Morgunblaðið - 26.01.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1978
27
3. deild karla:
Þór saf nar stig-
um- Breiðablik
í 7 vikna fríi
FIMM leikir voru leiknir i deildinni
um helgina, þar af þrir úti i Eyjum
Þór vann bæði Keflavík og Dalvík,
en Týr vann Keflavík. Afturelding
vann Dalvík að Varmá og Akranes
vann Njarðvik á Skaganum. Þór hef-
ur nú heldur betur sankað að sér
stigum siðustu helgar og hefur besta
stöðu, 17 stig eftir 10 leiki, hefur
aðeins tapað þremur stigum. Á Þór
aðeins 4 leiki eftir, við Dalvik, Akra-
nes og Tý úti i Eyjum og við Njarðvik
á meginfandinu.
Breiðablik og Týr hafa tapað næst
fæstum stigum, 5 hvort félag. Týr á nú
helming leikja sinna eftir eða 7, en
Breiðablik 6 Þór mun Ijúka leikjum
sínum, skv. skipulaginu á tímabilinu til
4. mars, og Týr Ijúka 5 af sinum 7, en
Breiðablik verður hins vegar í frii þang-
að til 4. mars, alls i sjö vikur. Á
Breiðablik að leika þrjá síðustu leiki
keppninnar, þegar önnur félög en and-
stæðingar þeirra i þessum þremur
leikjum hafa lokið sér af, og mun að
öllu óbreyttu eiga 6 leiki eftir af 14,
þegar Þór verður búinn með alla sína!
Þessi undarlegheit stafa annars
vegar af 7 vikna fríinu, sem Breiðablik
er í núna, og er alveg sérstakt, svo og
því, að frestuðum leikjum er ekki kom-
ið á. þótt þeir hafi beðið allt frá miðjum
október. Ekki er sjáanleg breyting
þarna á. þar sem mótnefnd er nú óvirk
fram yfir heimsmeistarakeppnina
a.m.k.
Eins og félögin hafa komið frá
keppninni fram undir þetta, er Ijóst, að
þetta stórfellda misgengi í framkvæmd
hennar getur haft veruleg áhrif á úrslit-
in í deildinni.
Úrslit helgarinnar:
Þór —Keflavik 24:1 6.
Afturelding—Dalvík 26:25.
Akranes—Njarðvík 21:20.
Týr—Keflavík 28:1 7.
Þór—Dalvík 30:1 9.
Eins og sjá má af þessum tölum,
unnu Eyjaliðin örugglega í sínum leikj-
um. en hinir leikirnir voru jafnir. Sér-
staklega var hart barist milli Akraness
og Njarðvikur, þar sem Skagamenn
hlutu að lokum langþráðan sigur i
heimaleik. Dalvik lék einn besta leik
sinn í vetur gegn Aftureldingu, en það
dugði þó ekki fyrir stigi
STAÐAN
Þór, Eyjum 10 8 1 1 226:190 1 7
Breiðablik 8 5 1 2 198 1 72 1 1
Akranes 9 5 0 4 189:1 74 10
Afturelding 9 5 0 4 212:207 10
Týr. Eyjum 7 5 1 2 150:130 9
Njarðvík 8 2 1 5 149:160 5
Keflavík 8 2 0 6 144 1 77 4
Dalvík 7 0 0 7 139:180 0
— Herb
SVIÐSErr
KNATTSPYRNA
STOFNAÐUR hefur verið fyr-
ir nokkru skóli f Argentínu
þar sem atvinnumenn f knatt-
spyrnu geta lært undirstöðu-
atriði leiklistar. Stofnendur
skólans foru meira að segja
fram á það við yfirvöld að fá
ríflegan styrk á þeim forsend-
um, að leikaraskapur í sam-
bandi við meiðsli og byltur
o.s.frv. væri svo rfkulegur þátt-
ur f starfi knattspyrnumanna
að best væri að tilgerð sem
þessi væri fagmannalega fram-
kvæmd. Ekki fylgir sögunni
hvort styrkurinn fékkst né
heldur hvort fullskipað hafi
verið f bekkkjardeildir skól-
ans.
Brian Wallwork.
Duncan Bridge. Islandsmeistararnir f tvfliða-
leik í fyrra, Sigurður Haralds-
son og Jóhann Kjartansson.
Tropicanamótið í badminton:
Tveir Englending-
ar meðal keppenda
að sjá viðureignir þeirra við
ensku badmintonmennina.
Eins og að framan segir verð-
ur mótið haldið n.k. laugardag
og sunnudag. Það verður í húsi
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavikur að Gnoðavogi 1, og
hefst kl. 15.00 báða dagana.
Fyrri daginn hefst keppnin
með einliðaleik, og verður leik-
ið fram að undanúrslitum. Sið-
an verður keppt í tvíliðaleik og
verður þá keppt fram að úrslit-
um. Á sunnudag hefjast undan-
úrslitaleikirnir í einliðaleik kl.
15.00, en síðan koma úrslita-
leikirnir hver af öðrum.
NÆSTKOMANDI laugardag og sunnudag verður haldið svonefnt
„Tropicana-mót“ í badminton. Keppt verður í einliðaleik og tvíliða-
leik karla og kvenna. Mót þetta er nýtt af nálinni, en þess er vænst
að það verði haldið árlega.
T.B.R. bauð tveimur ensku
badmintonleikurum til móts-
ins, en þeir eru:
Brian Wallwork; 25 ára gam-
all, sterkasti leikmaðurinn í
Lancashire-liðinu. Hann var i
undanúrslitum f einliðaleik í
enska meistaramótinu 1977.
Duncan Bridge: 19 ára frá
Surrey. Fyrrum unglingameist-
ari og unglingalandsliðsmaður.
Hann var í úrslitum í enska
meistaramótinu í tvíliðaleik
1976 og 1977.
Englendingar eru méðal
sterkustu badmintonþjóða
heimsins, og því má telja það
mikinn feng fyrir okkur að fá
slíka kappa i heimsókn. Verður
vafalaust skemmtilegt að sjá þá
sýna leikni sina.
Allir sterkustu leikmenn ís-
lendinga munu að sjálfsögðu
verða meðal keppenda og má þá
fyrst nefna þá Jóhann Kjart-
ansson og Sigurð Haraldsson ís-
landsmeistara. Verður fróðlegt
Bikarleikir á næsta seðli
Ekki er vitað hvort Guðni Kolbeins-
son ætlar að dansa ballett i kvöld
eins og hann virSist vera aS gera á
þessari mynd. en hins vegar ætla
félagar hans i ÍS aS leika gegn Þór i
1. deild fslandsmótsins i körfuknatt-
leik i íþróttahúsi Kennaraháskólans i
kvöld kl. 20.00. (Ljósm. ÁG)
Körfuknattleikur:
Einn leikur
í 1. deild
í kvöld
f KVÖLD fer fram einn leikur í 1.
deild karla í íslandsmótinu í körfu-
knattleik. ÍS og Þór leiða saman
hesta sina í íþróttahúsi Kennarahá
skólans og hefst leikur liðanna kl.
21.30
Reikna verður með, að stúdentar
með snillinginn Dirk Dunbar í broddi
fylkingar verði ekki i miklum erfiðleik-
um með Þórsara. en stúdentarnir hafa
tapað tveimur leikjum í mótinu og
mega alls ekki tapa í kvöld, ef þeir ætla
sér að verða áfram með í baráttunni
um Islandsmeistaratitilinn Mark
Christensen og félagar hans i Þór
munu þó örugglega ekki gefast upp
fyrr en i fulla hnefana, því að hver tvö
stig eru dýrmæt i hinni hörðu baráttu
um sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur
VIÐ HÖFUM orðið þess áskynja, að
allmikils misskilnings gætir um það,
hvaða skilning leggja beri í orðið ,.pott-
þétt" þegar talað er um kosti aðferða
okkar til betri árangurs Margir virðast
telja að með því að tala um pottþétta
aðferð sé verið að lofa tólf réttum
Getraunasérfræðingar Mbl vilja nota
þetta tækifæri til þess að fyrirbyggja
frekari misskilning og útskýra hvað
þeir eiga við með orðinu pottþétt
Þegar við kynnum einhverja aðferð
sem pottþétta, sbr teninga-aðferðina
um daginn, þá eigum við einfaldlega
við, að pottþétt er að a m k einn leikur
verður réttur Hefur það ekki enn
brugðist okkur
í 21. leikviku féll niður einn leikur
og útisigur Birminghams i Liverpool sá
til þess, að enginn hafði 1 1 rétta. 21
röð reyndist vera með 1 0 rétta og fær
hver eigandi um sig 35 000 krónur
fyrir getspekina 238 raðir fundust
með 9 réttum og koma kr 1 300 i hlut
eigenda þeirra Leikirnir á seðlinum í
dag eru úr 4. umferð bikarkeppninnar.
Arsenal — Wolves 1
Hér á ekki að þurfa að þreyta
nokkurn mann með röksemdafærslu
Bolton — Mansfield 1
Á pappírnum er seðill þessi ekkert
nema heimasigrar og verða það senni-
lega hvorki fyrstu mistök okkar né þau
síðustu að tippa þannig Þessi leikur á
hiklaust að heita ..öruggur"
Brighton — Notts County 1
Þessi er ekki alveg eins pottþéttur og
félagar hans tveir hér á undan, en þó
mjög heimasigurslegur Við tippum því
eðlilega á sliki
Chelsea — Burnley 1
Það er ekkert um þennan leik að
segja frekar en aðra leiki hingað til
Chelsea ætti að vinna þennan leik
örugglega
Derby — Birmingham 1
Þetta er einn tvisýnasti leikur seðils-
ins og gæti hann farið á hvorn veginn
sem er (eins og allir hinir raunar líka)
Við höllumst þó eindregið að þvi, að
Derby vinni nauman sigur og þar eð
það er sannfæring okkar, þá tippum
við á það
Manchester Utd — WBA 1
Enn einn heimasigurinn Flestir
myndu halda okkur vera með sótthita
ef við hefðum tippað á annan veg
Middlesbrough — Everton 1
Everton hefur ekki verið sannfaér-
andi síðustu dægrin, en Boro hins
vegar verið að rétta úr kútnum eftir
misjafna tima Útkoman úr þessum
hugleiðingum er heimasigur
Millwall — Luton 2
Loks rann sú langþráða stund upp,
að við tippuðum ekki á heimasigur
Millwall hefur ekki beinlínis verið
sterkasta félagslið á Bretlandseyjum i
vetur og vermir nú botnsæti 2 deildar
Luton hafa þó leikið snöggtum betur
og tippum við þvi á útisigur.
Newcastle — Wrexham x
Með fullri virðingu fyrir öðrum leikj-
um seðlisins, þá litum við á þennan
sem hinn erfiðasta Til þess að styggja
engan með tippi okkar, veljum við
jafnteflisleiðina Auk þess er daufur
jafnteflisfnykur á sveimi
Nottingham Forest — Manchester
* City 1
Forest er þegar búið að leggja City
að velli í deildarleik á heimavelli sin-
um City er að visu betra lið nú en þá,
en Forest er ekki lakara Við tippum því
á heimasigur
Walsall — Leicester 1
Þrátt fyrir að NA/alsall leiki í þriðju
deild, kæmi það vist fáum á óvart þó
að liðið flengdi lélegt lið Leicester Ekki
okkar a m k
West Ham — QPR 1
Af tvennu illu veljum við West Ham
Þeir hafa þó a m k unnið einn og einn
leik undanfarið
Svo sem sjá má. vantar spár þriggja
snillinga. en aðalspáin er á sinum stað
— gg
Morgunbiaðið 2 o 38 3 3 ■O A < 2 o 09 2 öc SS Q 2 a u es > C •o cc Tfminn 2 a > 5 Vfsir c c > •o o A Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the worid Sunday Telegraph SAMTALS
Arsenal — Wolves 1 í i 1 1 1 1 1 1 1 1 11
Bolton — Mansfield 1 1 i 1 1 1 1 1 1 I 1 11
Brighton — N. County 1 í i 1 1 1 1 1 I 1 1 11
Chelsea — Burnley 1 1 i 1 1 1 1 1 1 1 1 11
Derby — Birmingh. 1 1 i 1 X X 1 1 1 1 1 9 2
Man. Utd. — WBA 1 X i 1 1 1 1 1 1 1 1 10 1
Middlesbrough — Everlon 1 2 X X X 1 2 X X 2 X 2 6.. 3
Millwall — Luton 2 2 X X X X 1 X X 2 X 1 7 3
Newcastle — Wrexham X 1 X 1 X I 1 1 1 1 X 7 4
Notts Forest — Man. Chity 1 1 X X 1 2 1 X 1 X X 5 5 1
Walsall — Leicester 1 ^ 2 X X 1 1 1 X X X X 4 6 1
West Ham — QPR 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 1 10 1
1 SlÐUSTU viku stóöu getraunasérfræðingarnir tslenzku sig sérstaklega vel. Þjóðviljinn var með 9 leiki
rétta af 11 og hefði hlotið vinning hjá Getraunum á þann seðil. Morgunblaðið og sjónvarpið stóðu ekki
langt að baki með 8 rétta leiki en ensku blöðin voru lakari.