Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 21. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Aulis Sallincn Finni fær tónlistar- verðlaunin Kaupmannahöfn, 25. janúar. Reuter. FINNSKA tónskáldinu Aulis Sallinen var f dag veitt tónlist- arverðlaun Norðurlanda og þau verða formlega afhent í Ósló f næsta mánuði. Tónskáldið fær verðlaunin fyrir óperuna „Ratsumies" (Riddarinn) sem hefur verið færð upp á Norðurlöndiim -og víðar. Norðurlandaráð veitir verðlaunin sem eru nærri 2,8 millj. ísl. kr. Sallinen er fæddur 1935 og lærði við Síbelíusar- akademíuna í Helsingfors þar sem hann var kennari 1963 til 1976. Hann var umsjón- armaður sinfóníuhljómsveitar finnska útvarpsins 1960—70 og hefur gegnt trúnaðarstörf- um í finnsku tónlistarlífi. Verðlaunahafinn hefur sam- ið flestar tegundir tónverka á Framhald á bls. 22. Kúbumenn á valdi Sómala? Nairobi, 25 janúar Reuter SÓMALÍUMENN héldu þvi fram i dag að þeir hefðu tekið til fanga nokkra kúbanska hermenn sem hefðu barizt við hlið Eþiópiumanna i Ogaden-eyðimörkinni, en eþiópiskir embættismenn itrekuðu að engir Kúbumenn tækju þátt i bardögun- um. Staðfesting fékkst ekki frá óháð- um aðilum, en samkvæmt áreiðan- legum heimildum í Mogadishu var fréttastofunni Sonna sagt að Kúbu- mennirnri væru i haldi i höfuðborg Norður Sómaliu, Hargeisa. Sima- Framhald á bls. 22. Leitun að geislunimti frá gervihnettinum færð út Ottawa, 25 janúar Reuter AP BANDARÍSKIR og kanadiskir sérfræðingar stækkuðu i dag svæðið, þar sem þeir leita að geislavirku úrfalli frá hinum kjarnorkuknúna njósnahnetti Rússa, sem brann og eyddist yfir Kanada, en enn hefur engin óeðlileg geislun fundizt. Tvær bandarískar háloftaflugvélar fundu ekkert óvenjulegt á 10 tima flugi en lögðu upp i aðra leitarferð og leita lengra frá þvi svæði sem hnötturinn stefndi á á leiðinni gegnum gufuhvolfið. Kanadiskar flutningaflugvélar af gerðinni C-130 Hercules leita i minni hæð á 25.000 fermilna svæði í norðvesturhluta Kanada. Sérfræðingar sögðu að þeir hefðu enga geislun fundið i bænum Yellow- stone og flokkur þeirra fór að svo búnu um 350 km vegalengd i austurátt til litils fiskiþorps, Fort Reliance, sem talið er að sé óbyggt á vetrum. að fíngerðar geislavirkar agnir færu að Talsmaður kanadiska landvarnaráðu- neytisins gat ekki staðfest hvort hægt væri að finna úr háloftaflugvélum geislaský það sem fréttir herma að gervihnötturinn hafi skilið eftir í efri lögum gufuhvolfsins þegar hann fór af braut. Geimathugunarstöðin í Bochum í Vestur-Þýzkalandi sagði í dag, að skýið væri 50—75 km hæð og 290—400 km langt Stofnunin sagði falla til jarðar eftir örfáar vikur Stofnunin sagði, að ekki mætti gera of lítið úr hættunni á geislavirku úrfalli, en Kanadiska kjarnorkufélagið vísaði á bug fréttum um hugsanlega hættu í félaginu er fyrirtæki sem starfa á sviði kjarnorkumála Félagið telur að njósnahnötturinn Framhald á hls. 22. Rán barónsins virðist ráðgáta París, 25. jan. Rcutor. AP. ÓÞEKKT vinstrisamtök tilkynntu belgfsku fréttastofunni Belga f Briissel í dag, að þau hefðu staðið að ráninu á auðkýfingnum Edou- ard-Empain baróni, en að minnsta kosti fjórir aðrir hópar hafa sagzt bera ábyrgð á ráninu og franska lögreglan er ráðþrota. Maður sem talaði frönsku með þýzkum hreim hringdi í belgisku fréttastofuna, tilkynnti að hann mundi senda myndir sem sönn- uðu að „Byltingarfylking öreig- anna“ hefði rænt baróninum og krafðist þess, að tveimur hryðju- verkamönnum yrði sleppt úr fangelsi í Vestur-Þýzkalandi ásamt Klaus Croissant, verjanda Baader-Meinhof. Hann krafðist þess einnig að hægriöfgamenn yrðu handteknir í Belgiu og Frakklandi, ella yrði þeim út- rýmt. Tveir hópar „atvinnumanna" hafa krafizt þess að fá allt að 100 milljónir franka í lausnargjald fyrir Empain barón og auk þess hafa tveir hópar öfgamanna til vinstri og hægri lýst sig ábyrga á ráni hans. Vísað hefur verið á bug orðrómi um að mannræningjarnir hafi þegar sett sig í samband við fjöl- skyldu Empains baróns. Frönsk yfirvöld eru enn ekki viss um hvort ránið hafi verið framið i pólitískum tilgangi eða auðgunar- skyni og geta ekkert um það sagt Framhald á bls. 22. SOVÉZKUR GERVIHNÖTTUR AF SÖMU GERÐ OG HRAPAÐI TIL JARÐAR. Framhald á bls. 22. HRAPAÐI TIL JARÐAR. Sadat segir viðræðu í gangi að tjaldabal Kafró.25. janúar. ap. Reuter fengið svar frá Carter við ráðherrar þeirra munu ANYVAR Sadat forseti sagði í dag, að alvarlegar viðræður færu fram að tjaldabaki þótt slitnað hefði upp úr formiegum samninga- viðræðum Egypta og ísraeis- manna. Hann kvaðst ekki vita hvenær formlegar viðræður gætu hafizt að nýju, en sagðist standa í stöðugu sambandi við Carter forseta. Hann kvaðst í dag hafa Harður þrýstingur á stjórnina í Svíþjóð Stokkhólmi, 25 janúar AP SÆNSKA stjórnin situr á hörðum samningafundum þessa dagana um framtíð stefnunnar í kjarn- orku- og orkumálum og stjórnar- flokkarnir eru svo klofnir að áreiðanlegar heimildir herma að komið geti til stjórnarkreppu i næstu viku og borin verði fram tillaga um vantraust á stjórnina. Viðræðurnar virðast hafa komizt i algera sjálfheldu eftir fundi ráðherranna í dag vegna ósveigjanlegrar afstöðu beggja aðila: Thorbjörn Fálldins forsætis- ráðherra og Miðflokksins annars vegar og ráðherra Frjálslynda flokksins og Hægri flokksins hins vegar. Fálldin vilI hvergi vikja frá þeirri stefnu sinni að berjast gegn smiði sænskra kjarnorkuvera og virðist þess albúinn að fúrna púlitiskri framtið sinni og stjúrnar sinnar i málinu Jafnframt gætir aukins þrýstings á Fálldin og stjúrnina sem sætir gagnrýni fyrir baráttu sina gegn kjarnorkuverum bæði af hálfu Framhald á bls. 22. fcngið svar frá Carter við orðsendingu sem hann hefði sent honum í gær. Sadat sagði fréttamönnum, að hann gæti ekki skýrt frá efni orðsendingar Carters að svo stöddu. En hann sagði að banda- ríski aðstoðarutanríkisráð- herrann Alfred Atherton kæmi til Kaíró frá Jerúsalem eftir nokkra daga til viðræðna við egypzka utanríkisráðherrann, Mohammed Ibrahim Kamel. Egypzka fréttastofan skýrði jafnframt frá því að Sadat forseti hefði í dag hitt að máli sendiherra Bandaríkjanna í Kaíró, Hermann Eilts, og virðist fundurinn hafa verið ákveðinn með stuttum fyrir- vara. í Jerúsalem skýrðu israelskir embættismenn frá þvf, að isreels- stjórn hefði samið yfirlýsingu um meginatriði sem friðarsamningur gæti grundvallazt á og að svars væri að vænta frá egypzku stjórn- inni. Búizt er við að bandaríska utanríkisþjónustan komi svarinu áleiðis, en ekki búizt við að það berist fyrr en um helgina. í Beirút var haft eftir alsírskum heimildum að viðræður Araba- leiðtoga sem eru mótfallnir friðartilraunum Sadats mundu hefjast í Algeirsborg á þriðju- daginn. Utanríkis- og landvarna- ráðherrar þeirra niunu koma saman til fundar á sunnudaginn. Samkvæmt heimildunum er búizt við að valdamesti maður íraks, Saddam Hussein, sæki fundinn í Algeirsborg. Smith spáir samkomulagi Salisbury, 2 5 janúar AP IAN Smith forsætisráðherra spáði því í dag að samkomulag kynni að nást í aðalatriðum eftir nokkrar vikur við leiðtoga blökkumanna í Rhódesíu um myndun meirihluta- stjórnar og lét í Ijós bjartsýni um að hún fengi viðurkenningu vestrænna ríkja. En hann sagði á blaðamannafundi að búast mætti við aukinni hryðju- verkastarfsemi skæruliða blökkumanna sem berjast fyrir því að kollvarpa stjórn hvíta minnihlutans Ýmsir höfðu búizt við því að Smith mundi skýra frá því að mikilvægur árangur hefði þegar náðst i viðræðun- um og urðu því fyrir vonbrigðum Smith sakaði Breta. sem blökku- menn vona að geti gert út um deiluna um stjórnarfarslega framtíð Rhódesiu. um að reyna að koma á bandalagi við hreyfingar skæruliða sem berjast i Rhódesíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.