Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.07.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JULI 1977 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI w(/j*nvK''UJS'»it Nóg um það og hér er á eftir verið að hugleiða orkumálin eða öllu heldur 0 Hvað kostar að bora? „Það ætti að vera öllum ljóst, hve þýðingarmikið það er fyrir Isiendinga að borað sé sem viðast eftir heitu vatni. Jarðhitinn hlýt- ur að vera ódýrasta orkan í nútið og í framtíð, ef hún er ekki látin greiða aðra dýrari niður. En þá er spurningin, sem margir velta fyrir sér og þá sérstaklega þeir, sem bíða eftir hitaveitu: Vegna hvers er borunin í fósturjörðina svo dýr sem raun ber vitni um? Er þjóðin ekki eigandi að borun- um og öllum verkfærunum, — hvað þarf marga menn til að starfa við hvern bor? Nú vilja væntanlegir neytendur fá skýr svör frá þeirri stofnun, sem hefir með þessi mál að sýsla. Sundurliðun á kostnaði óskast sem fyrst. Getur ein borhola kostað 130 milljónir króna þótt smá sé? Júlíus.“ Hvað kostar ein borhola — sjálfsagt eru margir kostnaðarlið- ir kringum eina borholu og því væri e.t.v. fróðlegt eins og Júlíus spyr að fá að sjá sundurliðun á því. £ Slæm nýting? „Það hefur vakið athygli mina að undanförnu, að í Fisehersundi standa nú auð a.m.k. tvö verzl- unarpláss og trúlega er ekki full nýting á öðru því húsnæði sem þarna er. Mikið væri nú gaman ef eig- endur húsa við Fishersund sam- einuðust um að gera þarna skemmtilega verzlunargötu fyrir smáverzlanir og ýmiss konar þjónustu og ekki skaðaði að fá þangað veitingasölu lika. Jafnvel mætti setja plasthimin yfir sund- ið og koma þar fyrir gróðri í pott- um og bekkjum fyrir vegfarendur til þess að hvila sig á. Ég held að eigendur húsanna þarna myndu ekki tapa á þessu, ef vel tekst til að borgarbúar allir og unnendur gamal bæjarins sér- staklega myndu eignast „sjarmer- andi“ stað, sem gæti gefið borgar- lífinu aukna ánægju. Gömlu húsin eru aðeins til ynd- is, að i þeim endurrómi hjartslátt- ur mannlifsins á hverjum tima. Vegfarandi." Þessir hringdu . . . 0 Skemmtiferð eða hvað? Ferðamaður: „Ég er undrandi yfir því hvernig sumir fara með sitt sumarleyfi. S.l. laugardag var ég i skemmtisiglingu með Baldri til Flateyjar á Breiðafirði. A bátnum í þessari ferð var auk annarra ferðahópur úr Reykjavik auðvitað i sumarleyfi enda mikill gustur á mannskapnum. Mér skildist að hér væri um að ræða stofnun vissra bændasamtaka á höfuð- borgarsvæðinu og létu sumir í það skina að hér væri á ferð aðall samvinnumanna. Það fór ekki milli mála að þorstanum var ekki svalað i kartöfludjúsi eða tómat- safa. En hvort þessir skemmti- kraftar hafa vakið allmenna ánægju meðal farþega skal ósagt SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson I fjórðungsúrslitum áskorenda- móts kvenna i skák kom þessi staða upp I níundu einvígisskák sovézku kvennanna Chiburdan- idze, sem hafði hvitt og átti leik, og Alexandriju: wm mk. • WB. 111 wm w, 1 m i A ■ w ' wm hp Jl |§ igr 9 §jj m g|É| m jj A WM wk fé , . & ÍH m Í>77TtM 0 m ÉH S wm 26. Bf6! — IIb8, (Eftir 26 . . . gxf6, 27. Hg3+ verður svartur mát) 27. Dg5 — Bf8, 28. Bxg7! — Bxg7, 29. Hg4 — Kf8, 30. Dxg7+ — Ke8, 31. Dg8+ — Kd7, 32. Kxf7+ og svartur gafst upp. Hin 15 ára gamla Chiburdanidze sigraði i einvíginu. Hún hlaut 5'A vinning, en andstæðingur .hennar 4'A. í undanúrslitum kvennaáskorenda- mótsins leiða saman hesta sina annars vegar þær Chiburdanidze og Achmilovskaja (báðar frá Sovétríkjunum) og vegar Le- inacko (Búlgaríu) og Kushnir (ísrael). Iátið, en eftir þessu var tekið bæði af Eyjabúum og öðrum. Ósjálfrátt flaug i hugann að kostnaðarliður stofnunarinnar hlýtur að bólgna við svona ferðalög og hinn al- menni íbúi úti á landsbyggðinni veltir þvi fyrir sér hvort ekki væri gott fyrir svona hópa að eyða sumarleyfi sinu á annan hátt i stað þess að „spandera" þvi i aug- lýsingaferð meðal landsbúa á vafasaman hátt.“ % Um rusl í Reykjavík Kona i Reykjavík: — Ég fagna þeirri umræðu og þeim ummælum sem höfðeru eft- ir erlendum ferðamanni I Velvak- anda á dögunum um rusl í mið- borg Reykjavikur. Ég hef mikið ferðast og ég undrast hversu mik- ið rusl getur safnast hér á götun- um, sumir henda hreinlega úr öskubökkum bílanna á göturnar og það þótt öskutunnur séu i grenndinni. Það þyrfti að hefja herferð meðal barnanna strax á unga aldri og kenna þeim að bera virðingu fyrir umhverfinu, því mér virðist þetta einatt vera fólk af yngri kynslóðum, þó að eldra fólk eigi líka nokkra sök. Islend- ingar eiga hús á heimsmæli- kvarða, en svo er allt látið reka á reiðanum með ytri umgengni, því eru íslendingar svona? HÖGNI HREKKVÍSI Hvur f j... — ég verð að bæta þetta! ^Stórmót Sunnlendingar efna til sameiginlegs hesta- móts, og kynbótasýningar á Rangárbökkum viS Hellu, dagana 6 og 7. ágúst. n.k. Dagskrá: á laugardag. kl. 10. Hryssur mæti til dóms. Dómnefnd starfar allan daginn. kl. 13. Unglingakeppni. 1 2 ára og yngri og 1 3— 1 5 ára. Töltkeppni fyrir félagsmenrv viðkomandi félaga. Einnig töltkeppni fyrir unglinga 1 3 ára og yngri. Á sunnudag. Undanrásir kappreiða. 1 500 m brokk, 250 m folahlaup, 350 m stökk, 800 m stökk, 250 m skeið, 1 500 m stökk. Peningaverðlaun í kappreiðum 25% af inngangseyri á mótssvæðið 3 fyrstu hross, í hverri grein, sýninga og keppni fá áletraðan minnispening til eignar. Bezta hryssan, færauk þess farandsgrip, stóðhryssuna. Þátttaka i kynbótasýningu og kappreiðum tilkynnist til Magnúsar Finnbogasonar, Lágafelli. sími um Hvolsvöll fyrir miðvikudagskvöld 3. ágúst. Unglingar og þátttakendur í töltkeppni, tilkynni við- komandi formanni, fyrirsama tíma. Undirbúningsnefnd. Allttil að grilla Útigrill og allt sem þeim fylgir: grill- tengur, viðarkol og uppkveikjulög- ur. Ekkert af því má gjeymast þegar ætlunin er að njóta Ijúffengs mat- ar undir beru lofti. Lítið á sumar- og ferðavörurnar á bensínstöðvum Shell. Olíufélagið Skeljungur hf Stór ÚTSALA hefstídag Kjólaefni, handklæði, metravara, þurrkur W Otrúlega lágt verð. Verzlið meðan úrvalið er mest Egill 3acobsen Austurstræti 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.