Morgunblaðið - 31.07.1977, Side 44
AL'GLYSINGASIMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
SUNNUDAGUR 31. J(JLl 1977
Hringvegunnn
í lag í fyrrinótt
,,ÞAÐ er fjarað þetta flóð-
ið“, sagði Ragnar Sigfús-
son, oddviti á Skálafelli, er
Mbl hafói samband við
hann í gærmorgun til að fá
fréttir af hlaupinu i Kol-
grímu. ,,Það var um tvö-
leytið í nótt, að það var
aftur hægt að aka um
brúna“, sagði Ragnar.
„Þetta byrjaði að sjatna
um ellefuleytið í gærkvöldi
Engin
loðnuveiði
ENGlNN loðnubátur tilkynnti
afla frá þvi klukkan 17 á föstu-
daginn til hádegis í gær, sam-
kvæmt upplýsingum Loðnu-
nefndar í gær.
Ríkisútvarpið:
og svo þrufti að gera við
veginn, þar sem hann rofn-
aði við brúna“.
Ragnar sagði, að hlaupið
hefði verið i meðallagi.
„Það stóð að vísu í lengsta
lagi miðað við fyrri hlaup,
en það fór ekkert hærra,
en það hefur venjulegast
gert“.
Brúin yfir Kolgrímu var
gerð 1935 og hefur nú stað-
ið af sér öll hlaupin. Nú er
búið að gera nýja brú, tvö
til þrjú hundruð metrum
neðar og sagði Ragnar að
brúarsmíðinni hefði lokið
fyrir um þremur vikum.
Enn er þó eftir að ryðja að
brúnni og setja ána undir
hana og kvaðst Ragnar bú-
ast við að af þeim fram-
kvæmdum yrði ekki fyrr
en í spetember.
Afnotagjöld hækka
um rúmlega 7%
NÝSKIPUÐ gjaldskár-
nefnd og starfsmenn
menntamálaráðuneytisins
hafa komizt að samkomu-
lagi um að leggja til við
ráðherra að afnotagjöld út-
varps og sjónvarps fyrir
Vætusamt suð-'
vestanlands
— hlýtt og
bjart eystra
(JTLIT er fyrir aó áfram verði
heldur vætusamt vestanlands
og sunnan um þessa helgi, en
bjart og hlýtt fyrir austan.
Samkvæmt upplýsingum
veöurstofunnar var gert ráð
fyrir að regnsvæði kæmi upp
að vestanverðu landinu í gær-
kvöldi og það færí vestur um
landið fram eftir nóttu, en í
dag verði súld eða skúrir
sunnanlands og vestan og útlit
er síðan fyrir að suðvestanátt
verði áfram ríkjandi á þessu
svæði. Á austanverðu landinu
var hins vegar gert ráð fyrir að
það þykknaði upp í gærkvöldi
með rigningu um nóttina en i
dag var útlit fyrir að aftur létti
tii.
síðari helming ársins
hækki um um rúmlega 7%
miðað við gjöld fyrri hluta
ársins. Samkvæmt þessu
muni afnotagjald útvarps
hækka úr 3250 krónum í
3500 krónur fyrir síðustu 6
mánuði ársins og afnota-
gjald sjónvarps úr 7.000 í
7.500 krónur. Gjalddaginn
er 1. september n.k.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra sagði
í samtali við Morgunblaðið
í gær að hann hefði ekki
fengið formlega i hendur
bréf gjaldskrárnefndarinn-
ar en þessi afgreiðsla hefði
verið gerð með sinni vit-
und. Sagði Vilhjálmur að
hækkunin væri aðeins
minni en hann hefði lagt til
við nefndina.
Vilhjálmur kvaðst vilja
taka fram, að við stjórnar-
skiptin 1974 hefði fjárhags-
staða Ríkisútvarpsins verið
ákaflega slæm og stofn-
unin haft miklar yfir-
dráttarskuldir í bönkum.
„Eina ráðið til þess að rétta
við fjárhaginn var að
ákveða miklar hækkanir og
hefur nú tekizt að rétta af
óeðlilegan yfirdrátt og
skuld við húsbyggingasjóð
stofnunarinnar, en hún
hafði þurft að taka lán hjá
honum í reksturinn. Fjár-
málin eru fyrir allnokkru
komin í lag og höfum við
síðan hækkað smávægilega
af og til svona rétt til að
halda i horfinu. Þessi sfð-
asta hækkun er innan
þessa ramma,“ sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra.
„Þetta er engin örtröð, heldur svona jafn og þungur straumur", sagði lögreglan um umferðina út úr
bænum um hádegisbilið f gær. Sumir voru stöðvaðir, eins og þessi á myndinni, en ekki til yfirlestrar,
heldur dró lögregluþjónninn upp úr poka sfnum glaðning handa litla farþeganum f aftursætinu með
smáleiðbeiningum handa þeim stóru. Vonandi verður helgaránægja annarra ekki minni en þeirra sem
njóta poka lögregluþjónsins.
V erzlunarmannahelgin:
Um 4000 manns komnir
á mótið hjá Úlfljótsvatni
Bezta veðrid austan og norðaustanlands
FJÖLMENNASTI mótstaður-
inn yfir þessa verziunarmanna-
hlegi ætlar að verða Úlfljóts-
vatn þar sem Rauðhettuhátfðin
fer fram en þar voru saman
komnir um 4 þúsund manns f
gærmorgun og talið að þar ætti
enn eftir að fjölga verulega
seinni hluta dagsins. Bezta
veðrið á landinu virðist vera á
Norðaustur og Austurlandi og
töluverður f jöldi fólks var kom-
inn til mótanna á Laugum og
Eiðum. Sunnanlands var yfir-
leitt skýjað en úrkomulaust á
mótsstöðunum, sem Morgun-
blaðið hafði samband við þar.
Að því er Arni Þór Eymunds-
son hjá umferðarráði tjáði
Morgunblaðinu i gærmorgun
þá var umferðin ekki byrjuð að
nein neinu marki, en hins veg-
ar útlit fyrir að fólk væri farið
að hugsa sér til hreyfings eftir
hádegið, því að mikið hefði ver-
ið hringt til upplýsingamið-
stöðvarinnar og spurzt fyrir um
veðurfar á mótsstöðunum. Hins
vegar kvað Arni töluverða um-
ferð hafa verið seinnipart
föstudags bæði um Borgarfjörð-
inn og um Biskupstungnabraut
og Þingvallaleið. Umferðin
gekk að mestu leyti slysalaust
fyrir sig, en þó hafði orðið slys
við Sveinsstaði í Húnavatns-
sýslu, þar sem bifreið hafði far-
ið út af veginum og varð að
flytja þrennt i sjúkrahús til
Reykjavíkur, svo að meiðsli þar
hljóta að hafa verið töluvert
alvarleg.
Galtalækjarskógur
Samkvæmt upplýsingum
mótsstjóra þar komu 500 manns
þangað þegar á föstudagskvöld
í leiðindaveðri, en í gærmorgun
hafð stytt upp og tekið að blása
frá, þannig að horfur voru á
batnandi veðri. Kvaðst móts-
stjórinn undrandi yfir þvi
hversu margt hefði komið
þangað strax á föstudag þrátt
fyrir leiðinlegt veður, en lítil
umferð var þangað hins vegar
árdegis í gær. Attu menn von á
því að aftur fjölgaði eftir
hádegið, en mótshaldarar von-
ast til að fá um 1000 manna
lágmark. Engin ölvun var á
svæðinu á föstudagskvöld.
Úlfljótsvatn
Mikill mannfjöldi kom á
Rauðhettuhátíðina þegar í
fyrradag og var talið að 4 þús-
und manns hefðu verið á
mótinu i fyrrinótt. Skýjað var
þar í gærmorgun en úrkomu-
laust og hið bezta veður. Fjöl-
breytt skemmtiatriði verða
meðan á mótinu stendur, þrjár
hljómsveitir leika fyrir dansi
auk þess verða tvö diskótek,
djasshljómsveit leikur og sér-
stök dagskrá verður fyrir börn.
Þá verður keppt í fyrsta dreka-
fluginu sem haldið er hér á
landi og einnig verður mara-
þonkossakeppni og fylgdi það
sögunni að mikið hefði verið
æft fyrir þá keppni í fyrrinótt.
Nokkuð bar á ölvun um nóttina
en þó ekki meira en búast mátti
við þar sem svo margt manna er
saman komið. Ekki höfðu orðið
nein umtalsverð slys á mótinu,
þegar Mbl. hafði samband við
mótsstjórnina.
Húnaver
Þar voru komin um 30—40
tjöld í gærmorgun og hafði
fólkið sem þar tjaldaði komið á
föstudagskvöld. Skýjað var en
úrkomulaust og horfur á að
hann héldist þurr 1 dag. í Húna-
veri verður skemmtun og dans-
leikur, og var búizt við að
400—500 manns yrði á dansleik
þar í gærkvöldi.
Laugar
Þar var mjög gott veður í.
gærmorgun, glampandi sólskin
og blíða, enda voru þar komin
300—400 tjöld og hátt í tvö þús-
und manns komnir á mótsstað-
inn. Þar verður skemmtun í
fþróttahúsinu, sem nú er i
byggingu og dansleikur, en
skemmtiatriðin eru sniðin fyrir
alla aldursflokka. Var búizt við
að enn ætti eftir að fjölga á
svæðinu og þar yrði meira
margmenni en nokkru sinni frá
því að landsmót ungmennafél-
aganna var þar haldiö 1961.
Eiðar.
Sólskin var einnig á mótinu á
Eiðum, en nokkur gola í gær-
morgun. Búizt var þó við að þar
Framhald af bls.43