Morgunblaðið - 26.01.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.01.1978, Qupperneq 15
MökíSfc’NBLAÐIÐ. FIMMTL'DAGUR 26. JANUAR 1978 15 Eru Torfusamtökin hand- bendi stjórnmálaflokka? Greinargerð frá formanni Torfusamtakanna lífstiðarfangelsi ásamt fjórum öðrum meðákærðum fyrir að hafa lagt á ráðin morð á sex fyrrver- andi starfsmönnum Andanda Marga. Ýmsar mannréttinda- hreyfingar og lögfræðingar á Vesturlöndum hafa mótmælt dómi þessum og kallað hann réttarglæp, gerðan til að ófrægja hreyfinguna og hmala gegn starf- semi hennar. 1. apríl 1973 hóf Andandamurti hungurverkfall til að mótmæla ofsóknum gegn Ananda Marga og tilraun til að ráða hann af dögum með eitur- byrlun. Stendur hungurverkfallið enn yfir og hefur verið kannað af vís- indamönnum og staðfest af yfir- mönnum fangelsins. Þegar stjórn Indiru Gandhi lýsti yfir neyðar- ástandi og tók sér einræðisvald í júní 1975 var Ananda Marga bönnuð, þúsundir félaga fangelsaðir án ákæru, eignir hreyfingarinnar skemmdar eða gerðar upptækar og áróðursritum dreift til þess að ófrægja hug- myndir og starfsemi hreyfingar- innar. Við tilkomu ríkisstjórnar Moraji Desai hefur margt stefnt til batnaðar þó að allt sé óbreytt í máli Anandamurtis og með- ákærðra hans. Þó öllum sé nú orðið ljóst sakleysi Anandamurtis er ástæðan fyrir áframhaldandi fangelsun hans einfaldlega sú, að enn eru við lýði sömu öfl hags- munahópa er óttast hvaó mest þá hvatningu er hann veitti milljón- um manna til að berjast gegn hverskonar spillingu og óréttlæti I indversku þjóðfélagi. Hryðjuverkin — tilbún- ingur til að sverta Ananda Marga Sökum þess að starfsemi Ananda Marga hreyfingarinnar er ekki lengur bundin við Ind- land, heldur fer fram í 80 löndum, hefur indverska leyniþjónustan (CBI) dreift óhróðri um hreyf- inguna víða um heim. CBI hefur reynt að telja ríkisstjórnum landa trú um að Ananda Marga séu hættuleg samtök borgarskæru- liða, dulbúnir kuflum einlífs- manna með hugleiðslu og félags- þjónustu að yfirskini. Sviðsetn- ingar hryðjuverka í nafni Ananda Marga er liður í þessari njðurrifs- starfsemi. t viðtali við Davíð Oddson borgarfulltrúa I laugardagsblaði Vísis, þar sem húsafriðungar- sjónarmið eru rædd er þetta m.a. haft eftir honum: „Mér finnst skaði, hvernig fólk í verndunar- samtökum, sem mikið hafa látið á sér bera í þessu sambandi, hefur látið forsvarsmenn Alþýðubanda- lagsins ná tökum á sínum samtök- um og lita þau pólitik. Það hefur haft skaðleg áhrif á málstaðinn." Ekki er ólíklegt, að einhverjir, sem lítið þekkja til, túlki þessi ummæli á þann veg, að þarna sé átt við Torfusamtökin. Til að forð- ast allan misskilning, tel ég nauð- synlegt að taka fram eftirfarandi: Torfusamtökin eru algerlega ópólitisk samtök áhugamanna um verndun gamalla húsa og bæjar- hluta, sem menningarsögulegt og listrænt gildi hafa og þau leggja áherslu á, að reynt verði að glæða þau lífi. Þau hafa hins vegar lagt aðaláherslu á það, að Bernhöfts- torfan verði vernduð og fengið hlutverk við hæfi. Að stofnun samtakanna 1972 stóðu meðal annarra öll pólitísk félög ungs fólks I Reykjavik, öll aðildarfélög Bandalags islenskra listamanna auk fjölda einstakl- inga úr öllum stjórnmálaflokkum, enda hefur alltaf verið lögð áhersla á, að halda samtökunum utan við stjórnmálaþras líðandi stundar. Ég hef ekki orðið annars vör en máístaður samtakanna hafi notið skilnings í öllum stjórnmálaflokk- um. Málgögn pólitísku flokkanna, sjónvarp og útvarp hafa birt að ég held allt, sem samtökin hafa sent frá sér til birtingar. í sama blaði Vísis og viðtalið við Davíð birtist, er i leiðara meira að segja tekið sterklega undir höfuðbaráttumál samtakanna, verndun Bernhöfts- torfunnar. A Alþingi hafa þingmenn úr ólíkum flokkum sameinast um áhugamál samtakanna. Bern- höftstorfan er sem kunnugt er ríkiseign og því undir ríkisstjórn- ina sett. Allir stjórnmálaflokkarn- ir hafa átt aðild að ríkisstjórn frá því að þófið um Bernhöftstorfuna hófst, en það var eiginlega 1970. I þessu máli get ég því ekki séð, að neinu hafi skipt, hvort stjórnin er kennd við hægri eða vinstri. Mér þykir líklegt, að einhverjir skilji ummæli Davíðs á þá leió, að hans flokkur hafi verið eitthvað utangarðs hjá samtökunum. Þetta er alger misskilningur. Heimdall- ur stóð að stofnun samtakanna. Á útifundi samtakanna í apríl síð- astliðnum var einn ræðumanna, traustur stuðningsmaður Torfu- samtakanna, Ellert B. Sehram al- þingismaður. Er hann ekki nýorð- inn formaður í fulltrúaráði Sjálf- stæðisflokksins I Reykjavík? Á áðalfundi samtakanna 4. des. man ég ekki betur en sæti meðal fleiri ungra Sjálfstæðismanna formað- ur Heimdallar. Þegar ég er að ljúka þessum línum berast mér í hendur stuðningsyfirlýsingar við endur- reisn Bernhöftstorfu frá starfsfólki húsnæðismálastofnun- ar ríkisins þar er efstur á blaði einn af forystumönnum Alþýðu- flokksins í Reykjavík. Þá hefur j stúdentaráð Háskóla íslands, sem ’ skipað er, fulltrúúm með gerólík- ar pólitískar skoðanir lýst ein- róma stuðningi við málið og álytk- un Torfusamtakanna 4. des. s.l. Þeir, sem vilja klína flokks- stimpli á Torfusamtökin, fara því með rangt mál. Ég tel samtökun- um skylt að taka afstöðu til mála algerlega óháð þvi, hverjir fara með völdin hverju sinni og vera óháð hagsmunum stjórnmála- flokka. Þann dag, sem ég tel að þau bregðist þeirri skyldu verður lokið aðild minni að þeim. Hins vegar er ekki við okkur að sakast þótt sumir flokkar taki betur und- ir okkar mál en aðrir. Að lokum vil ég upplýsa, að samtökin munu innan skamms senda frá sér greinargerð um hallærisplanið, en það tekur nokkurn tíma að átta sig á því máli og semja um það greinar- gerð. Nýbirtar, fróðlegar og vel rökstuddar greinar Nönnu Hermansson borgarminjavarðar og Helga Þorlákssonar sagnfræð- ings svo og frásagnir og ummæli ýmissa þeirra, sem haft hafa með málið að gera í nefndum og ráð- um borgarinnar eru mikils virði fyrir þá, sem vilja leggja það á sig að reyna að skilja, hvað er á seyði. Guðrún Jönsdóttir, arkitekt, formaður Torfusamtakanna. w Fjarstýring ^ Fólk er misjafnt svo og litsjónvörp. ,. J Sérhver ákveður, hve mikið er fjárfest í litsjónvarpi. j Samt sem áður er enginn vafi á, að (náin) tengsl eru milli verðs og gæða. t Banq & Olufsen litsjónvörp eru ekki meðal þeirra ódýrustu á markaðinum. Þú munt fljótlega uppgötva I hvers vegna. Banq & Olufsen littækin hafa til að bera gæði sem öruggt er að sumir vildu ekki vera án — og sem aðrir framleiðendur geta ekki boðið. Bang & Olufsen VARANLEG LITGÆÐI: Leiðrétta Irtstillinguna 50 x á sekúndu. BUÐIN Skipholti 19 R. S. 29800 (5 línur) 27 ár í fararbroddi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.