Morgunblaðið - 15.11.1977, Page 41

Morgunblaðið - 15.11.1977, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1977 23 ÞORSIGRAÐI ÞRÓTT ÓVÆNT ÞAU ÓVÆNTU úrslit urðu í leik Þórs og Þróttar í 2. deild íslandsmótsins á sunnudaginn að Þór sigraði örugglega 23:21. Við þessi úrslit kemur enn betur í ljós hversu jöfn að getu liðin í 2. deild eru að þessu sinni, og vonlaust að segja til um hvaða lið það verða, sem leika í 1. deild að ári. Flestir áttu von á auðveldum sigri Þróttar í þessum leik og ef til vill hefur sigurvissan orðið Þrótti að falli. Það var aðeins í upphafi leiksins, sem Þróttarar sýndu hvað í þeim bjó. Þróttur náði þannig um skeið tveggja marka forystu, 5:3, en Þórsurum tókst að jafna metin og höfðu fimm marka forystu í leikhléi, 14:9. Framan af siðari hálfleikn- um hélst þessi munur þannig að staðan var 19:14 um miðjan hálf- leikinn, en Þrótturum tókst svo að minnka muninn niður í 2 mörk í lokin. Það var langt í frá að leikur Þórs og Þróttar væri vel Ieikinn. Þórsarar léku hins vegar mjög skynsamlega, héldu boltanum vel og nýttu sóknir sínar mjög vel. Ekki verður sagt að breiddin sé mikil í liðinu, varla hægt að skipta inná án þess að liðið veikist mjög, t.d. voru aðeins 7 útispilar- ar notaðir í þessum leik. Þórsarar ráða yfir tveimur góðum skyttum. jTlovjUmblnMtt_ urnmnni Markaregn JÚGÓSLAVAR gerðu sér lítið fyrir og unnu Rúmena með sex mörkum gegn fjórum í undan- keppni HIVI á sunnudaginn, en leikið var 1 Búkarest. Júgóslavar eiga þvf enn möguleika á að kom- ast f úrslitin í Argentínu næsta haust. Þeir eiga eftir að leika gegn Spánverjum á heimavelli og þurfa að vinna með tveggja marka mun. Staðan í riðlinum er nú þessi: Spánn 3201 Rúmenfa 4 2 0 2 Júgóslavfa 3 10 2 Jafnt hjá Union frí hjá Ásgeiri BELGAR og N-írar leika landsleik í knattspyrnu annaö kvöld og vegna undirbúnings fyrir þennan leik, sem er í undankeppni HM, var ekkert leikið í bel- gísku 1. deildinni um helg- ina. Átti Ásgeir Sigurvins- son því frí, en hins vegar var Marteinn Geirsson í eldlínunni. Lék Union á móti St. Niklaas á útivelli og varð jafntefli 1:1. Sigtryggi Guðlaugssyni og Jóni Sigurðssyni. Þessir tveir skoruðu bróðurpartinn af mörkum Þórs eða 15. Þá átti Aðalsteinn Sigur- geirsson og ágætan leik. Lið Þróttar olli miklum von- brigðum í Akureyrarför sinni. Það virðist ekki komið í fulla æf- ingu. Vörn og markvarzla var af- leit en sóknarleikur hins vegar skárri. I leiknum gegn Þór var það aðeins Konráð Jónsson, sem eitthvað kvað að. Aðrir leikmenn voru langt frá stnu bezta. Ólafur Steingrímsson og Gunn- ar Kjartansson dæmdu leikinn prýðilega. Mörk Þórs: Jón 8, Sigtryggur 7 (2 v), Einar Björnsson 3, Gunnar Gunnarsson 2, Aóalsteinn og Rögnvaldur Erlingsson 1 mark hvor. Eitt markanna var sjálfs- mark Þróttarr. Mörk Þróttar: Konráð 8 (1 v), Sigurður Sveinsson og Halldór Bragason 4 hvor, Sveinlaugur Kristjánsson og Sveinn Sveinsson 2 mörk hvor, Jóhann Frimanns- son 1 mark. — Sigb.G. Konráð Jónsson gerði 17 mörk í Akureyrarferð Þróttar um helg- ina. Klaufskir KA menn misstu öruggan sigur LEIKMENN KA í handknattleik geta nagað sig í handabökin eftir tap gegn Þrótti í 2. deild á laugardaginn. Þegar aðeins þrjár mínútur voru til leiksloka hafði KA þriggja marka forystu og sigurinn virtist í höfn en allt hljóp í baklás og KA mátti þola tap 26 gegn 25. Leikurinn var annars afar jafn allan timann. Þó hafði KA alltaf frumkvæðið, en tókst ekki að stinga Þróttara af. KA hafði einu marki betur í leikhléi, 11:10, og hafði oftast aðeins 1—2 marka forystu þar til í lokin að forystan var orðin þrjú mörk. Þróttarar gáfust þó ekki upp og tókst að sigra eins og fyrr greinir. Leikur liðanna olli hins vegar vonbrigðum. Ef þessi tvö lið eru meðal hinna sterkari í deildinni, eins og látið hefur verið að liggja, hvernig eru þá þau lakari? Miðað við spilamennskuna á laugardag eiga hvorki KA né Þróttur minnsta erindi i 1. deild. Það voru einungis þrír leikmenn, sem stóðu upp úr meðalmennskunni, Þróttararnir Konráð Jónsson og Sveinn Sveinsson og KA maður- inn Armann Sverrisson. Ólafur Steingrimsson og Gunn- ar Kjartansson dæmdu leikinn ágætlega. Mörk Þröttar: Konráð 9, Sveinn 6, Jóhann Frímannsson 6 (2 v), Ari Einarsson og Sveinlaugur Kristjánsson 2 mörk hvor, Hall- dór Bragason 1 mark. Mörk KA: Ármann 5, Jón Hauksson 4 (3 v), Þorleifur Ananíasson, Páll Kristjánsson og Jóhann Einarsson 3 mörk hver, Jón Árni, Guðmundur Lárusson og Alfreð Gíslason 2 mörk hver og Sigurður Sigurðsson 1 mark. Badmintorv sambandið 10 ára í mánuðinum 11. ÁRSÞING B.S.Í. var haldið sunnudaginn 30. okt. s.l. i Snorra- bæ við Snorrabraut. Um 30 full- trúar og gestir sátu þingið. B.S.Í. verður 10 ára í þessum mánuði. Þingforsetar voru Kristján Benjamínsson og Ragnar Haralds- son, en þingritari Grétar Snær Hjaltason. Meðal gesta þingsins voru Gisli Halldórsson forseti Í.S.Í. og Sigurður Magnússon skrifstofustjóri sambandsins. Rafn Viggósson form. B.S.Í. flutti skýrslu stjórnar, sem bar með sér mikið og fjölþætt starf. Meðal verkefna var að sjá um þátttöku í Heimsmeistarakeppni i Malmö og Norðurlandamóti ungl- inga í Kaupmannahöfn, landsleik við Færeyjar o.m.fl. i skýrslunni er glöggt yfirlit yfir innlend mót, listi yfir badmintoniðkendur eftir styrkleika, badmintondómara o.fl. Walter Lentz gjaldkeri sam- bandsins lagði fram endurskoð- aða reikninga. Á starfsárinu hóf Badmintonsambandið útgáfu fréttabréfsins Skellur, i umsjá Axels Ammendrup og Jönasar Þ. Þórissonar. Megin viðfangsefni þingsins var afgreiðsla á laga- breytingum og leikreglnabreyt- ingum, en unnið hafði verið að þessum málum af sérstökum milliþinganefndum. Öll stjórn B.S.Í. var endurkjör- in, en hana skipa nú: Rafn Viggósson, formaður, Ragnar Haraldsson, Steinar Pet- ersen, Walter Lentz og Þorsteinn Þórðarson. GOÐ FRAMMISTAÐA JÚHANNESAR í LEIK SKOTLANDS-RISANNAl — MÉR GEKK vel í leiknum og get ekki annað en verið ánægður með blaðadóma, sem ég hef séð, sagði Jóhannes Eðvaldsson f samtali við Morgunblaðið ( gær. Þótti Jóhannes standa sig sérlega vel í leik risanna í skozku knattspyrnunni undanfarin ár, Celtic og Rangers, en liðin mættust á heimavelli Celtic á laugardaginn. Úrslitin urðu þau að leiknum lauk með jafntefli 1:1 f fjörugum leik og er Rangers því enn efst f skozku 1. deildinni, en Celtic þokast upp töfluna, er nú með 12 stig. Einar Magnússon hefur átt góða leiki með Hannover að undanförnu og liðið er ekki lengur eitt og yfirgefið á botni 1. deildarinnar í V- Þýzkalandi. SIGRAR ÍSLENDINGANNA j VESTUR-ÞÝZKALANDI GÖPPINGEN, arssonar, van lið Gunnars Ein- í góðan sigur á Tvö töp UMSE í spennandi leikjum ÞRtR LEIKIR voru f 1. deild karla í blaki um helgina og tveir leikir hjá konunum. Á Laugarvatni léku Laugdælir og ÚMSE á laugardaginn og þrátt fyrir jafna og spennandi viðureign fóru leikar svo að Laugdælir unnu 3:0. Lotunum lauk 20:18, 15:13 og 15:9 fyrir Laugdæli, sannarlega jafnt en eigi að sfður sigur f öllum hrinunum til heima- manna. Þá léku einnig f 1. deild kvenna á Laugarvatni á laugardaginn lið IMA og Mímis, sem er lið Menntaskólans. Sigruðu stúlkurnar að norðan 3:0. Á sunnudaginn léku Laugdælir í Reykjavík á móti stúdentum og töpuðu Laugdælir nú 3:0. ÍS vann loturnar 15:1, 15:7 og 15:12. Þróttur vann síðan UMSE á sunnudaginn með 3 hrinum gegn einni. Úrslit urðu 15:3,15:12, 13:15 og 15:13. heimavelli f 1. deildinni í V- Þýzkalandi um helgina. Var leik- ið gegn Grossvallstadt, einu af efstu liðunum, og urðu úrslitin 19:15 fyrir Göpppingen. Skoraði Gunnar Einarsson eitt mark í leiknum. Þá lék Dankersen gegn Derchslag og vann 13:12 f hörku- leik. Ólafur og Axel voru beztu menn Dankersen, Ólafur gerði þrjú mörk, Axel 5. Hannover, lið Einars Magnússonar, sigraði Dietzenbach 19:15 og skoraði Ein- ar flest mörk Hannover. Hefur lið Einars rétt verulega úr kútnum síðan hann byrjaði að leika með því. Gummersbach er efst í 1. deildinni v-þýzku með 14 stig, síð- an koma Göppingen, Nettlestedt og Grosswallstadt með 12 stig og Dankersen hefur 10 stig. Bæði Evening Times og Sunday Mail gefa Jóhannesi góða dóma fyrir leikinn og er hann talinn bezti maður Celtic í leiknum. Lék hann sem miðvörður að þessu sinni og hefur hann í haust leikið flestar stöður með liði sinu. í leiknum á laugardaginn náði Rangers forystu þegar nokkuð var liðið á fyrri hálfleikinn, en Johnstone skoraði þá gott mark. i seinni hálfleiknum sótti Celtic mun meira og að því kom að McAdam skoraði fyrir liðið. Hann skoraði einnig annað mark í leiknum, en það var dæmt af. Þá sagði Jóhannes að Joe Craig hefði verið gróflega brugðið innan vita- teigs og dænia hefði átt vita- spyrnu, en dómarinn hefði hrein- lega ekki þorað það. Sagði Jóhannes að lið Celtic efldist nú með hverjum leik og þokaðist hægt og sigandi upp töfl- una. Er liðið með 12 stig, en byrj- unin hjá félaginu í haust var mjög slök. Rangers er efst með 18 stig. — Það eru enn sjö stig í toppinn hjá okkur, en það er mikið eftir af mótinu og Celtic á enn eftir að sækja i sig veðrið, sagði Jóhannes Eðvaldsson. Aðspurður um hvort eitthvað hefði gerzt í hans málum varð- andi sölu frá Celtic, sagði hann að þau mál væru í fullum gangi, en þó væri ekkert ákveðið enn þá. — Ég flýti mér hægt í þessu, en vonast til að gengið verði frá fé- lagaskiptum i þessum mánuði, sagði Jóhannes. Jóhannes Eðvaldsson hyggur á flutning frá Celtic, en ætlar ekki flana að neinu f sambandi við félagaskiptin. að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.