Morgunblaðið - 18.12.1977, Qupperneq 32
<@till Sc ^tlfur
Laugavegi 35
ÚTVEGSSPIUÐ
sölusími 53737
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977
Kaupmenn í Reykjavik:
Mjög góð jóla-
sala — peninga-
ráð aldrei meiri
Vöruskortur hjá sumum fyrir jól
Rætt við Geir Hallgrímsson um fund for-
sætisráðherra Norðurlanda í Stokkhólmi
GEIR Hallgrfmsson, forsætis-
rádherra, sat fyrir viku fund
forsætisráöherra Noröurland-
anna, sem haldinn var f Stokk-
hólmi. Fyrirhugaó hafði verið,
að forsætisráðherra færi einnig
til Heisinki til þess að taka þátt
f hátfðahöldum í tilefni af 60
ára afmæli sjálfstæðis Finna,
en af því gat ekki orðið sökum
anna ráðherrans heima fyrir.
Morgunblaðið hefur átt stutt
viðtal við Geir Hallgrfmsson
um fund forsætisráðherranna
og beindi þeirri spurningu
fyrst til ráðherrans, hvað fram
hefði komið á fundi hans og
starfsbræðra hans um viðræður
þeirra við Kosygin í Helsinki,
sem vöktu mikla athygli og frá
hefur verið sagt í Morgunblað-
inu.
— Ég varð því miður að
hætta við að fara til Finnlands
og taka þátt í hátiðahöldim í
tilefni af 60 ára sjálfstæði
Finna en fyrir þvi var vel séð,
þar sem Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra var fulltrúi okk-
ar. Öllum þeim, sem tóku þátt í
þeim hátíðahöldum, ber saman
um, að þau hafi verið mjög veg-
leg og eftirminnileg. A blaða-
mannafundi, sem haldinn var
eftir forsætisráðherrafundinn í
Stokkhólmi komst reyndar fátt
að annað en viðræður Kosygins
og forsætis- og utanríkisráð-
herra Norðurlanda í veizlu, sem
Kekkonen efndi til og þótti
starfsbræðrum mínum blaða-
mennirnir sýna norrænu sam-
starfi minni áhuga en skyldi og
gera meira úr viðræðunum við
Kosygin en efni stæðu til.
Nordli, forsætisráðherra
Noregs, svaraði blaðamönnun-
um, að það hefði verið meiri
Framhald á bls. 31
„ÉG er hærddur um að þeir sem
ætla sér að gera sín jólainnkaup á
Forláksmessu fái lítið,“ ef salan
ge.ngur eins og hún hefur gert að
undanförnu og í raun má segja að
r
ísbjöminn
viÚ taka
Norglobal
á leigu
ISBJÖRNINN hf. hef-
ur sent ríkisstjórninni
umsókn um leyfi til að
taka norska bræðslu-
skipið Norglobal á leigu.
Jón Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá ís-
birninum, staðfesti um-
sóknina við Mbl. í gær,
en kvaðst ekki vilja ræða
málið frekar að svo
stöddu.
ísbjörninn
hf. leigði
Norglobal a árunum
1974 og 1975 í röska tvo
mánuðu hvort ár og var
skipið þá hér við land frá
miðjum janúar og fram
um mánaðamót
marz—apríl.
Þorláksmessuösin hafi byrjað
strax f byrjun mánaðarins og ver-
ið alveg stöðug, sagði Gretar
Eiríksson verzlunarstjóri Leik-
fangabúðarinnar Laugavegi 72, í
samtali við Mbl. í gær.
I sama streng tóku flestir aðrir
verzlunarmenn sem samband var
haft við í gær. Hjá Vörumarkaðn-
um sagði Andrés Sigurðsson, að
greinilegt væri að mjög mikið
peningamagn væri í umferð,
miklu meira heldur en áður. Hjá
þeim hefði jólasalan gengið mjög
vel í ölium deildum, nema
Framhald á bls. 30.
Þeir nota tækifærið til fullnustu þessir knáu peyjar, enda skín prakkaraskapurinn
úr fasi þeirra og fjöri.
AUKAFUNDUR SH:
Heildartap upp
á 4,5-5 milljarða á ári
Hvert 1% í fiskverðshækkun þýddi 200 milljón kr. aukin útgjöld fyrir frystihúsin
„ÞETTA voru ákaflega vinsam-
legar umræður. Við kynntum ráð-
herrunum samþykkt aukafundar
okkar. Það eru allir sammála um
hver vandinn er. Spurningin er
bara, hvernig á að Ieysa hann en
engar hugmyndir þar um voru
reifaðar á þessum fundi. Það á að
verður borin út til áskrifenda Morgunblaðsins á morgun. 19. desember.
koma nýtt fiskverð 1. janúar og
auðvitað vilja menn hækkun, en
getan er ekki fyrir hendi, heldur
stöndum við frammi fyrir
heildartapi, sem nemur á bilinu
4500 til 5000 milljónum á ári, en
hvert 1%, sem fiskverð hækkaði
um, þýddi 200 milljón króna auk-
in útgjöld fyrir frystihúsin",
sagði Hjalti Einarsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar harðfrystihús-
anna, er Mbi. ræddi við hann í
gær eftir að nefnd sú, sem auka-
fundur SH kaus, hafði átt fund
með Geir Hallgrímssyni, forsætis-
ráðherra, og Matthfasi Bjarna-
syni, sjávarútvegsráðherra.
Á aukafundi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sem haldinn
var í Reykjavik á föstudag, var
eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Nú er komið í ljós að afkoma
frystingar á árinu 1976 hefur orð-
ið mun lakari en áætlað var.
Geta frystihúsanna til að standa
undir þeim miklu kostnaðar-
hækkunum sem orðið hafa á
þessu ári byggist því eingöngu á
hækkun markaðsverða á erlend-
um mörkuðum og gengissigi.
Sem dæmi um kostnaðarhækk-
anir á þessu ári má nefna að hrá-
efni til vinnslunnar hefur hækk-
að um 32%. Vinnulaun við fisk-
vinnsluná hafa hækkað á bilinu
60% til 65% frá 1. janúar til þessa
dags. Samtals nema þessir tveir
kostnaðarliðir nú um 83% af
heildartekjum. Vextir af rekstrar-
lánum frystihúsanna hafa hækk-
Framhald á bls. 30.
Atvinnuleysi veldur áhyggjum á Norðurlöndum:
Finnsk verkalýðssamtök
falla frá 10% samningsbund-
inni kauphækkun næsta ár
Enginn af
200 nemend-
um reykir
Paf reksfirði 13. des.
1 GRUNNSKÖLA Patreks-
fjarðar eru rösklega 200
nemendur í vetur. Nú er hægt
að skýra frá þeim ánægjulegu
tfðindum að enginn einasti
nemandi skólans reykir.
Undanfarna vetur hefur nokk-
uð borið á þvf að nemendur
elztu bekkjanna reyktu og.olli
það nokkrum áhyggjum ráða-
mönnum skólans eins og ann-
ars staðar. I dag skreyta nem-
endur skóla sinn, hver bekkur
sína stofu og er þar margt
frumlegt að sjá. Félagslff í
skólanum er nokkuð og t.d.
æfa um 100 nemendur reglu-
lega körfubolta.
Framhald á bls. 30.