Morgunblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
Seldi
börná
svörtum
markaði
Now York. 10. fobrúar. AP.
MAÐUR nokkur hefur verið tek-
inn fastur og sakaður um að hafa
orðið sér úti um 173 þúsund doll-
ara með því að selja börn á svarta-
markáði.
Stanley Michelman var hand-
tekinn á fimmtudag en hann
hefur neitað ásökunum um að
hafa viðhaft ólöglegt athæfi við
ættleiðingu 24 barna. í 192 liða
ákæruskjali er ' Stanley sagður
hafa selt börnin fyrir allt að 10
þúsund dollara stykkið.
Stanley viðhafði ýmsar aðferðir
við iðju sína, en til að dylja sölu-
mennskuna laug hann til um ýmis
atriði á ættleiðingarskjölum.
Hann komst yfir ungabörn með
því að fá m.a. starfsfólk á sjúkra-
húsum í lið með sér. Sagði það
honum af ungum, ógiftum konum
sem líklega væru ekkert of hrifn-
ar af því að verða mæður. Komst
hann þannig yfir nokkur börn.
Einnig aðstoðaði hann ungar,
ófrískar konur fjárhagslega og
skaut skjólshúsi yfir þær til að fá
börnin í staðinn.
Svíþjóð:
LítU
hreyfing
í samn-
ingamálum
Frá Jakobi Jónssyni,
fréttamanni Mbl.
í Stokkhólmi.
Í GÆR var gert opinber tilboð
sem sænska atvinnurekendasam-
bandið, SAF, lagði fyrir sænska
alþýðusambandið LO, og sam-
band starfsmanna einkaf.vrir-
tækja, PTK, en deiluaðilarnir
hafa ekki ræðzt við sfðan
samningar féllu úr gildi um
mánaðamótin jan.-feb. sbr. frétt í
Mbl. 20. janúar.
Tilboð það var því ekki lagt
fyrir aðalsamninganefndir aðila
fyrr en í dag. 1 tilboðinu leggja
atvinnurekendur til að samið
verði til 21 mánaðar eða til 31.
október 1979 og að fyrstu launa-
hækkanir samningstímans verði
1. nóvember á þessu ári. En þó er
gert ráð fyrir að þau rauðu strik
sem SAF og LO/PTK höfðu áður
komið sér saman um að yrðu í
samningunum verði tvsivar á
tímabilinu, 1. september ’78 og 1.
september ’79. Engar tölur voru
þó nefndar í þessu tiiboði. Sam-
kvæmt fréttum sænska útvarps-
ins í gærkvöldi þótti ljóst að þetta
væri tilboð sem launþegasam-
böndin gætu ekki gengið að, og
var það staðfest í dagblöðum i
morgun. A tilboðinu þykir þó
ljóst að SAF er reíðubúið að slá af
upphaflegum kröfum sínum sem
hljóðuðu upp á samning til 3ja
ára án kauphækkana á 1. ári.
Einnig þýkir ljóst að launþega-
samböndin eru líka reiðubúin til
að draga að einhverju leyti úr
upphaflegum kröfum sínum en
það er helzt til marks um það, að
þau hafa kallað saman aðal-
samninganefndir sínar sem rætt
hafa tilboðið í dag.
Upphaflegu kröfur LO/PTK
hljóðuðu upp á að samið yrði til
árs og að almennar kauphækkan-
ir yrðu á árinu auk sérstakra lág-
launauppbóta er næmu rúmum
2%. Engar fréttir hafa enn borizt
af viðræðunum í dag.
Samkomulagi í
Rhódesíu spáð
Gwelo, 10. febrúar. AP.
IAN Smith forsætisráðherra full-
vissaði í dag herafla Rhódesfu um
að stjórn hvfta minnihlutans
mundi ekki fallast á nokkrar
breytingar á skipulagi og yfir-
stjórn heraflans.
Bæði blökkumannahreyfing-
arnar í Rhódesíu og skæruliða-
hreyfingar handan landamær-
anna setja það skilyrði í viðræð-
um um friðsamlega lausn
Rhódesíudeilunnar að þær hafi á
hend.i stjórn öryggismála á aðlög-
unartíma þeim sem gert er ráð
fyrir áður en meirihlutastjórn
blökkumanna verður komið á
laggirnar. Bretar og Bandaríkja-
menn stungu fyrst upp á friðar-
gæzlu á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, en lögðu síðan til að friðar-
gæzla yrði í höndum sameiginlegs
liðsafla Rhódesíumanna og
skæruliða.
Smith sagði að öryggissveitir
Rhódesíu efldust með hverjum
degi og styrktu þar með samn-
ingsaðstöðu hans. Hann sagði að
þeir sem héldu að hvitir menn
gætu haldið áfram að lifa þvi lífi
sem þeir hefðu lifað undanfarin
50 ár byggju í fílabeinsturni.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum er tilkynningar ef til
vill að vænta snemma í næstu
viku um samkomulag í viðræðum
Smiths við Abel Muzorewa
biskup, séra Ndabaningi Sithole
og Jeremiah Chirau ættarhöfð-
ingja um lausn Rhódestudeilunn-
ar.
Samkomulagið hefur tafizt
vegna ágreinings um hvort kjör-
skrá skuli vera ein eða tvær, önn-
ur fyrir svarta menn og hin fyrir
hvíta. Afstaða biskupsins ræður
úrslitum og hann hyggst taka af-
stöðu um helgina. Hann hefur
orðið fyrir þrýstingi frá stuðn-
ingsmönnum sem hafa samúð
með leiðtogum skæruliðahreyf-
inganna, Joshua Nkomo og
Robert Mugabe.
Samningur Færeyja
og EBE staðfestur
SAMTAKA NÚ — Þrír menn í 20 manna vinnuflokki sem reisir nú
pýramída að fornum hætti leggja hér hart að sér við að færa til stóran
stein. Verður steinninn h.vrningarsteinn pýramída sem verður sá
fvrsti sem rís í Egyptalandi í 4000 ár. Það eru Japanir sem beita sér
fyrir smíðinni, en þeir hafa fengið egypzka verkamenn til liðs við sig.
AP-mvnd.
Þórshöfn, 10. febr.
Einkaskcyti til MorKunblaðsins.
LÖGÞING Færeyja hefur staðfest
fiskveiðisamning þann sem var
gerður 1 fyrri viku milli fulltrúa
landsstjórnar Færeyja og Efna-
hagsbandalagsins. Var samning-
urinn staðfestur í Lögþinginu
með nítján atkvæðum, en sjö
greiddu ekki atkvæði. Samning-
urinn felur í sér að friður verði
varðandi fiskveiðimál milli Fær-
eyja og EBE allt árið 1978.
í samningnum er gert ráð fyrir
Polanski hefst aftur
handa við kvikmyndun
að brezk skip megi veiða sjö þús-
und tonn af þorski og ýsu við
Færeyjar. Er þetta minni kvóti en
á árinu 1977, Franskir og vestur-
þýzkir togarar mega veiða 25 þús-
und tonn af ufsa á færeyskum
miðum. Auk þess mega þeir veiða
7 þúsund tonn af karfa, 6 þúsund
tonn af blálöngu, 1500 tonn af
löngu og 500 tonn af keilu.
A móti kemur að færeysk skip
mega veiða 29 þúsund tonn af
skítfiski í Norðursjó, 10 þúsund
tonn af tóbis og 30 þús. tonn af
brislingi. Færeysk skip mega
veiða 1000 tonn af síld í Skagerak
og annað eins vestur af Skotlandi
og loks fá Færeyingar heimild til
að veiða 8500 tonn af rækju við
Vestur-Grænland.
Þess má geta að einn fulltrúi
Lýðveldisflokksins Erlendur Pat-
ursson sem er formaður markaðs-
nefndar Lögþingsins greiddi ekki
atkvæði með tillögu landsstjórn-
París 10. feb. Reuter
Kvikmyndaleikstjórinn Roman
Polanski, sem nýlega flýði frá
Bandarfkjunum, ætlar sér að
dvelja til langframa í Frakklandi
og einbeita sér á ný að kvik-
myndastjórn, að því er lög-
fræðingur hans skýrði frá í dag.
Polanski hefur ákveðið að snúa
ekki til Bandaríkjanna til að vera
þar viðstaddur réttarhöld sem
fjalla um meint kynferðislegt
samband hans við 13 ára gamla
stúlku.
Lögfræðingur Polanskis,
Georges Kiejman, sagði að leik-
stjórinn tryði ekki lengur á sann-
gjarnt réttarhald í máli sinu þar
sem dómarinn hefði þegar gengið
á bak orða sinna í ýmsum atrið-
um. Sagði lögfræðingurinn, að
dómarinn hefði haft í hyggju að
dæma Polanski til fangelsisvistar
og síðan að gera hann landrækan.
Upphaflegar sættir i máli leik-
stjórans voru á þá leið, að hann
dveldi í fangelsi í 90 daga til
sálfræðilegrar rannsóknar.
Rannsókninni lauk eftir 42 daga
og var ekki talin ástæða til að
Polanski sæti í fangelsi þá daga
sem á vantaði.
Hvarf Polanski úr landi þegar
hann komst á snoðir um áætlanir
dómarans, sem hann taldi brot á
Framhald á bls. 25.
Erfiðleikar
í norskum
skipasmíðum
á árinu
r
j
i
Þetta gerðist 1L febrúar
1977 Jimmy Carter
Bandaríkjaforseti seg-
ist hafa á prjónunum
áform um að senda
bandaríska nefnd til
Norður-Víetnams til
að ræða um týnda
bandaríska fanga og
fleiri atriði.
1976 Bandaríska
leyniþjónustan CIA
bannar aó bandariskir
blaðamenn og trúboð-
ar séu ráðnir í CIA
1975 Margaret
Thatcher er kjörin
leiðtogi brezka íhalds-
flokksins, fyrst
kvenna til að leiða
stjórnmálaflokk í
Bretlandi.
1972 Bandaríkin og
Sovétríkin gera með
sér samning um felur i
sér samvinnu á sviði
krabbameinsvarna og
lækninga.
1970 William
Rogers, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna,
situr fund með Haile
Selassie Eþíópiukeis-
ara í Addis Abeba.
1968 1 Suður-
Víetnam taka her-
menn kommúnista af
lífi 300 óbreytta borg-
ara og dysja þá í
fjöldagröf við Hue.
1965 T: ss-
fréttastofan segir frá
því að eitt hundrað
sjómenn að minnsta
kosti hafi drukknað er
fjórir sovézkir togarar
farast í ofsaveðri í
Beringshafi.
1964 Grikkir og
Tyrkir berjast við
Limassol á Kýpur.
1963 Bandaríkja-
stjórn viðurkennir
nýja stjórn í irak eftir
byltingu.
1959 Laos tilkynnir
að það muni viður-
kenna Sameinuðu
þjóðirnar sem sátta-
semjara í alþjóðadeil-
um
1945 Yaltasamkomu-
lagið er undirritað af
Roosewelt Bandaríkja-
forseta, Churchill for-
sætisráðherra Breta
og Stalín forsætisráð-
herra Sovétríkjanna.
1922 Niuríkja-
samningurinn undir-
ritaður í Washington
til að tryggja sjálf-
stæði Kína.
1920 Viðskiptanefnd
Þjóðabandalagsins
heldur sinn fyrsta
fund í London.
1810 Napoleon
gengur að eiga Marie
Lousie af Austurriki.
1798 Franskar her-
sveitir taka Róm
1744 Sjóorrusta við
Toulon milli Breta
annars vegar og sam-
einaðra sveita Frakka
og Spánverja hefst.
1531 Hinrik VIII
viðurkenndur sem
æðsti maður kirkjunn-
ar í Englandi.
Afmælisbörn dags-
ins: Thomas Alva Edi-
son, bandarískur upp-
finningamður (1847
— 1931), Sir Vivian
Fuchs brezkur land-
könnuður (1908 — ),
Kim Stanley, banda-
rísk leikkona (1925 -).
Orð dagsins: Hvert
göfugt verk virðist í
fyrstu óviðráðanlegt,
— Thomas Carlyle,
skozkur rithöfundur
og sagnfræðingur
(1795 — 1881).
BÚIZT er við vaxandi erfiðleik-
um í norskum fiskiskipaiðnaði á
árinu 1978 að því er segir í frétt-
um frá Noregi. 1 könnun sem gerð
hefur verið á vegum opinberra
aðila kemur í Ijós að þrjátíu af
sjötfu skipasmíðastöðvum sem
hafa sérhæft sig í að byggja fiski-
skip gera ráð fyrir atvinnuleysi
eða verkaskorti á árinu og hafa
niðurstöður skýrslunnar verið
sendar til viðkomandi ráðuneytis.
Hafa færri pantanir borizt um
skipasmíði en áður.
Til að tryggja vinnu á svipuðu
stigi og nú myndu stöðvarnar
þurfa fjörutíu pantanir á bátum
sem eru milli 50 og 150 fet að
stærð. Til að fjármagna smíði svo
margra báta myndi þurfa að
minnsta kosti 200—300 millj.
norskar krónur en útlánamörk
Útvegsbankans norska eru nú slík
að hann gæti aðeins veitt hluta af
þessari upphæð. Talsmenn bank-
ans segja að þörfin sé mikil fyrir
að viðhalda stöðugleika í vinnu og
er búizt við niðurstöðu fljótlega
um hvort bankinn treystir sér til
að gera breytingar á útlánaregl-
um sínum.