Morgunblaðið - 28.07.1977, Síða 44
U <;LYSIN<;AS!MINN ER:
22480
FIMMTUDAGUR 28. JULÍ 1977
Ljósm. Mbl. Friðþjófur).
BROSAÐ A GAMLA VERÐINU — Bensínlítirinn
hækkar í dag úr 80 krónum í 88 krónur, svo það var
eins gott að fylla á tankinn í gær.
„Þurrt en þó
þurrkleysa”
Heyskapur gengur skrykkjótt hjá bændum
HEYSKAPUR hefur gengið sæmilega víðast hvar um landfð að
undanförnu, en bændur bfða þó eftir góðum þurrki. Eru tún viðast
vel sprottin og viðast þarf að slá á næstu dögum svo þau spretti
ekki úr sér. Enn eru hey óhrakin og er það ef til vill stærsti
munurinn frá þvf, sem var sfðastliðið sumar.
Ifjalti Sigurbjörnsson bóndi unnt að fara að þurrka fyrr en
á Kiðafelli í Kjós. sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þar
gengi heyskapurinn heldur
skrykkjótt. Vel væri sprottið á
túnum og bændur búnir að slá
töluvert nú upp á siðkastið. Hey
væru ekki legin að neinu ráði
vegna þess hversu seint hefði
yfirleitt verið slegið, en vand-
kvæði væru á því að ná heyinu
inn. Þurrkdagarnir sem kæmu
nýttust fremur illa, því að yfir-
leitt tæki það heilan dag að
þorna undir og væri því ekki
hinn næsta, en slikir samfelldir
þurrkdagar væru fágætir enn
sem komið væri. Þó kvað hann
bændur yfirleitt hafa komið
nokkru inn í síðustu viku, og
sunnudagurinn hefði einnig
verið góður. Mánudagurinn
hefði einnig nýtzt bændum í
innsveitinni en ekki þeim sem
væru næst ströndinni. Hann
kvað menn yfirleitt heldur
bjartsýnni á heyskapinn nú en í
fyrra, enda þótt ekki væri búið
að hirða ýkja miklu meira af
Tvílembingarnir byrjaðir veiðar:
„Gengur vel að
toga en vantar
þéttari lóðningar
- segir Steingrímur Sigurðs-
son skipstjóri á Bjarnarey
Vestmannaeyjabátarnir
Bylgja og Bjarnarey byrj-
uðu í gær kolmunnaveiðar
með tvílembingstrolli úti
fyrir Austfjörðum, en þeir
fóru út frá Vestmannaeyj-
um á laugardag og reyndu
þá trollið kringum Vest-
mannaeyjar.
,,Við erum núna með fyrsta hal-
ið hér fyrir austan og gengur
okkur ágætlega að toga og trollið
virðist fara vel i sjónum. Hins
vegar höfum við lítið sem ekkert
fundið frá því að við komum hing-
að,“ sagði Steingrímur Sigurðs-
son, skipstjóri á Bjarnarey, i sam-
tali við Morgunblaðið síðdegis i
gær en Bjarnarey og Bylgja komu
á kolmunnamiðin úti fyrir Aust-
fjörðum um hádegisbilið.
Steingrímur sagði í samtalinu
við Morgunblaðið, að bátarnir
sem eru um 150 rúmlestir væru í
minnsta lagi til að draga jafn stórt
troll og þeir væru með. Kvað
hann op trollsins vera 25 faðma á
hvern kant eða alls um 2000 fer-
metra. Það væri örugglega mjög
gott fyrir stærri báta að vera tveir
saman með troll.
Þá sagði Steingrimur að tilfinn-
anlega vantaði leitarskip á Aust-
fjarðamið til að svipast um eftir
kolmunnanum. Bliðuveður væri
þar núna, en það vantaði aðeins
þéttari kolmunnalóðningar í sjón-
um, og leitarskip.
Skattskrár á
Reykjanesi
og Vestur-
landi lagðar
fram á morgun
SKATTSKRAlN I Reykjanesum-
dæmi verður lögð fram á morgun
og að þvf er stefnt að svo verði
einnig gert í Vesturlandsum-
dæmi. Skattskrár I þeim þremur
umdæmum, sem þá verða eftir,
Suðurlandi, Austurlandi og
Norðurlandskjördæmi vestra,
verða væntanlega lagðar fram á
tfmabilinu 5.— 12. ágúst.
Að því var stefnt að skattskráin
í Reykjanesumdæmi yrði lögð
fram í gær, en af þvi varð ekki
þar sem ýmislegt tafði fyrir.
Svartsýnir
á sól í dag
— IIELDUR erum við svartsýnir
á að mikil sól verði um landið á
morgun, sagði Markús Einarsson
veðurfræðingur, er Mbl. ræddi
við hann I gærkvöldi. — Útlit er
fyrir að skýjað verði á suðvestur-
horninu og jafnvel rigning með
kvöldinu. Annars staðar á land-
inu spáum við þokulofti og skýj-
uðu veðri við strendur og á
annesjum, en bara góðu veðri yfir
hádaginn I innsveitum, sagði
Markús.
Mestur hiti á landinu mældist á
Hellu í gær, 20 stig. A Kirkjubæj-
arklaustri og Mýrum mældist
mest 19 stiga hiti. í Reykjavik
varð mestur hiti 13 stig og 12 stig
á Akureyri.
heyi en í fyrra. Hins vegar
þyrfti ekki nema 3—4 sam-
fellda þurrkdaga til að þokka-
leg útkoma fengist með hey-
skapinn.
Björn Jónsson, Bæ á Ilöfða-
strönd hafði svipaða sögu að
segja. Hann kvað bændur þar
Ljósm. Mbl. RAX.
langt komna með að slá og þeir
ættu þannig mikil hey liggj-
andi, en þurrkinn vantaði til að
ná þeim inn. Þurrkdagarnir
sem kæmu nýttust illa, þar sem
hluta dagsins væri þoka og.
jafnvel skúrir. Biðu menn nú
Framhald á bls. 24.
Jón og Guðlaug
í efetu sætunum
Fyrsta almenna lodnuveidin:
ISLANDSMEISTARINN Jón L.
Arnason vann Ilelga Olafsson I
æsispennandi skák á Norður-
landamótinu I Ilelsinki I gær-
kvöldi. Er Jón nú kominn I efsta
sætið á mótinu með 6 vinninga að
7 umferðum loknum, en efsta
sætinu deilir hann með Finnan-
um Hurme, sem á erfiða biðskák
frá því í gærkvöldi. Guðlaug Þor-
steinsdóttir heldur sfnu striki á
mótinu og vann andstæðing sinn f
gærkvöldi næsta auðveldlega. Er
Guðlaug efst í kvennaflokki á
mótinu ásamt Karmlin frá Svf-
þjóð. Ilefur Guðlaug Norður-
landatitil að verja og er enn tap-
laus f mótinu.
í skák þeirra Helga Olafssonar
og Jóns L. Arnasonar i gærkvöldi,
hafði sá fyrrnefndi hvitt og fékk
betra tafl út úr byrjuninni. Komst
Jón fljótlega í tímahrak og bauð
Átta skip með 3000 lestir
í fyrrakvöld og gærmorgun
hann Helga jafntefli eftir 24 leiki.
Þáði Helgi það ekki, en sjálfur
bauð hann siðan jafntefli eftir 30
leiki. Þá var það Jón, sem sagði
nei og tryggði sér sigur í skákinni
með að leika síðustu leikina mark-
visst þó tími hans væri á þrotum.
Biðskákir úr 6. umferð voru
tefldar i gærmorgun og vann Jón
þá m.a. Danann Anderson. Er Jón
nú með 6 vinninga, en Helgi
Ólafsson er með 5 vinninga. AIls
taka 10 íslenzkir skákmenn þátt í
mótinu.
NOKKUR loðnuveiði var á
miðunum norður af
Slraumnesi í fyrrakvöld og
gærmorgun, en frá því
seint í fyrrakvöld þar til
Ouólaug
Jón L.
um kl. 8 í gærmorgun til-
kynntu 8 skip um afla,
samtals 2920 lestir. Fóru
skipin með loðnuna til Bol-
ungavíkur og Siglufjarðar.
Þá bárust þær fréttir af
miðunum í gær að mörg
skipanna væru komin með
góðan afla og hefðu þau
verið að kasta í gær. Alls
munu nú um 20 skip vera
byrjuð loðnuveiðar.
Fyrsta skipið sem tilkynnti um
afla í fyrrakvöld var Harpa RE,
sem fór til Bolungavikur. Þangað
fóru lfka Árni Sigurður AK með
130 tonn og rifna nót og Bjarni
Ólafsson AK með 480 tonn: Þá
hélt Vörður til Grindavíkur með
150 tonn og rifna nót og Sæberg
SU fór með 30 tonn til Siglufjarð-
ar, en eitthvað hafði bilað um
borð.
í gærmorgun fóru þrír bátar til
Siglufjarðar. Voru það Kap 2. VE
með 500 tonn, Gullberg VE með
560 tonn og Súlan EA með 670
tonn. Þá fregnaði Morgunblaðið
að Guðmundur RE hefði verið bú-
inn að fá 500 tonn i gærmorgun og
Eldborg GK 300 tonn.
Jón Þórðarson leiðangursstjóri
á rannsóknaskipinu Árna Frið-
rikssyni sagði i samtali við
Morgunblaðið í gær, að þeir leit-
uðu nú loðnu austur af aðalveiði-
flótanum, á svipuðum slóðum og
loðnuskipin hefðu fundið loðnu í
síðustu viku. Sagði Jón, að þeir
væru rétt að koma á svæðið, og
ekkert fundið enn. Kvað hann þá
verða á svæðinu við loðnuleit
fram á föstudag, en þá halda til
lands.