Morgunblaðið - 15.11.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NÖVEMBER 1977
5
Framboðslisti Alþýðu-
bandalags á Austurlandi
BLAÐ Alþýðubandalagsins í
Austurlandskjördæmi, Austur-
land hefur birt framboðslista
Alþýðubandalagsins við alþingis-
kosningarnar að vori. Var fram-
boðslistinn samþykktur
samhljóða á fundi kjördæmisráðs
flokksins nýlega.
Framboðslistann skipa eftir-
taldir:
1. Lúðvfk Jósepsson alþingis-
maður, Neskaupstað, 2. Helgi F.
Seljan alþingismaður Reyðar-
firði, 3. Hjörleifur Guttormsson
Iffræðingur, Neskaupstað, 4. Þor-
björg Arnórsdóttir húsmóðir,
Hala, Suðursveit, 5. Eiríkur Sig-
urðsson mjólkurbússtjóri, Vopna-
firði, 6. Jón Árnason bóndi,
Finnsstöðum, Eiðaþinghá, 7.
Guðjón Björnsson kennari, Eski-
firði, 8. Birgir Stefánsson skóla-
stjóri, Tunguholti, Fáskrúðsfirði,
9. Inga Dagbjartsdóttir verk-
amður, Breiðdalsvfk. 10. Baldur
Sveinbjörnsson sjómaður, Seyðis-
firði.
Norræna húsið:
Fyrirlestur um nútima
skáldskap í Finnlandi
FINNSKI rithöfundurinn Pekka I
Parkkinen heldur fyrirlestur um
nútfma skáldskap f Finnlandi
annað kvöld í Norræna húsinu.
Til þessarar ferðar hlaut
Parkkinen norrænan ferðastyrk
og hyggst hann dvelja hér í tvær
vikur.
Hann hefur gefið út nokkrar
bækur og nú er ný bók að koma út
eftir hann í Finnlandi. Parkkinen
hefur verið mjög viðförull um
dagana, hefur dvalið langdvölum
í Frakklandi, Portúgal, Bretlandi
og Ungverjalandi.
Fyrirlestur sinn flytur
Heimdallur:
Heldur fund
með fjármála-
ráðherra um
fjarlogin
HEIMDALLUR, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavfk,
boðar til fundar með fjármálaráð-
herra. Matthíasi Á. Mathiesen, f
Valhöll í kvöld. Á fundinum mun
fjármálaráðherra ræða um fjár-
lagafrumvarpið og svara fyrir-
spurnum fundarmanna.
Nýlega gerði stjórn SUS álykt-
un um fjárlagafrumvarpið, þar
sem m.a. var sagt, að ríkisstjórnin
hefði ekki sett fram heildartillög-
ur um samdrátt i, ríkisbúskapn-
um og að fjárlagafrumvarpið tæki
ekki tillit til sjónarmiða Lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins í því
efni. Ennfremur kom fram í þess-
ari ályktun stjórnar SUS, að tæk-
Parkkinen á sænsku og er öllum
heimill aðgangur.
Matthías A. Mathiesen
ist ekki að ná fram stefnu Sjálf-
stæðisflokksins um samdrátt í
umsvifum hins opinbera, væri
erfitt að réttlæta áframhaldandi
stjórnarsamstarf.
Spurning fundarins verður því
hvað fjármálaráðherra segir um
þessi atriði, ,en fundurinn hefst
klukkan 20.30 og er eins og áður
sagði í Valhöll við Háaleitisbraut
1.
Aðalfundur
Hvatar
AÐALFUNDUR sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar verður
haldinn annað kvöld, miðvikudag,
klukkan 20.30 í Valhöll, Háaleitis-
braut 1.
Á dagskrá fundarins eru venju-
leg aðalfundarstörf og kaffiveit-
ingar.
Léttsteypan
óvirk vegna
rafmagnsskorts
Björk, Mývatnssveit, 14.
nóvember
VÖNZKUVEÐUR hefur verið
hér I dag og sums staðar komn-
ir skaflar á vegi. Sfðastliðinn
laugardag brotnuðu 5 staurar I
raflínunni milli Kísiliðjunnar
og Léttsteypunnar í Bjarnar-
flagi. Mikil fsing hlóðst á
Ifnuna f frostinu þann dag, þar
sem hún lá yfir gufusvæðið.
Þarna var Ifka hvassviðri af
norðri. Ekki verður hægt að
framleiða neitt í Létt-
steypunni fyrr en búið er að
koma rafmagni þangað á ný.
Óvfst er enn með hvaða hætti
það verður gert.
Talið er hæpið að hafa
línuna á sama stað vegna
ísingarhættu, nema þá að
styrkja hana með fleiri staur-
um. Á laugardag fór hráefnis-
þró Kísiliðjunnar nr. 3 að leka.
Strax var hafizt handa við að
gera við hana. Þvi verki er
ekki enn lokið, þar sem ekki
hefur verið vinnuveður í dag.
Að öðru leyti er allt rólegt hér
um slóðir. — Kristján.
Eigendur
Ford bifreiða
Við bendum á eftirfarandi atriði sem vert er
að íhuga fyrir veturinn:
Mótorstillingar með fullkomnustu
mælitækjum og þjálfuðum starfskröftum.
Hjólastillingar og hjólajafnvægi,
ný og fullkomin tæki.
(Til ath. þegar skipt er yfir á vetrarhjóibarða.)
Rafmagnsviðgerðir:
Mæling á rafkerfi og viðgerð á
rafölum, ræsum, o.fl.
Helmastillingar, hemlaviðgerðir.
31) 5 '1 j -j a !J á 1 a '!i1 li J J J ‘-1 ? 3 A
Ford eigendum er bent á að panta tíma
fyrir reglulegar 5 og 10 þús. km. skoðanir,
samkvæmt leiðbeiningum í eftirlitsbókum
i fylgja öllum Fordbílum.
sem 1