Morgunblaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 H' Rætt við David Z. Rivlin, sendiherra ísraels á íslandi DAVID Z. Rivlin, sendiherra ísraels á íslandi, með aðsetri í Ósló, hefur dvalið hér síðustu daga. Kom hann meðal annars þeirra erinda að afhenda Háskólanum gjöf eins og sagt hefur verið frá. Rivlin hefur verið í utanríkisþjónustu ísraels í rösk 20 ár. Hann er borinn og barnfæddur í Jerúsalem og f jölskylda hans ein fárra Gyðingaf jölskyldna sem hafa búið í landinu í nær því 200 ár. Áður en Rivlin hóf störf í utanríkisþjónustunni, vann hann við blaðamennsku og milli starfa sem ræðismaður og sendiherra var hann um tima yfirmaður blaða- og upplýsingaþjónustu ísraelska utanríkisráðuneytisins. Mbl. ræddi við Rivlin og bað hann að tjá sig um þá athyglis- verðu þróun sem hefði verið að eiga sér stað í Miðausturlönd- um upp á síðkastið. Aðspurður fyrst um hverja hann teldi skýringuna á að ísrael nyti ekki jafnmikils stuðnings á alþjóðavettvangi og meðal þorra manna og fyrir nokkrum árum, sagði hann: — í sumu virðist mér að það sé orðin eins konar tizka hjá ákveðnum hópum að tala gegn ísrael. Áróður Arabaþjóðanna, sem eru svo rhörgum sinnum fjölmennari en við, hefur ekki hrifið alfariðl, en borið þó nokkurn árangur. Um heiminn er að fara alda samúðar og jafn- vel hrifni hjá mörgu ungu fólki af stjórnleysingjum og hryðju- verkamönnum. PLO hefur not- ið þessa og ungt fólk, einkum vinstri sinnað, hefur snúizt á sveif með þeim og áróður þeirra átt að þeim aðgang. Gegn þessu virðist ekki þýða að beita málefnalegum rökum, þar eð allt byggist á tilfinningaflóði. Ekki má gleyma því að það hef- ur átt sinn þátt i að áróður Araba hefur átt auðveldara með að komast upp á pallborðið að Sameinuðu þjóðirnar eru ekki lengur samtök manngildis heldur samtök hagsmuna. Síðast en ekki sízt er þýðingar- laust að ioka augunum fyrir því gífurlega veldi sem mörg Arabaríkin hafa í krafti olíu- auðæfa sinna. Þau hafa m.a. náð með þessu tökum á stórum hluta Þriðja heimsins og þarf engan að undra á því, þar sem þróuð vestræn lýðræðisríki létu fljótlega undan þrýstingi þeirra þegar á reyndi. Olían setur Arabana sem sagt f sterka pólítíska stöðu. Ekki má gleyma beinum eða óbeinum áhrifum kommúnistaríkja og að Sovét- ríkin hafa unnið að því svo ár- um skiptir að kynda undir úlf- úð í Miðausturlöndum, og Sovétríkin standa á bak við þrjú síðustu stríð sem hafa ver- ið háð í þessum heimshluta. — En nú virðist Sadat ekki hneigjast til fylgilags við Sovét- ríkin nema síður sé. — Nei. Hann hefur reynt að draga úr áhrifum þeirra en Nasser hafði hleypt þeim býsna langt. Sadat vill ekki yfirráð Sovéta enda veit hann vel að velferð Egypta verður þá ekki látin sitja í fyrirrúmi. ísraelar telja Sadat forseta mjög djarfan mann og virða hann mikils, hélt Rivlin áfram. Þegar hann ákvað að koma til Jerúsalem og brjóta hinn sál- David Z. Rivlin. ræna múr sem hafði verið milli landanna, vann hann afrek. Við; virðum forsendur Sadats, skuli eyða gríðarlegum upp- hæðum til hermála. Þessu vill Sadat líka snúa við. Ferð hans til Jerúsalem var því vakin af umhyggju fyrir sínu eigin landi og hann mun ekki snúa frá nema Arabar gangi af honum dauðum, ellegar að ísraelar misbjóði honum með því að koma að hans dómi ekki nóg til móts við hann. Hafa verður í huga að Sadat er mjög drama- tískur maður í eðli sínu, gædd- ur mælsku sem verkar mjög vel SÝRLAND MIÐJARÐAR-s ISRAEL'% * ! iHAF , Egyptar og Israelar komn- ir að vega- mótum og ekki verður aftur snúið Damascus • • Quneitra Í.GENESARET- *» VATN ÍNablus **•'* • Amman JÓRDANÁ DAUÐAHAF \ □ AIMIA EGYPTA- * Ella’ »• Aqaba landA á ' ........" /= 3ABAFLÖI SUEZFLOI Sharm es Sheikh eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR. vegna þess að við trúum að hann hafi gert það í þeim til- gangi að leysa raunveruleg vandamál. Það eru ekki sízt innanlands- erfiðleikar sem ég á hér við. Sá sem hefur komið til Egypta- lands og séð ástandið skilur betur en aðrir að Sadat var kominn fram á yztu nöf. Það er óhugnanlegt að þjóð sem hefur við annan eins þjóðfélagslegan vanda að glíma. og Egyptar og sannfærandi og hefur unun af því að setja á svið ef svo má orða það. Hann er líka glæsi- menni og kemur ákaflega vel fyrir. En hann er nú einfari í Arabaheiminum, og hann hefur svo sannarlega ekki ótakmark- aðan tíma. Egyptar telja sig hafa unnið ákveðinn sigur í Yom Kippur- stríðinu og það er rétt að Sadat leiddi herinn yfir Súezskurð, það var hernaðarlegur og póli- A myndinni (■ r Cíaza merkt. Þar nokkru fyrir suðvi-stan er Vamit sem lalaó er uni I vidtalinu i*rta sem svarar miója ve«u milli Gaza or EI Arish. Sharm es Sheikh sést við Aquhaflóann syrtsl á Sinaiska^anum. tiskur ávinningur. Hann endur- heimti þann heiður Araba sem glatast hafði í Sex daga- stríðinu. Hernaðarlega séð unn- um við stríðið nokkrum dögum seinna. Það vita allir. Við vor- um í nokkurra tuga kílómetra fjarlægð frá annars vegar Kairó og hins vegar Damaskus. En þó svo að þetta stríð væri Sadat nokkur uppreist varð það einnig til að opna augu hans endanlega fyrir þvf að styrjöld er ekki lausnin. Því skyldu Egyptar endalaust úthella blóði í stað þess að reyna að byggja upp betra þjóðfélag þar sem manneskjan væri einhvers virði. Þetta hefur orðið Sadat æ ljósara og í samræmi við hinar ýmsu áhrifamiklu skyndi- ákvarðanir sínar sagði hann í nóvember: „Ég kem í Knesset." Það gerði hann og nú virtust allir búast við því að gróið og margþætt og vandmeðfarið vandamál sem teygir anga sína í allar áttir og á rætur langt aftur í tímanum verði leyst á nokkrum dögum. Það er firra. En Sadat er enn einn á ferð. Jórdanir hika og þó ganga þeir líklega til liðs við hann. Sýr- lendingar gera það sjálfsagt aldrei. Marokkó, Súdan og íran standa með Sadat og vitanlega nýtur hann stuðnings Banda- ríkjamanna. Saudi-Arabía gef- ur loðnar yfirlýsingar en trúlega hneigist hún til fylgis við hann. En þegar niður á jörðina er komið eru málin ekki jafn einföld og þau virtust j hinum stemningsþrungnu sögu- legu nóvemberdögum i Jerúsalem. Þegar skálaræðun- um lýkur og fyrsta sæluviman er runnin af, verður að tala saman í alvöru og af hispurs- leysi ef árangur á að nást. Og þá skipast skiljanlega veður í lofti og á ýmsu hefur gengið. En nú bendir margt til að nú rofi til aftur, svo að við skulum ekki dvelja við það. Allt er í áttina meðan menn tala saman. Þó er nú ekki svo að skilja að sam- bandslaust hafi verið meðan fundir lágu niðri opinberlega. Það er öðru nær. Ahterton að- stoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna hefur unnið mikið starf bak við tjöldin sem hefur fært málin til betri vegar. Og fleiri hafa lagt hönd á plóginn. Sadat er nú farinn til Banda- ríkjanna og reynir áreiðanlega að fá Bandaríkin til að þrýsta meira á ísrael en áður. Astæða er til að ætla að honum muni verða ágengt í því að koma fram hugmyndum sínum, að minnsta kosti að einhverju leyti. Hann vill að Bandaríkja- menn gefi bindandi fyrirheit um fjárfestingu í Egyptalandi, tækni- og efnahagsaðstoð. Bandarikin eru sterk og þau vilja líka frið á þessu svæði og vita manna bezt að mistakist Sadat hafa Rússar fengið vilja sinum framgengt. — Hver má ætla að verði þróunin í viðræðunum þegar þær byrja fyrir alvöru. Nú er talið eðlilegt að Israelar sýni meiri sveigjanleika. — Varðandi Sinai og Gaza er ýmislegt sem er vert að hafa i huga. Gazasvæðið tilheyrði Palestínu og hefur aldrei verið egypzkt land og er enda ekki um það deilt. Egyptar vilja ekki Gaza. Þar búa nú um 450 þús. Palestínu-Arabar og Egyptar kæra sig ekki um að bæta þeim við mannmergðina sem er að sprengja allt utan af sér í Egyptalandi. Nú, Sharm el Sheikh á Sinaiskaga, sem er við Agabaflóa, er ákaflega mikil- vægt okkur. Við gætum ekki fallizt á annað en til dæmis að svæðið yrði sett undir alþjóð- legt eftirlit i einhverri mynd til þess að tryggja okkur aðgang að sjó til Rauða hafsins. En svo við hverfum til Gaza á Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.