Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 40
au<;lVsin<;asíminn er:
22480
FIIVIIVITUDAGUR 26. JANÚAR 1978
Landsbankamálið:
Einn þáttur að
komast á lokastig
RANNSÓKN á þeirri hlið Lands-
bankamálsins sem snýr að fyrir-
tækinu Sindra er að komast á
lokastig en ekki munu hafa kom-
ið fram neinar nýjar upplýsingar
sem máli skipta og fjárhæð und-
andráttar deildarst jórans í
ábyrgðadeild bankans að mestu
hin sama og áður hefur verið
greint frá f Mbl. eða í kringum 50
milljónir króna. Gæzluvarðhald
deildarstjórans rennur út
þriðjudaginn 1. febrúar n.k.
Viðskiptaráðherra Ólafur
Jóhannesson, sem jafnframt fer
með málefni viðskiptabankanna,
hefur einnig vegna fyrirspurnar á
Alþingi óskað eftir upplýsingum
frá bankaráði og bankastjórn
Landsbankans um eðli málsins.
Fundur verður i bankaráði
Landsbankans nk. föstudag, þar
sem væntanlega verður fjallað
um þessa ósk ráðherrans.
N etabátarnir:
Skipstjórarnir
dæmdir í 10-25
þús. króna sekt
SKIPSTJÓRAR bátanna fjög-
urra, sem Landhelgisgæzlan
kærði fyrir að vera með ómerktar
netatrossur í sjó, voru í gær
dæmdir í 10—25 þúsund króna
sekt hjá hæjarfógetaembættinu í
Keflavfk. Bátarnir, sem kærðir
voru vegna ómerktra netatrossa,
eru Vatnsnes KE 30, Ágúst Guð-
mundsson 2. GK 94, Þorkell Arna-
son GK 21 og Jóhannes Jónsson
KE 79.
Það var Guðmundur Kristjáns-
son fulltrúi bæjarfógeta í Kefla-
vík sem kvað upp dóminn yfir
skipstjórunum. Sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið í g-íer, að
skipstjórar bátanna hefðu ekki
borið á móti þvi að trossurnar
væru ómerktar, og hefðu þeir
þegar kippt sínum málum í lag.
Hins vegar hefðu skipstjórarnir
bent á, að reglugerð um merking-
ar netatrossa hefði verið í gildi í 3
ár, en fram til þessa hefði það
verið látið viðgangast að bátarnir
væru með ómerktar trossur.
Að sögn Guðmundar fékk einn
skipstjórinn 10 þús. kr. sekt, einn
fékk 20 þús. kr. sekt og tveir
fengu 25 þús. kr. sekt. Sagðí Guð-
Tveir seldu
í Þýzkalandi
TVEIR bátar seldu afla í Þýzka-
landi í gær. Háfberg GK seldi
rúmlega 50 lestif f.vrir 102 þús-
und mörk og var meðalverð á kfló
kr. 180. Þá seldi Ölduberg ÁR 44
lestir fyrir 81 þúsund mörk,
meðalverð á kíló var kr. 186.
mundur, að sekt skipstjóranna
hefði farið eftir þvf hve mikið
þeir hefðu verið með af ómerkt-
um veiðarfærum í sjó.
Þegar Morgunblaðið skýrði frá
þessu máli í gær, var sagt að einn
bátanna, sem kærðir voru, hefði
verið Baldur KE 97. Baldur kom
hvergi nærri þessu, en lenti í
fréttinni sökum rangra upplýs-
inga sem fyrst bárust um bátana.
Framhald á bls. 22.
Það þarf ekki alltaf híla til að flytja þunga hvrði.
Ljósni. M 1)1.. Frióþjófur.
Ákvördun fiskverds:
Meðalhalli frystihúsanna 20%
Nauðsynlegt er að sjómenn
fylgi öðrum stéttum í kjörum
segir Árni Benediktsson form. Sambandsfrystihúsa
„SÚ fiskverðsákvörðun,
sem ákveðin var í Yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í gær, þýðir ein-
faldlega að mikill halla-
rekstur er framundan í
frystiiðnaðinum. Halli
húsanna verður vissulega
misjafnlega mikill en Ijóst
er að meðalhalli þeirra
verður um 20%,“ sagði
Árni Benediktsson, for-
maður Sambandsfrysti-
húsa, í samtali við Morgun-
hlaðið í gær, en Árni er
annar fulltrúi kaupenda í
yfirnefnd þeirri, sem
ákvað nýtt fiskverð í gær.
Rússneska gervitunglið:
Haft var samband við
íslenzk stj órnvöld
ÞEGAR ljóst var hvert stefndi
með rússneska gervitunglið,
sem að lokum brann upp yfir
Kanada, var haft samband við
íslenzk stjórnvöld og þau undir
það búin að hnötturinn gæti
hrapað til jarðar hérlendis,
með þeim hugsanlegu afleið-
ingum, að geislavirk efni
breiddust út. Almannavarnir
ríkisins komu saman til fundar
þegar s.l. föstudag vegna þessa
máls og voru viðbúin öllu. Ekki
er vitað hve margir gervihnett-
ir af gerðinni Kosmos fara yfir
Island né hve margir eru búnir
kjarnakljúfum.
Henrik Sv. Björnsson ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu sagði þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann í
gær, að fyrir helgi hefði verið
haft samband við íslenzk
stjórnvöld til að hægt yrði aó
gera nauðsynlegar ráðstafanir.
Strax hefði verið haft samband
við Almannavarnaráð ríkisins
og það gengið í málið. Þá sagði
Henrik aðspurður, að skilaboð-
in um hættuna sem gæti stafað
af gervitunglinu hefðu komið í
gegnum sendiráð Bandaríkj-
anna hér á landi, en ekki frá
Rússum sjálfum.
Guðjón Petersen hjá Al-
mannavörnum sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann,
að hættan af gervitunglinu
Framhald á bls. 22.
Á fundi yfirnefndar
Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins í gær var ákveðið nýtt
almennt fiskverð, sem
gilda á frá 1. janúar s.l. til
31. maí n.k., og felur
ákvörðunin í sér 13% al-
menna fiskverðshækkun.
Þegar Morgunblaðið hafði
samband við Matthías
Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra í gærkvöldi sagði
hann, að hver maður hlyti
að sjá hvaða vandamál nú
blöstu við. Fundur yrði
haldinn í stjórn Verðjöfn-
unarsjóðs sjávarútvegsins
fyrir helgi til að fjalla um
vandamálin, en að öðru
leyti sagðist ráðherra ekki
vilja tjá sig frekar um mál-
ið.
I frétt, sem Morgunblaðinu
barst í gær frá Verðlagsráði
sjávarútvegsins. segir, að auk al-
mennrar 13% fiskverðshækkunar
verði jafnframt aukinn verðmun-
ur á slægðri ýsu og óslægðri og
slægðum ufsa og óslægðum. Þá
var ákveðið að greiða skuli sér-
Franíhald á bls. 22.
íslendingar
leika við
Sovétmenn
í HM í kvöld
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
í Danmörku hefst I dag og f
kvöld leikur tsland fyrsta leik
sinn f keppninni gegn Sovét-
mönnum. Meiðsli hafa sett
strik í reikninginn hjá lands-
liðinu og á sfðustu stundu var
Páli Björgvinssyni, Víkingi,
bætt f landsliðshópinn f stað
Ólafs Einarssonar, sem er
meiddur. Atti Páll að fara
utan f morgun. Myndina tók
RAX af Páli f gær, þegar hann
var að ræða símleiðis v'ð
landsliðsnefnd HSt úti f Dan-
mörku. Nánar má lesa um
keppnina á íþróttasfðum blaðs-
ins í dag, sem eru á bls. 27, 38
og 39.