Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.01.1978, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar | Garðar FUS Ólafsfirði Aðalfundur Garðars FUS Ölafsfirði verður haldinn í Tjarnarborg sunnu- daginn 22 janúar kl. 14 00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Jón Magnússon formaður ungra sjálfstæðismanna kemur á fundinn og ræðir stjórnmálaviðhorfið og Anders Hansen framkvæmdarstjóri SUS ræðir um starsemi og baráttu- mál ungra sjálfstæðismanna i vetur. Ungt sjálfstæðisfólk á Ólafsfirði er emdregið hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti Stjórnin. Húsvíkingar Ungir sjálfstæðismenn á Húsavík boða til almenns fundar í I Hótel Húsavík laugardaginn 21. janúar kl. 15.30. Jón Magn- ússon formaður ungra sjálfstæðismanna kemur á fundinn og ræðir stjórnmálaviðhorfið og Anders Hansen framkvæmda- stjóri SUS ræðir um starfsemi og baráttumál ungra sjálfstæð- ismanna í vetur. Sjálfstæðisfólk á Húsavlk er eindregið hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti. Stjórnin. Aðalfundur Dags F.U.S. Árbæjarhverfi verður haldinn mánudaginn 23. janúar n.k. kl. 8.30 að Hraunbæ 1 02. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Vörður FUS Akureyri Vörður FUS Akureyri boðar til almenns fundar að Kaupvangs- stræti 4 föstudaginn 20 janúar kl. 20.30. Jón Magnússon formaður sambands ungra sjálfstæðismanna kemur á fundinn og ræðir stjórnmálaviðhorfið og Anders Hansen framkvæmd- arstjóri SUS ræðir um starfsemi og baráttumál ungra sjálf- stæðismanna í vetur. Varðarfélagar eru eindregið hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Stjórnin. Rangæingar 4. og síðasta spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Rangárvalla- sýslu, verður haldið í Hellubíói. í kvöld fimmtudag kl. 21. Góð kvöldverðlaun. Sólarlandaferð fyrir tvo eru aðalverðlaun, fyrir 3. hæstu spilakvöldin. Ávarp flytur Steinþór Gestsson. alþing- ismaður. Stjórnirnar. Kosning kjörnefndar vegna borgarstjórnar- kosninga Til meðlima Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík. ★ Þegar kosningar til Alþingis eða borgarstjórnar standa fyrir dyrum i Reykjavik. skal sérstök kjörnefnd starfa ínnan Fulltrúa- ráðsins. í kjörnefnd eiga* 15 menn, þannig valdir: 7 tilnefndir af stjórnum sjálfstæðisfélaganna og stjórn Fulltrúa- ráðsins í Reykjavík og 8 kjörnir í skriflegri kosningu meðal Fulltrúaráðsmeðlima, að undangengnúm framboðum. Stjórn Fulltrúaráðsins hefur ákveðið að velja kjörnefnd v/ borgar- stjórnarkosninga nú i janúarmánuði. if I reglugerð Fulltrúaráðsins segir m.a.: ..Með hæfilegum fyrirvara skal með auglýsingu i fjölmiðlum, leitað eftir framboðum til kjörnefndar. Kjörgengir eru aDir fulltrúar, sem eru á kjörskrái Reykjavik. Framboðsfrestur skal vera a.m.k. ein vika. Framboð telst gilt, ef það berst kosningastjórn fyrir lok framboðsfrests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af fimm fulltrúum hið fæsta og af ekki fleiri en tiu fulltrúum, og frambjóðandi hafi skriflega gefið kost á sér til starfans. Berist ekki fyrir lok framboðsfrests tillögur um fleiri kjörnefnd- armenn en kjósa á, teljast þeir sjálfkjörnir, sem tillögur hafa verið gerðar um, en komi ekki fram tillögur um fulla tölu kjöröefndarmanna, skal stjórn Fulltrúaráðsins skipa svo marga til viðbótar, að kjörnefnd verði fullskipuð." if Skv. framangreindu auglýsist hér með eftir framboðum til kjörnefndar v/ framboðslista Sjálfstaeðisflokksins i Reykjavik við næstu bgrgarstjórnarkosningar. Frestur til að skila framboð um er til kl. 1 2 á hádegi fimmtgdaginn 26. janúar n.k. og ber að skila framboðum, persónulega, fyrir þann tima á skrifstofu Fulltrúaráðsins i Valhöll, Fláaleitisbraut 1, en eigi senda i pósti. if Berist fleiri framboð en kjósa á, og komi til kosningu kjörnefndar, fer sú kosning fram i siðari hluta janúarmánaðar og i byrjun febrúarmánaðar. Stjórn Fulltrúaráðsins. Guðný Guðmundsdótt ir — Minningarorð F. 17. október 1895 D. 9. janúar 1978 I dag, fimmtudaginn 19. janúar, verður til moldar borin heiðurs- konan Guðný Guðmundsdóttir, Laugavegi 137 hér í borg. Guðný var fædd 17. október 1895 að Ara- hóli á Miðnesi. Foreldrar hennar voru Sigurborg Torfadóttir og Guðmundur Þorsteinsson sjómaður. Guðný var ein af 9 systkinum og á þeim tíma er hún var að slíta barnskónum bjuggu að Móhúsum á Miðnesi hjónin Sigríður Jónsdóttir og Einar Haf- liðason. Voru þau barnlaus og föluðust mjög eftir að fá Guðnýju til fósturs, og af því varð þegar Guðný var sex ára gömul. Þetta hefur eflaust ekki verið sársauka- laust hjá foreldrunum, að senda eitt barnið sitt frá sér, en fjöl- skyldan var stór og fátækt mikil og þau vissu eins og Guðný sagði að hún var að fara til góðs fólks. En oft var henni hugsað til systkina og foreldra á uppvaxtar- árunum þó að fósturforeldrarnir væru henni góð. Guðný vann alla þá vinnu eins og stúlkur unnu við sjávarsíðuna í þá daga, en þá var krafan um lífsþægindi ekki sú sama og í dag. Aðalatriðið var að hafa í sig og á. Guðný var mjög lagleg kona og yfir henni mikil reisn og myndug- leiki. Man ég að einn fullorðinn maður sagði mér fyrir 30 árum að hún hefði gengið undir nafninu Suðurnesjasólin meðal ungra manna á Suðurnesjum i þá daga. Guðný fluttist til Reykjavikur árið sem hún giftist, það var árið 1920. Eiginmaður hennar var Sveinn Jónsson sem lengi var við dyravörslu og eftirlit í Miðbja- barnaskólanum og margir Reyk- víkingar muna eftir. Bjuggu þau lengst af í Vonarstræti og Sóleyjargötu og eignuðust þrjár dætur, en þær eru Bergljót Jóna Guðný, gift Ragnari Guðmunds- syni; Jónína Margrét, gift Jóni Aðalsteini Jónassyni; og Sigur- björg Anna, gift Gunnari Valgeirssyni. Það var margt í fari Guðnýjar sem sælt er að minnast nú á kveðjustund, en þar bar hæst hennar mikla hjartahlýja, góðvild og gjafmildi. Hún var eins og margir af hennar kynslóð sem aldrei höfðu neitt umfram eigin þarfir en áttu alltaf það mikið að geta gefið öðrum sem voru hjálpar þurfi. Hún var að mínu mati alveg einstök kona, móðir og amma. Þau 34 ár sem ég þekkti Guðnýju man ég aldrei eftir því að hún segði eitt einasta styggðar- yrði í garð nokkurs manns, eða að þeim mæðgum yrði nokkurn tíma sundurorða. Arið 1934 er samkomuhúsið í Keflavík brann á jólatrésskemmt- un á gamlársdag fórust 9 manns og 30 brenndust meira og minna og voru börnin flutt til Reykjavík- ur á Landakotsspítala. Þangað heimsótti hún öll börnin á hverj- um degi í rúmt ár og voru þau eins og hennar eigin. Þau voru úr heimahéraði hennar og þar sem erfitt var um samgöngur á þeim tíma tók hún að sér móðurhlut- verkið. Þetta gerði hún af miklum kærleika til barnanna, því að hún var eins og allir vissu sem þekktu Framhald á bls. 19 t Faðir okkar. FINNBOGI GUÐMUNDSSON. frá Flatey, Breiðafirði, lést að Hrafnistu 1 8 þ m Börnin. t Eigmmaður minn, STEFÁN R PÁLSSON frá Kirkjubóli í Korpudal lézt á Landspítalanum þriðjudagmn 1 7 janúar Guðrún Ossurardóttir t Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, OTTÓ SCHIÖTH, fyrrverandi fulltrúi, andaðist i Landakotsspitala 1 8 janúar Svava Schiöth. Karl F. Schiöth. Unnur H. Schiöth. t Útför. RAGNHEIÐAR PETRU JÓNSDÓTTUR Álfhólsvegi 2, Kópavogi, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 20 jan . kl 3 Jón Bergsteinsson. t Minningarathöfn um föður okkar, GUÐMUND ÁSBJÖRNSSON, fer fram frá Dómkirkjunni 20 þ m kl 10 30 f h Jarðað verður frá Ingjaldshólskirkju kl 2 laugardaginn 21 þ.m Guðmundur Guðmundsson, Ása Guðmundsdóttir. t Útför konu minnar, GUÐNÝJAR HELGADÓTTUR fer fram föstudaginn 20 janúar í Fossvogskirkju kl 1 30 Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Stefán Guðrnundsson Mávahlíð 1. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför. PÁLS J. BLONDAL Stafholtsey. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks sjúkrahúss Akraness fyrir góða hjúkrun i veikindum hans Sigriður Blöndal, Sigurður Sigfússon, og vandamenn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eigin- manns mins. bróður, föður og tengdaföður, GÍSLAJÓHANNSSONAR Grimheiður Pálsdóttir. Guðmunda Jóhannsdóttir, Jónina Gisladóttir, Brandur Tómasson, Ingibjorg Gisladóttir. Leifur Valdimarsson, ValgerðurH. Gisladóttir, Andrés Gilsson, Magnús R. Gislason. Oóra Jóhannsdóttir. og aðrir ættingjar hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.