Morgunblaðið - 22.07.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JUU 1977
13
ASI um benzínhækkunina:
Umtalsverð skerðing
á þeirri skattalækkun
sem heitið var við
gerð kjarasamninganna
Á fundi miðstjórnar Alþýðu-
sambands tslands á miðvikudag
var hækkun benzfnverðs harðlega
mótmælt með eftirfarandi álykt-
un:
„ Miðstjórn Alþýðusambands
íslands mótmælir harðlega þeirri
hækkun benzinverðs, sem ákveð-
in var formlega á fundi Verðlags-
nefndar þann 20. þ.m., en hún
felur í sér hækkun á skattheimtu
rikissjóðs af benzínsölu um kr.
5.30 pr. lítra og að auki kr. 1,07
vegna verðhækkunar og tæpar kr.
2,00 til olíufélaganna vegna
hækkaðs dreifingarkostnaðar.
Hækkunin er 8.00 pr. lítra til
neytenda.
Skattahækkunin til ríkissjóðs
mun mema hátt i 600 millj. kr. á
ári en alls nemur hækkun benzin-
verðs fast að 900 millj. kr. Skatta-
hækkunin ein fyrir sig er því um-
talsverð skerðing á þeirri skatta-
lækkun, sem ríkisstjórnin hét
launþegasamtökunum við gérð
kjarasamninganna 22. júní s.l., en
hún átti að færa launþegum
2—3% kaupmáttaraukningu.
Hér er þvi hafinn sá ljóti leikur
að taka aftur með annari hend-
inni það sem látið er með hinni og
hlýtur miðstjórn Alþýðusam-
bandsins að vara alvarlega við
slíku athæfi, sem i raun og veru
ber í sér brigð á forsendum kjara-
samninganna.
Varðandi þann hátt, sem snýr
að olíuféiögunum skal bent á að
verðlagsstjóri hefur fært rök að
því að hagnaður þeirra yrði um
560 millj. kr. á þessu ári, ef þau
fengju óhindrað að velta öllum
kostnaðarhækkunum út í verðlag-
ið. Eðlilegt hefði því verið að láta
þessi fyrirtæki bera sjálf veru-
lega stærri hluta hins hækkaða
dreifingarkostnaðar en meirihluti
Verðlagsnefndar (atvinnurek-
endur og fulltrúi viðskiptaráð-
herra) hefur ákveðið.
Það er augljóst að með þessari
skattheimtu af almenningi og
óþörfum verðhækkunum er stefn-
an tekin á að auka verðbólgu um-
fram óviðráðanleg tilefni.
Er hér mjög líkt að farið og
áður hefur verið gert með stór-
hækkun vaxta, sem nýlega hefur
verið ákveðin og mun hækka
verðlag í landinu til muna á
næstu mánuðum.
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands skorar því á ríkisstjórnina
að endurskoða afstöðu sína varð-
andi hinar stórfelldu verðhækk-
anir á benzíni, og fella þegar úr
gildi nýútgefna reglugerð um
hækkun benzínskatts og að stað-
festa ekki þá hækkun, sem meiri-
hluti Verðlagsnefndar hefur
ákveðið til olíufélaganna."
Hitaveitu Akureyr-
ar miðar vel áfram
Akureyri — 21. júlí.
VINNU við Hitaveitu Akureyrar
miðar nú mjög vel áfram, bæði
lagningu aðalæðar frá Lauga-
landi til Akufeyrar og vinnu við
dreifikerfi f þeim hverfum, sem
fyrst munu tengjast hitaveitunni.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
ars Sverrissonar, hitaveitustjóra,
munu nú að áliti jarðfræðinga
fást um 150 sek/1 af 94ra stiga
heitu vatni úr holunum á Lauga-
landi i öngulstaðahreppi þ.e.a.s.
þegar dælingu verður beitt. Þetta
vatnsmagn mun nægja til að leysa
af hólmi alla olíukyndingu á
Akureyri, og er um 60% af
varmaþörfinni alls í Akureyrar-
bæ miðað við núverandi byggð og
mannfjölda.
Hins vegar er ekki gert ráð fyr-
ir þvi að allir húseigendur sem
hafa rafmagnskyndingu, munu
vilja tengja hitaveitu við hús sfn
að svo stöddu — a.m.k. ekki þeir
sem hafa þilofna, svo að Hitaveita
Akureyrar virðist vera mjög hag-
kvæmt fyrirtæki, jafnvel þó að
ekki fengist meira vatn en þegar
er fengið.
Nú þegar er hafin leit að meira
vatni, og forborun hófst fyrir
nokkru við Grísará i Hrafnagils-
hreppi, en sá bær er gegnt Lauga-
landi vestan Eyjafjarðarár. Þar er
hafin forborun með höggbor og
siðan verður boruð þar vinnslu-
hola i tilraunaskyni.
Verkáætlun við hitaveitufram-
kvæmdirnar hefur raskazt litil-
lega vegna yfirvinnubannsins i
maí og júní, og einnig vegna þess
að áætluð flutningageta frá út-
löndum fór nokkuð úr skorðum af
sömu ástæðum, þannig að flutn-
ingi erlends efnis seinkaði nokk-
uð, og fyrir kom að skipin skyldu
efnið eftir i höfnum erlendis.
Þrátt fyrir allt eru þó þessar tafir
ekki taldar valda verulegri seink-
un á því að fyrstu húsin verði
tengd hitaveitunni, en það mun
verða nálægt næstu áramótum.
— Sv.P.
1 GÆR kom til Reykjavfkur flugvél af gerðinni De Havilland Dash 7,
sem er framleidd ( Kanada og framleiðsla var hafin á fyrir skömmu.
Þessi vél er fjögurra hreyfla og er sérstaklega byggð fyrir stuttar
flugbrautir og fullhlaðin mun hún ekki þurfa nema 700 metra braut og
ætti þvf að vera hentug við fslenzkar aðstæður. Dash 7 vélin sem hér er
nú verður f dag kynnt forráðamönnum fslenzkra flugmála.
Myndina af vélinni tók Ölafur K. Magnússon f gær.
SLATTUVELAR
Það er leikur einn að
slá grasflötinn með Norlett
■ 4
Nú fyrirliggjandi margar gerðir
á hagstæðum verðum.
|>olið e r
Veðrunarþol er einn veigamesti eiginleiki,
sem ber að athuga þegar málað er viö
íslenzkar aðstæður.
Þol — þakmálningin frá Málningu h.f.
hefur ótvírætt sannað gæði sín, ef dæma
má reynslu undanfarinna ára. Stöðugt
eftirlit rannsóknastofu okkar með
framleiðslu og góð ending auk meðmæla
málarameistara hafa stuðlað að
vinsældum ÞOLS.
ÞOL er alkýðmálning. Einn lítri fer á um
það bil 10 fermetra.
ÞOL er framleitt í 10 staðallitum, sem gefa
fjölmarga möguleika í blöndun.
ÞAKMÁLNING
SEM ENDIST
má!ninghf
ótrúlegl