Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 6

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 6
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 Þjóðskjalasafn Islands — Þjóðskjalasafn íslands — Þjóðskjalasafn íslands WBSBfSSm Safnahúsið vid Hverfisgötu. Þjóöskjalasafnið er til húsa í þeim enda, sem til vinstri er á mvndinni. Safnið hefur fení>ið vilyrði fyrir öllu húsinu, þegar Þjóðarbókhlaðan er risin og Landsbókasafnið flyzt þangaö. En jafnvel sú viðbót yrði aldrei nema til bráðabirgða fyrir Þjóðskjalasafnið. þar sem húsið allt m.vndi fyllast og vel það, ef hart yrði gengið eftir þeim skjölum, sem á safnið eiga að vera komin, en liggja hjá hinum ýmsu embættum ennþá vegna húsnæðisleysis safnsins. Húsnæðisvandræði hrjá þann menningar- arf sem skjöl eru „Menn halda aó hér sé ekkert annað geymt en kirkjubækur, en það er mikill misskilningur. Við geymum hér skjöl frá allri stjórnsýslu landsins, þannig að segja má, að vió hýsum uppistöðuna úr íslandssögu síðustu alda. Og þetta eru ekki bara dauð skjöl, heldur lifandi fróóleikur um öll svið þjóðlífsins á ís- landi.“ Það er Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjalavörður, sem hér hefur oróið, er Mbl. gekk á hans fund til að fræðast um þá stofnun, Þjóðskjalasafn íslands. „Aðallega geymum við hér hér skjöl frá 17ndu, 18ndu og 19ndu öld,“ heldur Bjarni áfram. „En þessarar aldar skjöl getum við því miður ekki tekið sem við vildum, þar sem við höfum ekkert pláss fyrir þau. Hér í safnahúsinu við Hverfisgötu hafði Þjóðskjalasafnið lengi vel rúmt pláss, en nú er svo komið að þrengslin eru okkur mjög til baga. Um framtíðarlausn á húsnæðisvandan- um er erfitt að segja. Við höfum fengið vilyrði fyrir því að fá allt húsið, þegar Þjóöarbókhlaðan er komin upp, og Landsbókasafnið veróur flutt, en jafn- vel sú viðbót verður aldrei nema til bráð:birgða, því ef við gengjum fast eftir þeim skjölum öllum, sem nú liggja úti í embættunum, þá myndum við fylla allt safnahúsið og vel það. Þaö er mín von, að áður en þessi öld er öll, verði búið að byggja myndarlegt hús til að varðveita þennan menningararf, sem skjölin eru.“ Skjöl eru ekki bara fræðilegir hlutir heldur hafa þau og hagnýtt gildi „Eg held að alit sem vitað er um hér á landi af skjölum frá fyrri öldum nema það sem geymt er í Árnasafni og Landsbókasafni sé saman komið hjá okkur,“ sagði Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjala- vörður, er Mbl. spurði hann, hvort hann vissi til þe :s að utan safns- ins væru skjöl frá fyrri öldum. „Það kann hins vegar vel að vera að einhverjir lúri á einu og einu skjali,“ sagði Bjarni, „bréfum, sem komizt hafa í einkaeign, og svo eiga ýmsir forn bréf upp á sínar jarðir. En í Þjóðskjalasafn- inu held ég, að nú sé allt, sem máli skiptir, saman komið." — Hefur á síðari árum orðió einhver sá skjala- fundur, sem hefur komið á óvart? ,,Það var fyrir nokkrum árum, að í gömlum skáp í stjórnarráðinu fannst eitt gamalt skjal. Skápur þessi var ættaður frá landfógeta- embættinu og skjalið sömuleiðis. Þetta var nú svo sem ekkert merkilegt plagg i sjálfu sér, en þetta er eini skjalafundurinn, sem ég kann að tíunda frá seinni árum.“ — En hvernig gengur svo að innheimta skjöl til safnsins? „Embættin eru misjafnlega erfið að eiga við. Einkum á þetta við á sveitarstjórnarsviðinu, en í oddvita- og hreppstjóra- embættum eru mannaskipti tið og embættisskjöl oft geymd á einka- heimilum, þannig að þessi skjala- söfn vilja nokkuð fara á tvístring. Hins vegar hefur þétta batnað mjög með tilkomu héraðsskjala- safna, sem einkum taka til skjala, sem eru sveitarstjórnarlegs eðlis. Skagfirðingar, Borgfirðingar og Eyfirðingar hafa komið sér upp myndarlegum héraðsskjala- söfnum og Austfirðingar eru að koma sér upp safni, en annars staðar eru mál skemmra á veg komin. Þangað sem góð aðstaða er fyrir hendi, ber okkur að skila sveitarstjórnarskjölum og höfum við til dæmis sent Skagfirðingum, Borgfirðingum og Eyfirðingum þeirra hreppabækur og önnur skjöl. Langstærsti hluti skjala frá þessari öld er ennþá úti í embætt- unum og þar kemur húsnæðis- leysi Þjóðskjalasafnsins mjög við sögu. Reynd’ar hafa sýslumenn undir höndum ýms skjöl frá 19ndu öld, sem þeir verða að hafa undir höndum, svo sem veðmála- bækur og landamerkjaskrár, en þetta er allt á hreinu, þannig að það stendur það sem ég sagði áð- an um það, að í okkar vitneskju og hendur væri komið allt það, sem máli skiptir frá fyrri öldum.“ — Hvaó með stjórnar- ráóið? „Stjórnarráðið hefur skilað okkur ýmsum skjölum, en þeir eru nú einmitt að koma sér upp bráðabirgðageymslum fyrir sin skjöl. Það er ákaflega miklum erfióleikum bundið að varðveita öll þau skjöl, sem myndast nú á dögum, og þá ekki síður að ákvarða, hvað á að varðveita og hvað ekki, þvi auðvitað er ekki öllu haldið svo til haga, að hvert snifsi eigi að geymast." Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjalavörður, í „helgidóminum“; lítilli geymslu, þar sem varðveitt er allt það fornasta, sem Þjóðskjalasafnið á, skinnbréf, skinnbækur og þess háttar. Meðal kjörgripanna er manntalið frá 1703; elzta manntal á fslandi og að sögn Bjarna elzta þjóðartal f Evrópu og þó víðar væri leitað, en eldri eru vart til nema frá nýlendum Frakka í Kanada. Sigurðarregistur Reykjaskjalið Reykholtsmáldagi í Þjóðskjalasafni íslands er geymt ýmislegt fornt efni, þ.á m. á annaö þúsund skinnbréf; einkum jarða- skjöl og bréf, sem varða einstakar kirkjur. Eina stóra skinnbókin í safninu er skrá yfir eignir Hóla- stóls á 16ndu öld í tíð þriggja biskupa þar. Skrá- in byrjar, er Jón Arason verður biskup 1520 og er haldið áfram eftir aftöku hans 1550 og síðasti hlut- inn er svo frá því að Guð- brandur Þorláksson kemur að Hólum 1570. Skrá þessi er kennd við Sigurð, son Jóns Arasonar, og kölluð Siguróarregistur. Hún er skrifuó með fleiri en einni rithönd, en talið er að Sigurður hafi haft umsjón með gerö hennar. Elzta dagsetta skjalið í Þjóðskjalasafni íslands er frá 2Sja júní 1311 og er það vitnisburður um landa- merki Reykja í Tungusveit í Skagafirði. Þetta skjal eignaðist Þjóðskjalasafnið 1953 og þá frá Ameríku. Á árunum 1890—1900 dvaldist hér á landi amerískur verkfræðingur, Hanson að nafni, og athug- aði ýms mál fyrir væntan- legar símalagnir. Hann keypti þá vitnisburðinn um landamerki Reykja og hafði skjaliö heim með sér vestur um haf. Ekki er Ijóst, hvar né af hverjum Hanson keypti skjalið, en Siguróarregistur vitað er til þess að Árni Magnússon reyndi mjög aó komast yfir þetta skjal í Skagafirði á sínum tíma, en árangurslaust. Árni fékk þá bróður sinn til að skrifa það af og lengi vel var önnur gerð en afskrift- in ekki þekkt. Það var svo sonur Hansons, sem gaf skjalið hingað til lands aftur; í Þjóóskjalasafn íslands. Elzta skjal Þjóóskjala- safns Islands er Reykholts- máldagi, en sumt efnis hans er frá dögum Snorra Sturlusonar. Hann er elzta frumskjalið sem þekkt er á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.