Morgunblaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
-----------------\
Meistaramót
í fimleikum
MEISTARAMÓT íslands i fim
ieikastiganum verður haldið
íþróttahúsi Kennaraháskólans
dag og á morgun. Keppni pilta
hefst þar klukkan 15 i dag
klukkan 10 fyrir hádegi á morgun
verður keppt i 2 aldursflokkum
stúlkna 12 ára og yngri og 1 7 ára
og eldri. Á morgun klukkan 15
verður keppt i flokkum stúlkna
13—14 ára og 15— 16 ára.
Punktamót
skíðamanna
PUNKTAMÓT skiðamanna verða
haldin á tveimur stöðum um helg
ina. Á Húsavik verður keppt
alpagreinum. svigi og stórsvigi,
og væntanlega verða tveir af HM
keppendum íslands. þeir Haukur
Jóhannsson og Hafþór Júliusson
meðal keppenda. í Siglufirði
verður keppt i norrænum grein
um. göngu og stökki. í göngu eru
margir keppendur á öllum aldri
allt frá 13 ára til fertugs. f stökki
eru keplendur hins vegar aðeins
frá Ólafsfirði og Siglufirði, en
stökk er varla iðkað annars stað
ar á landinu.
Stéfánsmót
hinna yngstu
YNGSTA skiðafólkið verður
sviðsljósinu á morgun er keppt
verður i svigi í barnaflokkum á
Stefánsmótinu. Keppnin fer fram
við KR skálann i Skálafelli. Spill
ist veður verður mótið flutt til
laugardags.
Rafhahlaup
FH INGAR gangast fyrir Rafha
hlaupi fyrir unglinga á Hafnarfirði
á sunnudag. Hefst hlaupið við
Lækjarskólann kl. 14.
Borötennis
í Reykjavík
REYKJAVlKURMÓT i borðtennis
fer fram i Laugardalshöllinní á
morgun. Mótið hefst klukkan 13
með keppni í einliðaleik ungl
inga, tvenndarkeppni og einliða
leik öðlinga. Milli klukkan 15 og
16 hefjast siðan tviliðaleikir. Ein
liðaleikur karla og kvenna byrjar
um klukkan 18 og i lokin verða
úrslit i öllum flokkum.
. .og á Akureyri
NÚ STENDUR yfir flokkakeppni i
borðtennis um allt iand tg er
borðtennisdeild KA þátttakandi i
þeirri keppni. i dag leika i fþrótta-
húsi Glerárskóla lið Gerplu og
unglingalið Amarins gegn liðum
KA í þessum flokkum. Hefst þessi
keppni klukkan 16.45.
Sveinar, meyjar,
drengir, stúlkur
Frjálsiþróttafólkið af yngri kyn-
slóðinni verður i sviðsljósinu á
Akranesi á sunnudaginn, en þann
dag klukkan 11.30 hefst meist-
aramót þeirra innanhúss. Keppt
verður i flokkum sveina. meyja.
drengja og stúlkna.
Búist viö
aö met fjúki
í átökunum
Unglingameistaramót Íslands i
fyftingum fer fram i anddyri
Laugardalshallarinnar i dag og
hefst keppnin klukkan 14. Yfir
20 keppendur eru skráðir til leiks
frá fimm félógum og héraðssam-
böndum. Margiraf beztu lyftinga-
mónnum landsins og landsliðs
menn í íþróttinni eru á meðal
keppenda og má fastlega gera HM
ráð fyrir a8 einhver íslandsmet
anna verði undan að láta í átök- í
um ungu rnannanna K
Knattspyrnu- N A T
dómarar T
AÐALFUNDUR Knattspyrnudóm- S
arafélags Reykjavikur verður P
haldinn 16. febrúar næstkomandi Y
í Kaffiteríunni og hefst klukkan R
20.30 Veniuleg aðalfundarstörf N
^ J U
Taplausu liðin hefja
baráttunaí 1. deila
BARATTAN um Islandsmeistaratitilinn í Ilandknattleik, 1. deild
karla, hefst aó nýju með tveimur lcikjum í Hafnarfirði í dag. Nú eru
liðnir tæpir f jórir mánuðir síðan hlé var gert á keppni þeirra sterkustu
í handknattleiknum vegna æfinga og leikja iandsliðsins. Flest liðin
hafa þó leikið eitthvað og æft á þessu tímabili, þannig hafa Haukarnir
farið í keppnisferð til Danmerkur og Reykjavíkur liðin luku Reykja-
víkurmótinu i hléinu. Æfingar hafa ekki verið eins vel sóttar hjá
flestum liðum og æskilegt hefði verið, en síðustu tvær vikurnar hefur
verið kevrt á fullu.
Þau þrjú lið sem ekki hafa
tapað leik spila í dag og á mánu-
dag heldur keppnin í 1. deild
áfram.
Það er í rauninni nýtt íslands-
mót, sem byrjar núna og það lið,
sem bezt hefur notað fritímann
gæti gert stóra hluti í byrjun
seinni hlutans rheðan hin eru að
finna ,,formið“. Allir landsliðs-
mennirnir — að útlendingunum
undanskildum — verða í sviðs-
ljósinu með liðum sínum um
helgina. Æfingar þeirra með
landsliðinu eiga örugglega eftir
að koma þeim til góða í íslands-
mótinu og trúlega verða ýmsir
þeirra í betri æfíngu en nokkru
sinni áður, því æfingar voru
strangar fyrir HM, þó árangur
yrði ekki betri en raun ber vitni.
E.t.v. kunna vonbrigði með
frammistöðuna i Danmörku að
skína í gegnum leiki einhverra
þeirra, en það kemur allt í Ijós 1
dag og á morgun.
A öðrum stað á síðunni er tafla
með leikjum helgarinnar í efstu
deildunum, on hér fer á eftir
staðan í 1. og 2. deild, marka-
hæstu leikmenn 1. deildar og listi
yfir þá leikmenn, sem hlotið hafa
flest stig í einkunnagjöf blaða-
manna Morgunblaðsins. Eins og
sést á stöðunni hafa liðin leikið
mismunandi marga leiki, en tvö
lið eru með fullt hús stiga,
Vikingur og FH, en Haukarnir
hafa ekki tapað leik í mótinu til
þessa. Armenningar eru á botnin-
um og hafa ekkert stig hlotið og
það vekur athygli þegar staðan er
rifjuð upp að íslandsmeistarar
Vals hafa tapað 2 af þremur
leikjum sinum.
Víkingur
FH
Haukar
IR
KR
Fram
Valur
Armann
3 00 69:48 6
2 0 0 44:35 4
1 2 0 55:53 3
1 1 1 58:61 3
1 1 2 81:87 3
0 2 1 62:64 2
1 02 51:52 2
003 47:67 0
KR hofur leikið 4 leiki í 1. deild-
inni og hefnr f.vrirliði þeirra,
Haukur Ottesen, hlotið 14 stig í
einkunnagjöf inni.
Brynjólfur Markússon, IR, hefur
skorað 26 mörk í íslandsmótinu
og er markahæstur.
Þór marði liö
Leiknis nyrðra
LEIKUR Þórs og Leiknis í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik, sem
fram fór á Akureyri á fimmtudag,
verður vart lengi i minnum hafður.
Óhætt er að segja, að þessi leikur sé
með þvi allra slakasta. sem sézt hefur í
handboltanum hér lengi vel Leikleys-
unni lyktaði með sanngjörnum sigri
Þórs, 21:20. og skoraði Sigtryggur
Guðlaugsson sigurmark Þórs úr víta
kasti eftir að leiktíma lauk
Þórsarar tóku forystu þegar í upphafi
og skoruðu fjögur fyrstu mörkin og
höfðu oftast 3 — 4 mörk yfir í fyrri
hálfleik. en staðan i leikhléi var 14 10
fyrir Þór Leiknir náði að saxa á forskot-
ið fljótt í semni hálfleiknum og náði að
jafna 16 16 um miðjan hálfleikinn
Síðan var jafnt á öllum tölum leikinn
út, þar til Sigtryggur skoraði úr víta-
kasti að leiktíma loknum eins og áður
sagði
Hjá Þór átti Aðalsteinn Sigurgeirs-
son sinn allra bezta leik í vetur, þá átti
Einar Björnsson einnig ágætan leik
Það var helzt að Hafliði Pétursson
stæði fyrir sínu í liði Leiknis en Finn-
bogi markvörður var einnig þokkaleg-
ur
Mörk Þórs: Sigtryggur 8 (7 v), Einar
6, Valur 3, Aðalsteinn 2. Ragnar og
Jón 1 mark hvor
Mörk Leiknis: Hafliði 7, Ögmundur
4 (1 v), Guðmundur Kr 3, Árni og
Diðrik 2 hvor, Örn og Hörður 1 hvor
Dómarar: Halldór Rafnsson og
Stefán Arnarsson dæmdu leikinn og
var undirritaður ekki vel sáttur við
dómgæzlu þeirra
— Sigb. G.
Janus Guðlaugsson og félagar
í íþróttahúsinu í Hafnarfiröi í
hefst á nýjan Ieik.
Staðan í 2. deild:
Fylkir 12 8 1 3 235:219 17
HK 12 6 33 265:228 15
Stjarnan 11 6 1 4 232:210 13
Þróttur 11 6 1 4 232:221 13
KA 9 4 1 4 194:184 9
Þór 9 4 05 180:203 8
Leiknir 12 3 27 247:267 8
Grótta 10 1 1 8 182:229 3
Eftirtaldir leikmenn eru niark-
hæstir í 1,. deild:
.Brynjólfur Markússon, ÍR 26
Björn Pétursson, KR 23
Haukur Ottesen, KR 18
Jón H. Karlsson, Val 17
Ölafur Einarsson, Víkingi 16
Símon Unndórsson, KR 16
Þorbergur Aðalsteinss., Vík. 15
hans í FH-Iiðinu mæta KR-ingum
dag er keppnin í 1. deildinni
Elías Jónasson, Haukum 14
Þórarinn Ragnarsson, FH 13
Björn Jóhannesson, Ármanni 11
Guðjón Marteinsson, Fram 11
Jón Pétur Jónsson, Val 11
Viggó Sigurðsson, Víkingi 11
Stigahæstir í einkunnagjöf
Morgunblaðsins eru eftirtaldir
leikmenn:
Haukur Ottesen, KR 14(4)
Brynjólfur Markússon, ÍR 11(3)
Björn Pétursson, KR 11(4)
Jóhannes Stefánsson, KR 11(4)
Símon Unndórsson, KR 11(4)
Kristján Sigmundss.,
Víkingi 10(3)
Gunnar Einarsson, Haukum 9(3)
Arni Indriðason, Vikingi9(3)
Leikið í dag
og á mánudag
Æ ■ ■■■■ ■
11. deildinni
Ilandknattleikur helgarinuar í 1. og 2. deild karla og 1. deild
kvenna:
1. DEILD KARLA:
Hafnarfjörður, laugardag kl. 15. Haukar — Vikingur.
Hafnarf jörður kl. 16.15. FH — KR.
Laugardalshöll, mánudagur kl. 20.30. Fram — Ármann.
Laugardalshöll kl. 21.45. IR — Valur.
2. DEILD KARLA:
Laugardalshöll, laugardagur kl. 15.30. HK — KA.
1. DEILD KVENNA:
Laugardalshöll, laugardag kl. 16.45. Fram — KR.
Laugardalshöll kl. 17.45. Valur — Þðr, Ak.
Hafnarfjiirður, sunnudag kl. 14.20. Ilaukar — Þór.
Laugardalshöll, mánudagur kl. 19.30. Ármann — F'ram.
. -rnsAÍ
fcCKJ A T-rs Pw e. KS o CVJ
f! !tT U'r&uOKiy
X FAK.Ö 4&F5T OiOoie-
ÖÚfOÍrOcrUií kJ/^s>ro
HtÍMStJÍfcAeí <SPPlO( f
£-\> HoePo>'Z- SE.O
HtíilAS'aTWiejÖUÖ. ...