Morgunblaðið - 29.06.1977, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JUNI 1977
licima
SAMKÓR VESTMANNAEYJA
Heima, hljómplata Sam-
kórs Vestmannaeyja
SAMKÓR Vestmannaeyja hefur
gefíð út hljómplötuna Heima, en
þar flytur kórinn fjölbreytt val
laga, bæði innlendra og erlendra,
undir stjórn Sigurðar Rúnars
Jónssonar. Á plötunni eru 10 lög,
en í sumum laganna leikur hljóm-
sveit með kórnum og í nokkrum
laganna syngja einsöngvarar með
kórnum einnig. Meðal laga má
nefna Heima eftir Ása í Bæ og
Oddgeir Kristjánsson, lög úr söng-
leiknum Hárinu, rússneskt vöggu-
ljóð með texta Jóhönnu G. Erling-
son, grískt þjóðlag einnig við
texta Jóhönnu. Þá er hið kunna
sjómannalag Ása I Bæ, í verum,
esluhers, eins og það var orðað.
Fulltrúi Zambíu, sem einnig á
landamæri að Rhodesíu, sagði að í
sunnanverðri Afríku væri um
þessar umdir róið að því öllum
árum að vekja upp deilur, sem
senn mundu hafa áhrif um allan
heim.
Öryggisráðið hefur ekki tekið
afstöðu til málaleitunar Mósam-
bique enn sem komið er.
— Trygginga-
bætur
Framhald af bls. 32
Þá á enn eftir að ganga frá
bráðabirgðalögum um sérstaka
heimilisuppbót á lifeyri allra ein-
hleypra einstaklinga, sem búa
einir á eigin vegum, en i fyrir-
heiti rikisstjórnarinnar um þetta
atriði var gert ráð fyrir að hún
yrði 10 þúsund krónur. Þetta atr-
iði hefur verið til umsagnar hjá
tryggingaráði, og mun hafa verið
tekið fyrir þar i gær.
— Hafnaði
dómsátt
Framhald af bls. 32
setti 1.200 þúsund króna
tryggingu fyrir sektar-
greiðslum.
Skipstjórinn krefst sýknu og til
vara að refsing verði látin falla
niður. Byggir hann mál sitt á for-
dæmi, sem Hæstiréttur veitti á
árinu 1971, en þá gerðist sam-
bærilegt atvik við Suðvesturland
á alfriðuðu svæðí, en leyfi bátsins
var bundið ákveðnum svæðum,
sem óleyfilegt var að veiða á. Svo
er einnig í máli Árna, þar eru tvö
svæði tekin fram í leyfi hans, sem
óleyfilegt er að veiða á og er þetta
svæði þar ekki tilgreint.
tvö verk eftir Sigurð Rúnar, Neið-
kvæða og Fantasía no. 2 op. 31. Þá
er einnig ljóð Jóhönnu, Engillinn
í Landakirkjugarði og Sumar-
morgunn á Heimaey, ljóð Sigur-
björns Sveinssonar við lag Brynj-
úlfs Sigfússonar. Sigurður Rúnar
Jónsson sá um útsetningu lag-
anna og einnig leikur hann á flest
hljóðfæranna. Trompettleikari er
Hjálmar Guðnason. Upptaka fór
fram í Hljóðritun í Hafnarfirói.
Guðjón Óiafsson sá um útlit
plötuumslags og skrifar m.a. alla
texta á opnu umslagsins, en
myndir tók Sigurgeir Jónasson.
Framhald af bls. 2.
Eftir setningu reglugerðarinnar
veitti ráðuneytið nokkurn um-
þóttunartíma, unz nýja möskva-
stærðin gekk í gildi, þar sem svo
margir togarar voru með óslitin
net og þótti rétt að taka tillit til
þess aukakostnaðar, sem útgerðir
skipanna þyrftu að leggja i vegna
breytingarinnar.
— Handrit
Framhald af bls. 32
og Landsbókasafnið hættu. Guð-
mundur keypti latneskt rit eftir
Eggert Ólafsson um norræn goð-
fræðileg efni á 1.900 pund, rúm-
lega 637 þúsund krónur, handrit
Jóns Erlendssonar með uppskrift-
um á Skírnismálum og Hyndlu-
ljóðum á sama verði og loks Sam-
antekt um skilning Eddu og Höf-
uðlausnarskýringar Björns Jóns-
sonar frá Skarðsá á 2.400 pund,
sem er jafnvirði rúmlega 800 þús-
und króna.
Fjórða handritið keypti Vestur-
íslendingur Vilbur Jónsson próf-
essor, en það var Háttalykill
Snorra Sturlusonar með hendi
Jóns Ólafssonar frá Grunnavík og
skýringar hans.
Af hálfu Stofnunar Árna Magn-
ússonar og Landsbókasafns ís-
lands var ákveðið að bjóða í hand-
ritin og var skipt þannig að Árna-
stofnun lét bjóða í handrit með
Edduefni, handritið, sem talið er
með hendi Jóns Erlendssonar og
handritið að verkum Jóns lærða
og Björns á Skarðsá. Landsbóka-
safnið lét bjóða i handrit Eggerts
Ólafssonar og Jóns frá Grunna-
vík. ________ , _____
— Nú skal skrifa
Framhald af bls. 32
ályktunartillaga um að hrundið
skyldi þeirri ákvörðun að fella
bókstafinn z niður úr íslenzku
rítmáli. Framhaldið varð svo að
tvö frumvörp um íslenzka staf-
setningu komu fyrir Alþingi
1975 — 76. Annað var frum-
varp menntamálaráðherra, Vil-
hjálms Hjálmarssonar, „um
Gott er að
hafa góð-
an sitjanda
Newcastle, 28. júnl. AP.
DÝRATEMJARINN Martin
Lacey notaði óvenjulega að-
ferð til að koma 1 veg fyrir að 6
Ijón slyppu út úr búri sfnu
skammt frá Newcastle I gær
eftir að það féll af vörubfl í
flutningi og gat kom á það.
Gerði hann sér lftið fyrir og
brá holdugum sitjanda sfnum
fyrir gatið og talaði sfðan ró-
andi við Ijónin f rúmar 30 mfn-
útur áður en vegfarendur
komu að og gátu kaliað á lög-
reglu honum til aðstoðar. Ekki
þurfti að taka svo mikið sem
eitt spor f buxurnar, en Lacey
mun hafa létt verulega er
hann gat staðið upp á ný.
setningu reglna um islenzka
stafsetningu" og hlaut það ekki
afgreiðslu. Hitt var þingmanna-
frumvarp um að stafsetningin
frá 1929 yrði alfarið tekin upp
aftur. Það frumvarp hlaut ekki
endanlega afgreiðslu efri deild-
ar, en menntamálanefnd deild-
arinnar visaði málinu til ríkis-
stjórnarinnar með ósk um að
menntamálaráðherra efndi til
ráðstefnu með íslenzkukennur-
um og öðrum móðurmálssér-
fræðingum, „þar sem reynt
verði að ná sem viðtækustu
samkomulagi um meginstefnu
varðandi stafsetningarreglur
og ákvarðanatöku um breyting-
ar á þeim“. í fréttatiikynningu
menntamálaráðuneytisins I gær
segir að þessi ráðstefna hafi
farið fram i október 1976 og
hafi síðan „verið rætt við mál-
vísindamenn og móðurmáls-
kennara". Framangreind breyt-
ing á reglum um stóran og lít-
inn staf er árangur þeirra við-
ræðna. Þá segir í fréttatilkynn-
ingu menntamálaráðuneytisins,
að margir virðast „hallast að
tilhögun líkri þeirri sem frum-
varp menntamálaráðherra frá
1976 gerir ráð fyrir. Verður það
frumvarp endurskoðað í sumar
og væntanlega lagt fyrir Al-
þingi í haust.
í auglýsingu menntamála-
ráðuneytisins í gær, eru settar
fyllri reglur um ritun lítils'
stafs, þannig að nú skal rita
lítinn staf I nöfnum fylgis-
manna stefna og einstakra for-
ystumanna; framsóknarmaður,
nýguðfræðingur, maóisti, og í
nöfnum trúflokka og fylgis-
manna þeirra; múhameðstrú,
húgenotti.
— 23 handteknir
í Pretóríu
Framhald af bls. 1
Ekki urðu meiðsl á mönnum í
átökum í dag, eftir þvi er næst
verður komizt. Lögreglan kom
fyrir vegatálmunum á öllum veg-
um, sem liggja út úr Soweto af
ótta við að námsmenn efndu til
mótmælaáðgerða í miðri
Jóhannesarborg. I Soweto leið
dagurinn þó án þess að til tíðinda
drægi og var skólasókn þar með
eðlilegum hætti, að sögn lögregl-
unnar.
Á undanförnum tveimur vikum
hafa 14 látið lifið og um 60 særzt i
átökum blökkumanna og lögreglu
í Jóhannesarborg og nágrenni.
— Málið átti
Framhald af bls. 32
En ráðherrann taldi sig ekki
bundinn af því. Núverandi
menntamálaráðherra lýsti því
yfir skömmu eftir að hann tók
við starfi, að hann hefði ekki
breytt stafsetningunni, ef hann
hefði verið ráðherra, þegar
breytingin var gerð. En fyrst
búið væri að gera breytinguna,
vildi hann ekki hringla með
málið. Hann hefði vitað um
vilja Alþingis, eins og hann
hefði komið fram í áiyktun og
skriflegri áskorun á mennta-
málaráðherra, en engu að síður
hefur ekkert gerzt fyrr en
núna, að einum þætti hinnar
nýju stafsetningar er breytt.
Rétt fyrir þinglok fóru þó
fram viðræður milli ráðherra,
þingforseta og þingmanna um
málið og lyktaði þeim þannig,
að málið skyldi biða þings í
haust.
Þess vegna kemur þessi aug-
lýsing alveg á óvart og hún er
ekki i samræmi við þá skoðun
menntamálaráðherra að forðast
beri hringl með stafsetningu.
Það er vissulega rétt. Það var
mikið ógæfuspor, þegar staf-
setningunni frá 1929 var
breytt, en þær reglur voru þaul-
hugsaðar og settar að beztu
manna yfirsýn. Þessar reglur
eiga í heild að taka gildi aftur.
Það eitt tryggir nauðsynlegt
samhengi í íslenzkri mál-
þróun.“
— Sovétkerfið
Framhald af bls. 2.
hópnum á flugvöllinn snemma
næsta morgun. Þegar á flug-
völlin kom spurðust íslend-
ingarnir fyrir um landa sinn
sem eftir hafði orðið. Var þeim
þá sagt að hann væri á transit-
svæðinu. Þar fundu menn hann
þó ekki. Var þá enn spurzt fyrir
um hann og var svarið þá að
hann myndi koma i transit.
Biðu íslendingarnir þá rólegir,
unz brottför vélarinnar var til-
kynnt, en þá fóru ferðalangarn-
ir enn að spyrjast fyrir um
manninn. Var þá sagt, að komið
yrði með hann út í flugvélina.
Létu íslendingarnir það gott-
heita og fóru um borð í vélina.
Þegar þeir urðu þess varir að
vélin var þéttsetin og fara átti
að loka henni, fóru þeir enn á
stúfana og spurðust fyrir um,
hvort ekki yrði beðið eftir
manninum, sem ætti að vera
með. Kom þá einhver maður
upp í tröppurnar með talstöð.
Ekki var sögumanni Morgun-
blaðsins ljóst, hvort hann not-
aði tækið, en alla vega sagði
þessi maður að landi þeirra
hefði farið með vél til Kaup-
mannahafnar um nóttina. Þar
með var dyrum vélarinnar lok-
að og urðu íslendingarnir að
láta sér þessa skýringu nægja.
Þegar komið var til Kaup-
mannahafnar var manninn þar
hvergi að finna. Var siðan hald-
ið áleiðis heim til Reykjavikur
og málið kannað nánar. Var þá
kannað, hvort hann hefði verið
á farþegalista, en hann fannst
hvergi. Fulltrúi ferðamann-
anna hafði síðan samband við
Pétur Thorsteinsson, sendi-
herra í Kina, sem búsettur er i
Reykjavík. Hringdi hann þá til
Moskvu og hafði samband við
Jón Ögmund sendiráðsritara.
Kom tilkynning síðan síðar
þann dag um að maðurinn væri
fundinn, hefði hann setið i mat-
sal transit-svæðisins á Moskvu-
flugvelli og hefói þar beðið eft-
ir flugfari. Töfin vegna þessa
varð tveir sólarhringar hjá hon-
um.
Ferðalangurinn, sem skýrði
Morgunblaðinu frá þessari
sögu, taldi að hér væri aðeins
um að kenna embættisafglöp-
um starfsmanna á Moskvuflug-
velli. „Það er eins og enginn
maður nenni að gera neitt
þarna,“ sagði hann, „hver vísar
á annan, og til þess að losna við
vandræði er eitthvað sagt út í
loftið. Maður hefur það a.m.k. á
tilfinningunni. Við vorum
teymd fram og aftur á asnaeyr-
unum og alltaf sagt eitthvað til
viðbótar, sem við gátum alls
ekki staðreynt. Vorum við þvi
algjörlega varnariaus og gátum
ekkert gert. Við tókum við öll-
um þessum skýringum og færð-
umst smám saman út í vél og þá
varð ekki aftur snúið. Þetta er
bara embættismennskan í Rúss-
landi. Þannig er hún. Helzt þarf
maður að rétta Rússunum ein-
hverja kópeka og flösku eigi
málin að ganga. Það hefur ekk-
ert breytzt hjá þeim hvað það
snertir siðan á keisaratiman-
um. Þetta þekkist hins vegar
ekki í Kina — þar er allt kiapp-
að og klárt."
— Andstæðing-
ar Ecevit
Framhald af bls. 1
Ráðherranum varð tíðrætt um
ráðstafanir til að binda enda á
óróleikaástandið i landinu, og
sagði stjórnina stefna að nýrri
lagasetningu um meðferð skot-
vopna. Þá ræddi hann um nauð-
syn þess að koma I veg fyrir af-
skipti hinnar opinberu öryggis-
þjönustu af stjórnmálum.
Ecevit sagði, að hið alvarlega
ástand i efnahagsmálum og gífur-
legur halli á utanríkisviðskiptum,
væri alfarið að kenna fráfarandi
samsteypustjórn Demirels, og
hefði þetta orðið til þess að rýra
mjög álit Tyrkja út á við. Hann
boðaði innflutningshöft til að
minnka viðskiptahallann og að-
gerðir til að afstýra því að skrif-
finnska stæði í vegi fyrir því að
útflutningur gæti gengið greið-
lega, en gerði ekki frekari grein
fyrir aðgerðum í þessu efni.
— Furðu lostinn
Framhald af bls. 32
setningarmálum fyrr en Al-
þingi kemur aftur saman í
haust.
Menntamálaráðherra bauð I
vor fram breytingar á stórum
staf og litlum, en þingmenn
höfnuðu boðinu, þar sem vitað
var, að meirihluti alþingis-
manna vildi einnig taka z aftur
upp i ritmálið. Sjálfur bauðst
ég til að fallast á að z yrði
aðeins tekin upp i stofni orða,
en ekki rituð í miðmyndarend-
ingum sagna. Lyktir urðu þær
að láta málið bíða til hausts.
Þessi auglýsing um breyting-
ar á aðeins stórum og litlum
staf er því hrein ögrun við Al-
þingi íslendinga. En þeir skulu
ekki halda það þessir menn, að
þeir komist upp með að lítils-
virða vilja meirihluta Alþingis
lengur. Mér finnst sjálfsagt að
láta reyna á það strax og Al-
þingi kemur saman, hvort skal
ráða; Alþingi íslendinga eða
ósvífnir embættismenn og ráó-
herra, sem lætur teyma sig til
að vanvirða Alþingi islend-
inga“.
— Eru þeir
að fá ’ ann
Framhald af bls. 3
Þingvallavatn
í Þingvallavatni er alltaf
veiðivon og hefur veiðin í sum-
ar verið eins og gengur og ger-
ist, allt frá þvi að vera léleg og
uppí það að vera góð. Þyngsti
fiskur sem við höfum heyrt tal-
að um i þjóðgarðinum, var
bleikja sem vó 4,5 pund og
veiddist á flugu. Veiðileyfi fást
I sjoppunni við Valhöll og kosta
500 krónur fyrir daginn.
— íþróttir
Framhald af bls. 31
1962 — Laugardalsv., ís-
land—Noregur 1—3. Mark ís-
lands. Ríkharður Jónsson, ÍA.
1968 — Laugardalsv.. ísland—
Noregur 0—4.
1969 — Þrándheimur, Noregur—
island 2—1. Mark ísiands. Ellert
B. Schram, KR.
1970 — Laugardalsv., island—
Noregur 2—0. Mörk íslands. Her-
mann Gunnarsson, ÍBA.
1971 — Bergen, Noregur—ísland
3—1. Mark íslands. Hermann
Gunnarsson, Val.
1972 — Stavanger, Noregur—ís-
land 4—1. Mark íslands. Örn Ósk-
arsson, ÍBV.
1973 — Laugardalsv.,
ísland—Noregur 0—4.
1975 — Laugardalsv., island—
Noregur 1—1. Mark íslands. Árni
Sveinsson, ÍA.
1975 — Bergen, Noregur—island
3—2. Mörk íslands. Teitur Þórð-
arson, ÍA. Jóhannes Eðvaldsson,
Holbæk.
1976 — Ósló, Noregur—ísland
0—1. Mark íslands. Ásgeir Sigur-
vinsson, Standard Liege.
— Mosambique
Framhald af bls. 1
Trollpoki