Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULl 1977
Ve
GíeVn
tnxííOi1'
ifl og,
„Næst Dví
að vera
fuglinn
fllúgandi”
Efst á Breiðadalshelðl um mlðla nóll
Drekafluj; á vaxandi
vinsældum að fagna á
Islandi og er það nú
stundað af ungum mönn-
um á Vestfjörðum, Norð-
urlandi ojí Austurlandi.
Eitt kvöldið fyrir
skömmu á leið um
Breiðadalsheiðina frá
Dýrafirði til ísafjarðar
ókum við fram á flug-
dreka sem hafði lent við
veginn í nokkur hundruð
metra hæð yfir sjó. Ann-
ar var á flugi hátt fvrir
ofan Breiðadalsheiðina
og notaði uppstreymið
frá fjöllunum til þess að
svífa fram og til haka
eins og fýllinn.
„Hann er að reyna við
nýtt íslandsmet í dreka-
svifi“, sögðu þeir sem
fylgdust með frá vegin-
um, en sá sem var í loft-
inu var Hálfdán Ingófs-
son frá ísafirði. Hann átti
sjálfur íslandsmetið, 37
mín. svif, en nú ætlaði
hann að reyna að
hnekkja því. Hann sveif i
rólegheitunum fram og
til baka og hélt hæð auð-
veldlega og það var auð-
séö að hann var öllum
hnútum kunnugur. Þeg-
ar hann hafði verið í loft-
inu í 37 mín. þeytti Ragn-
ar bróðir hans bílaflautu
af miklum móð, en Ragn-
ar hafði tekið stutt svif
og lent þarna við veginn.
Þegar Hálfdán hafði
svifið í 54 mínútur var
auðséð að hann hafði
fengið nóg, því hann tók
stefnuna niður til lend-
ingar, en auðséð var að
hann átti hægt með að
haida sér lengur á lofti í
hinu stöðuga uppstreymi
sem þarna var. Nýtt
íslandsmet, 54 mín í
drekanum.
í spjalli við Hálfdán
sagðist hann hafa stund-
að drekaflug í 3 ár og
hefði því talsverða æf-
ingu. Hann sagðist hafa
svifið í allt að 850 metra
hæð yfir sjó.
Um verzlunarmanna-
helgina verður íslands-
mót i drekaflugi á skáta-
mótinu að Úlfljótsvatni.
Hálfdán sveif í allt að
300—400 m hæð þarna
yfir Breiðdalsheiðinni,
u.þ.b. 800 m. yfir sjó, og
sagði hann að það hefði
verið skemmtilegt að
svífa þegar þokuslæður
fóru þarna um „og maður
sá vindinn koma á móti
manni“.
Hálfdán sagði að menn
þyrftu ekki margar æf-
ingar til þess að geta tek-
ið flugið í þessum drek-
um, en þeir kosta úm 150
þús. kr. meö öllum bún-
aði. „Það þarf þó vel að
gæta þess að fljúga við
góðar aðstæður í upp-
hafi“, sagði Hálfdán," og
það er hættulegt að
spreyta sig í of hvössum
vindi. Maður hangir í ól-
um í drekanum og stjórn-
ar honum með því að
færa sig til miðað við
grindina sem heldur
drekanum saman. Þá
leggst þunginn þannig að
það verður eins og stýri.
Ef fljúga á langt flug get-
ur það verið þreytandi og
þá er þægilegra að leggj-
ast á bakið og hafa það
notalegt, en þá hefur
maður ekki eins góða
stjórn á drekanum.“
Hálfdán kvað það nýj-
asta í þessum efnum vera
mótor á drekana og sagö-
ist hann fylgjast spennt-
ur með þeirri þróun og
vonandi yrði ekki langt
þangaö til hann gæti
reynt það.
„Þetta er spennandi",
sagði Hálfdán," og að
svífa svona held ég að sé
næst því að fljúga eins og
fuglarnir“.
1 800 m. hæð yfir sjó.
Hálfdán nýlentur eftir tslandsmetið I drekaflugi, 54 mín. á lofti.
Ragnar og Ilálfdán Ingólfssynir.
III I
•■■•••■■■■■■••■••■•■•«•■■■■■■
III
I