Morgunblaðið - 24.06.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JUNÍ 1977
7
Líknarsjóður
Þjóðviljans
í stökum steinum sfðast
liðinn þriðjudag er Iftillega
fjallað um „Ifknarsjóð
Þjóðviljans", sem stofna
á til að standa undir „út-
gjöldum hinna orðhvat-
ari" á því blaði, eins og
Indriði G. Þorsteinsson
rithöfundur komst að
orði. Þar var vitnað til um-
mæla nokkurra rithöf-
unda; auk Indriða, Ingi-
mars Erlends Sigurðsson-
ar, Jóhannesar Helga,
Jennu Jensdóttur og Jóns
Björnssonar, sem öll for-
dæma harðlega þá
breytni, að draga við-
kvæmt pólitfskt innan-
landsmál inn á ársfund
Norræna rithöfundaráðs-
ins, sem og að norrænir
rithöfundar hafi afskipti
af fslenskum réttarfars-
málum!
í þessum tilvitnunum
voru ummæli Ingimars Er-
lends vakin að hluta með
nafni annars rithöfundar,
sem leiðréttist hér með.
Ingimar Erlendur sagði:
„Sigurði (Magnússyni)
bar lagaleg og siðferðileg
skylda til þess sem for-
seta þessa norræna rithöf-
undaþings á íslandi að
mælast til þess eða skipa
svo fyrir sem fundarstjóri,
að þetta mál — VL-málið
— yrði ekki tekið fyrir, ef
það er rétt að hann hafi
ekki sjálfur átt frumkvæði
að endurupptöku þess.
Auk þess kann ég ekki við
að fslenskar dómsektir
séu greiddar af útlending-
um. Þá sýnist næsta stig
að flytja þangað dóms-
valdið sjálft." Ennfremur:
„Það skiptir engu máli f
þessu sambandi, hvort
menn vilja hafa erlendan
her f landi eða ekki. Held-
ur vildi ég hafa erlendan
her en selja íslenskt
dómsvald f hendur er-
lendra manna, jafnvel
þótt bræður mfnir í rithöf-
undastétt á Norðurlönd-
um ættu f hlut. íslenskir
rithöfundar verða grát-
laust að lúta íslenskum
lögum eins og aðrir
fslenskir þegnar. Það er
rökfölsun að halda þvf
fram að hér sé um að
ræða skerðingu á tján-
ingarfrelsi. Hér er einfald-
lega um það að ræða,
hvort fslenskir rithöfundar
eigi að lúta fslenskri meið-
yrðalöggjöf eða ekki.
Sóðayrði bæta ekki mál-
stað eins eða neins og eru
ekki rök f sjálfu sér. . . "
Ingimar Erlendur Sigurðs-
son rithöfundur
Fámennir
hópar og heild-
arsamningar
Jón Skaftason, meðlim
ur sáttanefndar, segir í
viðtali við Tímann f gær,
að gerðir kjarasamningar
séu „mjög djarfir". „Mér
er fyllilega Ijóst, að ein
afleiðing þeirra verður
aukin verðbólga í landinu,
en af reynslu minni í þess-
um samningum fæ ég
ekki séð að nokkur mann-
Jón Skaftason alþingis-
maður.
legur máttur hefði getað
komið í veg fyrir það. ..."
Um samningamálin f
heild hefur Tíminn eftir
Jóni Skaftasyni:
— Þá finnst mér að
stöðu sáttasemjara og
sáttanefndar þyrfti að
styrkja allnokkuð, m.a. til
að koma f veg fyrir, að
mjög fámennir hópar geti
um lengri tfma stöðvað
heildarsamninga, sem all-
ur fjöldinn hefur þegar
samþykkt.
— í gegnum þá reynslu
sem ég hef fengið af þess-
um samningum, er mér
Ijósara en áður, að það er
langtum fleira en kaupið
eitt, sem deilt er um. Á
eitt atriði vil ég minna
sérstaklega, sem hefur
verið áberandi uppi f þess-
um samningum. Það er
krafan um betri aðbúnað
á vinnustöðum. Það er
Ijóst, að launþegar eyða
stórum hluta æfi sinnar á
vinnustöðum og það Ijóst,
að launþegar eyða stórum
hluta æfi sinnar á vinnu
stöðum og það er nútfma-
leg krafa og réttmæt, að
sá vinnustaður sé gerður
eins vistlegur og aðlað-
andi og mögulegt er og að
öryggisútbúnaður sé f
góðu lagi
— Þess vegna fagna ég
sérstaklega nýgerðu sam-
komulagi um vinnuvernd,
þar sem gert er ráð fyrir
úttekt vinnustaða í land-
inu og mjög auknu og
strangara eftirliti í þeim
efnum, sagði Jón Skafta
son að lokum."
1
J
FALKINN
NÝ FRÁBÆR HUÓMPLATA!
FOLK
Þessadagana
gefst tækifæri
aðhlusta
á RÍÓ
á söngferða-
lagi þeirra
um landið.
ÁRGERÐ 1977 — VÖNDUÐUSTU
HJÓLHÚSATJÖLD í EVRÓPU — ENGINN VAFI!
FYRIRLIGGJANDI FYRIR:
EUROPA 455/74
SPRITE 400 OG ALPINE
CAVALIER 4-40GT
SVEFNTJÖLD. TOILETT TJÖLD
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 51888
Nýjasta bleian frá
Mölnlycke heitir KVIK
Hún er T-laga og er með festingum á hliðunum.
Kvik bleian er örugg þar sem hún situr rétt
á barninu, og færist ekki aftur.
Rafknúið
æfingatæki
Til sölu er rafknúið æfingahjól
með 1/2 hp. rafmótor,
sérstaklega gott til að þjálfa
handleggi, axlir, fótleggi og
bak. Sérstakar stillingar gera
það kleift að æfa handleggi
og axlir án þess að fætur
séu með. Einnig má þyngja
og létta róðurinn eftir þreki
hvers og eins. Meðfylgjandi
bæklingur inniheldur
leiðbeiningar sérfræðinga um
árangursríkasta notkun. Fram-
leiðandinn er amerískt stór-
fyrirtæki, víðkunnt fyrir fram-
leiðslu á vélknúnum sjúkra-
tækjum. Verð: Kr. 226.000.—
Til sýnis í Fálkanum,
Suðurlandsbraut 8,
kl. 10—12 f.h. 24., 27. og 28. júní.