Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 18
18
____________________________________________
MORGL’N'BLAÐIÐ. FIMMTL’DAGL'R 26. JANÚAR 1978
Bátur við bát er á flóanum þegar veiðarnar hefjast á morgnana.
Síldarævintýri og
veiðarfærastríð á
San Francisco-flóa
Jack Daykin hefur stundað sfldveiðar á flóanum undanfarin 38
ár. Hann er meðal þeirra sjómanna, sem eru æfir vegna ásóknar
sjómanna frá Washington og Oregon, en eru nú að þvf komnir að
leggja árar í bát vegna veiðarfæratjóns og ósamkomulags á
miðunum.
ÖNGÞVEITI ríkir nú á San
Francisco-flóa þar sem um það
bil 300 sfldveiðibátar eru að
veiðum. Sfldveiðivertfðin
stendur frá áfamótum til 1.
apríl, og er leyfilegt að veiða
rúm 5 þúsund tonn, en það er
um fjórðungur þess magns,
sem fiskifræðingar telja að
gangi á hrygningarstöðvarnar á
grynningum f flóanum. Menn
hafa vaxandi áhyggjur af þvf að
veitt sé langt umfram kvóta, en
auk þeirra sem áratugum sam-
an hafa veitt á þessum slóðum
fer sfvaxandi að sfldveiðibátar
frá Washington-rfki og Oregon
venji komur sínar á miðin.
Afleiðingarnar hafa orðið þær
að heimamenn kvarta sáran
undan veiðarfæratjóni af völd-
um aðkomumanna. Hefur kast-
azt í kekki og komið til handa-
lögmála, og jafnvel kemur fyrir
að skotvopn eru munduð í hita
augnabliksins, en hingað til
hefur ekki komið til alvarlegri
atburða en svo að aðeins hefur
verið miðað yfir borðstokkinn.
Yfirvöld, sem hafa eftirlit
með veiðunum og hafa veitt 225
bátum veiðileyfi á þessari ver-
tíð, viðurkenna að mun fleiri
bátar stundi veiðarnar, en
segja, að sakir lítils mannafla
og útbúnaðar sé ógerlegt að
fylgjast með veiðunum svo við-
unandi sé.
San Francisco-síldin er það,
sem við íslendingar mundum
kaila millisíld, eða á bilinu 20
til 30 sentimetrar að lengd. Það
aðdráttarafl, sem silfur hafsins
hefur, felst ekki í fiskinum
sjálfum, sem við íslendingar
söltum niður í tunnur af mikilli
natni. Hrognin eru það sem
sótzt er eftir, en þau eru
hátíðarmatur í Japan og kallast
þar ,,kazunoko“. Gefa Japanir
sem svarar 8600 krónum ís-
lenzkum fyrir kílóið af hrogn-
unum, en „aflaúrgangurinn",
það er að segja sildin sjálf, fer
beint í gúanóið þarna vestur á
Kyrrahafsströnd.
Yfirvöld í Kaliforníuríki hafa
verulegar áhyggjur af síldar-
stofninum, og frá árinu 1973
hefur strangt eftirlit verið haft
með veiðunum. Sóknin hefur
aukizt mjög síðustu ár, enda fá
sjómenn nú mun hærra verð
fyrir aflann en áður var. Þann-
ig er greitt fyrir sildartonnið
sem svárar 172 þús. islenzkra
króna, en fyrir örfáum árum
fengust rúm 19 þúsund fyrir
sama magn. Hér er um að ræða
góda tekjulind fyrir sjómenn á
árstíma, sem venjulega er dauf-
ur, en þess eru dæmi að smá-
bátur hafi aflað fyrir rúmar 2
milljónir króna á aðeins tveim-
ur vikum.
En það eru ekki aðeins báta-
sjómenn, sem sækjast eftir
silfrinu í San Francisco-flóa.
Sportveiðimenn hafa i vaxandi
mæli látið til sín taka, og standa
þeir þá á ströndinni með smá-
net og háfa.
Sportveiðimenn með veiðarfæri sín á ströndinni
Áframhaldandi
átök 1 Líbanon
Beirút 25. janúar. Reuter.
VINSTRISINNAR hrundu í dag áhlaupi hægrisinna á
Jandamæraþorp í suðurhluta Líbanons, að sögn héraðs-
yfirvalda í dag.
Þetta er annað áhlaup hægrimanna á þorp þetta á
tveimur dögum, og hafa tveir fallið og átta særzt í
átökunum. Skipzt var á skotum í morgun og vélbyssu-
hvinur heyrðist víða í þorpinu.
Atök hægri- og vinstrimanna í
Suður-Líbanon hafa nú staðið í
ERLENTj
Agee rekinn
frá Hollandi
Haag, Hollandi. 25. jan. AP.
HOLLENZK stjórnvöld staðfestu
í dag úrskurð dómstóla þar sem
fyrrum CIA-njósnaranum Philip
Agee er gert að yfirgefa Holland.
Stjórnvöld vísuðu áfrýjun Agees
á bug á þcim forsendum að hann
væri ógnun við öryggi landsins.
Engin sérstök ástæða var gefin
fyrir brottrekstri Agees.
Agee hefur á undanförnum átta
mánuðum verið rekinn úr nokkr-
um löndum i Vestur-Evrópu, en
hann hyggst nú snúa aftur til síns
heimalands. Agee, sem var lengi
njónari hjá ClA, hefur samið bók
um starfsaðferðir CIA og vinnur
nú að gerð annarrar.
fjóra daga og i gær sagði einn af
leiðtogum hægrimanna að reka
ætti hina 400.000 Palestínuaraba,
sem nú eru í landinu, úr landi
eftir tvö ár. Leiðtoginn sagði, að
þó svo múhameðsmenn í Libanon
hefðu krafizt þess að Palestfnu-
menn yrðu kyrrir í Libanon þang-
að til þeir gætu flutzt til heim-
kynna sinna, væru takmörk fyrir
því hvað líbönsk stjórnvöld gætu
haldið þeim lengi uppi. Hann
sagði að eftir tvö ár ættu þeir að
fara úr landi, annaðhvort til átt-
haga sinna eða til einhvers annars
Arabalands.
Pierre Gemayel, leiðtogi falang-
ista í Líbanon, sagði að það gæti
haft „alvarlegar afleiðingar" ef
stuðningsmenn Palestínumanna
héldu áfram að dæla í þá hergögn-
um. Hann líkti Suður-Libanon við
„tímasprengju með stuttum
kveikiþræði".
Fyrrum forseti Líbanons,
Suleiman Franjieh, sem átti við-
ræður við forseta Sýrlands í gær,
lét þau orð falla eftir viðræðurnar
að Sýrlendingar ætluðu að reyna
að koma á friði í Suður-Líbanon,
en þeir hafa nú friðargæzlusveitir
víða í Líbanon. Sýrlendingar hafa
ekki gert tilraun til að stilla til
friðar í suðurhluta landsins vegna
andstöðu ísraelsmanna.
VEÐUR
víða um heim
stig
Amsterdam 5 rigning
Aþena 14 bjart
Berlfn 6 rigning
Brússel 3 skýjað
Chicago + 1 snjókoma
Frankfurt 8 rigning
Genf 7 skýjað
Heisinki + 2 snjókoma
Jóhannesarb. 21 rigning
Kaupmannah. 2 skýjað
Lissabon 17 rigning
London 7 bjart
Los Angeles 18 bjart
Madrfd 12 bjart
Malaga 18 bjart
Míami 23 skýjað
Moskva +9 skýjað
New York 3 rigning
Osló 0 skýjað
Palma, 16 bjart
Parfs 9 bjart
Róm 12 bjart
Stokkh. 0 skýjað
Tel Aviv 16 bjart
Tókyó 8 bjart
Vancouver 7 skýjað
Vfn 2 skýjað
Tekur Koivisto við
af Uhro Kekkonen?
Helsiníífors, 20. jan.
1 FINNLANDI velta menn nú
vöngum yfir hver kunni að verða
arftaki núverandi forseta
landsins, Uhro Kekkonens, en
hann vann stórsigur í kosningum
til embættisins fyrir nokkru.
Uppi hafa verið raddir um að
bankastjóri finnska Seðlabank-
ans Mauno Koivisto, komi sterk-
lega til greina, ekki sízt eftir að
Kekkonen var spurður í sjón-
varpsþætti nýlega hvort honum
þætti Koivisto Iíklegur eftirmað-
ur sinn og hann svaraði til: „Það
er óvitlaus uppástunga“. Svarið
var þó klippt út úr þættinum að
kröfu Kekkonens sjálfs.
I kosningu kjörmanna nýlega
var Mauno Koivisto mjög sigur-
sæll og hlaut meira en 19.000 at-
kvæðí. Það eru kjörmenn, sem
ákveða hver skal verða forseti
Finnlands þann 15. febrúar nk.
Sigur Koivistos kom mjög á óvart
enda þótt vitað væri að hann nýt-
ur mikilla vinsælda. Talið er að
tilnefning hans muni mælast vel
fyrir hjá flestum flokkum. Helzt
Mauno Koivisto
eru það kommúnistar, er hafa
gagnrýnt hann fyrir þéttingsfast
taumhald við stjórnun Seðlabank-
ans. Mauno Koivisto er sjálfur
jafnaðarmaður og fór með
embætti forsætisráðherra í lok
sjöunda áratugarins.
N ýs jálendingar
taka veidiþjóf
Auckland, 25 jan Reuter
NÝSJÁLENDINGAR hafa fært fyrsta
landhelgisbrjótinn til hafnar, sem
náðst hefur eftir að þeir færðu land
helgi sína út i 200 sjómilur.
Það var japanskur 140 tonna bátur,
sem tekinn var að ólöglegum veiðum
um 65 kilómetra norður af nyrztu eyju
Japamr og Nýsjálendingar hafa háð
marga hildi eftir að hinir síðarnefndu
færðu út og hafa þeir neitað að setjast
að samningaborði unz Japanir hafa
aflétt háum tollum á timbri, kjöti og
mjólkurafurðum frá Nýjasjálandi Talið
er að afli og veiðarfæri japanska báts-
ms verði gerð upptæk og skipstjóran-
um gert að greiða allt að 20 milljónum
ísl. kr í sekt