Morgunblaðið - 15.11.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÖVEMBER 1977
Utankjörstaða-
kosning 1 prófkjöri
sjálfstæðismanna
Utankjörstaðakosning vegna
prófkjörs um skipan framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík við næstu Alþingis-
kosningar fer fram daglega í
þessari viku í Valhöll, Háaleitis-
hraut 1, 2. hæð.
Kosningin stendur yfir daglega
frá kl. 5—7 og henni lýkur föstu-
daginn 18. nóv. Utankjörstaða-
kosningunni er þeim ætluð, sem
verða fjarverandi úr borginni
aðalprófkjörsdagana 19.—20. og
21. nóv., eða verða forfallaðir af
öðrum ástæðum.
Aðalprófkjörsdagana laugard.
19. nóv. og sunnud. 20. nóv.
verður kosið á 7 stöðum i
borginni, frá kl. 14—19 báða
dagana en á mánudeginum 21.
nóv. verður einungis kosið í Val-
höll, Háaleitisbraut 1 frá kl.
15—30—20:30.
Bíóið fullt af börn-
um en neyðarhurð-
imar opnuðust ekki
ELDUR kom upp 1 kyndiklefa
Hafnarbfós f Reykjavfk á sunnu-
daginn en þá stóð sem hæst þrjú
sýning á myndinni „Sprellikarl-
ar“ og var bfóið fullt af börnum.
Traustur eldvarnarveggur er
milli kyndiklefans og bfósalarins
og kom ekki svo mikið sem reykur
inn í salinn. Samt þótti vissara að
ryðja salinn og gekk það fljótt og
vel. Slökkviliðið kom á vettvang
og réð niðurlögum eldsins á
skömmum tíma. Sagði Gunnar
Sigurðsson varaslökkviliðsstjóri
að krakkarnir hefðu þarna fengið
dálitla uppbót á bióið. Þau væru
alltaf spennt fyrir slökkviliðinu
og mætti segja að slökkviliðið
hefði þarna stolið senunni og
bætt börnunum upp missi bíó-
myndarinnar.
Fjórar hurðir með öryggislæs-
ingum eru á bióinu og reyndust
tvær þeirra ónothæfar þegar til
kom. Sagði Gunnar Sigurðsson að
Losun Ljósa-
foss gekk vel
í Grimsby
SKIP Eimskipafélags Islands,
Ljósafoss, losaði f gær um 120
Iestir af fiski f Grimsby, og gekk
losunin mjög vel. Aður var jafn-
vel búist við að reynt yrði að
stöðva losun fisksins, þar sem sjó-
menn og hafnarverkamenn í
Bretlandi höfðu f hótunum um að
stöðva allan fiskinnflutning til
Bretlands frá tslandi.
Jón Olgeirsson ræðismaður
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að ekki hefði borið á neinni
mótspyrnu þegar skipið var losað
og sagðist halda að mönnum væri
runnin mesta reiðin. Þá sagði Jón,
að lítið framboð væri af fiski i
Grimsby og Hull um þessar mund-
ir og fiskverð því geypihátt.
ástæðan væri sú að þær væru
aldrei notaðar. Vildi hann brýna
fyrir þeim, sem eiga að sjá um
húsnæði með neyðarútgöngum,
að huga að þeim annað slagið.
Væri nauðsynlegt að opna
hurðirnar af og til og athuga
öryggislæsingarnar svo að ekkia
fyrir og í Hafnarbíói um helgina,
að neyðardyrnar opnuðust ekki.
Góð loðnu-
veiði á
milli lægða
GÓÐ loðnuveiði var á sunnu-
dagsmorgun og fram eftir degi
þá, en er leið á daginn versn-
aði veður mikið og skipin
héldu til hafnar. Þann tíma
sem skipin fengu frið til veið-
anna tilkynntu 18 skip um afia
samtals 3800 lestir.
Loðnuskipin héldu mörg
hver út á laugardagskvöld og
strax á sunnudagsmorgun
köstuðu mörg nokkuð vestur
af Kolbeinsey, en skipin áttu í
erfiðleikum með að athafna
sig, sökum þungs sjólags. Skip-
in, sem fengu afla héldu flest
til Siglufjarðar, en einhver
munu hafa farið til Bolunga-
víkur.
Skipin sem fengu afla
eru: Guðmundur RE 130 lestir,
Bjarni Ölafsson AK 70, Helga
2. RE 200, Hilmir SU 400,
Rauðsey AK 330, Albert GK
100, Gisli Árni RE 160, Pétur
Jónsson RE 300, Huginn VE
40, Óskar Halldórsson RE 320,
Isleifur VE 250, Skarðsvik SH
500, Hrafn GK 350, Hrafn
Sveinbjarnarson GK 100, Jón
Finnsson GK 240, örn KE 100,
Freyja RE 100 og Skfrnir AK
120 lestir.
Benedikt Gunnlaugsson
Þeir fórust
með Haraldi
LEIT að vélbátnum
Haraldi SH 123 var hætt
s.l. laugardagskvöld, en þá
hafði hún engan árangur
borið.
Tveir menn fðrust
með bátnum. Þeir hétu
Bragi Þðr Magnússon og
Benedikt Gunnlaugsson.
Bragi Þór var 28 ára
gamall, hann lætur eftir
konu og 1 barn. Benedikt
var 35 ára, lætur eftir sig
konu og barn, og 3
uppkomin stjúpbörn.
Bæjarráð Hafnarfjarðar:
Vill greiðslur fyrir
utanbæjarnemendur
- 56 þús. kr. á fjölbrautastigi og 76 þús. kr. á grunnskólastiginu
Mynd þessi var tekin f gær við utankjörstaðakosningu f prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavfk.
„ÞAÐ ER umtalsverður kostnað-
ur, sem Hafnarfjarðarbær hefur
borið á undanförnum árum vegna
utanbæjarnemenda, en við höfum
aldrei krafið um greiðslu vegna
annarra en iðnskólanemenda fyrr
en nú,“ sagði Kristinn Ó. Guð-
mundsson, bæjarstjóri 1 Hafnar-
firði, 1 samtali við Mbl. f gær, en
bæjarráð Hafnarf jarðar hefur
samþykkt að leggja til við bæjar-
stjðrn að gjöld fyrir utanbæjar-
nemendur f skólum Hafnarfjarð-
ar verði f vetur 56 þúsund krónur
á fjölbrautastigi og 76 þúsund
krónur á grunnskólastigi. Gjöld
þessi eru þau sömu og ákveðin
hafa verið fyrir nemendur f skól-
um í Reykjavfk.
Kristinn Ó. Guðmundsson
sagði, að um 70 utanbæjarnem-
endur væru nú við nám við Flens-
borgarskólann og væru þeir víða
að af landinu. Hins vegar væri
minna um nemendur á grunn-
skólastiginu, en þó væru þeir
nokkrir; aðallega úr Garðabæ.
Sem fyrr segir hefur Hafnarfjarð-
arbær ekki krafizt greiðslna fyrir
Oddsskarðsgöngin:
Hrunið tefur ekki
vígslu ganganna
„HRUNIÐ, sem varð f göngunum,
verður ekki til þess að seinka
framkvæmdum, og að þvf ég bezt
veit er stefnt að þvf að vfgja Odds-
skarðsgöngin 25. nóvember n.k.,“
sagði Einar Þorvarðarson, um-
dæmisverkfræðingur Vegagerðar
rfkisins á Reyðarfirði, f samtali
við Morgunblaðið í gær.
Einar sagði þegar Morgunblað-
ið ræddi við hann, að það hefðu
verið um 10 tonn af grjóti, sem
á
li
%»ntt
( & M i
Bragi Þór Magnússon
hrundu úr lofti i útskoti skammt
frá opi ganganna Eskifjarðarmeg-
in. „Við vissum um að þetta var
hættulegur staður og áttum eftir
að ganga betur frá á þessum stað.
Nú er þegar byrjað á því að
styrkja göngin á þessum stað og
verða settir stálbitar undir loftið
og þegar það er búið teljum við að
öllu sé óhætt,“ sagði Einar.
Þá sagði hann, að nú væri lokið
við að setja upp hurðir við
munnaenda sitt hvorum megin
við göngin og verið væri að ganga
frá rafmagnslýsingu í göngunum.
Kvað hann verktaka ganganna
hafa átt að skila sínu verki þann
15. nóvember sl., en verkinu hefði
seinkað nokkuð siðustu daga,
einkum vegna veðurs, en þó ekki
það mikið að ekki yrði hægt að
opna göngin formlega hinn 25.
nóvember n.k.
Tveir menn
í gæzlu
TVEIR ungir menn sitja enn i
gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar
fikniefnamáls, sem fikniefna-
rannsóknarmenn fengu nýlega til
meðferðar. Mál þetta mun vera
all umfangsmikið og erfitt i rann-
sókn.
utanbæjarnemendur á grunn-
skólastigi eða við Flensborg.
Kristinn Ó. Guðmundsson sagði
að undarifarin ár hefðu talsvert
margir utanbæjarnemendur
stundað nám við iðnskólann í
Hafnarfirði og væri svo enn í vet-
ur. Margir nemendur væru úr
Garðabæ, en aðrir kæmu víðs veg-
ar að. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur áður krafizt greiðslna
vegna utanbæjarnemenda við iðn-
skólann.
Þórir fékk
234 kr.
fyrir kílóið
VÉLBATURINN Þórir GK
seldi 35,5 lestir af fiski í Cux-
haven f gær fyrir 89 þús. mörk
eða 8,3 millj. fsl. kr. Meðalverð
á kfló var kr. 234 og meðal-
skiptaverð á kfló kr. 166. Þetta
er hæsta meðalverð, sem fs-
lenzkt skip hefur fengið í
Þýzkalandi.
Á fimmtudag eiga tveir fsl.
togarar að selja f Þýzkalandi,
Karlsefni og Sigluvík.
Mykja
til hús-
hitunar?
VERÐUR mykja notuð til að
hita upp hús? spyr Búnaðar-
blaðið Freyr og greinir frá
rannsóknum sem verið er að
vinna að um þessar mundir f
búnaðartæknistofnuninni
dönsku og hafa sérfræðingar
þar þá í hyggju að flytja hit-
ann úr áburðinum í vatn, sem
rennur um miðstöðvarhita.
Aðferðin við þetta er önnur
en sú sem kennd er við biogas,
að því er blaðið segir, og nokk-
uð hefur verið til, umræðu í
fjölmiðlum. Með þeirri aðferð
er gas unnið úr mykjunni og
það má nota sem eldsneyti á
bila t.d. því að gas er mikill
hitagjafi.