Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977
m blMAK -
jO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
LOFTLEIDIR
__Z______
C 2 1190 2 11 38
Galitch
látinn
París 17. des AP
ALEXANDER Galitch, sovézki
söngvarinn og ljóöskáldið sem
hefur búið í útlegð í París, fannst
látinn á heimili sínu þar í borg
aðfararnótt föstudags. Hann
virðist hafa látizt af raflosti er
hann var að gera við útvarpstæki.
Galitch var einn dáðastur
sovézkra trúbadúra um langt
skeið. Hann féll síðan í ónáð og
var rekinn úr sovézku rithöfunda-
samtökunum árið 1971 fyrir ljóð
og söngva sem þóttu andsúin
stjórnkerfinu. Hann fór frá Sovét-
ríkjunum fyrir þremur árum og
bjó fyrst í Noregi og Þýzkalandi
en settist að í París fyrir rösku
ári.
Han fékkst einnig við að skrifa
leikrit og kvikmyndahandrit.
Hann sá um sérstakar útvarps-
sendingar til Moskvu sl. ár, þar
sem sent var út menningarefni og
fl. Galiteh var 58 ára að aldri.
Mammútsbeina-
grind fundin
Hong Kong 17. des. Reuter
BEINAGRIND af mammúti, sem
hefur verið þrír metrar á hæð og
fimm metra langur, héfur fundist
í Heilungkiang héraði i Norðaust-
ur-Kina að þvi er fréttastofa
landsins sagði í dag. Ekki var
nánar tiltekið um fundinn nema
að mammútsbeinagrindin hefði
fundizt í lok október.
Forsætisráð-
herra Djibouti
segir af sér
Djibouti, 17. des.
Reuter.
FORSÆTISRAÐHERRA Ahmed
Dini, sagði af sér í morgun og
ásakaði hann yfirvöld í hinu nýja
sjálfstæða smáríki sínu um að
framfylgja „ættbálkakúgunar-
stefnu" og þar á meðal væri kúg-
aður hans eigin ættbálkur,
Afarar.
Afsögn ráðherrans kom í kjöl-
far handtöku 600 Afara eftir
sprengjuárás á fimmtudag, þar
sem tveir menn létu lífið og 31
slasaðist. Flestir hinna látnu voru
Frakkar.
Forseti lýðveldisins Djibouti,
Hassan Goulde, er, af Issas-
ættflokki en þessir tveir flokkar
eru fjölmennastir í landinu. Issas-
ættflokkurinn hallast að Sómalíu
en Afarar hneigjast til stuðnings
við Eþíópíu.
AUGLYStNGASIMÍNN ER:
22480
JHorgunbUibtti
Útvarp Reykjavík
SUNNUQ4GUR
18. desember
MORGUNNINN
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson biskup
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veður-
fregnir. Utdráttur úr for-
ustugreinum dagbl.
8.35 Morguntónleikar
a. Trompet konsert í Es-dúr
eftir Haydn. Maurice André
leikur ' með Bach-
hljómsveitinni í Miinchen;
Karl Richter stjórnar.
b. Sónata f G-dúr fyrir þver-
flautu, tvær blokkflautur og
fylgirödd eftir Fasch. Frans
Vester, Frans Briiggen, Jean-
ette van Wingerden og Ann-
er Bylsma leika.
c. Blásarakvintett nr. 3 í F-
dúr eftir Cambini. Blásara-
kvintettinn ( Fíladelffu leik-
ur.
d. Adagio og Allegro í F-dúr
fyrir horn og píanó eftir
Schumann. Barry Tuckwell
og Valdimfr Ashkenazý
leika.
e. Saknaðarljöð op. 12 eftir
Ysaye. Davik Oistrakh leikur
á fiðlu og Vladimír Jam-
polski á píanó.
9.30 Veiztu svarið? Jónas
Jónasson stjórnar spurninga-
þætti. Dómari: Ólafur Hans-
son.
10.10 Veðurfregnir. Fréttir.
10.30 Ungverskir dansar eftir
Johannes Brahms. Walter og
Beatriz Klien leika fjórhent
á píanó.
11.00 Messa í Strandakirkju.
(Hljóðrituð á sunnud. var).
Prestur: Séra Tómas Guð-
mundsson. Organleikari:
Ingimundur Guðjónsson.
Kór Þorlákshafnar syngur.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.20 Nútímaguðfræði. Séra
Einar Sigurbjörnsson dr.
Theol. flytur þriðja og síð-
asta hádegiserindi sitt: Að
túlka sérstöðu.
14.00 Miðdegistónleikar:
Messa í c-moll (K427) eftir
Mozart. Editha Gruberova,
Regina Winkelmayer, Anton
Dermota og Robert Holl
syngja með kór og Sinfóníu-
hljómsveit austurríska út-
varpsins. Alfred Mitterhofer
léikur á orgel; Anton Heiller
stjórnar. (Hljóðritun frá út-
varpinu í V>narborg).
15.00 A bókamarkaðinum.
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri sér um þáttinn. Kynn-
ir: Dóra Ingvadóttir.
(16.15 Veðurfregnir. Frétt-
ir.)
17.30 Utvarpssaga barnanna:
„Hottabych" eftir Lazar Lag-
ín. Oddný Thorsteinsson les
þýðingu sfna. (7).
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Um kvikmyndir; annar
þáttur. Umsjónarmenn: Frið-
rik Þór Friðriksson og Þor-
steinn Jónsson.
20.00 ttalskir hljóðfæraleik-
KJANUM
SUNNUDAGUR
18. desember
16.00 Húsbændur og hjú (L).
Breskur myndaflokkur.
Hetjan kvödd
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
17.00 Þriðja testamentið
Bandarískur fræðslumynda-
flokkur um sex trúarheim-
spekinga.
Lokaþáttur.
Dietrich Bonhoeffer. Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson.
18.00 Stundin okkar (L að
hl.)
Meðal efnis: Krakkar úr
Tónmenntaskólanum leikaá
hljóðfæri, Bakkabræður
heimsækja vinkonur sínar á
Spóamelnum öðru sinni, við
lærum að búa til jólabjöllur,
litið er inn í Fossvogsskóia
og fylgst með börnum i
kennslustund í heimilis-
fræðum. Teiknistelpan
Doppulína fer á stjá. flutt er
m.vndasaga um Jesúbarnið
eftir Jóhönnu Brynjólfsdótt-
ur, og börnin í Lækjarborg
teikna jólasveininn.
19.00 Skákfræðsla (L)
Lciðbeinandi Friðrik Ólafs-
son.
Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Hátfðadagskrá sjón-
varpsins (L).
K.vnnir Elínborg Stefáns-
dóttir. Umsjónarmaður
Björn Baldursson. Stjórn
upptöku Eiður Guðnason.
21.20 Gæfa eða gjörvileiki.
Bandarfskur framhalds-
m. vndaflokkur. Ellefti og
sídasti þáttur.
Efni tíunda þáttar:
Rudy vinnur frækilegan
kosningasigur og verður
þingmaður.
Tom er ríkari en hann hygg-
ur. Hann getur því keypt
snekkjuna og gerir hana út í
leiguferðir. Eftir langa leit
finnur hann son sinn, sem
er í herskóla, og tekur hann
með sér heim.
Sonur Julie frá fyrra hjóna-
bandi er erfiður í skóla, og
þau hjónin heimsækja
hann.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.20 Dick Cavett ræðir við
Jan Morris (L).
James Morris var kunnur
hlaðamaður. Meðal annars
fylgdi hann Sir Edmund
Hillary langleiðina upp á
tind Everest-fjalls, hann
skrifaði um réttarhöldin f
máli Eichmanns í ísrael og
n. jósnaflugmannsins Franc-
is Gary Powers í Sovétríkj-
unum.
Morris var kvæntur og fjög-
urra barna faðir. Fyrir
nokkrum árum lét hann
gera á sér la'knisaðgerð,
breytti um k.vn og tók sér
nafnið Jan.
í viðtalinu við Dick Cavett
skýrir Jan frá þessari breyt-
ingu, aðdraganda hennar og
afleiðingum.
Þýðandi Dóra Ilafsteinsdótt-
ir.
23.25 Að kvöidi dags (L).
Séra Gísli Kolbeins, sóknar-
prcstur i Stykkishólmi, fiyt-
ur hugvekju.
23.35 Dagskrárlok.
arar leika tónverk eftir Luigi
Boecherini.
a. Kvintett í C-dúr op. 25 nr.
3.
b. Largo cantabiie í D-dúr.
c. Andante con moto í C-dúr.
20.30 Utvarpssagan:s „Silas
Marner" eftir George Eliot.
Þórunn Jónsdóttir þýddi.
Dagný Kristjánsdóttir les.
(12).
21.00 Mandólíntónlist. Mandó-
línhljómsveitin í Israel leik-
ur Konsert í G-dúr fyrir tvö
mandólín og hljómsveit eftir
Vivaldi og Dansa frá Israel
eftir Haim Alexander. Moshe
Jacobson stjórnar. Einleikar-
ar Ofra Albocher og Aviva
Kimron.
21.20 Svipmýndir frá Norður-
botni. Karl Jeppesen tekur
saman þáttinn. Flytjendur
með honum: Guðmundur B.
Kristmundsson og Ólafur H.
Johannsson.
21.40 Frá tónlistarhátíðinni í
Björgvin í sumar: Elisabeth
Söderström kynnir og syngur
lög eftir Yrjö Kilpinen og
Carl Nielsen; Thomas Schu-
back leikur á pfanó.
22.10 Iþróttir. Hermann
Gunnarsson sér um þáttinn.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
23.45 Kvöldtónleikar.
a. Forleikur að óperunni
„Meistarasöngvurunum í
Nurnberg" eftir Richard
Wagner. Alþjóðleg unglinga-
hljómsveit leikur; Herbert
von Karajan st jórnar.
b. Píanókonsert nr. 2 í e-moll
op. 18 eftir Rakhmaninoff;
Alicia de Larrocha leikur
með Suisse Romande hljóm-
sveitinni; Michel Tabaehnik
stjórnar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlotom
SKJÁNUM
MANUDAGUR
19. desember 1977.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Iþróttir. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
21.10 Jólakvikmyndirnar
1977. Umsjónarmaður Sig-
urður Sverrir Pálssvn og Er-
V
lendur Sveinsson.
22.15 Mannréttindamál (L).
Umræðuþáttur f beinni út-
sendingu.
Umsjónarmaður
Margrét Bjarnason. Þátttak-
endur Flinar Agústsson, Eið-
ur Guðnason og Gaukur Jör-
undsson.
Dagskrárlok óákveðin.
A1ÖNUD4GUR
19. desember
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar Örnólfsson
leikfimiskennari og Magnús
Pétursson píanóleikari.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. landsmálabl.),
9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50: Séra
Gunnþór Ingason flytur
(a.v.d.v.).
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Arnhildur Jónsdóttir
les ævintýrið um „Aladdfn
og töfralampann" í þýðingu
Tómasar Guðmundssonar
(7). Tilkynningar kl. 9.15.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða.
Islenzkt mál kl. 10.25: Endur-
tekinn þáttur Gunnlaugs
Ingólfssonar.
A bókamarkaðinum kl. 10.45:
Dóra Ingvadóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SIÐDEGIÐ______________________
14.30 Miðdegissagan: „A
skönsunum" eftir Pál Hall-
björnsson. Höfundur les (4).
15.00 Miðdegistónkeikar: Is-
lensk tónlist
a. Lög eftir Markús
Krist jánsson. Ölafur
Þorsteinn Jónsson syngur!
Arni Kristjánsson leikur á
píanó.
b. Tónverk eftir Arna
Björnsson: 1. Fjögur íslenzk
þjóðlög fyrir flautu og píanó;
Averill Williams og Gísli
Magnússon leika. — 2.
„Frelsisljóð", lýðveldis-
hátíðarkantata; Karlakór
Keflavíkur syngur. Söng-
stjóri: Herbert H. Agústsson.
Einsöngvari: Haukur Þórðar-
son. Píanól.: Asgeir
Beinteinsson.
c. „Sogið“, forleikur eftir
Skúla Halldórsson. Sinfóníu-
hljómsveit Islands leikur;
Páll P. Pálsson stjórnar.
15.40 „Heims um ból“ Séra
Sigurjón Guðjónsson talar
um sálminn og höfund hans.
Sálmurinn einnig lesinn og
sunginn.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.35 Popphorn. Þorgeir
Astvaldsson kynnir.
17.30 Tónlistartími barnanna.
Egill Friðleifsson sér um
tfmann.
17.45 Ungir pennar. Guðrún
Stephenson les bréf og rit-
gerðir frá börnum.
18.05 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.40 Daglegt mál. Gísli Jóns-
son flytur þáttinn.
19.45 Um dagjnn og veginn.
Kristfn Guðmundsdóttir hús-
móðir talar.
20.05 Lög unga fólksins. Asta
R. Jóhannesdóttir kynnir.
20.55 Gögn og gæði. Magnús
Bjarnfreðsson stjórnar
þættinum.
21.55 Léttir tónar. Hljómsveit
Herbs Alperts syngur og
leikur nokkur lög.
22.05 Kvöldsagan: Minningar
Ara Arnalds. Einar Laxness
les (4).
Orð kvöldsins á jólaföstu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Nútfmatónlist. Þor-
kell Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.