Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKT0BER 1977 57 *?Þá stóð **Loksins >>Eg sé englana þó uppúr hcít sagði hún: Nú vera að koma niður engilsmynd 99 koma þeirt* W stiga.. .99 HINN DYRÐLEGIDAUÐI Sigurveig Gudmundsdóttir, Hafnarfirði: Stúlkan frá Vestmannaeyjum Vífilstaðir 1928. Það var autt rúm á stofu fimm. Ekki stóð það lengi því samdægurs kom sjúkl- ingur með heila fjölskyldu á eftir sér. Þetta var einstaklega frið stúlka, dökk- hærð með bogadregnar augnabrúnir yfir bláum og bliðlegum augum. Við sáum strax að hún var illa farin. Hún gat aðeins staulast yfir gólfið að rúminu með aðstoð roskinnar konu, sem auðsjáanlega var móðir hennar, og mjög myndarlegs manns, sem þessi nýja stofusystir Iíktist mikið. — Ég kannaðist undireins við hana. Við höfðum verið samtiða í Kvenna- skólanum árinu áður, þó ekki I sama bekk. Þá var hún bústin og blómleg, gullfalleg stúlka. Hún hét Teódóra, en var alltaf kölluð Dóra. Faðir hennar hét Jón Hinriksson, kaupmaður í Garðinum í Vest- mannaeyjum. Móðir hennar hét Ingibjörg. Dóra átti mörg systkini og minnir mig að systir hennar hafi verið með í þessari för á hælið. Við vorum mjög ánægðar yfir að fá svona fallega stofusystur og hugðum gott til að fá hana i okkar hóp. Dóra hafði líka mikinn hug á að vera á fótum og ná fullum bata, ekki vantaði það. En strax fyrsta daginn var hún með nokk- uð háan hita og þá var loku fyrir það skotið að hún færi á fætur. Við litum ekki mjög alvarlega á það mál. Flestir, sem komu á hælið, voru með hita fyrstu dag- ana. En timinn leið og ekki losnaði Dóra við hitann. Hún var orðin mjög mögur, þegar hún kom. — Það gat líka lagast, það höfðum við séð. En Dóra hafði alls enga matarlyst. Henni velgdi við öllum mat og eins og algengt var, þá fannst henni matur hælis- ins vondur, — ef ég fengi sama mat og hjá henni mömmu, þá gæti ég borðað. — Þetta var lika viðkvæðið hjá mörgum sjúkling- um. Veikin tók af þeim alla matarlyst en samt voru þeir sársvangir. — Bara að maturinn væir eins og heima. Frú Ingibjörg var dæmigerð um þær góðu mæður, sem sátu yfir fársjúkum börnum sinum, þar til yfir lauk. Þó að hún þyrfti að yfirgefa heimili sitt i Vest- mannaeyjum og búa i Reykjavik sem gest- ur mánuðum saman, þá kom hún uppá hvern dag til dóttur sinnar, stundum gangandi í slæmu veðri neðan frá vegmót- um við Hafnarfjarðarveginn. Alltaf var frú Ingibjörg jafn glöð og róleg, rétt eins og dóttir hennar væri þarna á skemmti- legu hóteli. Þegar Dóra kvartaði undan matnum þá kom frú Ingibjörg með til- búinn mat, alla leið frá Reykjavík, fékk þetta einhvernveginn hitað upp og reyndi að fá Dóru til að borða. — En þá hafði hún enga lyst, neyddi sig til að borða fáeina bita og síðan ekki meir. Dóra var það þroskuð andlega að hún gerði sér nokkra grein fyrir veikindum sínum og bað móður sína að hætta að koma með mat. Dóra var mjög glaðsinna og kát stúlka að eðlisfari. Fyrstu mánuðina naut hún sín nokkuð og tók þátt i skrafi okkar jafnaldra sinna. En hún léttist jafnt og þétt, og brátt gat húh ekki stigið í fæturna. Samt hafði hún gaman @f kvæðum eiáis og við hinar. Og þegar við vorum að stagl- ast á kvæðabrotum uppáhaldsskálda okk- ar, þá tók Dóra undir í sama tón og fór með sín kvæði. — Mér fannst fyrst ein- kennilegt, hvað hún hélt mikið uppá skáldskap Bjarna Thorarensen. — En þegar við heyrðum hana, æ ofani æ, söngla sömu vísurnar, þá fórum við að hugsa margt. Kysstu mig, hin mjúka mær, þú ert sjúk, því þú deyr. Glaður drekk ég dauða úr rós, af vörum þinum, því skálin er svo skær. Fallega Dóra vissi hvernig komið var en Leiði Teódóru Jónsdóttur i Vestmannaeyjakirkjugarði Þegar garðurinn huldist ösku i gosinu stóð engillinn á gröf hennar upp úr. Reynsla manna milli heims og helju Sunnudaginn 25. september s.l. birtist í Morgunblaðinu grein sem þýdd var úr þýzka tímaritinu Der Spiegel og fjallaði hún um rannsóknir erlendra vísindamanna á því sem kallað er „klíniskur dauði“ og reynslu manna sem vaktir hafa verið tii lífsins eftir að þeir voru „læknisfræðilega látnir“, svo og um reynslu manna sem verið höfðu nærri dauðanum vegna veikinda eða slysa. Nefndist grein þessi „Hinn dýrðlegi dauði, — reynsla manna milli heims og helju.“ Grein þessi vakti mikla athvgli og í framhaldi af henni óskaði Morgunblaðið eftir frásögnum eða lýsingum frá fólki hérlendis sem byggi yflr slíkri reynslu. Birtist hér á eftir fyrsta frásögnin sem Morgunblaðinu hefur borizt, og er hún skráð af Sigurveigu Guðmundsdóttur, kennara í Hafnarfirði. ítrekar Morgunblaðið jafnframt óskir sínar um að fólk sem býr yfir slíkri reynslu eða hefur vitneskju um fólk sem hefur hana, skýri blaðinu frá henni. Skal tekið fram að ekki er nauðsynlegt að nafna sé getið, þótt slíkt sé æskilegt, og jafnframt er boðin aðstoð blaðamanna við að skrá slíkar frásagnir, ef fólk kýs það heldur. hún talaói aldrei um grun sinn, nema i ljóðum Bjarna Thorarensen. — Hún elsk- aði átthaga sína af ástríðu. Aldrei hef ég kynnst nokkrurri manneskju, sem dáðist jafnmikið að æskustöðvum sinum. — Það virðist einkenni margra Vestmanneyinga. Hún var óþreytandi við að segja okkur frá ævintýraeyjunni sinni, þar sem allt var svo gott og allir voru glaðir og kátir. — Síðan sáum við Vestmannaeyjar í einskon- ar töfraljóma. — Stundum fór hún með visur eftir Þorstein Erlingsson, svo sem til staðfestingar á þvi sem hún var að segja okkur: Blómin væn þar svæfir sín i sumarblænum þýðum yst í sænum eyjan min iðjagræn í hliðum. En alltaf varð það Bjarni Thorarensen, sem varð þrautalendingin hjá fallegu Dóru. Hún kunni Sigrúnarljóð: — Þínar það vist eru varir, þó verði þær kaldar, kinnar ég sé þær sömu, þó sjái ég þær hvítar. Þegar leið að vori varð augljóst hvert stefndi með Dóru. Hún var orðin tærð og máttlaus, þó að móðir hennar teldi í hana kjarkinn með óendanlegri ástúð. Dóra var ' búin að vera á stofu fimm i sex mánuði. Þó að hún yrði að iokum lítið annað en skinnið og beinin, þá hélt hún undra lengi andlitsfegurð sinni. Hún var svo augnfög- ur að þar virtist ekkert vinna á. — Þá var það einn vordaginn, að við vorum að fara út á siðustu göngu dagsins. Frú Ingibjörg sat við rúm dóttur sinnar, eins og vant var, og við gátum ekki séð neina breytingu á ástandi Dóru. Þá sagði frú Ingibjörg: Viljið þið koma að rúminu hennar Dóru, hún vill fá að kveðja ykkur. Við röðuðum okkur kring um rúmið og Dóra tók í höndina á okkur öllum, hverri fyrir sig og þakkaði okkur fyrir samveruna. Við vorum sem steini lostnar. Ekki hafði okkur dottið í hug að Dóra ætti svona skammt eftir. Þegar hún var búin að kveðja, stóðum við allar kyrrar og vissum ekki hvað við áttum af okkur að gera. Þá brosti Dóra. og sagði: Ég sé englana vera að koma niður stiga til að sækja mig. — Og hún horfði til himins brosandi. Hún virtíst með fullri rænu, því að móðir hennar svaraði henni og sagði: Já, Dóra min. auðvitað koma englarnir að sækja þig. Dóra horfði á eitthvað, sem engin okkar sá. brosleit og fagnandi. — Loksins sagði hún: Nú konta þeir. — Og um leið brustu augun. — Eg hafði aldrei fyrr séð manneskju deyja. og þetta var fagur dauði. — Ekkert var að óttast, fyrst dauðinn var svona fögur stund. Frú Ingibjörg veitti dóttur sinni nábjargirnar og gekk út. Við fórum á eftir henni. Þegar stofuhurðin lokaðist, þá fyrst leyfði þessi sterka og kærleiksríka kona að tárin streymdu. Hún var búin að harka af sér í það langan tima að tárin urðu að fá framrás. Nú var óhætt að gráta. dóttirin góða var farin þangað, sem ekki er lengur harmur né umbreytingarskuggi. Siðan hef ég séð marga deyja, stundum alveg rænulausa, eða þá að þeir hafa séð eitthvað á dauðastundinni sem fyllti þá störri undrun. En engan hef ég séð devja nteð sl^'kum gleðisvip og fallegu Dóru frá Vestmannaeyjum. Þegar kirkjugarðurinn i Vestmannaeyj- um huldist ösku i gosinu og flestir leg- steinar fóru í kaf þá stóð þó uppúr hvít engilsmynd. Fjölmargar myndir voru teknar af þessum hvita engli sem einn benti ufir svarta eyðimörk. Þessi varðhaldsengill stendur á gröf Teódóru Jónsdóttur úr Garðinunt i Vest- mannaeyjmum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.