Morgunblaðið - 15.11.1977, Blaðsíða 34
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1977
— Eldur frá kerti er talinn hafa
TT^l J , , !W _ _ leitt til hótelbruna sem varð 42
niiuur í jyiciniiu manns að bana f Manf|a f
Hótelið var sjö hæða og gereyði-
lagðist í brunanum.
188 gestir voru á hótelinu þegar það brann, Iangflestir þeirra útlendingar, aðallega
Japanir og Bandaríkjamenn. Að minnsta kosti tveir stukku út um glugga og biðu
bana. Myndin sýnir slökkviliðið reyna að ráða niðurlögum eldsins.
Nkomo hótar Bretum hörðu
Rhódesíu, 14. nóv., Reuter
Blökkumannaleiðtoginn
Joshua Nkomo í Rodesíu
sagði í dag að síðustu
friðarumleitanir Breta og
Bandarikjaamanna hefðu
farið út um þúfur og gaf til
kynna að hann mundi beita
sér fyrir því að skæruliðum
yrðu fengin völdin.
Eftir þessa yfirlýsingu
Nkomos á blaðamanna-
fundi er sýnt að friðartil-
raunir verði erfiðari í
framtíðinni og að
ágreiningur útlægra
skæruliða annars vegar og
skæruliða í Ródesíu hins
vegar muni aukast.
Nkomo kennir Bretum
um að frióartilraunirnar
hafi farið út um þúfur,
vegna þess að þeir hafi
ekki rekið Ian Smith
forsætisráðherra Ródesíu
frá völdum. „Allt bendir til
þess að ekki gefist færi á að
fara nýjar leiðir,“ sagði
Nkomo.
Hann sagði að skæruhernaður
mundi halda áfram unz Smith
biði ósigur og eftir það myndi
föðurlandsfylking blökkumanna
stjórna landinu. Nkomo tók það
fram að hann væri andvigur þvi
að kosningar færu fram áður en
landið hlyti sjálfstæði eins og gert
var ráð fyrir í áætlun Breta og
Bandaríkjamanna.
„Það er föðurlandsfylkingin,
sem berst fyrir frelsi þjóðar-
innar,“ sagði Nkomo sem á við
skæruhernað þann sem hann veit-
ir forystu ásamt Robert Mugabe á
móti hinum hvita minnihluta.
YFIRMAÐUR Ródesíuhers, John Hickman hershöfðingi, kannar hér I
sveit 450 nýþjálfaðra blökkumanna I Bala Bala ( Ródesfu f október sl.
Styttan af Bítl-
unum sett upp
ÁKVÖRÐUN hefur verið tekin
í borgarráði Liverpoolborgar
um að Bitlarnir skuli heiðraðir
með þvi að stytta af þeim verði
sett upp í miðborginni.
Því hafði áður verið hafnað í
ráðinu, á þeim forsendum að
þeir hefðu snúið baki við borg-
inni um leið og þeir öðluðust
heimsfrægð. Með styttunni er
staðfest að þeir séu í raun
„Liverpoolbúar", en í borginni
eru þeir allir fæddir og aldir
upp.
Þegar ákvörðunin var til- (
kynnt, var sagt að borgarráðið
viðurkenndi „tónlistarárangur I
hljómsveitarinnar The Beatles
og þá heimsfrægð sem Liver-
poolborg hefur öðlast vegna
tónsmiða þeirra“.
Enginn Bítlanna býr nú í
borginni. John Lennon er bú-
settur í New York, Paul
McCartney i London, George
Harrison i úthverfi London og
Ringo Starr i Bandaríkjunum
Fyrirmyndin af styttunni af
Bftlunum sem á að setja upp í
miðborg Liverpool. Hún er
gerð af myndhöggvaranum
Brian Burgess, og er fyrirhug-
að að hún verði 20 feta há og
gerð úr stáli.
Neyzla marsvínslifr-
ar bönnuð í Færeyjum
Frá JoKvan Arge, fréttaritara Mbl.
f^Þórshöfn f Færeyjum í gær.
Heilbrigðisyfirvöld I Færeyjum
hafa bannað neyzlu á marsvfns-
lifur.
Bannið hefur verð sett vegna
niðurstaðna rannsókna á magni
kvikasilfurs f marsvínslifrum. t
tilkynningu frá landlækni og
yfirdýralækni Færeyja segir, að
kvikasilfur í lifur og nýrum mar-
svína sé það mikið, að ekki sé
óhætt að neyta þeirra.
Heilbrigðisyfirvöldin tilkynntu
jafnframt aó nokkurt kvikasilfur
væri í hvalkjötinu og að þau teldu
ekki ráðlegt að fólk borðaði hval-
kjöt oftar en einu sinni í viku, en
þau sögðu að hvalspik væri óhætt
að borða.
Niðurstöðurnar eru byggðar á
rannsóknum sem gerðar voru á
hópi marsvína, sem drepinn var
við Suðurey í Færeyjum fyrir
u.þ.b. mánuði. Slíkum rannsókn-
um verður nú haldið áfram.
Heyerdahl 1 k jölfar Súmera
Kurna, Irak. 13. nóvember. Reuter.
NOHÐMAÐURINN Thor
Heyerdahl hóf í dag lokafram-
kvæmdir fyrir sjóferð inn í
óvissuna á báti gerðum úr reyr
og byggðum samkvæmt 5000
ára gamalli fyrirmynd.
Markmið hans með ferðinni
er að kanna hversu lagt Súmer-
ar, fyrsti þjóðflokkurinn sem
vitað er um að hafi sést að á þvf
landssvæði sem nú kallast trak,
(Mesópótamfa), hafi getað
breitt menningu sfna út í sjó-
ferðum sínum um Persaflóa.
Heyerdahl ætlar af stað á bátn-
um sfðar f þessari viku.
z
Fyrstu byggðir Súmera sem
vitað er um, eru frá 3500 fyrir
Krist og Heyerdahl telur að
þeir hafi stundað siglingar
nokkuð á undan Forn-
Egyptum. En hversu langt þeir
hafi siglt sé óvíst. Um bátinn
sem er eins og banani í lögun,
sagði norski prófessorinn að
þetta væri elsta gerð báta sem
menn þekktu. „Við verðum að
komast að þvi hve lengi bátur-
inn dugir, áður en hann verður
vatnsósa. „Ég hef ekki hug-
„TIGRIS" bátur Heyerdahls í Kurnahéraði í Irak, þar sem hann er smíðaður og ætlunin er að hefja
siglinguna frá.
mynd um hve langan tíma ferð-
in mun taka né hvert við mun-
um sigla,“ sagði hann i viðtali
við fréttamenn.
Báturinn er 18 metrar á
lengd og var smiðaður á sex
vikum úr reyr sem safnað var i
Kurna-héraðinu, sem sam-
kvæmt sögusögnum á að vera sá
staður sem Edengarðurinn
stóð.
Skipshöfnin á „Tigrisdýr-
inu“, sem er nafn bátsins, telur
11 menn frá níu þjóðum, m.a.
Sovétríkjunum, Bandaríkjun-
um Vestur-Þýzkalandi og Irak
og er ætlunin að sigla suður
Persaflóa og inn i Indlandshaf.
Báturinn líkist nokkuð Ra I
Og Ra II, sem Heyerdahl sigldi
frá Marokkó yfir Atlantshafið i
byrjun áratugarins, en gerður
úr annars konar reyr. Þeir voru
gerðir úr papirusi og fyrir-
myndin var þá egypsk.
Þegar Heyerdahl er 63 ára,
en hann öðlaðist heimsfrægð
árið 1947 þegar hann sigldi
bátnum Kon Tiki 2500 km sjó-
leið á 101 degi frá Perú til
Tuamoto-eyjanna í Kyrrahaf-
inu.