Morgunblaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 Þorhjörg Pálsdótt- ir, Gilsá—Mnning Fædd ll.des. 1885 Dáin 6. febr. 1978 Með Þorbjörgu á Gilsá eins og hún var jafnan nefnd fyrir austan er gengin mæt og minnisstæð koria. Þegar ég kynntist fyrst Þor- björgu var hún komin um fimmt- ugt, en þá og alltaf síðan fannst mér lífsgleði einkenna hana sér- staklega. Virðist lífið þó ekki hafa leikið við hana, því innan við tvítugs aldur veiktist hún af berklum og var hætt komin, en náði þó heilsu eftir nokkur ár. Rúmlega þrítug giftist hún Lárusi Jónssyni ættuð- um frá Vopnafirði. Hófu þau bú- skap í Breiðdal — fyrst að Höskuldsstöðum og síðar að Gilsa , föðurleyfð Þorbjar'gar, þar sem hún bjó síðan. Mann sinn missti Þorbjörg frá fjórum ungum börnum þeirra, sem hún bjó áfram með á Gilsá. Og enn varð Þorbjörg fyrir þeirri raun, að elsti sonur hennar lést rúmlega tvítugur að aldri. En alla þessa reynslu bar Þorbjörg með einstöku æðruleysi. Stóð hún fyr- ir búi sínu til ársins 1940 að synir hennar tóku viö bústjórn fyrst Páll og síðar Sigurður, sem enn býr á Gilsá og síðustu árin í tví- býli með syni sínum. Þorbjörg var ein þriggja kvenna, sem stóðu að stofnun Góðgerðarfélagsins Einingar í Breiðdal árið 1911 — og var hún síðar um margra áratugi formað- ur félags þessa, sem um langt skeið lét mikið að sér kveða í menningar og líknarmálum sveitarinnar. Voru árlegar sumar- samkomur Einingar sóttar víða að af sunnanverðum Austfjörðum. En mér enn í minni hversu sköru- leg stjórn Þorbjargar var á þess- um samkomum. Mikillæti átti hún ekki til, en var frjálsleg og hispurslaus — og sagði jafnan hug sinn allan, hvort sem hún ræddi við barn eða þjóðhöfðingja. Auk glaðlyndis hennar — er mér minnisstætt hvað hún var grand- vör í umtali um fólk, heyrði ég hana aldrei leggja misjafnt orð til nokkurs manns, því hún virtist aðeins vilja vita af því góða í fari manna. Hún eignaðist líka marga vini, sem hún hafði samband við. Fyrir nokkrum árum átti ég þess kost aó sjá og lesa verslunar- bækur frá Breiðdalsvík, og rakst þar á frá fyrstu árum aldarinnar viðskiptareikning Þorbjargar á Gilsá, sem þá var unglingur í föðurgarði, og var aðal úttekt hennar, póstpappír, pennar og blek, sem sýnir að hún hefir snemma byrjað að skrifa bréf, sem hún gjörði mikið að á langri ævi. Hún kunn i góð skil á íslensku máli og hafði sérstakan áhuga á þjóðlegum fræðum. Eftir að Þorbjörg hætti bú- stjórn, ferðaðist hún all mikið á milli vandamanna og vina, enda mjög félagslynd og naut sam- skipta við annað fólk, og eins og áður er minnst á var hún fundvis á kosti manna. Kom hún nokkrum sinnum á heimili okkar hjónanna og var þar sem annar staðar mik- ill auðfúsugestur. Hún var greind, fróð og skemmtileg og hélt andlegu þreki fram að háum aldri. Við hjónin heimsóttum Þor- björgu fyrir fáum árum þar sem hún var rúmliggjandi á sjúkra- húsi. Var hún, sem löngum fyrr veitandi fremur en þiggjandi í samræðum okkar. Sagði hún mér þá frá fyrstu kynnum móður minnar og hennar, en þær voru frænkur og vinkonur. En þá voru þær, ungar stúlkur að læra osta- og smjörgerð hjá Guðlaugu systur Þorbjargar, sem lært hafði osta- gerð á Hvanneyri. Þorbjörg sagði þá meðal annars: „Þegar við manna þín vorum að alast upp þótti mest nauðsyn að hver hús- móðir kynni að koma ull í fat, mjólk í mat og að kenna barni bæn. Ég hafði ekki áður heyrt lokaorð þessa forna heilræðis. En síðar hefir mér oft komið í hug hversu stórkostleg lífsspeki var fólgin í þessari setningu, þegar hugsað er til þeirra tíma er meiri- hluti þjóðarinnar háði óvissasta baráttu fyrir lífi barna sinna. Ég þakka að lokum Þorbjörgu kynnin öll — og fordæmið, sem hún gaf um trú á það góða í tilverunni. Bið ég Guð að blessa börnunum og afkomendum öllum minningu hennar. Björn Stefánsson Þorbjörg Pálsdóttir frá Gilsá í Breiðdal, andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði 6. þessa mánaðar. Við fráfall Þorbjargar á Gilsá eins og hún var ætíð nefnd i Breiðdal sjá sveitungar á bak einu af sínu mesta mikilmenni og þjóðin tapar enn einum hlekknum sem tengdi nútímann við liðna tíð og sögu hans á þeim miklu breytingatím- um sem síðustu áratugir hafa ver- ið í ísiensku þjóðlífi. Þorbjörg á Gilsá bar gæfu tíl þess á lífshlaupi sínu að vera mik- ill bjargvættur á þessum breyt- ingatímum f mörgum skilningi þess orðs. I huga þeirra sem þekktu þessa stórbrotnu konu lítið meira en nafnið tengist það líklega aðal- lega útvarpsþættinum um ís- lenskt mál. A þeim vettvangi mátti heyra hennar nafn nefnt viku eftir viku, þar sem hún var með bréfum sínum til þáttarins að fylla upp í eyður málvísinda- manna um eitt og annað sem mál- far snertir. Stundum á svo rausnarlegan hátt að orðskýring- unni fylgdi heil þjjiðsaga sem skýrði orðið betur og bjárgaðist sjálf í leiðinni frá glatkistunni. Stutt er síðan að ég heyrði ís- lenskufræðing vitna í bréf frá Þorbjörgu á Gilsá er hann var að ræða íslenskt mál í útvarpinu. Og sjálfsagt á oft eftir að leita í henn- + Móðir okkar og amma. ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR FREDERIKSEN, Hringbraut 71, Reykjavik, lézt í Landsspitalanum aðfaranótt 10 þ m Einar Freyr Frederiksen, Játvarður Gunnar Frederiksen, Inger Frederiksen Harvey, Kristján Harvey. Móðir okkar og tengdamóðir. JAKOBÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR, frá Melabúð, andaðist að heimili sonar síns, Lyngbrekku 15, fimmtudaginn 9 febrúar Páll Sigurbjörnsson, Magnfríður Sigurbjörnsdóttir, Pétur Sigurbjörnsson, Una Sigurbjörnsdóttir og tengdabörn. + Jarðarför konu minnar og dóttur, INGIBJARGAR EDDU EDMUNDSDÓTTUR, fer fram frá Fossvogskirkju. n k fimmtudag 1 6 febrúar kl 1 30 Jón Óttar Ragnarsson, Sólveig Búadóttir + Frænka min, JÓNINNA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR. andaðist í Hrafnistu 9 febrúar Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Björg Helgadóttir. + MARGRÉT BALDVINSDÓTTIR KOZAKOS, leturgrafari, frá Helguhvammi, Vestur-H úna va tnssýslu, lézt að heimili sínu í New York þann 2 7 janúar '78 og jór útförin fram þann31 janúar Vandamenn. + Föður- og móðursystir okkar, SIGURVEIG SIGFÚSDÓTTIR, Norðurbrún 1, sem andaðist 3 febrúar. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu- daginn 1 3 febrúar kl 3 e h Haukur Jóhannsson, Maria Jóhannsdóttir, Jónas Jóhannsson, Baldur Sveinsson, Hallur Sveinsson, Jóhann Sveinsson. + Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar. tengdaföð- ur og afa, VILHJÁLMS JÓHANNSSONAR, Vesturgötu 4, Ólafsfirði. Sigríður Gisladóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför. VIGDÍSAR ÓLAFSDÓTTUR WAAGE, Meðalholti 6. Ásta Guðmundsdóttir Hartranft, Guðný Guðmundsdóttir Proden, Hafsteinn Guðmundsson, Ólafur Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega fyrir auðsýndan vinarhug og samúð við andlát og útför föður okkar og sonar míns, FRIÐRIKS Þ OTTESEN Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Ingibjorg F. Ottesen, Þuríður F. Ottesen, Pétur F. Ottesen, ísleifur F. Ottesen, Þorlákur G. Ottesen. + Alúðarþakkir til allra er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR GÍSLADÓTTUR. Sigriður Jónasdóttir, Birgir Jónasson. Hólmfríður Jönasdóttir. Ingólfur Rögnvaldsson. Karl Jónasson, Gyðný Aradóttir, Páll M Jónasson, Helga Viggósdóttir, og barnabörn. ar viskubrunni þegar brjóta skal íslenskt mál til mergjar. En enda þótt þessi þáttur í lífsstarfi Þor- bjargar eigi eftir aö halda nafni hennar á loft um ókomin ár ber annað enn hærra í hugum sveit- unga hennar og annarra ná- granna. Þorbjörg á Gilsá var ósérhlífinn frumkvöðull í félagslegu starfi í sínum átthögum. Hún gekkst fyrir stofnun Iíknarfélagsins Einingar árið 1911 og var lengst af formaður allt fram til 1948 eða svo og potturinn og pannan í hinu blómlega starfi félagsins um ára- tuga skeið. Öllum eldri Breiðdælingum og nágrönnum er í fersku minni enn f dag Einingarsamkomurnar sem haldnar voru í Breiðdal um ára- tuga skeið. Þær voru annað og meira en „skrall". Einingarsam- komurnar voru áreiðanlega menningarauki fyrir þær byggðir sem þangað sóttu. Til þess var tekið hve mikill stórhugur fylgdi þessu félagi á sinum tíma og átti Þorbjörg þar stóran hlut ásamt fleiri góðum liðsmönnum. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera Þorbjörgu samtíða í Breiðdal sem fullorðinn maður á árunum 1958—71. Þá var Þorbjörg á Gilsá um og yfir átt- rætt en ekkert „gamalmenni". í það minnsta ekki í anda. Þorbjörg gerði mér stundum heimsókn á þessum árum og gisti þá gjarnan samkvæmt minni ósk. Dýrmætum tíma var þá ekki varið í að ræða hégóma. Sem eðlilegt var varð íslensk tunga oft um- ræðuefnið. Einnig uppeldis- og skólamál. Þarna fór oftast þannig að ég kennarinn varð þiggjandinn er alþýðukonan innan úr dal, fræðarinn. Undir það síðasta var okkur kannski svipað innanbrjósts eins og þeim sem eru að búa sig undir brimlendingu þar sem ferju- maðurinn hyggst leggja út á hafið aftur en farþeginn verður eftir á ströndinni og brimgnýrinn hindr- ar frekari orðaskipti. Mér er sérlega minnisstæð heimsókn Þorbjargar á Gilsá til okkar hjónanna í Staðarborg dögunum áður en við fluttumst búferlum úr Breiðdal á haustdög- um 1971. Það voru í rauninni ekki orð hennar er hún mælti til okkar í litlu kveðjusamsæti, sem gerðu mér þessa heimsókn mjög minnis- stæða þótt þar væri vel og fallega mælt. Heldur það að ég sannfærð- ist enn betur en nokkru sinni áður um að góðir samferðarmenn á lífsleiðinni eru ekki aðeins öllu gulli verðmætari á meðan þeirra nýtur á samverustundu. Heldur skilja þeir líka eftir f manni hluta af sjálfum sér sem maður nýtur góðs af um ókomin ár. Þorbjörg á Gilsá hefur reist sér bautasteina í sögu okkar kæra móðurmáls og átthögunum fyrir gnótt mannkosta. Þorbjörg hefur reist sér bauta- stein í mínum huga sem verða mun mér vegvísir um ókomin ár. Ég votta börnum og öðrum ást- vinum Þorbjargar Pálsdóttur samúð mína. Þorbjörg verður jarðsungin frá Eydalakirkju 11./2 1978. Heimir Þór Gísiason Afmælis- og minn- ingar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast. blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.