lita- gleði Jóhannesar Geirs nær hvað hæst og samstilling lita hans hljómar, minnir það mig á liðinn klið bergvatnstærra skagfirzkra söngradda eins og þegar Skagfirð- ingurinn Stefanó íslandi var á hátindi listar sinnar. Gæðingarnir og merarnar hafa komið hreyfing á sálarlíf Skagfirðinga og stuðlað að frjálsmannlegum brag, félags- anda og sönggleði, þessara skemmtilegustu sveitamanna landsins, svo að jaðrar við heims- borgaramennsku á stundum. Ég óska þessum sérstæða, skag- firzka og skemmtilega listamanni til hamingju með daginn, sem og bráðefnilegum syni hans, Geir, er leggur stund á rafmagnsverk- fræði í Lundi, með ósk um að málarinn springi aldrei á limm- inu I list sinni eins og sumir söng- fuglarnir við Steinstaðalaug forð- um daga. Megi skínandi sól listar hans fara sí hækkandi, hátt, hátt yfir Tindastól og Glóðafeyki. Örlygur Sigurðsson. Flokkur frá Konunglega danska ball- ettinum hér um helgina HÓPUR listdansara frá Konunglega ballettinum I Kaupmannahöfn kemur til landsins um helgina og heldur tvær sýningar I ÞjóSleikhúsinu. á laugardags- og sunnudagskvöld. í hópnum eru 8 dansarar, þar á meSal nokkrir fremstu sólódansarar Kon- unglega ballettsins, sem er eins og kunnugt er einn af virtustu ballett- um veraldar um þessar mundir og kemur hann hér viS á leiS vestur um haf til Bandarlkjanna. í hópnum sem hingað kemur eru Frank Andersen, Ib Andersen, Dinna Björn, Anne Marie Dybdal, Niels Kehl- et, Eva Kloborg, Hans Jacob Kölgaard og Lise Stripp. Af fjórum balletturr. sem flokkurinn sýnir hér eru þrlr eftii August Bournonville, ballettmeistara dansflokksins é slðustu öld og dansa- höfund, sem hóf Konunglega danska ballettinn til þess vegs og virðingar, sem hann hefur notið allt fram á þenn- an dag meðal unnenda listdans Fjórða verkið sem flokkurinn flytur er nútlma- ballett eftir Hans van Manen við tónlist Saint-Saéns. CROWN RADIO CORP. japan Verð: 109.860. NÓATÚNI, SÍMI 23800.\BU£>IRNAR KLAPPARSTÍG 2-6, SÍMI 19800 / CROWN Til er fólk, sem heldur að því meir, sem hljómtæki kosta þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið „betra" þýðir að þér getið spilað fyrir allt nágrenmð, án björgunar. Crown framleiðir einnig þannig hljómtæki. En við höfum einnig á boðstólum hljómtæki, sem uppfylla allar kröfur yðar um tæknileg gæði. LAUSNIN ER <S3S52B^SHC 3150 sambyggðu hljómtækin. Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma allar kröfur yðar. Crown sambyggðu tækin eru mest seldu stereotæki lands- ins. Ef það eru ekki meðmæli, þá eru þau ekki til. Árs ábyrgð og fullkomnasta viðgerðaþjónusta landsins Einnig fást Crown SHC3330Verð 131.179.- SHC 3220. Verð 157.420 - SHC — 3150 ALLT í EINU TÆKI Magnari fjögurra vidda stereo magnari 12.5 W + 12.5 wött gerir yður kleifi að njóta beztu hljómgæða með fjögurravídda kerfinu. Plötuspilari fullkominn plötuspilari, allir hraðar, vökva- lyfta, handstýranlegur eða sjálfvirkur, tryggir góða upptöku af plötu. Segulband Hægt er að taka upp á segulbandið af plötuspih aranum, útvarpinu og gegnum hljóðnema, beint milliliðalaust og sjálfvirkt. Segulbandið er gert fyrir allar tegundir af cassettum, venjulegar og Crowndioxið Útvarp Stereoútvarp með FM- lang- og miðbylgju Ákaf- lega næmt og skemmtilegt tæki. Chafne Stéréo Stereo-Musikanlage

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.