Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977
37
Nvr bíll á Islandi
Komið á
mí
Biíreiðar & Landbúnaðarvélar hi.
Sudurlandsbraut 14 - lleykjavík - Nimi :iittílNt
og skoðið LADA 1600
Nordjass-
hljómsveitin
i Reykjavík
A Nordjassráðstefnunni, sem
haldin var í Helsinki f janúar-
mánuði sl„ var ákveðið að hljóm-
sveit Nordjassleikara færi f
hfjómleikaferð um Norðurlönd f
sumar. Jasshljómsveit þessi er nú
væntanleg til tslands f næstu viku
og leikur n.k. þriðjudag 30. ágúst
f Norræna húsinu.
Umrædda hljómsveit skipa þeir
Arild Andersen bassaleikari og
Pál Towsen trommuleikari, en
þeir eru báðir frá Noregi, Lars
Janson píanóleikari frá Svíþjóð
og Juhani Aaltonen, finnskur
flautu- og saxófónleikari.
Eins og fyrr segir kemur Nord-
jass hljómsveitin fram í Norræna
húsinu á þriðjudag og aðrir tón-
leikar verða síðan í Glæsibæ.
AVTOEXPORT
14, VOLKHONKA, MOSCOW, USSR
Útflytjandi fólksbíla, vörubíla, áætlunarbíla, þungavinnuvéla, sérhæfðra bíla,
viðgerðaráhalda og verkstæðistækjabúnaðar.
Bergur Eiríksson
— Minningarorð
HÚSBYGGJ
F. 20. júnf 1929.
D. 18. ágúst 1977.
A morgun verður borinn til
moldar í Fossvogskirkjugarði
vaskur maður og góður drengur,
Bergur Eiriksson frá Akureyri.
Hann var fæddur 20. júni árið
1929 og voru foreldrar hans Rut
Öfeigsdóttir og Eiríkur Einars-
son. Þau hjón voru bæði skagfirzk
að æfct, en fluttu til Akureyrar
árið 1937. Bergur var 3. í röðinni
af 7 systkinum. Hann þótti
snemma röskur til allrar vinnu,
svo sem hann átti kyn til, en faðir
hans var slikur afkastamaður til
verka að orð var á haft. Bergur
stundaði sjómennsku á unglings-
árum sinum og eftir að hann
flutti til Hafnarfjarðar rak hann
þar útgerð með eigin báta i all-
Bergur, Guðmundur, Sigtryggur,
Baldvin, Haukur og fleiri, oft að
bera stangir og annan útbúnað
neðan frá Utgarðsmel upp í
Hlíðarfjall og leggja siðan brautir
fyrir sjálfa sig og ekki síður fyrir
þá yngri. Þá var oft glatt á hjalla
og ætið varð þreytan að þoka fyrir
glaðværð og hlátrasköllum.
Bergur kenndi lasleika hin sið-
ustu ár og það mun hafa verið
þessum röskleikamanni mikil
raun að finna mátt sinn þverra og
liggja að síðustu lamaður á
sjúkrabeði. En þessu tók Bergur
þó með karlmennsku og æðru-
leysi, svo sem mörgu öðru mótlæti
i lifinu;
Bergur var mjög vinmargur
sökum glaðværðar sinnar, hjálp-
semi og hressilegrar framkomu.
Hann gekk til leiks og starfs af
fullum dugnaði og atorku, það var
hans einkenni og aðalsmerki.
Við félagar hans í Knattspyrnu-
félagi Akureyrar söknum nú góðs
vinar og sendum aldraðri móður
hans, börnum hans og systkinum
innilegar samúðarkveðjur.
Stjórn Knattspyrnufélags
Akureyrar.
mörg ár og hafði hann þá öðlast
skipstjórnarréttindi á smærri bát-
um. Síðar bjó hann í Kópavogi og
rak þar prjónastofu með konu
sinni, Kristínu Jónsdóttur. Þau
hjón eignuðust tvö börn, Rut, nú
18 ára, og Jón Halldór, 12 ára.
Auk þess ólu þau upp dóttur
hennar af fyrra hjónabandi. Aður
hafði Bergur eignast son með
Olgu Snorradóttur, Snorra, nú
húsgagnasmið á Akureyri.
Kristínu konu sína missti Bergur
árið 1971 og var það honum þung-
bært með börnin enn svo ung.
Bergur tók virkan þátt í félags-
lífi og iþróttum hér á Akureyri á
yngri árum og þótti ætíð dugandi
liðsmaður. Hann var vel liðtækur
i frjálsiþróttum, sérstaklega
spjótkasti og kringlukasti, og
voru þeir bræður helztu braut-
ryðjendur þess að endurvekja
frjálsíþróttir á Akureyri í lok
styrjaldaráranna. Nafn Bergs
mun þó í hugum okkar félaga
hans í K.A. oftast verða tengt
skíðum og skiðaafrekum.
Hann var i allmörg ár meðal
fremstu skiðamanna hérlendis,
bæði i skíðastökki og í Alpagrein-
um og vann hann til verðlauna
bæði á Akureyrar- og Islandsmót-
um. Þar bar einkum til dirfsku
hans og líkamsstyrk og var hann
trauðla sigraður, nema af þeim
sem æfðu að staðaldri.
A þeim árum tforu engar skíða-
lyftur til og urðu eldri kepp-
endurnir, t.d. Magnús, Björgvin,
1600
m s