Morgunblaðið - 05.01.1978, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANUAR 1978
Um 100 bátar
róa frá Eyjum
Vestmannaeyjum, 4. janúar.
NÆRRI 100 bátar verða gerðir út
á vetrarvertíð í Vestmanaeyjum,
þar af um 70 heimabátar auk
fjögurra skuttogara og smærri
báta, en að vanda róa um 10—15
aðkomubátar frá Eyjum.
Reiknað er með að átta bátar
fari á línuveiðar í vertíðarbyrjun,
en línuveiðar hafa ekki verið
stundaðar á vetrarvertíð í Eyjum
um nokkurt árabil. Um 30 bátar
verða á trolli og aðrir 30 á netum.
Nokkrir Eyjabátar eru farnir til
loðnuveiða, en þegar loðnuveiðin
kemst í fullan gang, er reiknað
með 16 Eyjabátum á loðnu.
Vertíðarhjólin eru rétt að byrja
að snúast og aðeins tveir bátar
eru búnir að gera netin klár.
Bátaflotinn mun væntanlega taka
það rólega framan af janúar, því
bæði er gæftaleysi og árvisst afla-
leysi á þessum tíma.
Einar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Isfélags Vest-
mannaeyja, sagði, að frystihúsin
væru tilbúin til vinnslu. Hjá ísfé-
laginu er verið að taka í notkun
700 fermetra saltfisk- og síldar-
hús og einnig eru þeir að útbúa
kæligeymslu fyrir kassafisk. Ein-
ar sagði mikið framboð af mann-
skap til vinnu hafa verið í nóvem-
ber og desember og kvaðst hann
telja að ráða þyrfti til frystihús-
Eldur í
geymslu
SLÖKKVILIÐIÐ var i gærkvöldi
kvatt að Hjallabakka 14, en þar
var eldur laus í geymslu í kjall-
ara. Slökkvistarf gekk greiðlega,
en kjallarinn og 'stigagangarnir
númer 14 og 12 fylltust af reyk.
Talið var að eldurinn hefði log-
að í fötum í geymslunni, en um
upptök hans var ekki fullvíst í
gærkvöldi.
Rilton Cup:
Margeir
sautjándi
og Stefán
í 25. sæti
RILTON Cup skákmótinu í Stokk-
hólmi lauk í gærkvöldi. Margeir
Pétursson tapaði fyrir Rantanen í
siðustu umferðinni, en Stefán
Briem vann Welin. Hafnaði Mar-
geír í 17. sæti með 5S4 vinning og
Stefán í 25. sæti með 5 vinninga,
en keppendur voru 91 og voru
tefldar 9 umferðir. Þrír Svíar,
Schneider, Karlsson og Jansson,
urðu efstir á mótinu með 7 vinn-
inga.
Margeir Pétursson heldur nú til
Öslóar til þátttöku i alþjóðlegu
skákmóti þar. Fyrsta umferð
verður tefld á föstudag og verða
tefldar 9 umferðir, en keppendur
eru 26.
anna 3—400 aðkomumenn á vetr-
arvertíð.
Stefán Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar, kvað þá tilbúna til að hefja
vertíðarvinnu, en þeir væru nú að
ljúka við að setja nýtt gólf og ný
vinnsluborð í pökkunarsal, en
hann benti á að það væri af sem
áður var að vertíð færi í fullan
gang í Eyjum í janúar. Kvað Stef-
án það mikinn vanda fyrir frysti-
húsin, hve fáir bátar færu á línu,
en þó benti hann á að það væri
ennþá meiri vandi að öll þessi
stóru frystihús í Eyjum væru rek-
in með stórfelldu tapi.
Stefán sagði breytingu á launa-
máium útvegsins hafa orðið til að
draga úr sókn báta á þeim tíma,
sem væri ótryggur til veiða. Að
sögn Stefáns þarf Vinnslustöðin
80—100 aðkomumenn í vetur.
a.j.
Rafmagns-
leysi á suðvest-
urhominu
RAFMAGN fór af stórum hluta
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og
Suðurnesjum í gærkvöldi, er bil-
un varð í 30 Kw teinrofa í aðal-
spennistöðinni við Elliðaár. Þar
sem rafmagnsleysið var lengst,
varð það í um 20 mínútur. Raf-
magnsleysið rauf símasamband
milli Reykjavíkur og Suðurnesja
og var símasamband ekki komið á
aftur klukkan hálf eitt í nótt.
í Reykjavík fór's rafmagn af
Breiðholti, Heimahverfi, vestur-
bænum, hluta miðbæjarins og
hluta austurbæjar upp í Norður-
mýri og Hlíðar.
Útvarps-
skákkeppni
að hefjast
INNAN skamms hefst útvarps-
skákkeppni milli Islands og
Noregs. Fer hún þannig fram, að
hvor þjóð teflir fram einum kepp-
anda og er leikinn einn leikur á
dag og hann lesinn í útvarpi jafn-
óðum. Fyrir tslands hönd kepþir
íslandsmeistarinn Jón L. Árnason
en Leif Ögaard keppir fyrir Norð-
^menn. Síðar mun Island keppa
við aðrar Norðurlandaþjóðir í út-
varpsskák og mun keppnin standa
út þetta ár a.m.k.
Fíkniefnamál:
Gæzluvarðhald
framlengt um
allt að 30 daga
í GÆR var gæzluvarðhald manns,
sem setið hefur inni i 20 daga
vegna rannsóknar fíkniefnamáls,
framlengt um allt að 30 daga.
Maður þessi er sá eini, sem úr-
skurðaður hefur verið í gæzlu-
varðhald vegna málsins, en grun-
ur leikur á að það sé allvíðtækt.
Jón L. Arnason.
tefld f dag. „Eftir heimsmeist-
aramót sveina sneri ég mér að
náminu af kappi og það má
segja, að ég hafi farið hingað
beint úr prófum," sagði Jón.
„Undirbúningurinn var því í
lágmarki og einhver þreyta 1
mér, þannig að ég hef orðið
fyrir skákblindum af versta
tagi.“
Jón sagði að þetta mót væri
miklu sterkara en heimsmeist-
aramót sveina, þó árangur hans
gæfi engan veginn rétta mynd
af þeim mun. „En ég hef fengið
mina reynslu hér,“ sagði Jón.
„Það er ekki síður hægt að læra
af svona löguðu heldur en
stanzlausri velgengni.
Á þessu móti hef ég teflt við
sterkustu mennina. Andstæð-
ingar mínir í mótinu hafa sam-
tals 84'A vinning, sem er sami
árangurinn er sennilega i réttu
falli við undirbúninginn."
Jón sagði, að hann væri ekki
ánægður með taflmennsku sína
nema í þremur skákum, gegn
Franszoni, Mokry og Goodman.
„Ég náði mér vel á strik i
fjórðu, fimmtu og sjöttu um-
ferð,“ sagði Jón, „en hitt hefur
allt verið frekar slælegt, meðal
annars var ég kominn með tap-
að tafl eftir byrjunina í þremur
skákum og það segir sína sögu.“
Jón sagði, að hann veðjaði
einna helzt á Taulbut sem sig-
urvegara mótsins. ■ „Hann er
með flesta sigra af þessum, sem
keppa um efsta sætið, þannig
að verði þeir einhverjir jafnir
og hann i þeim hópi, þá vinnur
hann mótið á sigrunum".
1 síðustu umferðinni í dag
teflir Jón við Santos frá Portu-
Ekki síður lærdómsríkt
en stanzlaus velgengi
- segir Jón L. Arnason um Evrópumeistaramót unglinga í skák
„MEÐ TAPINU fyrir Petersen
má segja að þetta mót hafi ver-
ið búið fyrir mig, hvað árangur-
inn snertir. En það verður eng-
inn óbarinn biskup og ég hef
lært mikið á þessu móti,“ sagði
Jón L. Arnason skákmaður, er
Mbl. ræddi við hann 1 gær, en
síðasta umferð evrópumeistara-
móts unglinga í skák verður
vinningafjöldi og andstæðingar
Dolmatovs hafa og erum við
langefstir, hvað þetta varðar.
Og ef ég hefði unnið Petersen
þá væri ég hálfum vinningi á
eftir efstu mönnunum, sem út
af fyrir sig hefði mátt heita allt
í lagi. En það er fjarri því að ég
vilji neitt vera að barma mér
yfir þvi, sem komið er. Heildar-
gal, en heim koma Jón og As-
geir bróðir hans, sem með hon-
um er, á föstudag.
Næst á dagskránni hjá Jóni
er svo alþjóðlega skákmótið í
Reykjavík, sem hefst í febrúar.
„Og ég er staðráðinn í því að
reyna að undirbúa mig vel fyrir
það mót,“ sagði Jón L. Árnason
að lokum.
280 manns bíða eft-
ír flugi á ísafirði
Vestfirðingar biðja Landhelgisgæzluna um aðstoð
INNANLANDSFLUG Flugfélags-
ins hefur gengið mjög stirðlega
það sem af er árinu. Hefur t.d.
ekkert verið flogið til ísafjarðar,
Vestmannaeyja og Þingeyrar og
bíða nú 25,0 manns eftir flugfari
frá Reykjavík til ísafjarðar og
280 manns bíða eftir fari frá Isa-
firði og suður.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa hefur ennfremur
gengið erfiðlega að fljúga til ann-
arra staða á landinu en Vestfirð-
irnir hafa orðið verst úti. Þó tókst
í fyrradag að fljúga til Patreks-
fjarðar.
í gærmorgun tókst að fljúga
þrjár ferðir til Akureyrar og flug-
vél lagði af stað til Vestmanna-
eyja en hún varð að snúa við. Um
hádegið versnaði veðrið og jafn-
framt var mjög ókyrrt í lofti og
var frekara flugi aflýst síðdegis. I
dag er spáð skárra veðri að sögn
Sveins.
Samgönguerfiðleikar eru mikl-
ir á Vestfjörðum núna og hefur
Landhelgisgæzlan fengið fyrir-
spurnir um það hvort hún geti
hlaupið undir bagga og flutt fólk
og vörur með varðskipunum.
Friðrik Pálsson fram-
kvæmdastjóri S.I.F.
FRIÐRIK Pálsson hefur verió
ráðinn framkvæmdastjóri Sölu-
sambands íslenzkra fiskframleið-
enda frá 1. janúar s.l„ í stað
Helga Þórarinssonar, sem verið
hefur framkvæmdastjóri S.I.F.
s.l. 31 ár, en Helgi lætur af störf-
um síðar á þessu ári að eigin ósk
fyrir aldurs sakir.
Friðrik Pálsson er fæddur 19.
marz 1947. Hann er sonur hjón-
anna Guðnýjar Friðriksdóttur og
Páls Karlssonar bónda á Bjargi í
Miðfirði í V-Hún. Hann lauk prófi
frá viðskiptadeild Háskóla Is-
Yfirnefndirnar
ræða fiskverðið
TVÆR yfirnefndir Verðlagsráðs
sjávarútvegsins komu saman til
fundar í gær og ræddu fiskverð,
sem átti að taka gildi um áramót.
Yfirnefnd sú, sem fjallar um
loðnuverðið, kom til fundar kl.
15.30 og nefndin sem fjallar um
almennt fiskverð kom til fundar
kl. 16.30. Ekki var Mbl. kunnugt
um árangur af fundum nefnd-
anna í gærkvöldi.
Friðrik Pálsson
lands vorið 1974 og tók við starfi
skrifstofustjóra hjá S.I.F. sama
ár.
Eiginkona Friðriks er Ólöf
Pétursdóttir lögfræðingur. Jafn-
framt Friðrik er Valgarð J. ólafs-
son framkvæmdastjóri og sér um
sölumál verkaðs saltfisks og ufsa-
flaka eins og verið hefur.