Morgunblaðið - 28.08.1977, Page 48
Demantur M
æðstur eðalsteina ’’*■
(§ull Sc é>iUur
Laugavegi 35____
PLAST
ÞAKRENNUR ^
Sterkar og endingargóðar
Hagstætt verð
cSþ Nýborg"
Ármúla 23 — Sími 86755
SUNNUDAGUR 28. AGÚST 1977
Flugleiðir:
Viðræður um píla-
grímaflug frá Alsír
„ÞAÐ standa yfir viðræður núna
um framhald á leiguflugi okkar
til Indlands fyrir Air India,“
sagði Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiða, í samtali við
Mbl. í gær. „Þá hefur verið
ákveðið flug með pílagrfma frá
Nfgeríu til Saudi-Arabíu, eins og
við önnuðumst f fyrra, en þá flutt-
um við um 10.000 manns. en
fjöldinn verdur eitthvað minni að
þessu sinni. Einnig hefur verið
rætt um slíkt flug frá Alsír.“
DC-8 lenti
á
5000
feta braut
ÞEGAR Keflavíkurflugvöllur
var lokaður í gær vegna veðurs
kom bandarísk DC-8-63 þota,
sem hafði ákveðið að taka elds-
neyti á íslendi. Er hún kom
yfir Keflavík var völlurinn lok-
aður og þotan hafði ekki elds-
neyti til áframhaldandi flugs
til Evrópu. Var ákveðið að láta
þotuna lenda á gamalli braut,
sem ekki hefur verið í notkun í
fjölda ára, og gekk lendingin
að óskum.
Braut þessi var byggð á
stríðsárunum og er aðeins 5500
fet að lengd, en venjuiega
lenda þoturnar á 10000 feta
brautum.
Pílagrfmaflug Flugleiða milli
Nígeríu og Saudi-Arabíu í fyrra
stóð í tvo mánuði með smáhléi og
sagði Sigurður, að vissulega
hefðu Flugleiðir áhuga á að kom-
ast enn frekar inn í slíka
flutninga frá ýmsum múhameðs-
trúarlöndum. Væru viðræðurnar
Framhald á bls. 47
Heimilið ’77:
2000 manns
fyrsta kvöldið
GÖÐ aðsókn var að sýningunni
.Heimilið ‘77 fyrsta sýningardag-
inn, á timabilinu frá þvi kl. 19 og
fram til kl. 22 á föstudagskvöld
skoðuðu 2000 mannssýmngunaog
að sögn forráðamanna sýningar-
innar áttu þeir von á mikilli að-
sókn nú um helgina.
í rokinu í gærmorgun slitnuðu þrír sportbátar frá legufærum sínum i Ellj^?;arga
og rak þá á land. Á þessari mynd, sem Friðþjófur tók sést hvar menn eru að
einum bátnum úr fjörunni í Elliðaárvogi
/drga
220 flugvélar um íslenzka
svæðið á einum sólarhring
„ÞÆR URÐU 220 flugvél-
arnar, sem fóru um ís-
lenzka flugumsjónarsvæð-
ið sfðasta sólarhring, frá
miðnætti aðfararnætur
Veiði á steypireyði og
hnúfubak ekki heimil-
uð í náinni framtíð
— segir Jón Jónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar
„ÞAU UMM/ELI Elf Gfslasonar
skipstjóra, að steypireyðar- og
hnúfuhaksstofninn séu nú á mik-
illi uppleið koma mér ekki á
óvart, enda er það ósköp eðlilegt
þar sem þessar hvalategundir eru
alfriðaðar. En þrátt f.vrir aukn-
ingu f stofni þessara tveggja teg-
unda, þá gefur það enga ástæðu
til að veiða þær f náinni framtfð,"
sagði Jón Jónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunarinnar, í sam-
tali við Morgunblaðið f gær.
Jón sagði, að reynt væri að telja
fjölda þessara hvala árlega og síð-
ustu ár hefði komið í ljós, að þeim
fjölgaði nokkuð. „Enda hefur
steypireyður verið friðuð síðan
1960 og hnúfubakur frá árinu
1955.“
Sagði Jón Jónsson, að þessir
hvalir væru við Island yfir sumar-
tfmann og færu siðan á suðlægari
slóðir Norður-Atlantshafsins þeg-
ar vetraði, en talið væri að þeir
Framhald á bls. 47
stjórninni í Reykjavík.
„Og umferðin hefur haldið
áfram nokkuð stöðugt í
nótt og morgun.“
Vegna verkfalls aðstoð-
armanna flugumferöar-
stjóra í Bretlandi hefur
aukinn þungi flugsins yfir
Atlantshaf færzt inn á fs-
lenzka flugumsjónarsvæð-
ið og sagði Ernst sem
dæmi, að inn á Prestvíkur-
svæðið væru aðeins teknar
tvær flugvélar á klukku-
stund, þannig að mestur
hluti flugsins fer fram
norðan þess og sunnan. Þá
þurfa flugvélar, sem eru á
leið til London að fara um
íslenzka flugumsjónar-
svæðið og síðan inn á
Stafangurssvæðið og aust-
ur fyrir brezka svæðið, sem
er mjög mikil lykkja á leið
þeirra.
Sagði Ernst að fyrir flug-
umferðina hefðu verið
settar upp „þrjár rútur“
um íslenzka svæðið, yfir og
rétt fyrir sunnan landið.
Það voru miklar annir f flug-
stjórninni í Reykjavík, þegar
Ól.K.M tók þessa mynd þar f gær-
morgun.
föstudags til miðnættis í
nótt, en ætli meðaltalið á
slíkum tíma að öllu eðli-
legu sé ekki um 150 flug-
vélar,“ sagði Ernst Gísla-
son, varðstjóri hjá flug-
Skólastarf hefst í
næstu viku
MORGUNBLAÐIÐ kannaði f gær,
hvenær skólarnir á höfuðborgar-
svæðinu byrja. Kennarar mæta til
starfa 1. september, en nokkuð er
misjafnt hvenær nemendur eiga
að mæta. Fara hér á eftir upplýs-
ingar um skóla í Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði
og á Seltjarnarnesi en ekki tókst
að ná í forsvarsmenn skóla í Mos-
fellssveit.
Ragnar Georgsson, skrifstofu-
stjóri, tjáði Mbl„ að kennarar við
grunnskólana í Reykjavik og
framhaldsdeildirnar myndu
mæta til starfa 1. september, en
nemendur eiga að mæta þriðju-
daginn 6. september. Að sögn Ge-
orgs verður lítils háttar fækkun
nemenda á grunnskólastiginu
eins og verið hefur síðustu árin,
en þó mun fækkunin eitthvað
hægja á sér. Fjölbrautaskólinn i
Breiðholti verður settur 12. sept-
ember, en menntaskólarnir byrja
allir í byrjun mánaðarins.
Andrés Kristjánsson, fræðslu-
stjóri i Kópavogi, sagði, að fyrsti
kennsludagurinn í Kópavogi yrði
miðvikudagurinn 7. september.
Ólafur Magnússon, skrifstofu-
stjóri, sagði að grunnskólarnir
þrír í Hafnarfirði hæfu störf 1.
september. Nemendur 1., 2., 3. og
4. bekkjar eiga að mæta í skólana
föstudaginn 2. september, nem-
endur 5., 6., 7. og 8. bekkjar eiga
að koma í skólana mánudaginn 5.
Framhald á bls. 47
Spánn íhugar nú
aðild að NATO
r
Aheyrnarfulltrúi frá Spáni í
fyrsta sinn á ráðstefnu ATÁ
AHEYRNARFULLTRÚI frá
Spáni situr nú í fyrsta sinn
ársfund Atlantic Treaty
Association, áhugamannasam-
taka f NATO-ríkjunum um
vestræna samvinnu, sem halda
árlegan fund sinn hér á landi
um þessar mundir. Er þaó de la
Mora, fulltrúi frá þriðja
stærsta stjórnmálaflokki Spán-
ar, Alianza Popular, en ATA-
samtökin buðu fulltrúum
þriggja stærstu flokkanna á
Spáni til þessa ársfundar.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði dr. Karl Momraer,
hinn v-þýzki forseti ATA-
samtakanna, að eftir því sem
stjórnarhættir á Spáni hefðu
færzt í átt til lýðræðis, hefði
áhugi vaknað innan Atlants-
hafsbandalagsins á að Spánn
yrði þar aðildarland, þvi að
slíkt myndi styrkja bandalagið
verulega. Þvi hafi verið ákveðið
en þó með skömmum fyrirvara
að bjóða þremur stærstu lýð-
ræðisflokkunum á Spáni til
þessa ársfundar hér á landi, en
vegna þess hve fyrirvarinn var
stuttur hefði aðeins einn flokk-
ur séð sér fært að senda full-
trúa.
Mommer sagði, að þessi full-
trúi væri frá flokki hægri
manna, en af hálfu ATA væri
lögð megináherzla á að allir
stærstu lýðræðisflokkarnir
gætu sent fulltrúa til að kynn-
ast starfsemi ATA og kvaðst
hann vonast til að svo yrði á
ráðstefnu ATA sem fyrirhuguð
væri í maímánuði nk. Hins veg-
ar kvað Mommer það algjört
frumskilyrði þess, að Spánverj-
ar fengju inngöngu i ATA-
samtökin að Spánn yrði form-
lega aðili að Atlantshafsbanda-
laginu.
De la Mora sagði í samtali við
Morgunblaðið, að vandamálin
varðandi aðild Spánar að
Atlantshafsbandalaginu og
Eramhald á bls. 47