Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1977 FerSanefnd Varðar vinnur að undirbúningi ferðarinnar. Sumarferð Varðar á sunnudaginn HIN ÁRLEGA sumarferS Landsmálafélagsins Varðar verður að þessu sinni farin að Gunnarsholti—Skógum og Fljótshlíð sunnudaginn 26. júní n.k. Varðarferðirnar hafa notið mikilla vinsælda á undan- förnum árum og eru nú orðn- ar fastur liður hjá fjölda fólks á hverju sumri og hafa þátt- takendur skipt hundruðum Ferðirnar hafa verið vel skipulagðar og jafnan hefir verið lögð áherzla á að fá beztu leiðsögumenn sem völ er á hverju sinni. Aðalleið- sögumaður i ferðmni á sunnudaginn verður hinn kunni ferðagarpur Einar Þ. Guðjohnsen Verður komið víða við og staðir skoðaðir, sem þekktir eru fyrir bæði náttúrufegurð og sögufrægð Ferðin er öllum opin og er raunar ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna þar sem ferðin býður upp á mikla yfir- sýn á einum degi og auk þess, sem hún hefir þ: ð fram yfir samsvarandi ferð á einkabílum, að fólk getur ferðast áhyggjulaust og fyrir- hafnarlaöst i glöðum hópi. Verði farmiða er mjög í hóf stillt eins og ávallt áður, en fyrir fullorðna kostar ferðin 3 200.00 og fyrir börn 1.600.00 og innifalið í far- gjaldmu er hádegisverður og kvöldsnarl Lagt verður af stð frá Sjálf- stæðishúsinu, Bolholti 7 kl. 8 árdegis. Miðasala fer fram í Sjálf- stæðishúsinu frá kl. 9—21 í dag og laugardag frá kl. 9—12 Nánari upplýsingar i sima 82900 Regnboginn roðnaraf stolti HEMPEEs þakmálning þegar hann lítur niður á HEMPEEs □15 n og sér hve fallegum Wæbrigðum mánáúrlitumhans Nú eru fyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL’S þakmálningu. Um gæði HEMPEL’S þakmálningar þarf ekki að efast. HEMPEL'S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar f heiminum. Seltan og umhleypingarriir hér eru þvf engin vandamál fyrir sérfræðinga HEMPEL’S MARINE PAINTS. Framleiðandi á Islandi Slippfélagið íReykjavík hf Málningarverksmiðjan Dugguvogi—Simar 33433 og 33414 Bráðabirgðalög um breyt- ingu skattstiga tekjuskatts MORGUNBLAÐINU hefur borizt frétt frá ríkisstjórninni, þar sem greint er frá útgáfu bráðabirgða- laga um breytingu skattstiga tekjuskatts einstaklinga við álagningu skatta f ár. Eru lög þessi í samræmi við fyrirheit ríkisst jórnarinnar um aðgerðir til að stuðla að lausn kjaradeil- unnar. Fréttatilkynningin er svo- hljóðandi og miðast við gærdag- inn 22. júní. í dag voru gefin út bráðabirgða- lög um breytingu skattstiga tekju- skatts einstaklinga við álagningu skatta 1977. Að teknu tilliti til skattvísitölunnar 162.5, sem ákveðin var í fjárlögum, verður skattstigin sem hér segir: Hjón skulu greiða 20% skatt af fyrstu 1400 þúsund króna skatt- gjaldstekjum, 30% af næstu 600 þúsund krónum en 40% af skatt- gjaldstekjum umfram tvær millj- ónir króna. Einhleypingar skulu greiða 20% skatt af fyrstu 1 milljón króna skattgjaldstekjum, 30% af næstu 400 þúsund krónum en 40% skatt- gjaldstekjum umfram 1400 þús- und krónur. Breytingin frá fyrri skattstiga er fyrst og fremst að tekið er upp nýtt skattþrep með 30% skatti. 40% skattur reiknast því fyrst við til muna hærri tekjur en áður gilti. Breyting þessi mun létta skattgreiðslur hjá öllum þorra tekjuskattsgreiðenda, en hlut- fallslega mest hjá þeim, sem hafa lágar miðlungstekjur. Persónuafsláttur er að teknu tilliti til skattvísitölu 235.625 kr. fyrir hjón en 157.625 kr. fyrir einhleypinga. Þýzkur madrigal- kór í heimsókn FÖSTUDAGINN 24. júní kl. 20:30 verða haldnir tónleikar ( Bústaða- kirkju. Þar syngur Bodensee- Madrigalchor undir stjórn Heinz Bucher. Kórinn er á lslandi að heimsækja Háskólakórinn. Bodensee-Madrigalchor byrjaði óformlega að starfa 1968 undir stjórn hr. Buchers og æfði þá ein- göngu madrigala og kantöntur. Það voru kennarar í Bodensee- héraði sem komu saman og sungu. Brátt varð úr þessu myndarlegur kór og var hann stofnaður 1969. Þau komu fyrst fram á listahátíð- inni í Úberlingen. Söng hann þar á opnunarhátíðinni og einnig hélt hann þar hádegistónleika. Síðan hefur körinn sungið víða. bæði í Bodensee og annars staðar i Þýzkalandi. Kórinn hefur einnig ferðazt víða, m.a. til Chile, Argen- tfnu, Brazilíu og Úrugúay. Núna er kórinn á leið í tónleikaferð um Bandaríkin, en hann mun aðal- lega syngja á vesturströndinni. Leiðrétting RANGHERMT er í grein eftir Jakob R. Möller í blaðinu í gær, að Gaukur Jörundsson sé pró- fessor i stjórnskipunarréttl við lagadeild Háskóla íslands. Því starfi gegnir Gunnar G. Schram prófessor. ------------------------> er hægt að treysta litmyndir á 3 dögum. Kodak VÖRUR HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR S: 20313 S: 82590

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.