Morgunblaðið - 28.08.1977, Qupperneq 33
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977
33
Dóra Magnúsdótt-
ir—Minningarorð
F. 2. apríl 1900.
D. 22. ágúst 1977.
Frú Dóra Magnúsdóttir, Sól-
vallagötu 17, fædd í Reykjavík 2.
apríl 1900 andaðist 22. ágúst sl. í
Landspítalanum. Hún veróur
jarðsunginn frá Dómkirkjunni á
morgun kl. 14:00. Hún hefur orðið
friðnum fegin, því lítil von var
um afturbata. Hún starfaði um
langt skeið á yngri árum á Land-
símanum við langlinuafgreiðslu,
var framúrskarandi starfskraft-
ur, fljót að afgreiða og ákveðin i
öllum þeim hraða, sem þessum
starfa fylgir. Ung og fram eftir
aldri var hún glæsileg kona svo
eftir henni var tekið á götum
bæjarins.
Ég, sem þessar línur skrifa, var
oft í gömlu sundlaugunum eftir
vinnutíma og sá ég þá Dóru þarf
oft. Fljótlega tók ég eftir þvi, að
hún var afbragðssundkona, en
mest dáðist ég að því, þegar ég sá
hana fara uppá háa stökkpallinn,
sem var 4—5 m. á hæð og fjaðraði
mikið, tók tilhlaupið aftast, hljóp
fram brettið og stakk sér, þegar
brettið bar hæst, fjaðurmögnuð
og fött í baki og kom í vatnið
ávallt á sama stað svo ekki skeik-
aði nema örfáum cm í hvert
skipti. Að þessu lék hún sér, hvort
sem hún stakk sér áfram eða aft-
ur á bak. Allir sem til sáu dáðust
að þessari leikni hennar. Tví-
mælalaust var hún meðal beztu
leikfimiskvenna bæjarins og
sýndi ásamt öðrum fremstu leik-
fimiskonum á hátiðarsýningu,
sem haldin var fyrir Kristján kón-
ung X. og drottningu hans við
konungskomuna 1921 og gekk
hún í fararbroddi.
Foreldrar Dóru voru þau sæmd-
arhjónin Magnús Jónsson, skó-
smiður í Reykjavik af bændaætt-
um úr Húnavatnssýlu, og kona
hans, Guðrún Jónsdóttir, ættuð af
Snæfellsnesi, komin af sjómönn-
um. Þau eignuðust sjö börn, fjór-
ar dætur þeirra dóu í æsku, sú
elzta 10 ára, fimmta systirin, Elín
Helga, dó 30 ára úr spönsku veik-
inni 1918 og syfgði Dóra, sem þá
var 18 ára, hana mikið. Hin tvö
Theodór, bakarameistari, og
Dóra, mjög samrýmd, voru þá tvö
eftir af þessum stóra systkina-
hópi, má því segja að sorgin hafi
snemma tekið sinn skatt af þess-
ari fjölskyldu.
Árið 1924 giftist Dóra elzta
bróður mínum, Magnúsi Björns-
syni frá Laufási. Eftir nám í
Menntaskólanum og síðar að
loknu farmannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum var ævistarf
hans lengst af á skipum Land-
helgisgæzlunnar, ýmist 1. stýri-
maður eða skipstjóri, en seinustu
árin eftirlitsmaður i landi hjá
henni. í minningargreinum, sem
tveir mætir menn, þeir Jón Axel
Pétursson, fyrrv. bankastjóri og
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar, rituðu við frá-
fall Magnúsar ber þeim saman
um, að Magnús hafi verið glæsi-
menni svo af bar, vellesinn, öllum
velviljaður og elskaður og virtur,
jafnt af yfirmönnum sínum sem
undirmönnum. Finnst mér því, að
verið hafi hið mesta jafnræði með
þeim hjónum á flestum sviðum.
Þau eignuðust þrjú börn, Jón,
hæstaréttarlögmann, Elínu
Helgu, gæslukonu á leikvöllum
borgarbarnanna, og Magnús
Theodór, brunavörð.
Mágkona mín var ákaflega
greiðvikin og hafði ánægju af að
gefa bæði börnum sínum og
barnabörnum og mörgum fleiri.
Til gamans minnist ég þess, er ég
var nýkominn til íslandsbanka
auðvitað með lítil laun og þurfti
að snúa hverri krónu við og þó
minna væri, þá vidi svo til að ég
var úti garði með 10 kr. seðil, sem
þá þótti stór peningur, hvasst var
og ég missti seðilinn út úr hönd-
unum og fann hann ekki hvernig
sem ég leitaði. Dóra var þá nær-
stödd og komst að þessu, kom til
mín og sagði Jón minn, hafðu
engar áhyggjur út af þessu, tók
upp buddu sína og rétti mér 10 kr.
seðil og hafði hún þó ekki sjálf úr
miklu að spila, frekar en margir
aðrir á þeim tima.
Mann sinn missti hún 1960, 64
ára að aldri, varð hann bráð-
kvaddur. Þau hjón unnust hugást-
um og varð henni þetta svo mikið
áfall, að hún bar aldrei sitt barr
eftir það. Lífsþróttur hennar
þvarr ár frá ári unz yfir lauk. Um
fimmtiu og eins árs skeið hafa
ávallt fleiri eða færri af fjöl-
skyldu okkar búið að Sólvallagötu
17 og fullyrði ég, að sambúð allra
þar hafi verið með ágætum.
Um leið og við kveðjum Dóru
minnumst við hennar með sökn-
uði og virðingu. I vitund okkar er
hún nú komin i hóp ástvina sinna,
sem kvatt hafa þessa jarðnesku
vist.
Blessuð sé minning hennar.
Jón. S. Björnsson.
Philco
býður þurrkara sem getur staðið ofan
á þvottavélinni. Þannig nýtist gólf-
rýmið til fullnustu og handhægt, út-
dregið vinnuborð milli vélanna auð-
veldar notkun þeirra. Já — allt sem
til þarf eru einfaldar festingar og
tvær flugur eru slegnar í einu höggi.
Philco þurrkarinn
tekur 5 kg af þurrum þvotti — sama
magn og þvottavélin. Hann er auð-
veldur í notkun — með fjögur sjálf-
virk þurrkkerfi sem henta öllum teg-
undum af þvotti og allt aðtveggja
klst. tímarofa.
Philco þvottavélin
tekur inn heitt og kalt vatn, vindu-
hraðinn er 850 snúningar á mínútu,
sem þýðir mun styttri þurrktíma.
Tvær stillingar eru fyrir vatnsmagn,
ullarkerfið er viðurkennt og einfalt
merkjamál er fyrir hvert þvottakerfi,
svo að allt sé á hreinu!
Er það furða þó að fleiri og fleiri velji Philco
slær tvær f lugur í einu höggi
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Kr. 300
Skattfrjálsir vinningar að verðmæti 4 niilljónir króna.
Stöndum saman í haráttunni gegn hjarta- og æöasjúkdómum.
Kaupið miða strax í dag.