Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JUNÍ 1977
Yfírgnæfandi meirihluti
með nýju samningunum
MIKIL fundahöld voru í
gærkvöldi hjá verkalýðs-
félögunum, þar sem kjara-
samningarnir voru bornir
undir atkvæði. í þeim
atkvæðagreiðslum, sem
Mbl. hafði haft fréttir af,
þegar það fór í prentun,
voru samningarnir sam-
þykktir með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Þá
samþykktu vinnuveitend-
ur á Suðurnesjum að
greiða kaup samkvæmt
nýju samningunum frá og
með mánudeginum.
Verzlunarmannafélag Reykja
Framhald á bls. 18
Góðar
heyskap-
arhorfur
„VIÐ byrjuðum að slá á mánu-
daginn og mér virðist spretta
heldur betri en var í fyrra,“ sagði
Páll Ólafsson, Brautarholti á
Kjalarnesi, I samtali við Mbl. I
gær.
„Þeir eru nú ekki byrjaðir í
venjulegum heyskap hér í kring,“
sagði Páll. „En það er ekki langt í
þá.
Ætli þeir, sem byrja í vothey,
fari ekki að hreyfa sig upp úr
helginni, en hinir, sem þurrka,
biða ef til vill enn um sinn eftir
þurrki."
Páll sagði, að ekki væri orð á
gerandi um nýtt kal nú. Þetta
væru einstaka blettir í nýrækt-
inni og annað ekki.
„Ég er nú nýkominn úr ferða-
lagi um Norðurland og mér sýnist
sprettan ósköp svipuð á öllu svæð-
inu frá Melrakkasléttu í Borgar-
fjörð,“ sagði Árni G. Pétursson
hjá Búnaðarfélagi íslands. „Ætii
það séu ekki svona 10 dagar til
hálfur mánuður í almennan slátt,
ef sprettutíð helzt góð.“ Arni
sagði, að kuldakast í júníbyrjun
hefði dregið mjög úr sprettu
norðanlands. Hann kvaðst ekki
hafa séð mikið af nýju kali á ferð
sinni og virðist það vera mun
minna en undanfarin ár.
„Það hefur moksprottið á
Suðurlandi síðustu dagana," sagði
Valur Þorvaldsson á Selfossi.
„Þeir munu hafa byrjað að slá á
Þorvaldseyri strax þann 16. júní
og eitthvað var borið niður i
Gunnarsholti í gær, en útlit er
fyrir að sláttur hefjist í kring um
mánaðamótin.“
Valur sagði, að vorið hefði verið
frekar kalt, en svo hefði komið
þurrkakafli, og hefði áhrifa hans
verið farið að gæta í lokin. Siðan
hefðu hlýindi og úrkoma
og hefði grasið þá þotið upp,
þannig að útlit væri gott þessa
dagana. Að sögn Vals er ekki um
nýtt kal að tala á Suðurlandi.
Laxá í Aðaidal
Mikil veiði er áfram á Laxá í
Aðaldal og í gærmorgun var
mikil ganga í ánni að sögn
Helgu Halldórsdóttur ráðskonu
í Vökuholti. Komu þá 13 laxar á
tvær stangir og fékk Örn
Snorrason 7 þeirra. Settu veiði-
mennirnir í fjölmarga aðra
laxa, sem þeir misstu. Reytings-
veiði er einnig í uppánni, sem
er óvanalegt fyrir Laxá á þess-
um tíma, en menn mínnast þess
ekki að veiðitiminn hafi byrjað
jafn glæsilega. Á hádegi i gær
voru komnir á land um 210
laxar, stærsti laxinn var 20
pund, tveir 19 punda og nrargir
16—17 punda. Frá 20. þ.m. hef-
ur verið veitt með 12 stöngum á
svæði Laxárfélagsins en 4
stöngum frá 10. júní.
Norðurá
Ingibjörg ráðskona í veiði-
heimilinu við Norðurá sagði
okkur að þar hefði veiði glæðst
nokkuð og í gærmorgun koniu y
20 laxar á land á 10 stangir.
Sagði hún að veiðimenn væru
mjög ánægðir með lífið og til-
veruna, gott vatn væri og tölu-
vert mikill lax genginn. Um 250
laxar voru komnir á land á há-
degi flestir vænir fiskar. Um
hádegið gerði húðarrigningu og
sagði Ingibjörg að hætta væri
að að áin yrði mórauð ef ekki
stytti upp fljóílega.
Langá á Mýrum
Veiði hófst á Langá 15. júní
og var hún dræm fyrstu vikuna,
aðeins um 40 laxar á 12 stangir.
15 laxar fengust á neðsta svæð-
inn fyrsra^ veiðidagimr, eir*þá
veiddust einnig tveir lúsugir
laxar uppi 1 Sveðjuhyl, höfðu
farið 15—16 km vegalengd á
innan við sólarhring. Var það
Halldór Snæiand, sem fékk þá,
slyngur veiðimaður sem fær
fisk á svæðum, sem aðrir eru
búnir að berja- rétt á undan
honum, án þess að verða varir.
— ihj.
Rútan stór-
skemmdist
vid veltuna
Þessar myndir eru af rútunni, sem valt með 46 þýzka
ferðamenn móts við Aratungu í Grímsnesi á miðviku-
dag. Til vinstri sést rútan á hliðinni, en hin myndin, sem
er tekin eftir að tekizt hafði að koma rútunni upp á
veginn aftur, sýnir vel þær skemmdir, sem urðu við
veltuna.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands:
Stjórnin athugi möguleika á úr-
sögn úr Vinnuveitendasambandinu
Ekki til góðs að segja sig úr VSÍ, sagði Jón H. Bergs
AÐALFUNDUR Sláturfélags
Suðurlands, sem haldinn var í
Revkjavík 1 gær, samþvkkti álykt-
un þess efnis að stjórn félagsins
yrði falið að athuga möguleika á
því að segja sig úr Vinnuveit-
endasambandi Islands svo fljótt,
sem reglur þess leyfa. Þá segir í
ályktuninni að jafnframt verði
leitað eftir aðild að Vinnumála-
sambandi samvinnufélaga, ef
stjórnin telur hagkvæmara og
eðlilegra að vera í einhverju
vinnuveitendasambandi. Álykt-
unin var samþykkt með öllum
þorra atkvæða gegn 7. Ályktun
þessi var borin fram af Magnúsi
Finnbogasyni á Lágafelli og 52
öðrum kjörnum fulltrúum á
fundinum en alls voru fulltrúar á
fundinum 88. Jón II. Bergs, for-
stjóri Sláturfélagsins og formað-
ur Vinnuveitendasambandsins
sagði á fundinum að hann teldi
það ekki til góðs fyrir Slátur-
félagið að draga sig út úr Vinnu-
veitendasambandinu, félagið
væri stór vinnuveitandi og með
þátttöku I Vinnuveitendasam-
bandinu gæfist tækifæri til að
hafa áhrif á gang ýmissa mála,
sem að öðrum kosti kynni að
reynast erfiðara.
Magnús Finnbogason á Lága-
V öruskipta jöf nuður:
Hagstæður uml,3
milljarða króna
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR
landsmanna var hagstæður fyrstu
5 mánuði ársins um 1.306.3 mill-
jónir króna, en á sama tíma 1
fyrra var hann óhagstæður um
3.890.9 milljónir króna. í maí-
, mánuði nú varð hann hagstæður
um 1.323.8 milljónir en í fyrra
um 132.9 milljónir króna.
Otflutningur fyrstu 5 mánuðina
nú varó rétt tæplega 40 milljarðar
króna, en innlutningur 38.6 mill-
jarðar. Utflutt ál og álmelmi nam
6.6 milljörðum, en aðföng til Is-
lenzka álfélagsins h.f. voru fyrir
andvirði 2.4 milljarða króna. Við
samanburð við tölur frá í fyrra
verður að hafa í huga að meðal-
gengi erlends gjaldeyris er nú tal-
ið vera 9.8% hærra en 1 fyrra.
Hallinn á fyrstu 5 mánuðum árs-
ins í fyrra er þvi samkvæmt þvi
4.371 milljón króna.
felli mælti fyrir ályktuninni og
sagði hana flutta í framhaldi af
því að á aðalfundi Mjólkurbús
Flóamanna í apríl sl. hefði komið
fram, að Vinnuveitendasamband-
tð hefði lagt til við fjárhags- og
vióskiptanefnd Neðrideildar
Alþingis í álitsgerð um skatta-
lagafrumvarpið, að framlög i
stofnsjóði féiagsmanna í sam-
vinnufélögunum ásamt vöxtum af
þeim, yrðu tekjuskattskyld hjá
félögunum um leið og framlögin í
stofnsjóðina væru skattskyld hjá
eigendum þeirra. Sagði Magnús
að þarna væri greinilega um tví-
sköttun að ræða og á aðalfundi
Mjólkurbús Flóamanna hefði ver-
ið samþykkt tillaga þess efnis, að
kannað yrði hvort ekki væri rétt
að M.B.F. færi úr Vinnuveitenda-
sambandi Islands yfir i Vinnu-
málasamband samvinnufélag-
anna. I framhaldi af þessu sagði
Magnús, að honum og þeim 52
fulltrúum, sem skrifuðu undir
ályktunina, þætti eðlilegt og sjálf-
sagt að bera fram þá tillögu sem
getið hefur verið um hér að fram-
an.
Jón H. Bergs, forstjóri Slátur-
félagsins, sgaði í umræðum um
ályktunina, ekki mætti gleyma
Framhald á bls. 18
N eitar veidum
„Nokkud langt gengið í
hækkun peningalauna’ ’
- segir forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar
„ÞAÐ DYLST engum, að þarna
hefur verið gengið nokkuð
langt 1 því að hækka peninga-
launin og þetta samkomulag
mun ábyggilega ekki draga úr
verðbólgu,“ sagði Jón Sigurðs-
son, forstöðumaður Þjóðhags-
stofnunarinnar, er Mbl. spurði
hann í gær, hver yrðu efnahags-
leg áhrif nýgerðra kjarasamn-
inga.
i viðtölum Mbl. við forystu-
menn verkalýðsfélaga og
vinnuveitendur um samning-
ana kom annars vegar fram, að
verðbólguáhrif þeirra þyrftu
ekki að verða svo mikil, „ef
skynsamlega yrói haldið á mál-
um“ og hins vegar, að mikil
verðbólga hlyti óhjákvæmilega
að koma í kjölfar samninganna
og yrði þvi aö gera ráðstafanir
strax í framhaldi af þeim. Þeg-
ar Mbl. spurði Jón, hvað hann
vildi segja um þessar fullyrð-
ingar, sagðist hann helzt ekkert'
vilja segja um málið að svo
stöddu.
„Ég þykist þó vita,“ sagði
Jón, „að þarna hafi menn talað
hver út frá sínum hagsmunum.
Ég ætla að I hópi launþega
geti ekki verið neinn sá, sem
innst inni heldur að breytingár
á peningalaunum hafi
engin áhrif á verðlagsþróun, né
heldur að hitt sé af guói gefið
að gengisbreytingar bjargi
jafnan hinum, þegar þeir hafa
skrifað undir einhverjar kaup-
breytingar."
SAKADÓMSRANNSÓKN
lauk í gær á Eskifirði í
máli skipstjórans á Drífu
SU, en varðskip kom að
bátnum á miðvikudags-
morgun með ólöglegan
umbúnað veiðarfæra á of
grunnu vatni. ;
Skipstjóri segist ekki
hafa verið á veiðum þarna,
en humartrollið var úti og
hlerar upp úr sjó. Ber skip-
stjórinn að þeir hafi verið
að ljúka við hol og hafi þeir
byrjað að hífa á löglegu
dýpi, en síðan rekið inn
fyrir. Hafi hann þá ætlað
að sigla út aftur með trollið
úti.
T'"
I
Þessi mynd var tekin frá varðskipinu, er það kom að Drífu SU á
miðvikudagsmorgun. A litlu myndinni hefur bátnum verið skipað að
halda til lands.