Morgunblaðið - 26.01.1978, Síða 3

Morgunblaðið - 26.01.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1978 3 SVFÍ 50 ára: Afmælistakmarkið er þjóðar- hreyfing gegn umferðarslysum — segir Gunnar J. Friðriks- son, forseti félagsins „ÞEGAR Slysavarnafélag íslands var stofnað fyrir 50 árum voru sjóslys nær einvörðungu það, sem glíma þurfti við. En nú er baráttan orðin önnur og hún er við okkur sjálf, þar sem eru umferðarslysin. Það er sýnilegt, að gera þarf stórátak, það þarf öfluga þjóðar- hreyfingu til varnar gegn umferðarslysunum. Það er takmarkið, sem við setjum okkur á þessu afmæli,“ sagði Gunnar J. Friðriksson, forseti Slysavarnafélags Islands, á fundi með fréttamönnum í gær, er hann kynnti fyrirhugaða starfsemi SVFl á þessu afmælis- ári, en félagið verður 50 ára á sunnudag; var stofnað 29. janúar 1928. „Við ætlum að halda upp á afmælið, ekki með veizluhöldum, heidur með vinnu,“ sagði Gunnar. Á afmælisdaginn verða björgunarstöðvahús fyr- allar björgunarstöðvar ir starfsemi slysavarna- opnar almenningi, en deilda og björgunar- KVENNADEILD SVFl I Reykjavfk færði í gær félaginu að gjöf 2,6 milljónir króna og á þessari mynd sjást stjórnarkonur kvennadeildarinnar ásamt Gunnari J. Friðrikssyni, forseta SVFl, skoða sérstakan sjúkrabúnað; loftspelkur, sem kvennadeildin gaf fé til kaupa á sl. ár. Upphæðin var 200 þúsund krónur og hafa nú verið keypt 24 sett af loftspelkum, sem verður dreift til deilda SVFt úti á landi. Næst Gunnari á myndinni er formaður kvennadeildarinnar, Hulda Victorsdóttir, en aðrar stjórnar- konur eru Svala Eggertsdóttir, Ingibjörg Auðbergsdóttir, Gróa Ólafsdóttir og Lilja Sigurðardóttir. Lionsklúbburinn Freyr hefur gefið Björgunarsveit Ingólfs þennan gúmbjörgunarbát. Gunnar Gunnarsson, gjaldkeri Freys, lengst til vinstri á myndinni, afhenti bátinn f gær og fyrir hönd björgunar- sveitarmanna tók Jóhannes Briem, formaður sveitarinnar, við bátnum, en hann er lengst til hægri á mvndinni. Við það tækifæri gat Jóhannes þess, að stóraukin skemmtibátaeign fólks kæmi nú stöðugt vaxandi inn f starf sveitarinnar, þannig að þessi nýi björgunarbátur kæmi að góðum notum. sveita hafa risið eða eru í smíðum á 25 stöðum og tækjageymslur hafa björgunarsveitir til um- ráða í flestum byggðar- lögum. SVFÍ starfrækir nú 44 skipbrotsmanna- skýli og 29 björgunar- skýli á fjallvegum, þann- ig að alls rekur félagið 98 björgunarstöðvahús og skýli. Gunar J. Friðriksson sagði, að mikil áherzla yrði lögð á að ná til ungl- inga með kynningu á SVFÍ og gat hann þess, að framundan væri fræðslustarfsemi í skól- um landsins og hefur félagið látið útbúa sér- stakar myndraðir til hennar. Sérstakt frí- merki kemur út í tilefni afmælisins og endur- prentaðar verða allar ár- bækur félagsins, 41 tals- ins. Fyrsta árbókin kom strax út 1928, en um nokkurt skeið kom bókin út annað hvert ár. Slysavarnafélagið hef- ur látið gera kvikmynd um starfsemi sína og verður hún frumsýnd á sérstökum hátíðarfundi í vor. SVFÍ starfar í sérdeild- um karla og kvenna, sam- einuðum deildum og unglingadeildum. Félags- deildir eru starfandi í öll- um byggðarlögum lands- ins og í Kaupmannahöfn er slysavarnadeildin Gefion. Gunnar J. Friðriksson sagði, að nú væru rösk- lega 30.000 manns skráð- ir í slysavarnasamtökun- um; í 210 félagsdeildum, en björgunarsveitir SVFÍ eru 87 talsins með yfir 2500 virka félaga. Gunnar sagði, að auk þessa fólks væru ótaldar þúsundir sem styrktu SVFÍ með fjárframlög- um og gat hann þess^að á síðasta ári hefði framlag ríkisins numið 24,8 milljónum króna, en al- mennt söfnunarfé 27,5 milljónum króna. Á fjár- lögum nú eru 38 milljón- ir króna til SVFÍ, þar af 13 milljónir til tilkynn- ingarskyldunnar, sem er yngsta starfsgrein félags- ins. Ekki marktæk, en vonandi markverð — segir Hrafnhildur Hreinsdóttir um könnun sína á bóklestri 14 skip með loðnu HRAFNHILDUR Hrcinsdóttir, nemi f bókasafnsfræóum við félagsvísindadeild Háskólans, vinnur um þessar mundir að könnun á bóklestri meðal lands- manna. I þvf skyni hefur hún sent út spurningalista með þremur bókum frá útgáfunni Örn og Örlygur, en bækurnar eru Heims- mctabók Guinnes, Allt var það indælt strfð, ævisaga Guðlaugs Rósinkrans og Lokast inni f lyftu eftir Snjólaugu Bragadóttur. í samtali við Mbl. sagði Hrafn- hildur að hún hefði sent um 13000 lista með þessum þremur bókum, þ.e. öllu upplagi þeirra og hún teldi að um 60—70% upplagsins hefði selst. Þegar hefðu borizt um 2000 svör, og kvaðst hún hafa í upphafi vonast eftir um 3000 svörum, en sennilega yrðu þau um 2500 þar sem skilafrestur rynni út í janúarlok. Hrafnhildur Hreinsdóttir var að þvi spurð hvort hún áliti könn- un sina verða marktæka, með þessum þremur bókum. Hún svar- aði þvi til að með svolitlu úrtaki yrði ekki hægt að segja að könn- unin yrði marktæk, en vonandi markverð að einhverju leyti. „Það má gagnrýna það,“ sagði Hrafn- hildur að aðeins skuli hafa verið haft samband við eitt útgáfufyrir- tæki, en mér fannst í of mikið ráðist að gera samninga við fleiri og valdar voru þær bækur, sem líklegt er að fengju mikla sölu. Fleiri bækur komu að sjálfsögðu til greina, má t.d. segja að Heims- metabókin hafi sízt þessara bóka átt rétt á sér.“ Þá sagðist hún ekki hafa haft bolmagn til að standa straum af kostnaði við stærra úr- tak, en helzt þyrfti að taka úr þjóðskrá stóran hóp og senda lista er gætu dreifst jafnt til allra landsmanna. Þó sagðist hún álíta að með þvf að taka þannig heil upplög þessara bóka fengi spurn- ingalistinn dreifingu um allt landið. Með spurningalistanum kvaðst Hrafnhildur einkum vilja fá svör við þvi hvort búseta, menntun, starfsheiti, aldur og kyn hafi ein- hver áhrif á fjölda lesinna og keyptra bók og hvernig samspil sé milli þessara þátta hjá fólki i hin- um ýmsu stéttum. Að lokum kvaðst Hrafnhildur Hreinsdóttir vona að eitthvað markvert kæmi i ljós við þessa könnun sína. NOKKUR loðnuveiði var í fyrradag og í fyrrinótt, en þá fengu 14 skip 3260 lest- ir, flest um VA mílu vestur af Kolbeinsey og einnig fengu nokkur skip afla norður af Langanesi. Þeg- Alger friðun Bernhöfts- torfu TUTTUGU starfsmenn Húsnæðismálastofnunar ríkis- ins sendu frá sér svohijóðandi yfirlýsingu: Undirritaðir starfsmenn Húsnæðismála- stofnunar ríkisins skora á stjórnvöld, rfkisstjórn og borgaryfirvöld að taka nú þegar endanlega ákvörðun um varðveizlu Bernhöftstorfunn- ar. ar leið á kvöldið fór að hvessa á ný og í gærdag var vont veður á miðunum — norðaustan 8—10 vindstig og öll skip komin í var. Loðnuskipin fóru flest með afl- ann til Siglufjarðar, Raufarhafn- ar og tvö fóru til Akraness, en skipin, sem fengu afla, eru þessi: Arney KE 60 lestir, Helga 2. RE 240, Skarðsvik SH 200, Hrafn GK 500, Þórshamar GK 180, Albert GK 400, Kap 2. VE 130, Hákon ÞH 60, Óskar Halldórsson RE 260, ísafold 240, Helga Guðmundsdótt- ir BA 280, örn KE 360, Gullberg VE 100 og Pétur Jónsson RE 250 lestir. Engar nákvæmar fréttir hafa borizt siðustu daga af fituinni- haldi loðnunnar sem nú veiðist né þurrefnismagni, sökum þes-s að ekki hefur verið hægt að koma sýnum til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.