Morgunblaðið - 15.11.1977, Side 10

Morgunblaðið - 15.11.1977, Side 10
10 MOKGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1977 Þess má geta að árið 1975 sást nýstirni i Svansmerkinu, nálægt stélstjörnunni Deneb. Var þar um að ræða sprengingu sólar i mikilli fjarlægð, e.t.v. 10.000 ljósára eða meira. Þetta nýstirni var af fyrstu birtu- gráðu héðan að sjá, þrátt fyrir mikla fjarlægð, en dofnaði brátt og varð lítt eða ekki sýni- legt. Hér hefur mikill viðburður gerst (fyrir þúsund- um ára) því hafi líf þróast á einhverri reikistjörnu þeirrar sólar, hefur það líf áreiðanlega I. Á vorin og sumrin fara margir út í náttúruna til að njóta fegurðar hennar, og sækja þangað aukinn þrótt líkamanum og aukna gleði sálinni. Grænir vellir og grónar hlíðar skarta sínu fegursta skrúði, lækir sindra í hlíðum fjalla, fossar kveða i gljúfrum, bárur brotna við sanda, laxar og silungar leita í ár og læki, farfuglar flykkjast að landi. Náttúran ómar öll af þúsund radda kliði. Hver skildi ekki láta hrífast, sem gengur á vit hins íslenska sumars, á góð- viðrisdegi, úti í guðsgrænni náttúrunni? Á vetrum færíst annar svipur yfir landið en þó hefur það enn upp á margskonar unun að bjóða, þeim er njóta vilja. Fagurt er yfir land að líta þegar föl hefur fallið og klætt fjöll og sléttur hinu hvíta líni. Og eitt hefur veturinn fram yfir sumarið, en það er hin undra- verða fegurð næturhiminsins, þegar heiðskýrt er veður. Þá tindra stjörnur þúsundum saman yfir höfðum okkar, sumar bjartar og sindrandi í ýmsum litbrigðum, en aðrar svo daufar, aö varla eða ekki má greina einstakar þeirra berum augum, en fjöldinn svo mikill, að myndar eins og ljósleitar slæður, bak við þær björtu sem nær okkur standa. Mikils fer sá á mis, er ekki lætur heillast af fegurð hins alslirnda himins á heiðum vetrarkvöldum. Þar er sú fegurð, sem allir geta veitt sér að njóta. En enn betur munu menn njóta fegurðar stjarn- anna og mikilleika þeirra, ef nokkur þekking er fyrir hendi á eðli þeirra og hvað það er, sem glóir svo fagurlega í djúpum himnanna. Sólir eru þær allar, að undanskildum ör- fáum sem eru reikistjörnur og ganga um okkar sól. II Á heiðum haustkvcidum, blasa við, hátt á vesturhimni, þrjú stjörnumerki, sem eru áberandi björt og fögur. Til samans mynda þau stóran þrihyrning og heita Svanurinn, Harpan og Örninn. Mun ég leitast við að lýsa þeim lítillega, ef verða mætti til þess, að ein- hverjir færu að veita þeim meiri athygli en ella. Svanurinn er efst og syðst í þessum þríhyrningi, og gengur einnig undir nafninu Norður- krossinn vegna lögunar sinnar, en annars má fullt eins vel líkja honum við svan, eins og það nafn bendir til. Deneb f Svanin- um er langbjartasta stjarna þessa stjörnumerkis og er í 2600 ljósára farlægð frá okkar sólkerfi. Fáar sólir senda frá sér eins mikið ljósmagn og Deneb, og er talið að raunverulegt ljósafl hennar sé allt að því 50 þúsund sinnum meira en ljósmagn okkar sólar. Hún er um 3300 Hringþokan í Hörpunni. Albireo heitir sú stjarna, sem myndar höfuð Svansins og er mitt á milli stjarnanna Vega í Hörpunni og Altair í Erninum. Albreo er af annari birtugráðu og því ekki mjög áberandi stjarna, en þó má segja að ailar sjö aðalstjörnur þessa stjörnu- merkis, Svansins, sjáist mjög greinilega í björtu veðri, og er eitt af fegurri stjörnumerkjum himins. Stjörnumerkið Svanurinn með stórstirninu Deneb. — Til hægri á myndinni sjást Vega og Altair. Ingvar Aparsson: meðan á því stendur, en ná brátt aftur sinni venjulegu birtu. Örninn (Aquila) er þriðja stjörnumerki þessa stóra þríhyrnings, sem hér er rætt um. Örninn er niður undan Svaninum og Hörpunni. Bjartasta stjarna Arnarins er stórstirnið Altair, sem er í 16 ljósára fjarlægð frá okkar jörð. Örninn er stórt stjörnumerki og alláberandi á vesturhimni fyrri hluta vetrar. sinnum bjartari en Vega í Hörpunni og um 20 þúsund sinnurti bjartari en Altair i Erninum. Við sjáum á þessum samanburði að allar þessar þrjár sólstjörnur eru mjög margfaldlega bjartari en okkar sól, og tekur þó Deneb hinum Iangt fram. Harpan er fagurt stjörnumerki með hinni Ijómandi Blástjörnu (Vega), sem svo mjög eykur á fegurð himinsins á hverri heiðskirri nóttu. Deneb, Vega og Altaír - hinn fagri þríhyrningur himinsins Stjörnumerkið Örninn ásamt litlu stjörnu- merkjunum Örinni og Háhyrningnum (og Svan- inum efst til vinstri). hlotið að farast við slíka sprengingu. Harpan (Lyra) er beint norður af Svaninum og mjög hátt á himni eins og hann. Bjartasta stjarna þessa merkis er hin mjög svo fagra Vega (Blástjarnan) sem blikar blá- hvítu ljósi og er ein af björt- ustu stjörnum himins. Hún er i 26 ljósára fjarlægð frá okkar sólkerfi. Fjórar stjörnur þessa merkis mynda ferhyrning eða tígul. Tvær daufustu stjörnurn- ar í Hörpumerkinu eru í þriðja birtuflokki og milli þeirra er að finna hina mjög svo sérkenni- legu Hringþoku sem er í 1800 ljósára fjarlægð og sést aðeins í góðum sjónauka. í miðju þessarar þoku eru tvær stjörnur, og þokan sjálf er uppljómuð af nærliggjandi stjörnum. Önnur þeirra stjarna í þriðja birtuflokki í Hörpunni, sem minnst var á, er tvístirni, og ganga þær hver fyrir aðra, frá okkur að sjá, þrettánda hvern dag, og virðist þá ljós- magn þeirra minnka mjög, á. III. ,,Hve voldugt og djúpt er ei himinsins haf og hásigldar snekkjur sem leiðina þreyta.“ Einar Benediktsson. Mun nokkuð vera til er frekar leiði mannssálir til umhugsunar um mikilleika tilverunnar, en alstirndur himinn á heiðskíru kvöldf? Mun nokkuð beina hug okkar til hæða, til æðrí stiga lífsins, eins og einmitt það, að beina augum til fjarlægra stjarna geimsins? Allar þessar stjörnur eru sólir, misbjartar og misstór- ar, og víst má telja og flestum þeirra fylgi reikistjörnur, líkar þeim, sem fylgja okkar sól, og áreiðanlegt er, að á mörgum þessara reikistjarna er mannlíf að finna og vitlíf sem í sumum tilvikum mun taka langt fram því viti, sem mannkyn jarðar okkar hefur enn náð. Beinum hug til hæða. Lítum til stjarnanna og hugsum til íbúa þeirra. Reynum að njóta þeirra hollu áhrifa, sem þaðan stafa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.