Morgunblaðið - 31.07.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JXJLl 1977
15
Sjötugur — Ágúst Þor-
vaMsson bóndi og fyrr-
verandi alþingismaður
Agúst á Brúnastöðum á að baki
sér langa og merka sögu, sem einn
af helstu leiðtogum sunnlenzkra
bænda og sem þingmaður Suður-
landskjördæmis. Ágúst er einn af
þeim sem komið hefur út úr þoku
mannlífsins öllum að óvörum eins
og svo margir menn úr alþýðu-
stétt sem komist hafa til mikilla
áhrifa í þjóðlífinu. Samtiðin hef-
ur sýnt honum trúnað og með
þann trúnað hefur hann farið vel.
Hann er einn af þeim mönnum
sem hefur vaxið með verkefnun-
um.
auka virðingu Alþingis ef það
slitnaði meira úr tengslum við
atvinnuvegina en orðið er.
Siðan Alþingi var endurreist
1845 hafa fjölmargir bændur átt
þar sæti. Hafa þeir jafnan þótt
skipa rúm sitt þar með sóma. I
hópi þeirra hafa verið margir af
svipmestu mönnum þingsins og
nægir þar að minna á nöfn manna
eins og Péturs Ottesen, Jóns
Pálmasonar og Jörundar Bryn-
jólfssonar.
Ágúst Þorvaldsson var um
fimmtugt þegar hann hlaut sæti á
Alþingi. Hann hafði setið í kyrrð
á búi sinu og haft ærinn starfa við
búskapinn og félagsmál í sveit
sinni.
Agúst er maður fjöllesinn sér-
staklega í fornbókmenntum og
ekki mun hin forna og nýja fræði-
grein íslendinga, ættfræðin, hafa
farið framhjá honum. Hann er
ágætlega ritfær og hefur mikið
gert að þvi að skrifa afmælis- og
minningargreinar um vini og
kunningja og meðan hann var
þingmaður skrifaði hann fjölda
greina um þjóðmál i blöð. Ymsa
fróðleiksþætti skrifaði hann eftir
fóstra sínum, Katli Arnoddssyni á
Brúnastöðum, en hann var vel að
sér og langminnugur. Væri feng-
ur að þvi ef þessir þættir væru
gefnir út i heild.
Agúst hefur haldið á málum
umbjóðenda sinna af einurð og
festu og verið laginn að tryggja
þeim málum framgang sem hann
hefur barist fyrir. Hina pólitisku
baráttu hefur hann rekið á
heiðarlegan og manneskjulegan
hátt og forðast persónulega
áreitni, og öðlast virðingu bæði
samherja og andstæðinga í póli-
tikinni.
Ágúst á Brúnastöðum hefur
ávallt minnt mig á hina fornu
Haukdæli og um hann má segja
eins og sagt var um einn þeirra:
„Vitur og kyrrlátur höfðingi."
Á þessum timamótum færi ég
Agúst og fjölskyldu hans beztu
árnaðaróskir.
Jón Guðmundsson.
Er þaó
satt sem
þúséró
Þaö er auövitaö allur gangur (
á því, en hvort þaö er satt
eöa ósatt sem þú sérö í sjón-
varpinu, þá er þaö staöreynd
| að bezt sérðu í
sjónvarpstæki frá
Bang & Olufsen og
3r þaö staöreynd ■ NORDMENDE ,-------------
Komdu og skoóaðu úrvalið hjá okkur. (^?RP^ENP^
A seinni árum hafa verið uppi
raddir um að alþingismenn ættu
ekki að sinna öðrum störfum en
þingmennskunni og þingið ætti
að starfa mestan hluta ársins eins
og þing stórþjóðanna. Slik skipan
mundi hafa það í för með sér að
menn sem starfandi væru í at-
vinnulifinu gætu ekki stundað
þingmennsku. Þá mundi raunin
verða sú að þingmenn yrðu allir
langskólagengnir fræðingar úr
kaupstöðum. Ekki mundi það
bæta ástandið i þjóðfélaginu eða
92 sjómenn
hafa slasazt
við netaspil
á s.l. 6 árum
1 skýrslu Rannsóknarnefndar
sjóslysa, sem nú er nýkomin út,
segir að um þriðjungur slysa á sjó
á síðasta ári hafi orðið þegar
menn hafi verið að vinna við spil
og vindur. Segir að á undanförn-
um 6 árum hafi 92 sjómenn slas-
azt við netaspil og flestir alvar-
lega. Þá segir ennfremur að þar
sem öryggisloki hafi verið settur
við spil í skipum hafi ekki orðið
slys svo vitað sé.
1 skýrslu sjóslysanefndar kem-
ur fram, að með reglugerð frá því
á árinu 1973 sé fyrirskipað að
öryggisloka skuli setja við öll
línu- og netaspil í nýjum skipum,
svo og i eldri skipum, sem skipta
um spil eða ef breytt er lögnum
að þeim. Hefur nefndin nú ritað
Samgönguráðuneytinu bréf og
farið þess á leit, að reglur verði
settar þess efnis að öryggisloki
verði nú skyldaður við línu og
netaspil á öllum skipum, sem not-
uðu slík spil og eru stærri en 15
brúttórúmlestir.
ALGLYSINGASIMINN ER:
22480
3R*r0unbUþit>
NORDMENDE
1 400 Verð 1 70 775 - 1 4”
1 800 Verð 251 465 - 1 8”
2001 Verð 256 638 - 20"
UC 7736 Verð 408 322 - fjarstýrt 26"
SC 7732 Verð 31 2 880 - ófjarstýrt 22'
SC 771 6 Verð 329 880 - palisander
BANG & OLUFSEN
22" 3502 Verð 344 980
22" 3602 Verð 344 980 -
22" 3602 Verð 355 875 -
26 4002 Verð 388 555 -
ii iii
Skipholti 19 sími 23800
Klapparstíg 26 sími 19800
23500