Morgunblaðið - 05.01.1978, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANUAR 1978
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiSsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6, simi 22480.
Áskriftargjald 1500.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 80.00 kr. eintakið.
„Timburmenn”
gera vart við sig
Stundum leita menn á náöir áfengis til þess að
gleyma um stundarsakir þjáningum líðandi stundar
og komast hjá því að horfast í augu við veruleika, sem oft
er bæði kaldur og grár. En það vita allir, að á eftir
ölæðinu og þeim stuttu gleymskustundum, sem það
veldur, fylgja ,,timburmenn“ og veruleikinn sjálfur kald-
ari og erfiðari en nokkru sinni fyrr.
Hér í okkar landi hefur verðbólguölæði ríkt í fjölda-
mörg ár. Á miðju síðastliðnu ári, þegar tekizt hafði með
þolinmæði og þrautseigju að þoka verðbólgunni niður á
við um helming varð það niðurstaðan í kjarasamningum,
að þjóðin væri ekki enn tilbúin til þess að þola þær
þjáningar, sem fylgja ,,timburmönnum“ eftir langvar-
andi ölæði. Þess vegna var ákveðið að taka einn „túrinn“
enn og á sumar- og haustmánuðum var samið um kaup-
hækkanir, sem þýða, að á 12 mánuðum hafa laun hækkað
um 60—80%.
Það er alveg sama hversu lengi menn halda áfram að
reyna að flýja veruleikann, hann nær tökum á þeim, sem
undan honum flýja að lokum og þá er komið að skulda-
dögum. Svo er komið fyrir okkur íslendingum nú. Við
höfum leyft okkur þann munað að hækka laun okkar um
60—80% á 12 mánuðum. Á þessum sama tíma hækkuðu
erlendar tekjur okkar um 10% og gengi krónunnar
lækkaði um 11—12%, þannig að heildartekjur útflutn-
ingsatvinnuvega okkar, sem við 'lifum á hækkuðu um
20—25% á þessu sama tímabili. Tekjuauki okkar hefur
ekki dugað til þess að standa undir þeim auknu útgjöld-
um, sem við ákváðum okkur til handa með launahækkun-
um á síðasta ári.
Enn munu launin hækka hinn 1. marz nk. og hófleg-
ar áætlanir gera ráð fyrir, að laun hækki á
þessu ári um 30%, en líklegra er, að það verði töluvert
meira. Sá kaldi og grái veruleiki, sem við okkur blasir
er einfaldlega sá, að ef við látum hér við sitja og neit-
um enn að horfast í augu við staðreyndir munu und-
irstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar, sjávarútvegur og fisk-
vinnsla og margar greinar iðnaðar, stöðvast með vorinu
og atvinnuleysi skapast. Þetta byggist vitanlega á því, að
tekjur þessara atvinnugreina hafa ekki hækkað nægilega
mikið til þess að standa undir 60—80% kauphækkun.
Næstu mánuðir verða því tímabil hinna erfiðu en
óumflýjanlegu ,,timburmanna“. Verðbólguölæðið er á
enda. Um skeió gátum við haldið því uppi með stórfelld-
um erlendum lántökum, en sú leið verður ekki farin öllu
lengur. Nú stöndum við frammi fyrir erfiðri ákvörðun:
annað hvort fljótum við sofandi aö feigðarósi og þá mun
hjól atvinnulífsins stöðvast með vorinu og stórfellt at-
vinnuleysi verða eða við gerum nauðsynlegar ráðstafan-
ir til þess að koma í veg fyrir, að afleiðingarnar verði svo
alvarlegar. Geir Hallgrímsson forsætisráðherra benti á í
áramótagrein sinni hér í Morgunblaðinu hverjar hiriar
hefðbundnu leiðir væru þegar við slíkan vanda væri að
etja. Hann sagði: ,,Að hækka krónutölu í íslenzkri mynt,
sem fæst fyrir útflutningsvörur meö gengislækkun eða
gengissigi; aö draga úr eða fresta kauphækkunum innan-
lands og vöruhækkunum með samkomulagi — eða lög-
bindingu; að styrkja útflutningsatvinnuvegina með fjár-
framlögum af almannafé, sem fengið er með skattlagn-
ingu á alla landsmenn.“ Enginn þessara þriggja kosta er
góður. Alla þekkjum við, en vió vitum væntanlega líka að
„timburmenn“ veróa ekki teknir út þrautalaust. Við
höfum nokkrar vikur til þess að ræða um og íhuga,
hverja þessara þriggja leiða við kjósum eða hlusta á
raddir, sem fram kunna að koma um nýjar leiðir, sem
e.t.v. kunna að vera til, en hugmyndir qkki komið fram
um og þar af leiðandi ekki verið ræddar.
Kortsnoi 1 jafn-
Kortsnoj ,,náði“ jafntefli í 15.
einvígisskákinni eftir að hafa
tapað fjórum skákum í röð
úndanfarið. Þetta jafntefli gæti
komið Kortsnoj á sporið á ný og
eflaust hefur þetta jafntefli
eflt sjálfstraust hans á ný.
Spassky beitti sinni frægu
Tarraxh vörn sem hann hefur
svo margsinnis gert og fékk við-
unandi tafl. Ekki var þó loku
fyrir það skotið að Kortsnoj
hefði getað endurbætt tafl-
mennsku sína i 19. leik, en
engu að síður hefði jafntefli
verið sennilegustu úrslitin.
Skákin í heild var ekki við-
burðarík en ákaflega þýðingar-
mikil áfangi fyrir Kortsnoj sem
virtist vera heillum horfin i síð-
ustu skákum. Með jafntefli þok-
ast hann sífellt nær takmarki
sinu eða 10,5 vinningi. Spassky
hinsvegar hefur þegar sýnt það
í síðustu skákum að hann er til
alls vís og því má telja að síð-
ustu 5 skákir einvígisins geti
orðið býsna spennandi. Næstu
skák, nú 16, verður tefld á
föstudag.
15. einvígisskák
Hvítt: Kortsnoj
Svart: Spassky
Drottningarbragð
(Tarraseh vörn)
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
c5. (Spassky beítir svokallaðri
Tarrasch vörn sem er all algeng
byrjun nú á dögum. Fyrrum
þótti þessi byrjun ekki teflandi
vegna þess að svartur fær stakt,
einangrað peð á d5 sem stund-
um reyndist erfitt að vaida til
lengdar. Við skulum fylgjast
með því hvort sú verði raunin í
þessari skák)
4. cxd5 — exd5, 5. Rf3 — Rc6,
6. g3. (Ef 6. dxc5 — d4)
6. — Rf6, 7. Bg2 — Be7, 8. 0-0
— Be6, 9. dxc5. (Hvítur ein-
faldar taflið með þessum leik
og losar um spennuna. Til
greina kemur lika 9. b3)
9. — Bxc5, 10. Bg5. (Þessi leik-
ur miðar að uppskiftum og
meiri einföldun stöðunnar.
Kröftugra framhald sýnist vera
10. Ra4 — Be7, 11. Be3 með
yfirráð yfir reitnum c5 í huga)
10. — d4. (Góður leikur;
„veika“ peðið á d5 er orðið ógn-
andi)
vægi a ny
13. Rel (Eðlilegra framhald
sýnist vera 13. Dd2 og síðan
Hfdl með þrýstingi á d-peðið,
en Kortsnoj fer öðruvísi að
með sama markmið í huga þó).
13. . . . Be7, 14. Rd3 — Hb8, 15.
Rf4 (Þrjá leiki hefur það tekið
riddarann að komast á þennan
fyrirheitna stað sem hann
stendur líka ljómandi vel á.
Spassky reynir eðlilega að
halda sem Iengst í biskupa sína
því þeir eru sterkari í þessari
stöðu).
15.. .. Bf5, 16. Hcl — 0-0
(Svartur telur sig loksins geta
eytt tíma í að hrókfæra.
Spassky er álitinn einn helzti
sérfræðingur í Tarrasch vörn
svo eflaust hefur hann áður
þurft að glíma við slíka stöðu).
17. Rc5! (Hvítur beinir nú
þrýstingi að b7 peðinu, en hvít-
ur verður líka að gæta peðsins
á b2 eftir t.d. 18. Rxb7 —
Hxb7, 19. Hxc6)
17.. . . Bg5, 18. Dd2 (Hvítur
vill ekki fá tvípeð á f4, leiki
svartur Bxf4) 18.... De7, 19.
Hfdl? (Sterkara vár strax 19.
h4 — Bh6, 20. Rxb7 — Dxb7, 2.
Hxc6 — Dxb2, 22. Dxb2.
19.. .. Hfd8 — 20. h4 — Bh6,
21. Rxb7 (Hvítur telur sínum
hag samt sem áður bezt borgið
með þessu framhaldi því á
þennan hátt missir svartur
völdin á d-peðinu smátt og
smátt).
21.. . . Dxb7, 22. Hxc6 — Dxb2,
23. Dxb2 — Hxb2, 24. Rd5.
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
það. Reyndar er d4 peðið í upp-
námi en það líka jafnframt
'hvítu peðin á a2 og e2)
25. Hxd4 (Veika peðið í Tarr-
asch vörninni er þá loksins far-
ið og hvítur getur andað létt-
ara. Hafi Kortsnoj í upphafi
teflt til jafnteflis eins og margt
bendir til færist hann sífellt
nær því takmarki)
25 ... Be6 (Spassky fer sér að
engu óðslega enda hlaupa ekki
bæði burtu í einu).
26. e3 — Hxa2, 27. Rc3 (Hvítur
gerir tilraun til að mynda sér
frelsingja á d-línunni, en . ..
27 ... Hal, 28. Kh2 — Hxd4, 29.
exd4 — Bd2, 30. d5 — Bxc3
(Svartur skiptir nú sjálfviljug-
ur upp á biskup og riddara þar
eð nú gat riddari hvíts farið að
verða hættulegur).
31. Hxc3 — Bd7, 32. Hc7 —
Ke8, 33. Hb7 — f5, 34. d6 og hér
bauð Kortsnoj jafntefli sem
Spassky þáði eftir stutta um-
hugsun. Leikar standa þá þann-
ig eftir 15 skákir af 20 að
Kortsnoj hefur hlotið 8 vinn-
inga en Spassky 7. Einn vinn-
ingur skilur þá að og með
hverju slíku jafntefli nálgast
Kortsnoj markið en sá vinnur
sem fyrstur hlýtur 10,5 vinn-
ing.
^...rnm
m.....mm...
i
®!--H
"Á ¥v-,í IHI • WM.
m Éll
1
Staðan eftir 24. leik hvíts.
24.... Kf8! ( (Hvítur hótaði að
vinna mann með Re7 og síðan
Rxf5, en svartur á ekki í erfið-
leikum með að koma í veg fyrir
Lokastaðan.
Nýr borgarstjóri I New York Ed Koch (til vinstri) sver eimbættiseið. Fyrir miðri mynd er forseti
hæstaréttar New York l.eond H. Sandler.