Morgunblaðið - 26.01.1978, Side 30
30
MORGL’NBLAÐrÐ. FIMMTLDAGLR 26. JAN'L'AR 1978
t
SVAVA HJALTALIN,
Flókagötu 1 5,
verður jarðsungm frá Háteigskirkju föstudaginn 2 7 janúar kl 1 0 30
Erna Hjaltalín, Knútur Hallsson,
Þóra Hjaltalín, Eyjólfur Guðsteinsson,
Örn Hjaltalin, Dröfn Hjaltalín
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BENEDIKT JÓHANNSSON,
Bjarnarstig 9, Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag fimmtudaginn 26 janúar kl
3 Þeim sem vildu mmnast hans er vinsamlega bent á liknarstofnanir
Nói Jóhann Benediktsson, Brynja Sigurðardóttir,
Anna Ingibjorg Benediktsdóttir, Kristbjörn Arnason
og barnabörn.
+
Eigmmaður mmn og faðir okkar.
EINAR HALLDÓRSSON,
bóndi, Setbergi,
verður jarðsungínn frá Garðakirkju laugardagmn 28 janúar kl 10 30
fyrir hádegi Blóm og kransar vmsamlegast afbeðnir. en þeir sem vildu
mmnart l.jns láti líknarstofnanir njóta þess
Elisabet Reykdal og börn.
Eiginmaður mmn. +
MAGNUS GUÐFINNSSON.
. frá Seyðisfirði,
verður jarðsungmn frá Fossvogskirkju föstudagmn 2 7 janúar kl
10 30 Fyrir hönd vandamanna, Júlíanna Guðmundsdóttir.
+
Eigmmaður mmn. faðir okkar og tengdafaðir
STEFÁN R. PÁLSSON
frá Kirkjubóli Korpudal
Gautlandi 21, Reykjavik
sem lézt 17 þ m verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
2 7 janúar kl 1 3 30
Guðrún Össurardóttir
Skúlína Stefánsdóttir, Svavar Guðjónsson
Kjartan Stefánsson,
Hoskuldur Stefánsson,
Páll Stefánsson,
Össur Stefánsson,
Guðrún Jóhannesdóttir
Sigurbjorg Björnsdóttir
Hallgerður Jónsdóttir
Ásdis Samúelsdóttir
+
Innilegt þakklæti til allra þeirra fjölmörgu, sem auðsýndu okkur samúð
og vmarhug við hið sviplega fráfall okkar elskulega
GUOMUNDAR GARÐARS GUOMUNDSSONAR
frá Hólmi
Guð blessi ykkur öll
Ásta Guðmundsdóttir
Gróa Helga Kristjánsdóttir
Garðar Guðmundsson
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eigmmanns míns.
HALLDÓRS JÓNSSONAR,
Nóatúni 26.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Borgarspítalans
Guðlin Jónsdóttir.
+
Inmlegt þakklæti til allra þeirra sem vottuðu okkur samúð og hlýhug
v.ð fráfall eiginmanns míns. föður okkar, tengdaföður og afa
KRISTJÁNS H. SKAFTASONAR
trésmiðameistara
Sogavegi 142
Áslaug Þorfinnsdóttir
Hólmfriður Kristjánsdóttir, Magnús Kristjánsson
Lilja Kristjánsdóttir,
Þorfinnur Kristjánsson,
Sigriður Kristjánsdóttir,
Þórunn Kristjánsdóttir,
Kristín Kristjánsdóttir,
Bryndis Kristjánsdóttir,
Þórhallur Kristjánsson,
Skúli Kristjánsson,
Jón Kristjánsson,
Sigriður Kristjánsdóttir,
Friða Magnúsdóttir,
og barnabörn.
Hafliði Árnason
Sólveig Pálmadóttir
Arnór Árnason
Valdimar Guðmundsson
Rebekka Ragnarsdóttir
Gréta Ólafsdóttir
Unnsteinn Guðmundsson
Benedikt Jóhanns-
son In memoriam
Fæddur 13. september 1912
Dáinn 16. janúar 1978
Ekki get ég sagt að það hafi
komið mér alveg á óvart er ég
frétti að vinur minn Benedikt Jó-
hannsson væri allur. Ég vissi að
nokkrum vikum áður hafði herra-
maðurinn með ljáinn knúið dyra
hjá honum, en Benedikt þá ekki
verið til viðtals og snúið aftur
Bensa fátækari, í það sinn. Slikur
var lífsþróttur Benedikts. En
hann var of sigurviss, gætti sín
ekki sem skyldi, vanmat þann,
sem enginn getur hrósað sigri yf-
ir.
Er ég nú sest niður með perma í
hönd til að festa á blað nokkrar
línur til að minnast Benedikts þá
veit ég varla hvar byrja skal. Það
ieitar svo margt á hugann, svo
ótal margs að minnast, af svo
miklu að taka, að kunnugir vita að
nægja mundi heilu bókaforlagi,
ef vel ætti að vera. Ofan á þetta
bætist að Benedikt var lítið um
eftirmæli gefið, sem kemur mér
að vísu vel þar sem ég hef ekki
próf í þeim fræðum, sem reyndar
er að verða nánast þjóðariþrótt.
Fer ég því engar troðnar slóðir,
hripa í hnotskurn sem í hugann
kemur, bara ef hann léti mig i
friði meðan ég reyni að hespa
þessu af, því penninn er allt í
einu tekinn að hristast í hendi
mér, hættur að gefa og rispar
illilega pappírinn, sjálfur Parker-
inn. Hann ætlar að verða jafn
magnaður hinum megin.
Ekki verður lífsferill Benedikts
rakinn að gagni hér. Hann bjó
mestan hluta ævi sinnar hér í
Reykjavík, kvæntist árið 1947
Guðlaugu Ágústu Nóadóttur,
hinni greindustu konu, söngelsk
var hún og samdi m.a. þekkt og
vinsæl lög. Hún lést 6. desember
1966 eftir langvarandi veikindi.
Þau hjónin eignuðust tvö börn,
Önnu Ingibjörgu, f. 1946, og Nóa
Jóhann, f. 1953, bæði einkar
greind og viðfelldin, gift og hafa
komið sér upp fyrirmyndar heim-
ilum. Ávallt bar Benedikt velferð
barna sinna fyrir brjósti.
Ekki átti Benedikt þess kost að
ganga menntaveginn þótt hann
sýndi snemma hæfileika í þá átt,
sem hann og átti kyn til, hann var
snemma látinn fara að vinna í
föðurhúsum eins og þá tíðkaðist
og lærði fljótt að standa á eigin
fótum. Brátt kom í ljós samvisku-
semi sú og ofurkapp hans um að
gera alla hluti sem mesta og besta
og setn áttu eftir að fylgja honum
alla ævi í mismunandi störfum, er
hann tók sér fyrir hendur, uns
hann fyrir allmörgum árum varð
að hætta vinnu að læknisráði sök-
um heilsubrests.
Ég man það eins vel og það
hefði gerst í dag, er ég leit Bene-
dikt augum í fyrsta sinni, fyrir
liðlega 30 árum. Það var í Bridge-
keppni, og kenndi ég þegar kapp-
ann af afspurn einni saman.
Hnarrreistur sat hann við spila-
borðið, hæglátur og sviphreinn,
en einbeittur. Það sem vakti strax
undrun mina var að því er virtist
ótrúlegt öryggi hans og flýtir í
spilinu, hvort sem um var að ræða
í sögnum, vörn og sér í lagi þó
úrspili. Oft sýndist manni mörg
spil á lofti i senn. Meðan hann
beið eftir að andstæðingarnir
gæfu í slaginn, var annað spil
komið á loft, og oft kvað við er
líða tók á spiiið ,,á restina", og
spilin lögð á borðið áður en and-
stæðingarnir höfðu áttað sig al-
mennilega á því hvaðan á þá stóð
veðrið, en urðu að sætta sig við,
nauðugir, viljugir, eftir snaggara-
legar útskýringar Benedikts, að
leggja niður spilin og þá oft
draum allra varnarspilara í
bridge, „tapslaginn”, sem þeir
héldu sig gjarnan vera með á
hendinni. Aldrei sá ég honum
verða á mistök í úrspili, þó hrað-
inn væri mikill og því furðulegra
þótti mér allt athæfi mannsins er
hann hirti aldrei um að raða spil-
unum upp á höndina, allt í einum
hrærigraut, eins og hann tók þau
upp af spilaborðinu.
Þetta var nú furðufugl sem var
við mitt hæfi, hugsaði ég, og kem
átti reyndar síðar betur eftir að
koma í ljós.
Nokkru síðar hófust kynni okk-
ar Benedikts, sem síðar þróuðust
upp í einlæga vináttu, sem hélst
óslitin allt til dauða hans. Bene-
dikt var skarpgreindur maður,
stærðfræðingur góður, traustur
skákmaður og óvenju fjölhæfur
spilamaður á hvaða spil sem var.
Þekktur var hann sem einn besti
bridgemeistari landsins og það
hafa tjáð mér eldri menn, að vart
hafi hann átt sinn jafnoka í
L’hombre, en hætt er við að það
fjölbreytta og skemmtilega spil
fari að heyra fortiðinni til, haldi
svo fram sem horfir. Þá er ótalinn
hinn óviðjafnanlegi frásagnarstíll
sem hann bjó yfir, mætti segja að
hann lægi á milli meistara Þór-
bergs og sagna Munchausens.
Ávallt var Benedikt fremstur í
þeirri íþrótt sem hann lagði fyrir
sig, það sýna hinar mörgu viður-
kenningar er hann hlaut.
Benedikt var skemmtilega
gloppóttur eins og jafnan vill
verða um menn sem bera af á
vissum sviðum. Ekki þurfti hann
neinn bóklestur til að ná þeim
árangri sem raun bar vitni, meA-
fædd snilligáfa var honum nægi-
legt veganesti, og mér er minnis-
stætt er einhverjir þráttuðu um
það við hann að fræðsla og lestur
væri skilyrði þess að ná toppinum
í hvaða grein sem væri, svaraði
hann þá að bragði: „Það er sjálf-
sagt lífsnauðsyn fyrir ykkur með-
alskussana til að komast eitthvað
áleiðis, en þið gætuð samanlagt
ekki keýpt það mikið af bókum,
sem ég þyrfti að lesa, til þess að
ég gæti bætt við mig éinhverju að
ráði. Þið lesið ekki í ykkur brjóst-
vitið úr skræðunum.”-.
Mikill spekingur að viti var
Benedikt. Skyldu þeir Þórbergur
Þórðarson ekki vera farnir að
hittast, rökræða og segja hvor öðr-
um sögur?
Prúðmennskan var Benedikt í
blóð borin, greiðvikinn var hann,
traustur og framúrskarandi heið-
arlegur í hvívetna. Ekki veit ég til
að hann hafi að fyrra bragði gert
á hlut nokkurs manns, þó var
hann skapmaður, keppnismaður
mikill og gaf aldrei sinn hlut ef
því var að skipta. Ovæginn var
hann þeim er hölluðu réttu máli
og enginn komst upp með að hafa
rangt við við spilaborð er hann sat
að spilum. Átti hann til, einkum í
góðra vina hópi, að gefa, að því er
virtist, hinu ótæmandi ímyndun-
arafli sínu lausan tauminn.
Aldrei var sú saga sögð eða sagt
frá afreki að Benedikt gæti ekki
bætt um betur. Ofáar voru þær
stundirnar, sem hann skemmti
okkur sveitarfélögum sínum með
sinum óviðjafnanlegum sögum.
Þá var að vísu oft vel kynt undir.
Það var árið 1964 að Benedikt
stofnaði sveit sína, en hana skip-
uðu auk hans undirritaður, Lárus
Karlsson, Jóhann Jónsson, Vil-
hjálmur Sigurðsson og Sigurður
Helgason. Var sveitin þannig
skipuð að mestu þar til hún hætti
1973, þá sem bikarmeistarar, sig-
ursæl að venju, eftir litríkan fer-
il.
í lokin spiluðu m.a hinir kunnu
bridgemeistarar Gunnar og Örn
Guðmundssynir. Mörgum mun
hafa þótt eftirsjá i því er sveit
Benedikts hvarf af sjónarsviðinu,
einkum áhorfendum því oft þótti
stormasamt kringum sveitina,
enda skipuð skapmönnum mikl-
um. Ávallt sýndi þó Benedikt
prúðmennsku við spilaborðið, hér
heima sem erlendis, en erlendis
naut hann sín ekki sem skyldi
utan spilaborðsins sökum tak-
markaðrar tungumálakunnáttu
sinnar, því enginn okkar hinna
var fær um að túlka þær stjarn-
fræðilegu hugdettur sem Bene-
dikt hafði til málanna að leggja í
umræðum sem fóru fram utan
keppni. Við spilaborðið var hann
jafnoki allra, enda þar spilin látin
tala.
Áður fyrr hafi Benedikt ávallt
verið í sveitum með okkar bestu
bridge-köppum. Um nokkurra ára
bil hætti hann þátttöku í bridge-
keppnum uns hann stofnaði ofan-
greinda sveit sem að ég var að
vísu stundum að nafninu til
skráður fyrir, því ávallt var Bene-
dikt hinn óumdeilanlegi
kapteinn. Hann var umtalaður
maður eins og títt er um slíka
hæfileikamenn, átti marga öfund-
armenn og óft spunnust um hann
sögur sem ekki áttu við rök að
styðjast, gróusögur sem virðast
orðnar andleg fæða lítilmenna í
okkar þjóðfélagi, en ekki sköðuðu
þær Benedikt, þeir vissu betur
sem hann þekktu, enda virkuðu
slíkar sögur sem „boomerang"
Ástralíunegranna, þ.e. enduðu
oftast hjá upphafsmanni. Nú eftir
lát Benedikts er það athyglisvert,
þó ekki sé það óalgengt, að þá,
sem gerðu lítið úr hæfileikum
hans i lifenda lífi, jafnvel news-
made bridge-snillinga, skortir nú
nógu sterk lýsingarorð til þess að
lýsa snilli Benedikts við spila-
borðið. Segja má að öðrum ólöst-
uðum, að hann hafi verið einn
fjölhæfasti spilari á íslandi.
Nú þegar horft er til baka og
litið yfir lífsferil Benedikts þá er
það huggun börnum hans og öðr-
um ástvinum, að hann ætti ekki
að þurfa að kvíða neinu, þvi að
vefur sá, er örlaganornirnar
spinna og ræður dvalarstað okkar
og umhverfi eftir líf á jörðu hér,
er talinn vera ofinn úr efni því er
við leggjum til með breytni okkar
hérna megin.
Drenglyndi, fórnfýsi og heiðar-
leiki var sá arfur er Benedikt
skilaði þjóðinni eftir sig.
Jón Arason.
Afmælis- og
minningargreinar
Að marggefnu tilefni skal athygli vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar verða aó berast
blaóinu með góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast
i síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt
með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i
sendibréfsformi eóa bundnu máli.
Sé vitnað til ljóða eða sálma skal höfundar getið.
Greinarnar þurfa að vera vélritaðar og með góðu
línubili.