Morgunblaðið - 22.07.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JtJLÍ 1977
19
— Egyptar
Framhald af bls. 1
leiðtoga Frelsissamtaka Palestinu
(PLO) um að miðla málum.
Með átökunum hefur náð há-
marki hörð deila sem hefur verið
milli Egypta og Libýumanna
síðan libýski þjóðarleiðtoginn,
Muammar Gaddafi ofursti, for-
dæmdi Anwar Sadat forseta fyrir
að fallast á vopnahlé eftir októ-
berstriðið við ísraelsmenn 1973.
Til átakanna kemur í þann mund
sem Sadat beitir sér fyrir nýjum
friðarviðræðum við ísraelsmenn i
Genf.
Diplómatar segja að alvara
ástandsins fari eftir þvi hvort
framhald verði á átökunum.
Áhrif þeirra eru óljós, þótt á það
sé bent að Sadat neyðist til að
senda herlið frá austurlanda-
mærunum gagnvart ísrael til
landamæranna að Líbýu. Það
veldur furðu vestrænna dipló-
mata hve mörgum skriðdrekum
Libýumanna Egyptar segjast hafa
grandað, 40.
Egyptar sökuðu Líbýumenn i
gær um samvinnu við samtök
öfgafullra múhameðstrúarmanna
um að steypa Sadat af stóli. Eftir
aðeins tvo daga halda Egyptar
upp a zo ara atmæu Dyitingannn-
ar sem kollvarpaði konungdæm-
inu. Diplómatar segja að fram-
hald á átökunum geti haft nei-
kvæð áhrif á tilraunirnar til að
koma á friði i Miðausturlöndum
en benda á að Arabariki muni
áreiðanlega reyna að skerast í
leikinn og binda enda á átökin.
Egyptar segja að átökin i dag
fylgi i kjölfar þriggja annarra
bardaga á landamærunum i þess-
um mánuði. Alvarlegustu bar-
dagarnir brutust út fyrir tveimur
dögum, stóðu í fjóra tíma og
leiddu til þess að Líbýumenn
misstu 20 herflutningabifreiðar
ásamt áhöfnum þeirra og að niu
Egyptar féllu að sögn Kaíróút-
varpsins.
— Þessir dagar
Framhald af bls. 32
komnir með heyskap og eru sumir
að verða búnir en aðrir rétt að
byrja. Gott veður hefur verið til
heyskapar þar i þessari viku. I
Austur-Skaftafellssýslu hafa
bændur náð inn heyjum í þessari
viku en litið þurrhey var áður
komið i hlöðu. Búið er að slá
mikið siðustu daga I Austur-
Skaftafellssýslunni en sandatún-
Nýr og ónotaður Fletcher Arrowbolt 21 til sölu.
Vél Chrysler V-8, 265 hestöfl, ganghraði ca.
45—50 mílur.
Allur bólstraður og með svefnplássi fyrir tvo.
Glæsilegasti og hraðskreiðasti bátur flotans. Til
sýnis í dag
Tryggvagata 10 Sími: 2 1 91 5-21 286
P.O Box 5030 Reykjavík
in hafa ekki verið fullsprottin
fyrr en undir betta.
Bændur á Suðurlandi fengu
góðan þurrk strax á þriðjudag en
helzt hafa menn hirt það sem áð-
ur var búið að slá en einnig hefur
töluvert verið slegið og eru nú
flestir bændur búnir að ná ein-
hverju inn af heyi. í gær var
vindstrekkingur með ströndinni á
Suðurlandi og erfitt að athafna
sig við heyskap en efra voru
menn einkum að hirða.
Þeir bændur, sem Morgunblað-
ið ræddi við í gær, voru á einu
máli um að þessir dagar hefðu
bjargað miklu en útlitið var orðið
verulega slæmt þar til stytti upp
eftir helgina. — Við vonum bara
að hann sé að koma þessi stóri,
sem allir bíða eftir, sagði einn og
átti þá auðvitað við þurrkinn.
— Carter
Framhald af bls. 1.
orkukreppunni.
„Engin dulin merking felst í
stuðningi okkar við mannréttindi,
sagði Carter. „Hann er ekki ætlað-
ur nokkurri sérstakri þjóð eða
sérstökum heimshluta, heldur öll-
um löndum jafnt, þar á meðal
okkar landi. Og hann er síður en
svo til þess ætlaður að magna
vígbúnaðarkapphlaupið eða til
■ þess að endurvekja kalda striðið."
— Pólýfónkórinn
Framhald af bls. 12
um áheyrénda. Hallelúja-
kórinn var því að lokum endur-
tekinn, en nærri hálf klukku-
stund leið frá því að flutningi
lauk og þar til klappið dó út að
lokum. Enskur tónlistarmaður,
sem viðstaddur var og þekkir
verk Hándels út og inn, sagðist
aldrei hafa haft jafnmikla
ánægju af að hlusta á Messías.
Einn mesti heiður sem
Pólýfónkórnum hlotnaðist i
ferðinni var að koma fram í
Markúsarkirkjunni í Feneyj-
um, en hljómleikar hans þar
voru hinir'fyrstu á hátíðarpró-
grammi kirkjunnar i sumar.
Eins og annars staðar var hér
allt uppselt og móttökur frá-
bærar, svo að endurtaka varð
einn kórinn út Magnificat að
lokum. Að öllum tónleikum
loknum biðu fréttamenn út-
varps eða dagblaða stjórnand-
ans og tóku hann tali. Vafalaust
telja flestir í hópi flytjenda það
einn stærsta viðburð ævi sinnar
að hafa staðið við háaltari
Markúsarkirkjunnar og lagt
rödd sina i hinn dýrðlega
hljóm, sem þar myndaðist á
þessari stundu.
Að afliðnu miðnætti hinn 29.
júní sigldi Pólýfónkórinn
syngjandi eftir Stórál i Feneyj-
um og var feginn hvildinni i
Lignano næsta dag. Eftir voru
þá þrennir hljómleikar, þar og i
Aquileia hinni fornfrægu róm-
versku borg, þar sem Messías
var fluttur að viðstöddum 1600
áheyrendum i einni af elztu
kirkjum kristninnar. Þar var
aðstaða og hljómburður eins og
bezt verður á kosið, enda voru
hljómleikarnir þar einn af há-
punktum ferðarinnar, að
ógleymdum lokahljómleikun-
um í Lignano 3. júlí. Stigandi
hafði haldizt i flutningnum allt
til enda og viss tregablandin
tilfinning hefur vafalaust fyllt
brjóst margra, þegar hið stór-
kostlega „Amen^’lokakórsins i
Messíasi dó út. Þessi hljómur
lifir nú aðeins i minningunni —
minningu um ferð, sem meir
líktist ævintýri en veruleika.
Flytjendum og stjórnandan-
um Ingólfi Guðbrandssyni,
hlotnaðist margvislegur heiður
og sæmd og viðurkenning :
þessu hljómleikaferðalagi, og
alls staðar voru þau beðin að
koma sem fyrst aftur.
1 lokahófi kórsins í Lignano
hinn 5. júli var Ingólfi afhentur
riddarakross og hann sæmdur
riddaranafnbót hins italska lýð-
veldis."
-^^25ára afmdf^Qí.
máinf ngarframleiðslu okkar *
í VERKSMIÐJU OKKAR í DUGGUVOGI framleiðum við
allar helstu tegundir málningar og fúavarnarefna,
bæði fyrir skipastól landsmanna og byggingariðnaðinn.
Gæði vörunnar byggjast á áratuga reynslu,
rannsóknum og gæðaeftirliti.
• •
Hempel’s Vitietex Cuprinol
malmng og lokk plastmálning fúavamarefni
á tré og járn utan húss og innan