Morgunblaðið - 22.07.1977, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1977
HEYBAGGAHLEÐSLUVAGN AÐ
STÖRFUM — Baggarnir eru tfndir
upp um rennu og þaðan ganga þeir
inn á pall er lyftir þeim inn á vagn-
inn. Þar raðast þeir f stæður, en f
hverri eru 8 baggar.
Sjálfvirkur heybagga-
hleðsluvagn á markað
FYRIRTÆKIÐ Globus h/f
hefur ákveðið að hefja inn-
flutning á sjálfvirkum hey-
baggahleðsluvagni frá New
Holland-verksmiSjunum í
Frakklandi. Að sögn Árna
Gestssonar, forstjóra, er hér
á ferðinni tæki, sem kemur til
með að brúa það bil, er fram
að þessu hefur reynzt bænd-
um, sem binda hey sitt í
bindivélum, hvað erfiðast en
það er flutningur á böggun-
um af velli og að hlöðu. Vagn
þessi tínir baggana upp af
túninu, raðar þeim skipulega
á vagninn og losar þá á færi-
band við hlöðudyr. Gerir
vagninn þetta án þess að
mannshöndin komi þar nærri
nema vagninn er dreginn af
dráttarvél og henni ekur öku-
maður.
Árni sagði að Globus hefði jafnan
lagt á það áherzlu að flytja inn þau
tæki er fram kæmu erlendis sem nýj-
ungar og þættu henta hér fyrir land-
búnaðinn. Væru tækin fyrst flutt inn til
reynslu og prófunar hjá Bútæknideild
Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins
á Hvanneyri. og að þvi loknu væru
tækin sett á markað. Þannig yrði einn-
ig með þennan nýja vagn og væru nú
tveir vagnar komnir til landsins Færi
annar þeirra upp á Hvanneyri til athug-
unar en hinn væri seldur bónda austur
i Rangárvallasýslu. Árni sagði að vagn-
arnir yrðu kynntir bændum í næstu
viku en verð vagnanna er rúmlega
1 600 þuáund krónur
Fram kom hjá Árna að New Hollnad-
verksmiðjurnar I Bandarikjunum hefðu
framleitt vagna sem þessa um áraraðir
en þeir hefðu verið of stórir miðað við
aðstæður hér. Fyrir tveimur árum
hefðu New-Holland-verksmiðjurnar i
Frakklandi hins vegar hafið framleiðslu
á minni vögnum af þessari gerð og þar
sem bændur hér hefðu reynt ýmsar
leiðir við hriðingu á heyböggum með
misjöfnum 'arangri. hefði verið talin
ástæða til að hefja innflutning á þess-
um vögnum. Hver vagn af þessari
tegund tekur um 90 bagga i einu en
burðarþolið er 3 tonn
Árni sagði að góð reynsla hefði feng-
izt af heyhleðsiuvögnunum, sem væru
um margt svipaðir og það væri þvi von
sin að með þessum vagni mætti létta af
bændum þeim störfum. sem hvað erf-
iðust hefðu verið hjá þeim er binda hey
sitt, en siðasta ár hefðu verið fluttar til
landsins um 200 heybindivélar og
hefði sala þeirra aukizt með hverju
árinu.
Austurstræti 10
'sími: 27211
Sumar-
peysur
Nýjar, spennandi tegundir
• Peysujakkar, kaðalmunstur.
Verð kr. 4.490.-
• Sportskyrtur, köflóttar og
einlitar. Margar nýjar gerðir.
Verð frá kr. i.qoo.-
Buxur, terylene. Sumarlitir.
Verð kr. 6.900.-
Togarinn hef-
ur gjörbreytt
atvinnuástandi
í Sandgerði
MEÐ tilkomu skuttogar-
ans Guðmundar Jónsson-
ar varð gjörbreyting á at-
vinnulífi hér í Sand-
gerði, sem og annars
staðar, þar sem þessi
nýju veiðitæki hafa kom-
ið. Rekstur frystihúsa er
annar og betri, atvinnu-
öryggi fólks meira, þar
sem hráefni berst örugg-
ar að landi.
Guðmundur Jónsson
kom hingað inn til Sand-
gerðis í gærkvöldi með
120—130 lestir af fiski,
mest þorski, sem skipið
fékk í flotvörpu út af
Vestfjörðum. Er skipið
eitt fullkomnasta fiski-
skip í eigu Islendinga og
var það smíðað í Slipp-
stöðinni á Akureyri og
var afhent eigendum fyr-
ir réttu ári síðan. Hefur
skipið reynzt mjög vel.
Guðmundur Jónsson er
útbúinn bæði til botn- og
flotvörpuveiða. Auk þess
er hann einn íslenzkra
skuttogara jafnframt út-
búinn til nótaveiða, sem
teljast verður mikill kost-
ur, ekki sízt nú, þegar
takmarka verður sóknina
í hinn ört minnkandi
þorskstofn. Er það hug-
myndin að togarinn fari