Morgunblaðið - 26.01.1978, Síða 38
38
Tveir snúa
aftur heim
til Eyja
TVEIR knattspyrnumenn hafa
gengið til liðs við Iþróttabandalag
Vestmannaeyja að nýju eftir að
hafa leikið eitt ár með öðrum
liðum.
Þetta eru þeir Örn Óskarsson
miðherji, sem lék í fyrra með KR,
og Arsæll Sveinsson markvörður,
sem lék f fyrra í Danmörku. Er
mikill styrkur fýrir ÍBV að fá
þessa tvo menn aftur og auk þess
koma tveir menn úr Ármanni til
liðs við ÍBV, Jón Hermannsson og
Egill Steinþórsson.
Fyrsta skíða-
göngumótið
UNGMENNAFÉLAGIÐ Hrönn gekkst
fyrir fyrsta skíðagöngumóti vetrarins á
laugardag Keppt var í Skálafelli
Gengnir voru 12 kílómetrar og voru
keppendur 8 talsins
Urslit urðu þessi min
1 Ingólfur Jónsson SR 45.09.5
2 Guðmundur Sveinsson SR 46 1 5 1
3 Bragi Jónsson Hrönn 46.15.1
4 Páll Guðbjörnsson Fram 47.55.5
5 Björn Ásgeirs 48 34 4
í kvöld
TVEIR leikir fara fram í 2. deild
íslandsmótsins f handknattleik í
kvöld f Laugardalshöll. Fyrst
leika Leiknir og Grótta en sfðan
Fylkir og HK og er það einn af
úrslitaleikjum mótsins. Fyrri
leikurinn hefst klukkan 20.
FUNDUR FRÍ
frjálsíþróttasamband íslands gengst
fyrir fundi með helzta frjálsíþróttafólk-
inu í kvöld kl 21 Verður fundurinn
heldinn í félagsheimili Fóstbræðra að
Langholtsvegi 109 Á fundinum verð-
ur rabbað um verkefni sumarsins Þá
mun Ólafur Unnsteinsson þjálfari sýna
kvikmyndir frá stórmótum síðasta sum-
ars, þ á m kvikmyndir frá meistara-
móti íslands, Reykjavíkurleikunum,
Evrópubikarkeppninm í Kaupmanna
höfn, tugþrautarlandskeppni í London í
haust Er frjálsíþróttafólk hvatt til að
mæta vel á fundinum
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1978
Borg vann
sér inn 27
millj. á tveimur
dögum
SÆNSKI tennisleikarinn Björn Borg sigraði Banda-
ríkjamanninn Jimmy Connors í úrslitum mikils
tennismðts í Boca Raton í Florida á sunnudaginn
7—6, 3—6 og 6—1.
Sigurinn færir Borg 125 þúsund dollara í aðra
hönd eða 27 milljónir íslenzkra krðna en Connors
fékk í sinn hlut tæpar 11 milljónir króna. Á þessu
móti eru veitt hæstu verðlaun sem þekkjast hjá
atvinnutennisleikurum og 27 milljónir eru dálag-
legur skildingur fyrir tveggja daga keppni.
Þeir Borg og Connors eru ótvírætt beztu tennisleikarar heims-
ins i dag. Þeir hafa leikið til úrslita í fjórum helztu mótum í
heiminum á síðasta ári og viðureignir þeirra hafa vakið feikilega
athygli enda hafa þeir jafnan boðið upp á tennis eins og hann
gerist beztur. Borg hefur haft betur í þessum fjórum viðureign-
um, unnið þrjár en Connors eina.
Meðfylgjandi mynd er einmitt tekin af þeim köppum að lokinni
verðlaunaafhendingu í Meistarakeppninni í New York í byrjun
ársins. Connors sigraði í þeirri keppni og sést hann hér með
sigurlaunin en Borg er til hægri á myndinni. Hann varð annar.
Kvennakarfa:
ÖRUGGUR KR-
SIGURYFIRIR
EINN Ieikur var háður I mfl.
kvenna f tslandsmótinu f körfu-
knattleik um helgina. Áttust þar
við KR og ÍR og var fyrirfram
búizt við jöfnum leik. Sú varð þó
ekki raunin og KR sigraði örugg-
lega eftir að hafa verið yfir allan
leikinn. Islandsmeistarar KR
hlutu þarna sfn fyrstu stig í mót-
inu, en þeim hafði áður verið
dæmdur tapaður leikur gegn Þór
frá Akureyri, en þeim dómi hefur
verið áfrýjað. IR tapaði hins veg-
ar sfnum öðrum leik og hefur
ekki hlotið stig.
En svo við víkjum að leiknum á
sunnudaginn, þá mættu KR-
stúlkurnar mjög ákveðnar til
leiks og höfðu ávallt frumkvæðið.
í leikhléi var munurinn orðinn 15
stig, 41:26. í síðari hálfleik juku
KR-ingar forskotið og náðu ÍR-
ingar aldrei að ógna sigri þeirra,
og lauk leiknum með sigri KR,
76:54, eins og áður sagði.
KR-liðið átti ágætan leik að
þessu sinni og beztar voru Emelía
Sigurðardóttir og Linda Jónsdótt-
ir.
Hjá ÍR voru Guðrún Bachman
og Anna Eðvarðsdóttir beztar. Þá
átti Ásta Garðarsdóttir þokkaleg-
an leik.
Stigin fyrir KR: Emelía Sig-
urðardóttir 29, Linda Jónsdóttir
23, Kristjana Hrafnkelsdóttir og
Salfna Helgadóttir 8 hvor, Arndís
'4, Björg Kristjánsdóttir og Erna
Jónsdóttir 2 hvor.
Stigin fyrir ÍR: Anna Eðvarðs-
dóttir og Guðrún B:chman 14
hvor, Ásta Garðarsdóttir 13, Ásdís
Hinriksdóttir 5, Guðrún G. 4, Guð-
rún Ólafsdóttir og Þorbjörg Sig-
urðardóttir 2 hvor.
ÁG
Sigurður og Thelma
öryggir sigurvegarar
SIGURÐUR P. Sigmundsson FH sigr-
aði af öryggi í Stjörnuhlaupi FH-inga
sem fram fór á sunnudag. Hefur
Sigurður nú örugga forystu i keppninm
um Stjörnubikarinn.
Sigur Sigurðar virtist aldrei í hættu.
Hann tók forystu í upphafi hlaupsins
og hélt henni alveg í mark, nema hvað
Gunnar Páll Jóakimsson ÍR hljóp hon-
um samsiða þar til að um 1 kílómetri
var eftir. Með sigri sínum hefur Sigurð-
ur tekið örugga forystu í keppninni um
Stjörnubikarmn sem Stjörnulitir sf.
gáfu til keppninnar. Hefur Sigurður
hlotið 1 3 stig úr þremur hlaupum, en á
eftir honum koma Ágúst Ásgeirsson ÍR
8 stig (2 hlaup), Ágúst Þorsteinsson
UMSB 8 stig (3 hlaup), Hafsteinn
Óskarsson ÍR 7 stig (3 hlaup) og
Gunnar P. Jóakomsson ÍR 6 stig (2
hlaup). Eftir er að hlaupa tvö hlaup í
keppninni í vetur.
Urslit i hlaupmu á sunnudag urðu
annars:
Sigurður P. Sigmunds , FH 27:51,6
Gunnar P. Jóakims., ÍR 28:25.8
Ágúst Ásgeirs . ÍR 29:11,2
Ágúst Þorsteins.. UMSB 29:33.7
Óskar Guðmundsson, FH 29:56,0
Hafsteinn Óskars.. ÍR 33:38,5
Magnús Haralds., FH 33:44,2
Óskar Pálsson, ÍR 34:55,2
Thelma Björnsdóttir UBK sigraði
nokkuð örugglega í kvennahlaupinu
eftir mikla og jafna keppni framan af
við Ragnhildi Pálsdóttur KR Hörð
keppni stendur um kvennabikar
Stjörnuhlaupsins milli þeirra Thelmu,
Ragnhildar og Guðrúnar Árnadóttur
FH. Úrslit hlaupsins urðu.
Thelma Björnsd , UBK 7:37,0
Ragnh. Pálsd , KR 7:45,1
Guðrún Árnad., FH 8:14,0
Anna Haraldsd , FH 8:31,4
Bára Friðriksd., FH 8:47,3
Hvaða lið eiga möguleika á HM?
I DAG hefst heimsmeistara-
keppnin I handknattleik, og er
því ekki úr vegi að Ifta aðeins á
hvernig riðlaskiptingin er, og
spá lítillega um möguleika
þátttökuþjóðanna. Þau 16
landslið sem tryggt hafa sér
þátttöku I úrslitunum eru fyrir
löngu byrjuð undirbúning sinn
fyrir keppnina, og allt er miðað
við að vera í toppæfingu ( loka-
keppninni. Skoðanir eru skipt-
ar manna á meðal um það
hverjir eigi mesta möguleika.
Eitt er vfst að hart verður bar-
ist og eflaust margt óvænt eftir
að gerast, en ómögulegt er að
segja til um með nokkurri
vissu hverjir verða heimsmeist-
arar.
Riðlaskiptingin er þannig.
A riðill B riðill
V-Þýskal. Rúmenía
Júgóslav. Ungverjal.
Tékkóslóv. A-Þýskal.
Kanada Frakkland
C riðill D riðill
Sovét. Pólland
Danmörk Svíþjóð
tsland Japan
Spánn Búlgaría
Lftum fyrst á A-riðilinn, þar
má strax afskrifa Kanada. Bar-
áttan stendur milli V-
Þjóðverja, Júgóslava og Tékka.
Spá undirritaðs er sú að Júgó-
slavar sigri í riðlinum, V-
Þjóðverjar hafni i öðru sæti og
Tékkar í þriðja.
B-riðill virðist í fljótu bragði
einna sterkastur, þar eru þrjár
þjóðir sem margir hafa nefnt
sem hugsanlega sigurvegara í
HM að þessu sinni. Barátta
þessara þjóða verður geysi-
spennandi og víst er að spá-
mennska er erfið, Ekki tel ég
þó ólíklegt að Rúmenar verði í
fyrsta sæti, A-Þjóðverjar I öðru
og Uhgverjar í þriðja, og þar
með fellur Frakkland úr.
Á C-riðlinum höfum við eðli-
lega mestan áhuga, og allir
vona að það verði island sem
kemst áfram i átta liða úrslit
ásamt annaðhvort Sovétmönn-
um eða Dönum. Sovétmenn
verða að teljast sigurstrangleg-
astir en nái isiand sínu besta á
það að geta sigrað bæði Dan-
mörku og Spán, en Danir verða
ekki auðsigraðir á heimavelli.
Væntanlega verða þeir fjöl-
mörgu islendingar sem sækja
leikina vítamínssprauta fyrir
íslenska liðið og hjálpar þeim
yfir hjallann. Hins vegar gætu
Spánverjar komið á óvart og
sigrað Dani og aukið þannig
möguleika islands á að komast í
átta liða úrslit en við göngum
út frá þvi sem vísu að Island
sigri Spán. Ekki er ég þó það
bjartsýnn og spái Sovétmönn-
um fyrsta sæti, Danmörku öðru
saéti og íslandi þriðja, Spán-
verjar verða að bíta í það súra
epli að fara heim.
i D-riðli ættu Pólverjar og
Svfar að vera öruggir um tvö
efstu sætin. Spá: Svíþjóð, Pói-
land, Búlgaría, Japan.
Eftirtaldar þjóðir verða sam-
kvæmt ofangreindu f átta liða
úrslitum. Júgóslavar, V-
Þjóðverjar, Rúmenar, A-
Þjóðverjar Sovétmenn, Danir,
Svfar, Pólverjar. Um 9. til 12.
sæti spila Tékkar, Ungverjar,
Islendingar og Búlgarir, heim
fara Kanadamenn, Frakkar,
Spánverjar og J apanir.
Strax f kvöld fara línurnar að
skýrast og á sunnudagskvöld
mun Iiggja ljóst fyrir hvaða
þjóðir hafa komist áfram og þá
munum við huga nánar að loka-
baráttunni. — hr
ÞRJÁR ferðaskrifstofur gangast fyrir hópferðum til Danmerkur, Samvinnuferðir, Urval og Utsýn, og var
þessi mynd tekin þcgar Utsýnarfarþegárnir hittust á mánudagskvöldið. t þessum ferðum verða um 300
Islendingar og verða þcir væntanlega góður stuðningur fyrir fslenzka liðið ytra.
I