Morgunblaðið - 22.07.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JULl 1977
15
Dauðadóm-
ur í Uganda
Nairohi 21. júll — AP.
SlMATÆKNIMAÐUR hefur
verið dæmdur til dauða af her-
dómstóli I Uganda, eftir að
hafa verið sakfelldur fyrir
þátttöku f samsæri um að
steypa Idi Amin forseta af
stóli, samkvæmt fregnum frá
Kampala á fimmtudag.
Herma fregnirnar að Jago
Oliwii hafi verið fundinn sek-
ur um landráð ásamt fleirum,
sem ekki komu fyrir réttinn.
Samkvæmt frétt f blaði Kamp-
alast jórnarinnar, Rödd Ug-
anda, sem kom út á miðviku-
dag og barst til Nairobi á
fimmtudag, ætluðu samsæris-
mennirnir að koma Amin frá
völdum þann 27. október f
fyrra.
Frarnhald á bls. 20.
Miss Universe 1976, Rina Messinger, óskar sigurvegaranum f ár til
hamingju með sigurinn. Hún heitir Janelle Commissing og er frá
Trinidad-Tobago. Keppnin fór fram f Dóminikanska lýðveldinu. 80
stúlkur tóku þátt f keppninni.
Stjúpdóttír
Sakharovs
vill fara
til ísrael
Moskvu 21. júlf — Reuter.
FÓSTURDÓTTIR sovézka
mannréttindabaráttu-
mannsins Andrei Sakhar-
ov hefur sótt um leyfi til
að flytja til Israel með
eiginmann sinn og tvö ung
börn.
Dr. Sakharov skýrði frétta-
mönnum, sem töluðu við hann i
sima, frá því að fósturdóttir hans,
Tanya, og eiginmaður hennar,
Yefrem Yankelevich, hafi sótt um
flutningsleyfi i síðasta mánuði og
biðu enn svars frá yfirvöldum.
Yankelevich, sem er gyðingur,
hefur hvað eftir annað verið kall-
aður til yfirheyrslu vegna bílslyss
og sambands hans við andófs-
menn. Hann er útvarpsverkfræð-
ingur, 27 ára gamall, en missti
vinnuna eftir aó hafa farið með
dr. Sakharov til að vera við réttar-
höldin yfir andófsmanninum Ser-
gei Kovalyov i desember 1975.
Eiginkona hans er jafn gömul
honum og er dóttir Velenu, seinni
konu dr. Sakharov.
Tugir látnir eda
týndir eftir flód
Johnstown, Pennsilvaniu
21. júli —AP.
AÐ MINNSTA kosti 25
manns fórust og tuga er
saknað eftir ný flóð í
Johnstown, sem átta
klukkustunda samfellt
skýfall olli. Flóðið ruddi
burt vegum og sópaði
sundur stýflugörðum.
Johnstown var þegar að
hluta til undir tveggja
metra djúpu vatni þegar
flóðin byrjuðu aftur og er
bærinn að mestu einangr-
aður. Yfirvöld segja að 13
lfk hafi fundizt í útjörðum
bæjarins, þar sem hvass-
viðri og flóð eru minni.
Margar stíflur brustu og varns-
elgur og rusl lentu á húsum í
smábæjum á svæðinu. Þegar
Laurel stiflan i bænum West
Taylor brast létust átta manns og
25 af 200 íbúum bæjarins er sakn-
að.
Carter forseti hefur lýst yfir
neyðarástandi á flóðasvæðunum í
Pennsilvaníu. Hefur hann veitt fé
til bráðabirgðahúsnæðis og at-
vinnuleysisbóta og til hreinsunar
og enduruppbyggingar héraðsins.
Laugavegl 89
Laugavegl 37
13008 12861
Hafnarstræti 17
og Glæsibæ
fil í tuskið
1 FACO er ávallt úrval fatnaðar fyrir
verzlunarmannahelgina.
Verið velkominn í FACO.
Fridur saminn
í S-Líbanon
Beirút, 21. júlf. AP.
PALESTÍNSKIR skæruliðar hafa
fallizt á skilyrðislaust vopnahlé í
bardögunum við kristna Lfbana
sem lsraelsmenn styðja f Suður-
Lfbanon að því er Palestfnumenn
tilkynntu f dag.
Tilkynning um þetta var birt
eftir fund yfirmanna Ifbanska
hersins, Viktor Khoury hershöfð-
ingja, forseta sýrlenzka herráðs-
ins, Hikmat Chebabi hershöfð-
ingja og Abu Iyad, staðgengils
Yassers Arafats, leiðtoga Frelsis-
samtaka Palestfnu, PLO.
Fundurinn var haldinn í ferða-
mannabænum Chtoura.
Palestínumenn sögðu í tilkynn-
ingu sinni að nauðsynlegt yrði að
opna þjóðvegi i Suður-Libanon til
þess að sýna góðan vilja og stuðla
að því að unnt yrði að framfylgja
Framhald á bls. 21
Washington 21. júlí—Reuter.
NU ÞEGAR opinberri heimsókn
Menachem Begin, forsætisráð-
herra lsrael, til Bandarfkjanna er
að ljúka virðist svo sem honum
hafi tekizt að sannfæra Carter
forseta og bandarfska þingmenn
um einlægan vilja sinn til að við-
ræðurnar f Genf um frið f Mið-
Austurlöndum verði teknar upp
að nýju.
Edmund Muskie, öldunga-
deildarmaður, sagðist ekki sjá
annað en að Begin óskaði þess að
viðræðurnar hæfust sem fyrst og
engin vísbending væri um að
hann vildi þvæla málið.
Annar þingmaður, Benjamin
Rosenthal, demókrati, en hann er
nýkominn frá Egyptalandi, Sýr-
landi og Jórdaníu, sagði eftir að
hafa hitt Begin að miklir mögu-
leikar væru á því að hreyfing
kæmist á málið á þessu ári og að
því verði lokið á næsta ári. Sagð-
ist hann vera sannfærður um að
Arabar fyndu leið til að veita
Palestinumönnum aðild að
Genfarráðstefnunni.
Aðild Palestínumanna að ráð-
stefnunni hefur verið helzti
þröskuldurinn f vegi fyrir því að
þráðurinn verði tekinn upp í
Genf.
Hvíta húsið sagði aó spurningin
um hvort stofna ætti ríki
Palestinumanna eins og Carter
hefur hvatt til, væri eitt þeirra
mála sem leiðtogarnir hefðu ekki
getað orðið sammála um i við-
ræðum sinum í Washington.
Begin hélt fast við afstöðu fyrri
rikisstjórnar Israel að ekki kæmi
til greina að Palestínumenn
fengju beina aðild að Genfarráð-
stefnunni. Hann sagði á blaða-
mannafundi að þeir gætu verið
hluti af sendinefnd Jórdaníu.
Begin átti að fljúga i kvöld til
New York, þar sem hann ætlaði
að hitta leiðtoga gyðinga.
Næsta skrefið í friðarumleitun-
um i Mið-austurlöndum verður
ferð Cyrus Vance, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna, til Araba-
rikja þann 1. ágúst. Hann heim-
sækir líklega Egyptaland, Sýr-
land, Jórdaníu og Saudi-Arabiu.
Carter sannfærist um
fridarvilja Begins