Morgunblaðið - 28.07.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULÍ 1977
27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Miðaldra maður
óskar eftir léttri vinna, vanur
vélum, æskilegt utan Reykja-
víkur. Simi: 26532, á kvöld-
in.
Múrverk
Tek að mér múrviðgerðir
utanhúss. Uppl. í síma
84736.
Steypum bilastæði og
gangstéttar. S. 81081 —
74203.
Munið sérverzlunina
með ödýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82. s. 31330.
Sandgerði
Til sölu 2ja—3ja herbergja
íbúð á neðri hæð við Hliðar-
götu ásamt bilskúr. Stærð
samtals um 1 26 fm.
Fasteignasala Vilhjálms og
Guðfinns
Vatnsnesvegi 20 Keflavik.
Simar: 1 263 og 2890.
Njarðvik
Til sölu vel með farin 2ja
herb. ibúð við Grundarveg.
með sérinngangi.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27
Keflavik
sími 1420.
Keflavik
Til sölu 3ja herb. ibúð i smið-
um við Nónvörðu. Útb. 2
millj.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27
Keflavík
sími 1420
Njarðvik
Til sölu 2ja herb. ibúð í
smíðum við Hjallaveg.
Verður afhent væntanlegum
kaupanda tilb. undir tréverk.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27,
Keflavik, simi 1420.
Bill!
Hver vill kaupa 5 manna
Ford lúxusbil. árgerð
1977. Selst með góðum
kjörum. Tilboð merkt: Bill
431 3 sendist Morgunbl. fyrir
1. ágúst.
Hjálpræðisherinn
( kvöld kl. 20.30. Fagnaðar-
samkoma fyrir foringjana til
Reykjavíkur, Akureyrar og
ísafjarðar.
Allir velkomnir.
Filadelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20:30.
Nýtt lif
Vakningarsamkoma i kvöld
kl. 20.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Allir velkomnir.
[[RflflfÍUIG
ÍSUWDS
OLOUGOTU3
r SÍMAR 11í98jik19&33. . -
Ferðir um verzlunar-
mannahelgina.
Kl. 18.00
1.
SkaftafellÞjóðgarðurinn
skoðaður. Ekið að Jökullón-
inu á Breiðamerkursandi.
Gist i tjöldum.
2. Norður á Strandir.
Gist tvær nætur að Klúku i
Bjarnarfirði og eina nótt að
Laugum i Dalasýslu. Sund-
laugar á báðum stöðunum.
Gist i húsum.
Kl. 20.00
1. Þórsmörk
2. Landmannalaugar
— Eldgjá.
3. Veiðivötn —
Jökulheimar. Gist i
húsum
4. Hvanngil — Land-
mannaleið syðri. Gist i
tjöldum.
Laugardagur 30. júlí.
Kl. 08.00
1- Hveravellir —
Kjölur.
2. Kerlingarfjöll
3. Snæfellsnes —
Flatey. Gist i húsum.
Kl. 13.00
Þórsmörk Gönguferðir
um helgina verða auglýstar á
laugardag. Pantið timanlega.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag íslanas.
I.O.G.T.
Félagskonur athugið
Móttaka á formkökum og
kleinum fyrir Galtalækjamót-
ið verður í Templarahöllinni
fimmtudaginn 28. júli kl.
8—9 e.h. Einnig sótt heim
ef óskað er. Upplýsingar í
sima 23230.
Ferðir um verzlunarmanna-
helgina 29. júli
1. Þórsmörk
2. Syðri Fjallabaks
vegur.
Farmiðasala og nánari uppl.
á Farfuglaheimilinu Laufás-
veg 41, sími 24950.
i,yj
UTIVISTARFERÐIR
Verzl.m. helgi
1. Þórsmörk, tjaldað i
Stóraenda i hjarta Þórsmerk-
ur, gönguferðir. Fararstj. Ás-
björn Sveinbjarnarson o.fl.
Lómagnúpur,
Núpstaðarskógur. Gengið á
súlutunda. að Grænalóni og
viðar. Fararstj. Þorleifur
Guðmundsson og Sólveig
Kristjánsdóttir.
3. Kerling-Akureyri, geng-
ið um fjöll í nágrenni Akur-
eyrar. Fararstj. Erlingur Thor-
oddsen.
Upplýsingar og farseðlar á
skrifst. Lækjarg. 6, simi
14606.
Munið Noregsferðina
1.—8. ágúst, allra siðustu
forvöð að kaupa miða.
Útivist
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Útboð á vélum, rafbúnaði,
þrýstivatnspípum og lok-
um fyrir Hrauneyjar-
fossvirkjun
Landsvirkjuri óskar óskar eftir tilboðum í
framleiðslu og afhendingu á vélum og
búnaði fyrir 140 MW virkjun við Hraun-
eyjafoss í Tungnaá.
Útboðsgögn eru í tveim hlutum. Annar
hlutinn, útboðsgögn 304, er fyrir hverfla,
rafala, spenna, tengivirki, stjórnbúnað
o.fl., en hinn hlutinn, útboðsgögn 305,
er fyrir þrýstivatnspípur, lokur og stöðvar-
hússkrana. Tilboða er leitað í hvorn hluta
fyrir sig eða báða saman.
Útboðsgögnin verða fáanleg hjá Lands-
virkjun, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
frá og með 2. ágúst 1977 gegn óaftur-
kræfri greiðslu að fjárhæð kr. 50.000.-
fyrir eitt eintak af útboðsgögnum fyrir
hvorn verkhluta. Verð á viðbótareintökum
er kr. 20.000.-
Tilboðum skal skilað til Landsvirkjunar
eigi síðar en kl. 14:00 að íslenzkum tíma
hinn 1 6. desember 1977.
Reykjavík, 28. júlí 1977.
Landsvirkjun.
Utboð
Tilboð óskast í málun fjölbýlishússins
Eyjabakka 18—32. Upplýsingar í sím-
um: 73813 og 76373 eftir kl. 7:00
næstu kvöld. Tilboðum skal skila fyrir 7.
ágúst 1977.
Iðnaðarhúsnæði óskast
Vantar 80 —130 fm. iðnaðarhúsnæði
fyrir léttan, þrifalegan iðnað. Upplýsingar
í síma: 33131.
Njarðvík
Til sölu 475 fm. fiskverkunarhús við
Bakkastíg. Á efri hæð eru tvær 120 fm.
íbúðir. Húsið er laust til afhendingar
strax.
Fasteignasa/a Vi/hjá/ms og Guðfinns
Vatnsnesvegi 20
Keflavík, símar: 1263 og 2890.
Hafnfirðingar —
Ferðafólk
Ýmislegt á grillið, kjúklingar þrjú verð:
840.- 915.- og- 1 1 50.-kr. Alikálfakjöt,
T-steik 940.-. Lærissneiðar 890.-.
Bógsteik 740 - Ungkálfakjöt og kótilettur
520.-. Steikarasneiðar einnig 520.-.
Dilkasteikarsneiðar 930.-, einnig úrval af
niðursoðnum vörum og nýjum ávöxtum.
Ath: flest allar matvörur í ferðalagið.
Kjötkjallarinn Vesturbraut 12.
Stúdentagarðamir
Umsóknarfrestur um Garðsvist, næsta
vetur rennur út 1 . ágúst n.k.
Umsóknareyðublöð, liggja frammi á skrif-
stofu Félagsstofnunar stúdenta, sem jafn-
framt veitir frekari upplýsingar.
Félagsstofnun stúdenta,
S túden taheimilinu,
v/Hringbraut, sími 16482.
Hesthús
fyrir 5—6 hesta óskast til kaups í
nágrenni Reykjavíkur. Sími 20175 og
31078.
— Minning
Pétur
Framhald af bls. 33.
sitt og óhætt var aö treysta. Það
gerði sitt til að allt gengi sem
best.
Pétur var tvikvæntur: Fyrri
kona hans var Benedikta Jóns-
dóttir frá Iragerði á Stokkseyri.
Börn þeirra eru þessi: Daniel
flugstjóri hjá Loftleiðum, Guðný,
húsfrú i Reykjavík, Jón hús-
gagnasmíðameistari, Garðabæ.
Siðari kona hans var Rannveig
Ásgrimsdóttir. Þau eiga einn son,
Ragnar. Hann er starfsmaður
Flugleiða og vinnur í Osló.
Skyldmennum sinum reyndist
Pétur vel og var ævinlega boðinn
og búinn til hjálpar, ef til hans
var leitað. Grunur minn er sá, að
þessi trausti og reglusami maður,
sem ætið gætti skyldu sinnar og
reyndi að verða við óskum gesta
sinna muni lifa lengi i minningu
skyldmenna og viðskiptavina.
Ég heyrði nýlega á Pétri, að
hann hyggðist láta af störfum inn-
an skamms tíma. Við höfðum þá
ráðgert ferð saman austur á æsku-
stöðvar okkar og ætluðum að rifja
upp nokkrar sólskinsstundir
æskuáranna. Sú ferð verður
aldrei farin.
Konu hans, börnum og systur
sendi ég innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sigurður Þ. Eyjólfsson
Kveðja frá Sambandi Veitinga-
og gistihúsaeigenda:
Með Pétri Danielssyni er fall-
inn í valinn einn af elztu og beztu
hótel- og veitingamönnum okkar
lands.
Alla tíð stóð hann i fylkingar-
brjósti okkar stéttar, bæði hér-
lendis og erlendis, hann var einn
af stofnendum félagssamtaka
okkar og átti sæti í stjórn þess i
áraraðir, var fulltrúi okkar í
Nordisk Hotel og Réstaurantfor-
bund í mörg ár og sótti fundi
alþjóðasamtaka hótel- og veitinga-
manna (IHA) i yfir tuttugu ár
fyrir okkar hönd.
Allsstaðar þar sem Pétur
Danielsson var fór svipmikill og
traustvekjandi maður, sem ávann
sér hylli og vináttu allra, sem
honum kynntust, þvi hann kunni
að umgangast jafnt konunga sem
húskarla með þeirri drenglund og
alúð, sem honum var i blóð borin.
Við sem vorum svo lánsamir að
kynnast Pétri Danielssyni í starfi
og einkalífi, kunnum vel að meta
hæfileika hans og drengskap og
munum ávailt sakna hans sem
mannsins, sem með framkomu
sinni og starfi hjálpaði til að gera
íslenzka hótel- og veitingamanna-
stétt það sem hún er í dag.
Við vottum eftirlifandi eigin-
konu hans, Rannveigu Asgrims-
dóttur, og börnum hans okkar
dýpstu samúð.
Þorvaldur G uðmundsson
— Minning
Sigurlaug
Framhald af bls. 26
sinni, og komst hún heim af
sjúkrahúsinu stuttu fyrir ferm-
inguna sl. vor, en ekki varð sú
dvöl heima nema fáar vikur.
Ég veit, að ég mæli fyrir munn
allra samstarfsmanna Sigurlaug-
ar hjá Sakadómi Reykjavíkur og
rannsóknarlögreglunni í Reykja-
vík, þegar ég sendi Gunnari Inga,
Pálma, Ingibjörgu, Jórunni og
öðrum ættingjum Sigurlaugar,
samúðarkveðjur og óskir um, að
Guð blessi þau og styrki I sorg
þeirra.
Sverrir Éinarsson.