Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 28
28 MOR(>fc'X;BIwV’Ð'I/fX.,FIMMTl'DAGL'K 26. JA.N’UAR 1978 ' Áfengisvarnir í Reykjavík: Samstarf borg- ar og samtaka áhugafólks Markús Örn Antonsson (S), fjallaði m.a. um fyrir- byggjandi féiagsmálastarf Reykjavíkurborgar, er fjárhagsáætlun borgar- sjóðs 1978 var afgreidd. Orðrétt sagði hann um þetta efni: Eftirmeðferð ,,Að undanförnu hefur verið efld margháttuð fyrirbyggjandi félagsmálastarfsemi Reykjavikur- borgar, sem ætlað er að koma í veg fyrir að vandamál einstakl- inga og fjölskyldna verði illvið- ráðanleg eða óviðráðanleg er fram í sækir. Mjög mikilsvert er að gripið sé til réttra aðgerða þeg- ar er félagslegra vandkvæða verð- ur vart og leggja ber áherzlu á að starf félagsmálastofnunar stefni meira í þá átt. Mikið hefur verið gert af hálfu Reykjavíkurborgar í meðferð áfengisvandamála á mismunandi stigum. Eitt athygftsverðasta ný- mælíð á þessu sviði er rekstur eftirmeðferðarheimilis á Ránar- götu 6 og 6A. Heimili þetta, sem rekið er á vegum líknarfélagsins Skjaldar hefur starfað síðan 1976 og var húsnæðið keypt fyrir fjár- framlag Reykjavíkurborgar. I fyrra var húseignin við hliðina ennfremur keypt af Reykjavíkur- borg og verða það 20 vistmenn sem þar hafa húsnæðisaðstöðu. Gert er ráð fyrir að um bráða- birgðaaðstöðu sé að ræða fyrir þá, sem koma af hælum og stofnun- um vegna áfengisofneyzlu og eru að hefja eðlilega þátttöku í at- vinnulífinu á nýjan leik. Hefur þetta starf tekizt með miklum ágætum og er það ekki sízt að þakka einstökum dugnaði for- stöðumanns heimilisins. Til rekst- urs heimilis Skjaldar er áætlað að borgin greiði 6 milljónir króna á þessu ári og myndu margir taka undir, að það væri ekki mikil upp- hæð miðað við þann árangur, sem starfið á Ránargötunni hefur þeg- ar sýnt. Áfengisvarnardeild heilsuverndarstödvar Annar þáttur í áfengisvarna- starfi Reykjavíkurborgar er mjög umtalsverð efling áfengisvarna- deildar heilsuverndarstöðvarinn- ar á þessu ári, en um þann fyrir- byKgjandi starfsþátt hefur heil- brigðismálaráð gert tillögur og samkvæmt þeim er ráðgert að verja um 22 milljónum króna til áfengisvarnadeildarinnar á fjár- hagsáætlun 1978. I þessu sambandi er ennfremur skylt að geta þess framtaks, sem félagsmenn í A.A.-samtökunum og Samtökum áhugamanna um áfengisvarnir hafa sýnt á þessu sviði. Óskandi er að Reykjavíkur- borg megi áfram eigá góða sam- vinnú við slík áhugamannafélög í viðureign við mikinn bölvald. Borgar- mál k'yrir þá, sem við alvarlegustu tegund áfengissýki eiga að strfða, hefur Reykjavíkurborg rekið gistiskýli i Þingholtsstræti 25. Dagvistun var upptekin í Þing- holtsstræti í febrúar 1976 en gest- ir þar hafa verið að meðaltali 14 á dag. Gistiskýli kvenna er starf- rækt við Amtmannsstíg en þang- að var starfsemin flutt árið 1975 í hentugra húsnæði en hún hafði áður verið í. Útideild félaKs- málastofnunar Starfsemi útideildar félags- málastofnunar, sem hafin var f tilraunaskyni í Breiðholtshverf- um í fyrra verður haldið áfram á þessu ári. Hún beinist einkum að því :ð koma unglingum, sem við félagsleg vandamál eiga að glíma, til aðstoðar og leiðbeiningar. Starfsmenn félagsmálastofnunar og æskulýðsráðs hafa unnið að þessu verkefni og reynt eftir megni að bæta skilyrði skjólstæð- inga sinna, t.d. með atvinnumiðl- un eða öðrum aðgerðum. Nú nær starf útideildar til borg- arinnar allrar og er mörgum mál- um frá henni vísað til frekari meðferðar hjá unglingaathvarf- inu við Hagamel sem nýlega tók til starfa en það er fyrst og fremst ætlað unglingum á aldrinum 14—16 ára, sem eiga í svo miklum félags- eða námserfiðleikum að þeir þurfi á skipulegum stuðningi að halda utan skóla eða heimilis til að koma högum sínum f betra horf. Geta 6 u'nglingar dvalið í senn í athvarfinu. Þar er meðal annars ætlunin að stuðla að aukn- um félagsþroska með því að leið- beina þeim, sem dveljast þar, eft- ir því sem bezt þykir í hverju máli. Dvalartími er minnst tveir mánuðir og er^athvarfið opið þrjá daga í viku fra kl. 5 síðdegis til 10 að kvöldi. Unglingaheimili Samkvæmt tillögum félags- málaráðs verða í september næst- komandi gerðar þær breytingar á rekstri stofnana, að mæðraheimil- ið við Sólvallagötu verður lagt niður en rekstur unglingaheimilis tekinn upp í staðinn. Mæðraheim- ilið var ætlað ungum mæðrum fyrir og eftir barnsburð ef að- stæður væru þannig að þær gætu ekki með eðlilegu móti dvalizt á eigin heimilum. Þrátt fyrir tals- verða kynningu á starfi þessa heimilis var nýting oftast i al- gjöru lágmarki, þannig að óverj- andi var að halda rekstrinum áfram. Unglingaheimili hefur verið lengi á verkefnaskrá félags- málaráðs og er nú afráðið að það taki til starfa hinn 1. september. Þegar Iíggja fyrir tillögur um fyrstu unglinga, sem þar yrðu vistaðir, en þeir verða á aldrinum 14—16 ára, 7 í senn, og verður stefnt að því að fá hjón til starfa sem umsjónarmenn heimilisins. Af þeim skýrslum, sem lagðar hafa verið fram um aðstæður fyrstu vistmanna heimilisins, kemur fram, að þeir geta ekki þrifizt í foreldrahúsum vegna áfengisvandamála annars foreldr- is eða beggja, eða geðrænna sjúk- dóma foreldra. Hingað til hafa unglingar, sem við þess háttar að- stæður hafa búið, oft verið vistað- ir á Upptiikuheimili ríkisins í Kópavogi en það er ekki rétti dvalarstaður fyrir þá einstakl- ínga, eins og þá sem verða munu á unglingaheimilinu. Tekið skal fram að þeir munu stunda skóla- göngu eða störf á vinnumarkaðin- um.“ Vesturbær — háskólahverfið borgín á i öðrum sveitarfélögum og þá einkum á Nesjavöllum, svo sem samþykkt hefur verið í borg- arstjórn. Og haldið verði áfram samvinnu við önnur sveitarfélög um meðferð sameiginlegra afrétt- arlanda, svo gróðri sé ekki spillt % Stórt átak í holræsamálum í ræðu sinni gerði Elin grein fyrir þvi sem gert hefur verið í þessum málaflokki. Á liðnu ári hafa farið fram mælingar á meng- un frá bílum, verksmiðjum í lofti og mælingar á súrefni í Elliða- vogi, auk sýhatöku á sjó. Hvað frárennslismál snerti hefði á sl. ári verið unnið að hönnun á hinu mikla ræsi, sem tengja á saman allar lagnir frá Elliðavogi og aust- urborginni og liggja saman i einni stórri lögn út af Laugarnesi og er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á þessu ári með 1100 m langri lögn við Elliða- vog fyrir 40 milljónir. Og þar sem borgarstjórn telji að ekki megi lengur dragast bráðabirgðaúr- lausn í Skerjafirði, meðan beðið sé rannsókna sem í gangi eru í samvinnu við önnur sveitarfélög, þá verði nú á árinu lengt Foss- vogsræsið fyrir 10 milljónir, sem ætti að bæta mjög úr. En lítið þýði að bæta útrásir nema nágranna- sveitarfélögin geri slíkt hið sama. Elín T T 1 /»• X Umnvertiö mótar manninn Umhverfismál í borgarstjórn Reykjavíkur Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar Reykjavíkurborgar 19. þ.m. var samþykkt breytingartillaga frá borgarfuiltrúum Sjálfstæðis- flokksins við tillögur frá borgar- fulltrúum Framsóknarmanna varðandi mengun, frárennslismál og uppgræðslu f borgarlandinu. Elfn Pálmadóttir borgarfulltrúi gerði grein f.vrir málinu og lagði breytingartillöguna fram, jafn- framt þvf sem hún ræddi um ýmsa þætti f járhagsáætlunar, m.a. skólabyggingar, framkvæmd á áætlunum umhverfi og útivist, sundlaug við Grensásdeild, og starfs- og námsráðgjafa á fræðslu- skrifstofu, sem samþvkkt var f fundarlok. Samþykkt var eftirfarandi til- laga: „Borgarstjórn leggur áherzlu á að þess verði gætt í hvívetna að skaðleg efni frá verksmiðjum, vinnustöðum eða nærliggjandi byggð valdi ekki ofmengun vatns, sjávar og andrúmslofts og fylgist umhverfismálaráð og heilbrigðis- málaráð sem hingað til með slíku, svo sem kostur er. Þá áréttar borgarstjórnin fyrri samþykktir sinar um nauðsyn þess að koma frárennslismálum borgarinnar í betra horf en nú er, þar sem út- rásir liggja viðast skemmstu leið út fyrir sjávarkamb 1 þvf sam- bandi vekur borgarstjórn athygli á því að hafið er stórátak til að komá' frárennsli i eina lögn, er liggi iangt á haf út frá Laugarnesi norðan borgarinnar meðal annars með 40 milljón króna framlagi á þessu ári til framkvæmda. Svo og verður Fossvogsræsi á þessu ári lengt í suður f Skerjafirði fyrir 10 milljónir króna. En rannsóknir fara fram til undirbúnings loka- frágangi þar, sem verður að gera í samvinnu við nágrannasveitarfé- lögin. Borgarstjórn lýsir ánægju sinni með þær framkvæmdir sem í gangi hafa verið undanfarin sum- ur að efla gróður á upplandi borg- arinnar, einkum í Hólmsheiði. Hefur verið tekið fyrir nær allt land borgarinnar og á næsta ári áætlað að græða upp gamlar gryfjur í Árbæjarlandi. Leggur borgarstjórn áherzlu á, aðÁ' fram- haldi af því verði markvisst unnið að því að græða upp lönd þau sem Malargryfjur að skjólgóðu útivistarlandi Elín kvaðst með svolitlu stolti taka undir orð framsóknarmanna, sem lýstu ánægju með þær fram- kvæmdir sem fram hefðu farið undanfarin sumur við að efla gróður i landi borgarinnar. Búið er að taka fyrir allt land sem borgin á utan við byggðina og markvisst unnið að því að stöðva gróðureyðingu og rækta upp, sagði hún. í fyrrasumar var byrj- að að sá í hoitin í Ártúnslandi og nú í sumar verður gengið á Ijótar malargryfjur þar. En það er einn liðurinn í þvf að gera Elliðaár- svæðið áð aðgengilegu og ánægju- legu útivistarsvæði. En með þess- um gryfjum fæst stórt og skjól- gott útivistarland, dalverpi sem menn almennt vita ekki um; þeg- ar þær hafa verið lagfærðar og gróður kominn í þessa dalkvos. Þá vakti Elín athygli á því að náðst hefur samstarf við sveitar- félögin, sem Iiggja að afréttar- landi Ingólfs um afréttarmál og IWiðbær Myndina tók Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.