Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
Norglobal hefur tek-
ið við 14 þús. lestum
Bræðsluskipió Norglobal
flutti sig af Öxarfirði aust-
ur á Bakkafjörð í fyrrinótt
og liggur nú þar ekki f jarri
landi, en næst verður skip-
ið flutt til Seyðisfjarðar en
það verður ekki fyrr en
loðnan er komin sunnar.
Morgunblaðið fékk þær
upplýsingar í gær hjá ís-
birninum h.f., sem hefur
skipið á leigu, að það væri
nú búið að taka á móti 14
þús. lestum af loðnu og
bræddi að meðaltali um
1500 lestir á sólarhring.
Birgðageymar Norglobal
voru einnig fullir í gær, og
sömu sögu er að segja af
öllum nyrðri hluta Aust-
fjarða, þar eru nú allar
loðnuþrær fullar eða eru
að fyllast. Loðnuverk-
smiðja ísbjarnarins á
Seyðisfirði var i gær búin
að taka á móti 6000 lestum
af loðnu.
Lagafrumvarp um tölvunotkun:
Nefndin stefnir að því
að skila af sér í tæka
tíð fyrir þetta þing
- segir Ármann Snævarr, form. nefndarinnar
„NEFNDIN stefnir að því að
skila af sér frumvarpinu innan
ekki alltof langs tíma, alla vega
örugglega í tæka tíð til þess, að
dómsmálaráðherra geti lagt
frumvarpið fram á yfirstandandi
þingi, eins og hann hefur lýst yfir
að hann vilji gera,“ sagði Armann
Snævarr hæstaréttardómari,
formaður nefndar, sem vinnur að
samningu frumvarps til laga um
tölvunotkun, er Mbl. spurði hann,
hvað störfum nefndarinnar liði.
Armann sagði, að nefndarmenn
fylgdust mjög náið með frum-
vörpum sama efnis, sem nú liggja
fyrir þjóðþingum Norðmanna og
Dana, en Svíar hafa þegar sam-
þykkt lög um þetta efni.
Enn er góð
loðnuveiði
austur af
Langanesi
FRA ÞVl á hádegi f fyrradag
fram til hádegis f gær tilkvnntu
16 skip um loðnuafla, samtals
6970 lestir. Fóru skipin öll með
aflann til Austfjarðahafna og eru
þar nú allar þrær fullar allt suður
til Stöðvarfjarðar. Ef góð loðnu-
veiði helzt áfram, má reikna með
að þrær á syðstu hlutum Aust-
fjarða fyllist í dag og á morgun.
Veiðisvæðið úti af Langanesi fær-
ist sffellt aðeins suður á bóginn,
en er engu að sfður miklu norðar
en á sama tfma í fyrra.
Skipin, sem tilkynntu um afla
frá hádegi í fyrradag fram til há-
degis í gær, eru þessi: Sigurbjörg
ÖF 250 lestir, Arney KE 170, Gísli
Arni RE 570, Hilmir SU 530, Ólaf-
ur Magnússon EA 180, Hrafn
Sveinbjarnarson GK 200, Grind-
víkingur GK 600, Pétur Jónsson
RE 600, Harpa RE 570, Faxi GK
280, Börkur NK 650, Isleifur VE
320, Náttfari ÞH 400, Breki VE
700, Rauðsey AK 530, Andvari KE
220 og Víkurberg 200 lestir.
I.jÓMil.vnd Mhl RAX
Hægt og sfgandi lensir daginn og um leið verður
fólk sporléttara og glatt í fasi eins og sjá má á
þessum tveimur stúlkum í Austurstræti.
Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja:
Engar forsendur hafabreytzt
frá undirritun BSRB-samninga
„ENGAR forsendur hafa breytzt
síðan samningar við opinbera
starfsmenn voru undirritaðir,
nema hvað alþingismenn hafa
hækkað kaup sitt til muna meira
en BSRB samdi um fyrir sfna
félagsmenn og Kjaradómur hefur
dæmt háskólamönnum í hærri
flokkunum meiri hækkun en fé-
lagsmenn BSRR fengu,“ segir í
ályktun sem samþykkt vará
stjórnarfundi BSRB f gær.
Alykunin, sem samþykkt var
með atkvæðum allra fundar-
manna, er svohljóðandi:
„Stjórn B.S.R.B. mótmælir
kjaraskerðingarákvæðum í frum-
varpi rfkisstjórnarinnar um ráð-
stafanir í efnahagsmálum. Með
riftun samninga við BSRB og
kjarasamninga annarra samtaka
launafólks er vegið á þann hátt að
samningsréttinum og mögu-
leikum til að gera marktæka
kjarasamninga í framtíðinni, að
launafólk getur með engu móti
við það unað. Stjórn BSRB telur
samtök launafólks eiga þann kost
einan að hefja nú þegar undir-
búning allsherjarbaráttu fyrir
varðveislu grundvallarréttar síns
og tilveru samtakanna. Stjórn
bandalagsins ákveður að leita
samráðs við Alþýðusamband
Islands i þessu stórmáli.
Stjórn BSRB lýsir stuðningi við
þá ákvörðun formanns banda-
lagsins að kalla saman formanna-
ráðstefnu BSRB þegar í byrjun
næstu viku til þess að fjalla um
viðbrögð samtakanna við þeim
samningsrofum, sem verið er að
undirbúa af hálfu stjórnvalda.
Fyrir rúmum þremur mánuðum
undirritaði fjármálaráðherra f.h.
rikisstjórnarinnar aðalkjara-
samning við BSRB, og sveitar-
stjórnir gerðu kjarasamningavið
félög bæjarstarfsmanna í BSRB.
Að ófrávíkjanlegri kröfu ríkis-
stjórnarinnar við setningu kjara-
samnin^alaganna 1976 er gildis-
tími þessara samninga tvö ár.
Framhald á bls. 25.
Loðnan
magrari
en í fyrra
SVO VIRÐIST sem loðnan, sem
veiðist í vetur, ætli að vera
nokkru magrari en á vertíðinni í
fyrra, a.m.k. það sem af er vertíð.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá Jóhanni Þorsteinssyni
hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins, að þann 5. febrúar s.l. hefði
fituinnihald loðnunnar rcynzt
vera að meðaltali 9.1% og fitu-
frítt þurrefni 16.1% sama dag. A
sama tfma í fyrra kvað Jóhann
fituna hafa verið 10,2% og þurr-
efnið 16.0%.
Jóhann sagói, að fituinnihald
loðnunnar nú virtist vera svipað
og það var i byrjun loðnuvertíðar
1974, en enn væri skammt liðið á
vertíðina og því væri engu hægt
að spá um hver meðalfita vertíð-
arinnar yrði.
Mikið tjón er kvikn-
aði í verkstæði
Vegargerðarinnar
im
RÉTT um, kl. 21 í gær-
kvöldi var slökkviliðið
kallað að verkstæðisb.vgg-
ingu Vegagerðar ríkisins
við Borgartún-Sætún, en
þá logaði mikið í nyrzta
enda verkstæðisins. Tals-
vert tjón varð I brunanum,
meðal annars skemmdist
húsnæðið töluvert og enn-
fremur Michigan
ámokstursvél, sem að
líkindum er ónýt,
Þegar slökkvióiðið kom á vett-
vang, stóðu eldtungur upp úr risi
verkstæðisins, en greiðlega gekk
að slökkva eldinn. Virðist sem
eldurinn hafi komið upp í
ámokstrusvélinni og mest logað
þar og í þaki hússins. Stór jarðýta
af gerðinni Caterpillar D7 stóð
skammt frá ámokstursgröfunni
og skemmdist ekkert. Ekki var í
gærkvöldi búið að meta tjón af
völdum brunans, en þess má geta
að ámokstursgrafa af þeirri gerð,
sem eyðilagðist í brunanum, kost-
ar um 15 milljónir króna. Þá má
geta þess, að þessari sömu
ámokstursgröfu hvolfdi í Ólafs-
víkurenni í fyrraog beiðþámaður
bana.
Slökkviliðsmenn slökkva eldinn í ámokstursgröfunni í verkstæðishúsí
Vegagerðarinnar í gærkvöldi. Lj,)sm M,„„i k m
Kosning 1 Starfsmannafélagi
Rvíkurborgar á sud og mánud.
STJÓRNARKJÖR fer
fram í Starfsmannafé-
lagi Reykjavfkurborgar
á morgun, sunnudag og
mánudag, og verður
kosið í félagsmiðstöð-
inni, Grettisgötu 89, á
þriðju hæð. A sunnudag
fer kosningin fram
milli kl. 10 og 18, og á
mánudag milli kl. 13 og
20. Kosningarétt hafa
aliir sem taka laun hjá
Reykjavfkurborg, þar
með taldir þeir sem
vinna hluta úr starfi og
einnig eftirlaunamenn.
Kosið er á milli ann-
ars vegar framboðs upp-
stillingíjnefndar, þar
sem Þórhallur Halldórs-
son, núverandi formað-
ur, er í kjöri til for-
mannssætis og til
stjórnar eru i kjörí * -
dís Þórðardót
Fannberg, Guðmundur
Eiríksson, Ingibjörg
Agnars og Ingibjörg M.
Jónsdóttir, — og hins
vegar framboðs Nýrrar
hreyfingar, þar sem
Gunngeir Pétursson er í
kjöri til formannssætis
og til stjórnar Anna
Karen Júliussen, Helgi
Eggertsson, Jónas
Engilbertsson og Þor-
gerður Hlöðversdóttir.
Setja skal kross fram-
an við nafn þess sem
maður vill kjósa. Öll
önnur merki eða áritan-
ir ógilda kjörseðilinn.
Kjósa ber einn mann til
formannssætis og fimm
í stjórn. Sé ekki kosin
rétt tala stjórnarmanna
í öðrum hvorum reit
kjörseðils er sá reitur
ógildur.