Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1978 7 Ef æskan vill rétta þér örv- andi hönd Það vekur vaxandi athygli. einkum meðal ungs fólks, að Alþýðu- bandalagið er eini íslenzki stjórnmálaflokkurinn, sem ekki hefur innan sinna vébanda opin, starf andi æskulýðsfélög. í flestum stærri sveitarfé- logum eru starfandi ung- liðafélög innan starfsvett- vangs stjórnmálaflokka, er hafa meiri og minni áhrif á stefnu og starf flokkanna. Þau mynda eigin landssamtök (SUS, SUF og SUJ) til að styrkja áhrif sín. Þau kjósa full- trúa í fulltrúaráð, kjör- dæmisráð og á landsfundi flokkanna, sem allt trygg- ir ungu fólki vissa áhrifa- stöðu á þróun héraðs- og landsmála. Eina undantekningin frá þessu er Alþýðubandalag- ið Þar er til málamynda starfandi einhver „æsku- lýðsnefnd", sem fáar fregnir fara af, hvern veg til er kominn. Alþýðu- bandalagið er ekki opið fyrir áhrifum fjöldans, hvorki frá ungum eða öldnum. Þar skal „klik- an", „sellan" og miðstýr- ingin deila og drottna. Þar gildir að hafa „vit fyrir sauðsvortum almúgan- um". Þar eru ríkjandi hálfgerð miðaldaviðhorf um skoðanaleg réttindi og áhrif einstaklinganna. Al- þýðubandalagið vill gjarn- an atkvæði unga fólksins — en það blæs á rétt þess til áhrifa innan flokksins. Engin próf- kjör í Alþýðu- bandalaginu Alþýðubandalagið er og eini íslenzki stjórnmála- flokkurinn, sem hefur frá- beðið sér fjöldaáhrif fylgj- enda sinna á flokksfram boð gegnum almenn og opin prófkjör. Þar á „klík- an" enn að deila og drottna. Aðeins i einu kjördæmi, Reykjanesi, var viðhaft svokallað „for- val", sem þó var bundið mjög þröngum hópi og lokað almennum fylgjur um flokksins. Alls staðar annars staðar, þ.á m. i Reykjavík, virðist eiga að ráða framboðum innan marglæstra dyra, þar sem „sellan" hefur „vit fyrir sauðsvörtum almúgan- um" — rétt einu sinni. Þetta með öðru sýnir að Alþýðubandalagið er for- neskjuflokkur i afstöðu til áhrifaréttar hins almenna borgara. Flokkurinn sæk- ist að visu eftir atkvæðum almennings. En hann vill ekkert hafa með áhrif hans á framboð; hvem veg raðað er á framboðs- lista, sem þó getur haft úrslitaáhrif á, hverjir skipa þingbekki, eins og kjördæmaskipan og kosn- ingalög okkar eru i dag. Einhvern veginn liggur það i loftinu að helzt vildi Alþýðubandalagið hafa EINS FLOKKS KOSNING AR, eins og viðgangast i „ f yrirmyndarrík junum ". Þvi finnst sýnilega illt að þurfa að eiga sitt, eins og aðrir flokkar, undir „sauð- svörtum almúganum" i frjálsum og leynilegum kosningum. Annar og betri háttur sé á hafður i ríkjum sósialismans! Prófkjör og framtíð Prófkjör, eins og þau hafa verið framkvæmd hér á landi, eru mjög göll- uð, eins og Morgunblaðið hefur rækilega bent á og varað við þeirri þróun, sem framundan er, ef prófkjörunum er ekki beint i skynsamlegan far- veg. En hvorttveggja er, að þau hafa aukið á val- frelsi og áhrif almennings, sem gott er, og að úr göll- um f ramkvæmdar má bæta, » Ijósi fenginnar reynslu. Spurning er, hvort ekki þurfi að setja löggjöf um framkvæmd prófkjörs. Þau mætti til að mynda framkvæma samdægurs hjá öllum flokkum, eftir nánari ákvæðum í lögum og reglugerð. þann veg, að hver borgari fengi að- eins kjörseðil (til próf- kjörs) frá einum flokki (að sjálfsögðu eftir frjálsu vali). Þannig mætti koma i veg fyrir að „samtaka hópur" hefði áhrif á bind- andi framboð hjá fleirum en einum flokki, sem naumast er eðlilegt. Þessu er hér slegið fram sem hugmynd og um- ræðugrundvelli. Einnig mætti hugsa sér að núverandi prófkjör þró- uðust yfir i það, að flokk amir skiluðu t.d. ónúmer- uðum framboðslistum, þar sem kjósendur veldu ekki einungis flokk við kjörborðið, heldur hefðu rýmra valfrelsi en nú er til að velja milli manna á sama framboðslistanum. Margir ókostir fylgja þó þeirri aðferð. Eða að frelsi fólks til að velja MILLI MANNA verði með öðrum hætti tryggt og gert jafn- virkt og valfrelsi MILLI FLOKKA. Um þetta efni gilda ýmiss konar ákvæði erlendis: í V-Þýzkalandi, á írlandi, i Danmörku — svo dæmi séu nefnd. Hvern veg sem að yrði staðið, er alls ekki óhugs- andi, að prófkjör þróuðust yfir i aukið valfrelsi kjós- enda i almennum kosn- ingum — með nýjum kosningalögum og regl- um. Slíkt gæti komið samhliða fyrirhugaðri stjórnarskrárbreytingu eða við breytingu á gild andi kosningalögum. FUNA OFNAR Höfum hafið framleiðslu nýrra miðstöðvarofna úr stálprófilsrörum. Ofnarnir eru sérstaklega gerðir fyrir íslenskar aðstæður, verk íslenskra fagmanna. Leitið tilboða, mjög stuttur afgreiðslufrestur og hagkvæm kjör. Ofnasmiója Suöurlands Hveragerói Símar: 99-4134 og 99-4566. sólbekkir í eikar, palisander og marmaralitum Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu Kvennatímar í badminton 6 vikna námskeið að hefjast. Einkum fyrir heimavinn- andi húsmæður Holl og góð hreyfing Leiðbeinandi Lovisa Sigurðardóttir, íslandsmeistari. Upplýsingar í síma 82266. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur. I x 2 — 1 x 2 21. leikvika — leikir 21. janúar 1978 Vinningsröð: 0 11 — X 2 1 — 12 1 — 111 1. vinningur: 1 0 réttir — kr. 35.000. — 3084 5790 30591+ 30800 31265 31754 33860 40589(1/10.4/9) 31840 32231(1/10.1/9) 40708(2/10,6/9) 32693 40150(1/10.4/9) 40861(1/10,4/9) 32791 40185(1/10,4/9)+ 41147(1/10,4/9) 32890 40360(1/10,4/9) 41239(1/10,4/9) 2. vinningur: 9 réttir — kr. 1 .300. — 2066+ 31036+ 33100+ 34155+ 40223+ 30516+ 31632+ 33128+ 34159+ 40744+ 30948+ 32134+ 33129+ 34199+ 40779+ 31003+ 32914+ 33403+ 40184(2/9)+ 41090(2/9) + Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga, sem er 7. febrúar Þeir vinningshafar í 2 vinningi, sem eiga aðra seðla, en hér eru taldir, og ekki hafa fengið vinninginn i pósti hinn 1 febrúar vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Getrauna, sími 91-84590 Kærufrestur er til 13 febrúar kl 12 á hádegi Kærur skulu vera skriflegar Kærueyðublöð fást hjá umboðs- mönnum og aðalskrifstofunni Vinningsupphæðir í 1 vinningi geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.