Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JAN’UAR 1978 29 Inndjúpsáætlun: Fólksfækkunarfár og byggðaröskun Horft fram til betri tíðar Hér for á eftir framsaga Sigurlaugar Bjarnadóttur (S) með fyrirspurnum til landbúnadarrádherra varðandi Inndjúpsáætlun. Sjá nánar um þetta efni á þingsíðu IVlbl. í gær. ofbeit og er Hafliði Jónsson full- trúi Reykjavíkur. Er nýuomin skýrsla um rannsóknir í beitar- löndum þar sem fram kemur að fé hefur fækkað á svæðinu, en hrossum fjölgað mjög. Sauðfé þar er talið hafa fækkað úr 3346 í Reykjavík á árinu 1965 í 1308 1976, en hrossum fjölgað úr 1200 í 2166, en hrossabeit á afréttinum hefur verið bönnuð. í skýrslunni segir að leggja beri áherzlu á að fé * sé alls ekki sleppt mjög snemma vors og væri e.t.v. raun- hæft i ljósi ríkjandi aðstæðna að miða að jafnaði við fyrstu viku i júni, en síðar ef illa vorar. Sagði Elín að skv. þessari skýrslu sé nú traustari grundvöllur en áður til að gera samstillt átak með þátt- töku allra þeirra aðila, sem nýta viðkomandi beitarlönd, t.d. með áburðar- og frædreifingu, þar sem land er illa farið. En í kaflanum um Reykjavik og Kópavog sé lagt til að hafist verði handa um mark- vissa uppgræðslu á gróðursnauð- um melum suður af Neðri Fóellu- vötnum (neðan Bláfjallavegar) og e.t.v. víðar i samvinnu við Landgræðslu ríkisins. Hafi skýrsl- an verið lögð fram í umhverfis- málaráði til frekari umfjöllunar. Gengið frá Skólavörðuholti Inni í borginni er markvisst verið að rækta upp og taka fyrir auð svæði og miðar ágætlega að mínum dómi, sagði Elin. Megnið af þeim ófrágengnu svæðum, sem áttu að hafa forgang skv. áætlun um umhverfi og útivist hafa þeg- ar verið tekin fyrir. Og í ár verður haldið áfram með ýmis svæði, svo sem Austursvæðið i Fossvogi, garð í Háaleitishverfi, trjábelti til hljóðeinangrunar við Breiðholts- braut, opið svæði við Kvisthag: i Vesturbæ og svæði í Mjódd, við Stekkjabakka og Leirubakka í Breiðholti, svo eitthvað sé nefnt. Það verður nú tekið fyrir Skóla- vörðuholtið í Austurbænum, það skipulagt og stígar lagðir með- fram götunum. Og veitt sé fé til leikvallagerðar. Verður varið í þetta 116 milljónum kr. á árinu. ^ Græna byltingin Þegar menn gagnrýna að lítið hafi orðið úr grænu byltingunni svonefndu, hlýtur það að vera af ókunnugleika, sagði Elín. Hvar- vetna I bænum sér þess merki að grætt hefur verið upp og gengið frá, þó öllu slíku sé ekki lokið, enda átti áætlun um umhverfi og útivist að ná til 1983. 1 framkvæmdaáætlun var hins vegár gerð grein fyrir þvi hvað skyldu vera forgangsverkefni. En það var í fyrsta lagi að lokið yrði frágangi á minni grænum svæð- urh í íbúarhúsahverfum, og spild- um annars staðar, sem eftir hafa orðið við byggingar og gatna- gerðarframkvæmdir. Eru þau til- greind nánar á bls. 4—6 i fram- kvæmdaáætlun um umhverfi og útivist. Ef þau eru skoðuð nánar kemur i ljós að lokið er flestum þeim verkefnum, sem eru sett fram sem forgangsverkefni. Önn- ur eru vel á veg komin, og hafa sum hver verið gerð viéameiri en upphaflega var áætlað, þar eru aðeins sex af 54 tilgreindum svæðum, sem ennþá hefur ekki verið hafist handa um að lagfæra (sem eru sem næst 11%). En hins vegar er rétt að það komi fram, að á móti koma ýmis verkefni, sem alls ekki var reiknað með í þeirri áætlun, er gerð var um umhverfi og útivist í febrúar 1974. Má þar t.d. nefna lóð Blindraheimilisins við Hamrahlíð, skrúðgarð við Grundargerði og þrjá grenndar- velli í Fellahverfi i Breiðholti. Og geta má þess að Hólmsheiðin var ekki þarna á áætlun. En ýmsar ástæður, sem ekki verður hér get- ið, liggja til þess að ekki hefur verið hægt að ráðast i svæðin sex ennþá. í öðrum lið framkvæmda- áætlunar er einnig gert ráð fyrir að gengið verði frá gangstéttum og grænum reinum meðfram þeim, þar sem gatnagerðarfram- kvæmdum er lokið að öðru leyti. Sérstök áherzla verði lögð á íbúðarhverfi. Við þetta hefur ver- ið staðið og mun víðast hvar lokið við gangstéttargerð í íbúðarhverf- um og grasreinar hafa verið gerð- ar á þeim stöðum, þar sem endan- Iega hefur verið gengið frá götum og gangstéttum. Hins vegar vant- ar ennþá töluvert á að lokið sé gangstéttarfrágangi við allar aðal- brautir, þó að mikið hafi verið gert á undanförnum árum. Og hefur minna áunnist en vonir stóðu til um göngu- og hjólreiða- stiga, svo og um reiðstíga, þó nokkuð hafi verið gert, t.d. með undirgöng frá Fákshúsum undir Reykjanesbraut. Á Elliðaársvæð- inu hafa bakkarnir á Vesturbakk- anum verið teknir fyrir og ræktaðir upp og hlaðinn veggur meðfram árbakkanum til varnar því að áin græfi sig inn undir árbakkann meira en orðið var, en ræktuð stór svæði á athafnasvæði Rafmagnsveitunnar og er nú haldið áfram þar i nánd með áframhaldandi ræktun. Nú þegar hafa verið gróðursettar 5 þúsund trjáplöntur i nær 7 hektara lands i Ártúnslandi og sáð grasfræi í moldarflög og næsta verkefni að græða upp sandgryfjurnar. Stefnt er að þvi að fá flutta olíutankana, sem nú standa fast við Elliðaárn- ar og koma þeim fyrir neðan við jarðhúsin. Hefur umhvefismála- ráð fjallaö um þetta mál og reynt að reka á eftir við viðkomandi aðila að hafist verði handa um þessa flutninga. Um gerð stíga frá Elliðaársvæð- inu allt upp i Heiðmörk, er það að segja að sjálfsagt þótti að tengja þetta verkefni lagningu vatns- veituæðar, sem nú er unnið að og liggur um mestan hluta þeirrar leiðar, sem fyrirhugaðir göngu-, hjólreiða- og reiðstígar eiga að Iiggja skv. áætluninni um um- hverfi og útivist. Standa vonir til að lagningu vatnsæðarinnar verði lokið á næsta sumri og þá hægt að ganga í málið. Að lokum sagði Elín að heildar- áætlun um umhverfi og útivist hefði verið ætlað að ná fram til 1983 og mörg verkefni að sjálf- sögðu óunnin, og benti á að þarna væru mikil sumarverkefni fyrir æsku Reykjavíkur og það ekki síður mikilvægt. Upphaf Inn-Djúpsáætlunar má rekja til fruntkvæðis bænda við ísafjarðardjúp í byrjun þessa ára- tugs. Hófs áætlunartímabilið árið 1973 og skyldi standa í fimm ár — til loka ársins 1978. Gert var ráð fyrir, að áætlunin yrði endurskoð- uð, eftir því sem henni miðaði fram, en sú endurskoðun hefir ekki verið gerð og þvi er þessi fyrirspurn borin fram nú. Megin- markmið Inn-Djúpsáætlunar var að efla atvinnulíf svæðsins með því að stækka búin, gera þau rekstrarhæfari og treysta með því — og auka búsetu á svæðinu. Byggðir Inn-Djúpsins höfðu gold- ið mikið afhroð I því fólks- fækkunarfári, er gekk yfir Vest- firði á áratugunum upp úr 1930. Á byggðasvæði því sem áætlunin nær yfir fækkaði íbúum á árabil- inu 1930—1972 úr 711 í 399 eða um 56,1%. Á sama tíma varð hlut- fallsleg fækkun á Vestfjörðum 24% en fjölgun þjóðarinnar í heild hinsvegar 93,6%. Mun þetta eitt gleggsta dæmið um hina hroðalegu byggðaröskun í land- inu, er varð á þessu tímabili. Það er enginn vafi á þvi, að Inn-Djúpsáætlunin hefur þegar borið mikinn og glæsilegan árang- ur og ber að þakka skilning stjórnvalda — og þá ekki hvað sízt landbúnaðarráðherra Hall- dóri E. Sig. á nauðsyn sérstakra ráðstafana til að stöðva þá óheilla þróun, er þarna átti sér stað. Svipaða sögu er að segja um Árnesáætlun I Strandasýslu, sem hófst árið 1975 og hefur gengið mjög vel. Áætlunin hefir glætt bjartsýni við kjark fólksins sem þarna býr og trú þess á að búskap- ur við Djúp geti verið lífvænleg- ur, ef rétt er á haldið, þótt bú- skaparskilyrði séu þar að ýmsu leyti erfiðari en víða annars staðar á landinu. En þarna eru einnig mikilvæg hlunnindi: æðar- varp og fuglatekja, seltekja, lax- og silungsveiði, jarðhiti víða og virkjanlegt vatnsafl, sem þegar hefir verið nýtt í þágu Inn- Djúpsbyggða. Má benda á til gamans að fámennasti hreppur- inn Snæfjallahreþpur á elztu hreppsvirkjun á landinu Mýrarár- vikjun sem nú er orðin meira en 10 ára og hreppsbúar reistu af eigin rammleik. Ég vil einnig geta þess, að á s.l. 2—3 árum hafa byggst upp á svæðinu þrjú eyði- býli með ungum og áhugasömum ábúendum í Botni í Mjóafirði, Hafnardal á Langadalsströnd og Þernuvík í Ögurhreppi. Munu sveitbýli á svæðinu nú vera 45 talsins í fjórum hreppum. Ég tel óhætt að fullyrða, að þessi fjölgun hefði ekki komið til, nema af þvi, að Inn-Djúpsáætlun var í gangi. En hverja sögu verður að segja eins og hún gengur. Þótt þessi áætlun hafi tvímælalaust haft já- kvæð áhrif, þá hefir gengið á ýmsu með framkvæmd hennar og ekki verið staðið sem skyldi við þau fyrirheit, sem gefin voru í upphafi. Landnámi ríkisins var falið að sjá um framkvæmdina en því hefir jafnan verið fjár vant til að geta leyst hana af hendi sem skyldi og árið 1975 færðist hún yfir á hendur ræktunarsambanda Djúpbænda og nú hefir nýstofnað húsgerðasamband ásamt með A- Barðstrendingum tekið að sér byggingaframkvæmdir fyrir bændur. Fé hefir skort til að standa straum af nauðsynlegri framkvæmda- og yfirstjórn og því ýmislegt verið lausara I böndun- um ei^skyldi. Gengið var út frá í upphafi að Djúpbændur fengju 25% staðaruppbót á afurðaverð vegna aðstöðumunar. Þessi upp- bót hefir í reynd verið hæst 14,29% en er nú komin ofan í 7%. Benda má á i þessu sambandi — og þá hvað helzt þeim mönnum, sem hafa upp á síðkastið gengið berserksgang við að níða niður íslenzkan landbúnað — og ýmsar nágrannaþjóðir okkar ganga sýnu lengra en við i fjölþættri aðstoð til landbúnaðar í þeim landshlut- um sem standa höllum fæti í byggðalegu tilliti. Þannig er t.d. i N-Noregi veittur 50% hærri styrkur til framræzlu en annars staðar i landinu og fjölmargir styrkir, mismúnandi háir eftir að- stæðum, til byggingafram- kvæmdar, kjarnfóðurs- og áburðarkaupa o.fl. þarna er sem- sagt beitt ákveðinni stjórnun á þróun landbúnaðar, sem mjög hefir skort á hjá okkur. Þá er það einnig staðreynd nú á lokaári Inn-Djúpsáætlunar að ræktunarþátturinn hefir orðið allmjög útundan og horfur á að ræktaður verði aðeins 1/5 hluti þess, sem til stóð á áætlunartíma- bilinu, 44% af hlöðubyggingum eru horfur á að lokið verði, 51% af fjósum og 84% af fjárhúsum. Það er þvi ljóst, að mikið mun vanta á, að áætlunin standist og eðlilegt, að spurt sé: hvað tekur við árið 1979?. Munu bændur á Inn-Djúpssvæðinu ekki njóta áfram viðbótarfyrirgreiðslu frá Byggðasjöði og stofnlánadeild — eða á að hverfa frá hálfloknu verki? Nauðsynlegt er, að málin verði athuguð og endurskoðuð nú strax í upphafi árs til að eitthvert svigrúm sé til skynsamlegs sam- hengis í ákvörðunum. Alm. bændafundir við Djúp á s.l. ári hafa ályktað eindregið í þá átt. Það hefur mikið verið talað um ofbeit í sveitum landsins og of- framleiðslu landbúnaðarafurða. Þá má fullyrða, að við ísafjarðar- djúp er hvorugu til að dreifa. Þvert á móti líða þéttbýlissvæðin utanvert við Djúpið, Isafjörður og Bolungarvík af stöðugum mjólkurskorti. Það er þvi augljóst mál, að hagkvæmt er og sjálfsagt að leggja allt kapp á aukna mjólkurframleiðlsu í aðliggjandi landbúnaðarhéruðum, — en daga að sama skapi úr rándýrum flug- flutningum á mjólkurvörum frá öðrum landsfjórðungum. Flutningsgjaldið á mjólk pr. litra með flugi á s.l. ári frá Rvík eða Akureyri var 43,76 kr. — 43,76 á hvern lítra en á árinu 1976 voru fluttir þannig flugleiðis 183,000 litrar af mjólk og rjóma til tsa- fjarðar. Flutningskostnaður á mjólk með Djúpbátnum á árinu 1977 var hinsvegar 4,60 pr. lítra þ.e. úr Djúpinu til Isafjarðar úr Dýrafirði og Öndundarfirði. Er kostnaðurinn — með bílakstri og síðan Djúpbátnum 13.06 pr. litra. Bændur á Inn-Djúpssvæðinu hafa á undanförnuin árum iagt vax- andi áherzlu á mjólkurfram- leiðslu og hefir hún aukist veru- lega. Þannig var mjólkuraukning hjá Mjólkursamlagi Isfirðinga á fyrstu 6 mánuðum ársins 1977 15% — og er það langmesta aukn- ing yfir landið allt. Þessa þróun verður að örva og styðja. Hag- kvæmni þess liggur í augum uppi. Um siðari lið fyrirspurnarinn- ar: Hvaða rök eru fyrir þvi, að fjárveiting til siðasta árs áætlunarinnar er felld niður í frumv. til fjárlaga 1978 — get ég verið stuttorð. Hún kom inn i meðförum þingsins var upphaf- lega 5—7 millj. en sú upphæð óbreytt hefir verið á fjárlögum undanfarin ár, lækkaði þó árið 1976 í 6.6 millj. Þessi fjárveiting óbreytt i verðbólguþróun undan- genginna ára, hefir auðvitað ekki hrokkið til mikilla stórræða en þó verra að missa alveg af henni. Eg leyfi mér að vera bjartsýn um jákvæð svör hv. landb.rh. við megin efni fyrirsp. minnar og greinargerðar hér að framan, um endurskoðun Inn-Djúpsáætlunar og framlengingu hennar — með •einum eða öðrum hætti. Méi' sýn- ast öll rök hniga að því, að hér megi ekki láta staðar numið og ég hlýt að benda á, að hinum ýmsu félagslegu þáttum sem áætlunin fól í sér upphaflega, hefir litt eða ekki verið sinnt. Engu að síóur vil ég endurtaka þakkir mínar fyrir það, sem hér hefir verið vel gert í þágu byggðalágs, sem liklega, flestum byggðalögum fremur, hefir átt í vök að verjast, en virð- ist nú sjá fram á nokkru bjartari tíð. Varmapottur við einn sundstaðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.