Morgunblaðið - 12.08.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. ÁGUST 1977
29
P JU W - Al
= VELVAKANDt
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
ir
þambaður er stöðugt, en maður
vill gjarnan 2 bjóra á dag og er
það varla mikið. Nú þýðir ekki að
andmæla lengur og þessari kúgun
verður að létta og hætta árásum á
vín og tóbak, benzin og annað. Ef
hækka þarf eitthvað til að ná inn
aurum verður bara að snúa sér að
einhverju öðru.
Hér á landi er að minu áliti
skattpíning (með engum launum)
og kúgun á sviði neyzluvara, á ég
þar við bjórleysi, vin og tóbak selt
okurhátt. Ég held flestu sé hér
stjórnað með ofstæki og ég held
að það ætti að leggja bændastétt-
ina niður, hún með sinar okurháu
vörur er að verða óþörf, sbr. það
að „gefa“ Færeyingum kjötið sem
þeir henda siðan fyrir hunda, en
við verðum að kaupa á okurháu
verði.
Örn Asmundsson."
Svo mörg voru þau orðin og
ekki er bréfritari myrkur í máli.
Reyndar var bréfið öllu meira
„krassandi" en hér er birt, en
Velvakandi leyfði sér að vinsa ör-
litið úr allra stærstu orðin og
stytta það nokkuð. Að sjálfsögðu
er þeim heimilt að svara sem vilja
taka upp hanzkann fyrir þau mál-
efni, sem bréfritari deilir hér á,
verði þess óskað. En hér fer á
eftir bréf úr annarri átt:
% Þakkir fyrir
lífgjöf
„Ég vil fá að nota tækifærið
hér til að þakka því islenzka fólki
sem með því að gefa blóð hefur
mjög sennilega bjargað lifi sonar
míns, Kewins, dagana 4.—8. júli.
Kewin var fluttur á Landsspítal-
ann 5. júli s.l. þar sem ekki er
aðstaða á sjúkrahúsinu á Kefla-
vikurflugvelli til þeirrar aðgerðar
er hann þurfti. Þar var hann i
tvær vikur I mjög góðri umsjá
lækna og annars starfsfólks
spítalans. Nú er hann kominn
heim og er óðum að ná sér og
vænzt er fulls bata á næstunni.
Við, sem erum bandarisk fjöl-
skylda, höfum notið þess að
dvelja hér á landi siðustu 18 mán-
uði. Okkur finnst Island fallegt og
Islendingar vinalegir og gestrisn-
ir. 1 þessum mánuði hverfum við
á braut og tökum með okkur
margar góðar minningar héðan,
þá mikilvægustu að Kewin skyldi
hafa náð sér, en hann mun alltaf
lita á sig sem Islending að hluta.
Með kveðjum,
Helen Spaulding,
herstöðinni,
Keflavik."
Þessir hringdu . .
% Tvö gagnmerk
félög
Utilifsmaður:
Eins og flestir vita eru hér
starfandi tvö félög er hafa það að
markmiði að stofna til útiveru og
gönguferða hvers konar og ferða-
laga, lengri og skemmri. Félögin,
sem eru Ferðafélag Islands og
Utivist, hafa unnið mjög þarft
starf á þessum vettvangi og eiga
þau vissulega þakkir skildar fyrir
það. Einnig hafa sprottið upp önn-
ur félög, Ferðafélag Akureyrar og
e.t.v. fleiri, sem starfa úti um land
á svipuðum vettvangi.
Hins vegar hafa kannski ekki
allir gert sér grein fyrir hversu
mjög þessi félög, sérstaklega
Ferðafélag Islands, þvi það er
eldra, hafa beitt sér fyrir alls
kyns framkvæmdum, skálabygg-
ingum og öðru viða um land, og er
það til hagsbóta fyrir alla al-
menna ferðamenn, þótt þeir komi
hvergi nálægt starfi þessara
ferðafélaga. Mjög margir njóta
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Eins og dæmin sanna geta hin-
um sterkustu stórmeisturum
stundum orðið á ótrúlegar og
barnalegar yfirsjónir. Hér er það
heimsmeistarinn Anatoly Karpov,
sem hefur svart og á leik gegn
Kiarner i sovézka Ölympiumótinu
(Spartakiad) árið 1972.
wsmm m
■ ■
11J.H £■ 1
W* -S X ® '9
m
m i
m m
:« — t ■ ■
■ ■ ■^ai
42... d2?? (Líklega stærsta yfir-
sjón Karpovs á öllum skákferli
hans. Eftir 42. ..Bb5! er staða
svarts auðunnin) 43. Hxb8 + ! og
Karpov varð að gefast upp, þvi að
hann er mát í tveimur leikjum.
aðeins góðs af þessu framtaki.
Einnig hafa þessi félög opnað
augu almennings fyrir ýmsum
atriðum varðandi útiveru og
ferðalög, umgengni o.fl. o.fl. Þá
er ótalin útgáfustarfsemi Utivist-
ar og Ferðafélagsins, sem mjög er
merkileg, en í árbókum þeirra er
að finna ferðaþætti og lýsingar á
landshlutum, sem annars kæmust
ekki á prent. Leitað er til þeirra
manna er gerst þekkja til á þess-
um eða hinum slóðunum og þeir
miðla þessum fróðleik sfnum til
okkar hinna sem þessar bækur
lesum.
Með þessum orðum mínum vil
ég aðeins vekja athygli á þessum
félögum og hvetja almenning til
að gefa þeim gaum og styðja þau.
HÖGNI HEEKKVÍSI
© 1977
McNaught Synd., Inc.
Hann ætlar að blæða á nærstadda!
SIGGA V/öGA £ 'Í/LVEÍUW
OUOX mtt'bT Nö VÓ
L\XlQ W XlL bláGO \J/ááO A
^iTAim, Q/Em^X^71%
ÖLl V40 ViXI V/ú/Vi E%
JP rX%
;v
f
Kálfakótilettur 545 kr. kg.
Kálfalæri 545 kr. kg.
Kálfahryggir 450 kr. kg.
Nautagrillsteik 730 kr. kg.
Nautabógsteik 731 kr. kg.
Nautahamborgari 60 kr. stk.
Nautahakk 1. gæðaflokkur 870 kr.
kg
Nautahakk 10 kg. í pakka 770 kr.
kg
Úrvals unghænur 700 kr. kg.
10 stk. í kassa 600 kr. kg.
Grill kjúklingar 1 100 kr. kg.
Holda kjúklingar 1200 kr. kg.
1 0 stk. kjúklingar í kassa 900 kr. kg.
Nýr Lundi 140 kr. stk.
Reyktur Lundi 240 kr. stk.
Nýr Svartfugl 200 kr. stk.
Nýtt Hvalkjöt 490 kr. kg.
Reykt Hvalkjöt 685 kr. kg.
Saltaðar Nautatungur 980 kr. kg.
Ódýru lambasviðin 380 kr. kg.
Kálfahakk 580 kr. kg.
Kindahakk 685 kr. kg.
Saltkjötshakk 685 kr. kg.
Ærhakk 550 kr. kg.
Nautahakk 870 kr. kg.
Svinahakk 980 kr. kg.
Líttu inn,
þad verdur
gaman
ad sjá þig
m
Opið til kl. 7 föstudaga
Lokað á laugardögum
GS^)TT[tói]n{D©TKoXÐ)n[R3
Laugalœk 2. REYKJAVIK. simi 3 50 20
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
W um
mizT