Morgunblaðið - 09.10.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977
47
— Þjóðskjalasafn íslands
Þeir eru margir, sem leita í Þjóðskjalasafnið, enda eru skjöl ekki
bara fræðilegs eðlis heldur hafa þau einnig hagnýtt notagildi. Þessi
mynd er úr lessal Þjóðskjalasafnsins.
Auk þjóðskjalavarðar starfa fimm háskólamenntaðir skjalaverðir
við Þjóðskjalasafnið og sýnir myndin tvo þeirra að störfum. Þegar
JVIbl. spurði Bjarni Vilhjálmsson að hverju starfsmenn safnsins ynnu
þessa dagana, sagði hann að mestur tíminn færi nú í að raða upp
gömlum embættisskjölum auk þess sem frekari útgáfa á skjalaskrám
er í undirbúningi. Auk skjalavarðanna starfa svo aðstoðarmaður og
afgreiðslumaður hjá safninu.
— Telur þú aö
ófullnægjandi ge.vmsla á
skjölum hingað og þangað
eigi sér stað þannig að
hætta sé á því að einhver
nauðsynleg skjöl hafi glat-
azt Þjóðskjalasafninu?
,,Ég vil ekkert um þetta full-
yrða. En auðvitað er þessi hætta
alltaf fyrir hendi, þegar
húsnæðisvandræði eru á hverjum
bæ, og þess vegna er mjög baga-
legt, að við skulum ekki geta
gengið eftir þeim skjölum, sem
eiga að vera til okkar komin."
— En hverjir nota svo
Þjóóskjalasafnið?
„Það er mikið um það, að hing-
að komi alls konar menn til að
leita sér fróðleiks um ýmsa hluti.
Hingað koma áhugamenn, ekki
sizt um ættfræði, og menn, sem
leggja stund á sagnfræðinám, og
menn, sem eru að semja ritgerðir
ýmiss konar. Og þó öll skjöl séu
ekki jafneftirsótt, þá er vissara að
hafa sem mest frammi, þvi það
hefur oft hent, að við teljum
óhætt að setja eitthvað upp á háa-
loft til þess eins að þurfa að sækja
það skömmu siðar, þegar einhver
er kominn og biður einmitt um
það skjalið. Bin það er ekki bara á
sviði sagnfræðinnar, sem Þjóð-
skjalasafnið hefur notagildi fyrir
almenning. Hingað koma oft
menn, sem eiga i einhverjum
málarekstri, menn, sem eru til
dæmis að kaupa einhverja hús-
eign, að ég tali nú ekki um landa-
merkjamálin. Þannig hefur safn-
ið ekki aðeins fræðilega þýðingu,
heldur einnig hagnýta.*1
Reykjaskjaclið
Reykholtsmáldagi
norrænni tungu. Af‘ efni
hans og rannsóknum á
skrift má ráða að byrjað
var að skrifa máldagann
1180—85 og nær Irann
langt aftur í 13ndu öld,
Nafn Snorra kemur tvisvar
fyrir; í fyrra skiptið er þe‘ss
getið að hann hafi gefið
kirkjunni muni, liklega
þegar hann kom aó Reyk-
holti 1207—8 og einnig er
þess getið, að er Snorri og
Hallveig Ormsdóttir gerðu
með sér helmingafélag, þá
hafi þau gefið Reykholts-
kirkju „söngmeyjar tvær“,
þ.e. bjöllur.
Reykholtsmáldagi hefur
alla tíð geymzt á Islandi og
aðeins farið til Kaup-
mannahafnar „í stuttar
heimsóknir", eins og
Bjarni Vilhjálmsson orðaði
það. Hann var geymdur í
Reykholti langt fram á
19ndu öld, er hann var
sendur í biskupsskjalasafn-
ið þaðan sem hann kom svo
í Þjóðskjalasafnið.
Texti:
Freysteinn Jóhannsson
Ljósm.:
Kristinn Ólafsson
s*5i k « p ma e « x v 0.3 aat *5 * « s »t 1* at s spasttHaxttfMtdVStf.v iLf n e
RÝMINGARSALA--1
Bikini
Sundbolir
Mussur ofl.
Allt selt með
30-35%
afslætti
næstu viku
• Sérstök stilling fyrir straufri efni — auðveldari notkun.
• BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott.
• Ryðfritt stál i tromlu og vatnsbelg —lengri endingartimi.
• 3falt öryggi á hurð — örugg fyrir börn.
• 3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni.
• Lósigti að framan — auðvelt að hreinsa — útilokar bilanir.
• Vinduhraði 520 snún/min — auðveld eftirmeðferð þvottar.
• Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur.
• 60cm breið, 55 cm djúp, 85cm há.
• íslenskur leiðarvisir fylgir hverri vél.
Vörumarkaðurinn hf.
Electrolux þvottavélin er til á lager
á þessum útsölustöðum:
AKRANES: Þóröur Hjálmarsson,
BORGARNES: Kf. Borgfiröinga,
PATREKSFJÖRÐUR: Baldvin Kristjánsson
tSAFJÖRÐUR: Straumur hf.,
BOLUNGARVtK: Jón Fr. Einarsson,
BLÖNDUÖS: Kf. Hiinvetninga,
SIGLUFJÖRÐUR: Gestur Fanndal,
OLAFSFJÖRÐUR: Raftækjavinnustofan sf
AKUREYRl: Akurvík hf.,
HOSAVtK: Grimur og Arni,
VOPNAFJÖRÐUR: Kf. Vopnfiróinga,
EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa,
ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfiröinga
HOFN: KASK,
ÞYKKVIBÆR: Friðrik Friðriksson,
VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf.,
KEFLAVtK: Stapafell hf.
Electrolux
ELECTROUIX WH HS
ER MESTSELDA
MOTTAVÉLIN M SVÍÞJÓD
1 árs
ábyrgð
Electrolux
þjónusta.
Hagstæð
greiðslu-
kjör.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
ÞÚ AIGLYSIR L’M ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AIGLYSIR I MORGUNBLAÐINL'
a tt H. MTUffJBCai svcrrill'l ISSEIV »4» 9» ti *»«*•»«• * *»•« » tt m * « » M ■*.