Morgunblaðið - 24.06.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JUNÍ 1977
13
TÖNUSTARIDJ*
NORRiNNS iCSKUFÓLKS
UNG
NORDISK
MUSIK
FESTIVAL
REYKJAVlK
1977
20. 6.-26. 6.
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
j kvartettþætti Ragnars var aS
heyra ýmsar tóntiltektir sem hljóm-
uSu ágætlega, þar sem tónhugmynd-
irnar þróuSust úr hægri hreyfingu F
hraSa. frá einfaldri stefjun í þéttan
vef og lauk verkinu meS þvl aS öllum
tónmyndunaraSferSum, sem beitt
hafSi veriS fyrr I verkinu, var slengt
saman. Eftir Frank Tvevor Nordenst-
en var flutt verk fyrir rafpianó,
fagott, fiSlu og bassa, sem ber nafn-
iS „Alveg nýlega". VerkiS er á köfl-
um „jazzi" en án allra hrynrænna
tilþrifa. Jazzblærinn er aSallega
bundinn hljómbyggingunni og ein-
staka innskotum stefja. Tónleikun-
um lauk meS verki eftir 1 7 ára tón-
höfund frá Noregi. Nils Henrik
Asheim, sem hann nefnir Kammer-
leik og er ritaS fyrir tvö horn, þrjár
fiSlur, viólu, tvöcelló og bassa. brátt
fyrir aS flutningur verksins var ekki
eins öruggur og æskilegt hefSi veriS,
er Ijóst. aS hér er á ferSinni gott efrii
i tónskáld.
Jukka Tiensuu Nils Henrik Asheim
Þrír slösuð-
ust í bílveltu
í Arnarfirði
BIFREIÐ með þrem mönnum
valt Igærmorgun út af veginum
milli Lokinhamra og Svalvoga yst
í norðanverðum Arnarfirði. Bif-
reiðin lenti ofan í stórgrýtisurð,
en mennirnir í bflnum meiddust
ótrúlega lítið.
Þar sem bifreiðin fór út af heit-
ir Svalvogsbrekkur og var bíllinn
á leið í Svalvoga. F'ljótlega eftir
veltuna komu fjórir bílar á slys-
stað og var læknir i einum þeirra
og hlúði hann aö mönnunum.
Varðskip var ekki langt undan og
tók það mennina um borð og flutti
þá til Þingeyrar, þar sem þeir
voru lagðir inn á sjúkraskýlið þar
tii frekari læknismeðferðar, en
eins og fyrr segir mun enginn
mannanna vera alvarlega meidd-
ur.
Snorri B. Sigfússon
Ole Lutzow-Hoim
Tónlistariðja norræns æskufólks í dag:
10 ný verk
Kammertónleikar á tónlistarhátfðinni Ung nordisk musik
verða f dag kf. 17 I Neskirkju. Þar verður fluttur strengjakvart-
ett eftir Wayne Siegel, Xnobis fyrir fiðlu eftir Giacinto Scelsi og
Black Angels eftir George Crumb.
I dag kl. 14—16 stjórnar George Crumb umræðum um verk
ungu tónskáldanna og eru þær umræður í Norræna húsinu opnar
öllum.
Wayne er fæddur 1953 í Hollywood og ólst því upp f „Villtí
vestrinu". Hann byrjaði að nema tónsmiðar og heimspeki við
Santa Barbara-háskólann, en fluttist til Árósa 1974 og stundaði
tónsmíðanám í Józka tónlistarskólanum. 1975 lauk hann BA-
gráðu frá Kaliforniuháskólanum í Santa Barbara.
Giacinto Scelsi er fæddur 1905 og vill hvorki gefa skýringar á
tónlist sinni né láta birta myndir af sér, kveður það ekki skipta
máli hver boðberinn sé ef skilaboðin komast á annað borð til
skila.
Svartir englar George Crumbs hafa verið túlkaðir sem nokkurs
konar samlíking við róstusama veröld okkar og i myndlfkingu
hefur tónverkinu verið líkt við geysistóra bogadregna mynd sem
er dregin frá harmljóðunum þremur. Verkið táknar ferðalag
sálarinnar á þremur stigum: Brottför (glötun dyggðar), fjarveru
(andlega gereyðingu) og heimkomu (endurlausn).
Kammertónleikar f Hamrahlfð
Þá eru einnig í dag kammertónleikar i Hamrahlíðarskólanum
og hefjast þeir kl. 20.30. Þar verða leikin verk eftir Erik
Höjsgaard frá Danmörku (fæddur 1954), Kvintett eftir Snorra
Sigfús Birgisson, verk eftir Ole Lutzow-Holm frá Svíþjóð (fædd-
ur 1954), Hans Gefors frá Sviþjóð, (fæddur 1952), Magnús
Lindberg frá Finnlandi (fæddur 1958 og Ake Parmerud frá
Svíþjóð (fæddur 1953).
Erik nemur tónsmíðar í Józka tónlistarskólanum.
Snorri Sigfús lauk prófi i píanóleik frá Tónlistarskólanum i
Reykjavík 1974, en síðan hefur hann lagt stund á tónsmíðar í
Ósló.
Ole hefur einkum áhuga á að sýna fram á tengsl milli grund-
vallarlögmála tónlistar og hreyfingu mannslíkamans.
Hans hefur nýlokið námi i Árósum en hann hefur samið
nokkur verk sem hafa verið leikin á tónleikum UNM og víðar.
Magnús hefur numið píanóleik og raftónlist við Síbelíusar-
Akademíuna síðan 1974.
Ake leggur jöfnum höndum stund á tónlist, málaralist og
ljóðlist. Hann kennir við Gautaborgarháskóla.
HnGtlws
Magnus Lindberg
Ake Parmerud
(ieorge urumn
Vill snör hand-
tök til að draga
úr mengun Áburð-
arverksmiðjunnar
UMHVERFISMÁLARÁÐ
Reykjavíkur hefur skorað
á ríkisstjórnina að flýta
öllum aðgerðum, sem geta
dregið úr mengun frá
Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi.
Áburðarverksmiðjan hefur far-
ið fram á að fá að byggja nýja
sýruverksmiðju, en tæki þeirrar,
sem nú er, eru orðin gömul og
illframkvæmanlegt að setja á þau
hreinsitæki. Ný verksmiðja yrði
byggð í samræmi við ströngustu
kröfur um mengunarvarnir.
Beiðnin Iiggur hjá rikisstjórn-
inni.
Nýlegar mælingar sýndu aó við
sérstök skilyrði getur of mikið af
köfnunarefnistvioxiði borist frá
áburðarverksmiðjunni til borgar-
innar, en ný verksmiðja myndi
aðeins hleypa út litlu mágni af
þessu efni.
Umhverfismálaráð telur núver-
andi ástand áburðarverksmiðj-
unnar óviðunandi til lengdar og
leggur áherzlu á að ráðið fái að
fjalla um áætlanir um nýju verk-
smiðjuna.
koma nýjar vörur,
SPANYTT
Kjólar
Pils
Jakkar
Blússur
Mussur
ræti 14, sími 25580